Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 67„ AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR P 1 Samkeppni raforkumálum UM ARATUGI hefur á íslandi i-íkt sovét- ástand í raforkumálum, og svo er enn. Enginn má vii-kja vatnsafl né jarðhita til raforkufram- leiðslu, nema opinber stofnun sem sérlög gilda um. Helst vei'ður þó stofnunin að vera Landsvirkjun eða stór eignaraðili að henni. Detti öðrum í hug slík virkjun er samrekstrar- samningur við Lands- virkjun gerður að skil- yrði. . . Allan þann tíma sem Arni Ragnar þessi skipan hefur ríkt Arnason hefur einungis einn aðili á landinu starfað að kynningu land- kosta á íslandi fyrir fjáiíestum sem hafa kynnu áhuga á orkufrekum iðn- aði hérlendis, þ.e. Landsvirkjun, síð- ar Markaðsskrifstofa iðnaðarráðu- neytis og Landsvirkjunar (MIL). Ef- laust eru ástæður til þess að svo virðist sem fábreytni hafi orðið ofan á í vali verkefna eða framleiðslu sem til athugunai- hefur komið. Áratugir liðu frá byggingu fyrsta álversins þar til hið næsta var komið á prjóna- na. Á því tímabili varð þó af bygg- ingu einnar kísiljárnverksmiðju, en það dugði ekki til að koma í veg fyrir stöðnun á þessu sviði. Ný skipan boðuð - en geymd Snemma á því kjörtímabili sem nú er senn á enda var boðið upp á nokkrar væntingar um breytta skip- an, þegar sett var á stofn nefnd á vegum iðnaðarráðherra um framtíð- arskipan raforkumála. Skýrsla henn- ar fól í sér tillögur um undirbúning að samkeppni raforkufyrirtækja við Breytt eignarform, segir Árni R. Arnason, krefst þess að skilyrði fyrir virkjunarleyfum verði almenn. markaðsumhverfi. Skömmu síðar dró bliku á loft þegar fram kom sam- komulag eigendanefndar Lands- virkjunar. Þar var um það samið, að engar breytingar skyldu verða á ein- okunarstöðu hennar fyrr en 2004, og að auki um stórauknar arðgreiðslui- til eigenda hennar. Þó stofnunin beri nafnið Landsvirkjun, eru landsmenn ekki eigendur hennar að jöfnu. Ríkið á 50%, Reykjavíkui’borg 45% og Akureyri 5%. Allar orkuveitm- lands- ins era skuldbundnar til að kaupa raforku í heildsölu af Landsvirkjun og gildir einu þó þær geti sjálfar virkjað og framleitt ódýrari raforku en Landsvirkjun. Á síðasta þingi var lögð fram til- laga iðnaðairáðheiTa til þingsálykt- unar um framtíðarskipan raforku- mála. Hún fól í sér skilgreiningu þess undirbúnings sem fram þarf að fara til að samkeppni verði komið á í stað þeirrar miðstýringar sem nú ríkir og drög að tímaáætlun um framkvæmdina. Tillagan varð út- rædd í iðnaðarnefnd þingsins, en af- greiðslu hennar vai- frestað á síðustu dögum þess. Breytingar nauðsynlegar Þó þingsályktunai-tillagan hafi ekki verið afgreidd s.l. vor hefur undirbúningi verið fram haldið og á yfirstandandi þingi er þess að vænta að fram komi frumvarp til nýrra laga um raforkumál. Með því koma fram ný ákvæði um almenn skilyrði sem gerð verða til fyrirtækja sem óska heimilda til raforkuvirkjunar, í stað sérlaga um hverja einstaka virkjun án almennra skilyrða. Augljóst er að gríðarlega mikið undirbúningsstarf er enn óunnið, m.a. við skilgreiningu flutningsnets milli virkjana og dreifi- veitna eða afhendingarstaða og sitt hvað fleira sem því tengist. Þessu undii'- búningsstarfi verðui- að sinna, svo mikilvægt er að gera breytingar í frjálsræðisátt. Mikilvægi þess byggist á mörgum for- sendum og má nefha nokkrar. 011 raforku- fyrirtæki landsmanna í dag eru eign ríkisins eða sveitarfélaganna, eða sameign þeirra. Stór viðfangsefiii eru fram undan og því ljóst að þegar þar að kemur þarf að leggja fram vemlegt fé til fram- kvæmda. Fram til þessa hefur beint framlag þessara eigenda verið takmarkað, og þeir eru ekki líklegii- til breytinga á þvi. Þess vegna stefnir í það að eigið fé til nýrra virkjunarframkvæmda verði að koma frá öðrum aðilum, þ.e fjár- festum sem kaupa vilja hlut í orku- fyrirtækjum. Eignarfyrii-komulagi fyi-iitækjanna verður því að breyta. Breytt eignarform krefst þess að skilyrði fyiir virkjunarleyfum verði almenn og að lagaumhverfi segi til um þau skilyrði sem gilda skulu um framkvæmdir og starfsemi. Biýnt er að önnur raforkufyrir- tæki fái tækifæri til að sýna hver kostur er að hugmyndum þeirra um hagkvæmar virkjanir og að sýna hvemig þau standa sig við að afla er- lendra fjárfesta til að stunda orku- frekan iðnað er geti orðið uppistaða markaðssetningar þeirra orku sem virkjuð verður. Ljóst er að fjölgun þein-a sem stunda þetta starf mun leiða til þess að fleiri viðskiptasam- bönd nýtast og myndast, aukinnar fjölbreytni í hugmyndum sem til skoðunar koma og síðar til aukinnar Qölbreytni í iðnaði. Þetta má rekja af þeim hugmyndum sem komið hafa til athugunar af hálfu Hitaveitu Suður- nesja og þeirra aðila sem hún hefur tekið upp samstarf við í þessu sam- bandi. Gallinn er bara sá, að Hita- veita Suðumesja á ekki eignarhlut í Landsvirkjun, og fær ekki að virkja þó svo brýna nauðsyn beri til vegna endurnýjunar elsta hluta orkuvers- ins í Svartsengi. Þessu ástandi verðui' að breyta til batnaðar. Höfundur er alþingismaður og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins i Reykjancskjördæmi. Stjórnmál í þágu almennings STJÓRNMÁL eiga að snúast um að bæta hag fólks og búa í hag- inn fyrir framtíðina. Eg býð mig fram fyrir flokk sem vill vinna að þessum markmiðum með þjóðlegri og víð- sýnni umbótastefnu á gi'undvelli atvinnufrels- is og einstaklingsfrelsis með hagsmimi allra stétta fyrir augum. Eg sækist eftir 2. sætinu á lista Sjálfstæðisflokks- ins á Reykjanesi vegna þess að ég vil gefa þess- um orðum innihald. Víðsýni, þjdðleiki, umbætur Ég vil auka víðsýni með því að skoða hvert álitamál af heiðarleika, samviskusemi og vandvirkni og Ef mín rödd heyrist í Sjálfstæðisflokknum, segir Markús Möiler, þá verður stærsta hagsmunamál allra stétta skoðað af meiri víðsýni og þekkingu. leggja upplýsingamar fyiir almenn- ing á eins ljósan og aðgengilegan hátt og hægt er. Þjóðleikann vil ég rækja með því að gera lífsskilyrðin í landinu svo góð að krakkarnir okkar viiji helst af öllu vera Islendingar. Umbótastefnan þýðir að með hverri kynslóð þarf að bæta atvinnu- skilyrði og lífskjör, með betri og markvissari menntun, þjónustu og lagaramma fyrir nýsköpun í at- vinnulífinu. En við þurfum einnig að nýta auðlindirnar sem við eigum í sjó og á landi svo þær gagnist al- menningi sem best. Frelsi Atvinnufrelsið er til þess að leysa úr læðingi krafta sérhven-ar vinnu- fæn-ar manneskju, því þegar fólk Markús Möller vinnur fyrir sjálft sig og fjölskyldu sína í frjálsri og opinni sam- keppni, þá gagnast það ekki bara sjálfu sér, heldur einnig sam- borgurunum. Einstaklingsfrelsið þýðir að fólk ráði sjálft örlögum sínum og stjórnun landsmála. Ég vil auka bein áhrif fólks. Til dæmis má nefna, að þegar við veljum milli virkjana og varðveislu á hálend- inu, þá þarf að liggja skýrt fyi-ir hverjir fjár- hagslegu ávinningarnir eru og hverju er fórnað í náttúruperlum. Svo á að leysa úr málum samkvæmt landinu. vilja fólksins í Kvótinn og hagsmunir allra stétta Ég vil vinna með hagsmuni allra stétta fyrir augum. í því felst að efla atvinnusköpun og framfarir, en líka að gæta jafnréttis og halda utan um' ” þá sem minnst mega sín með mark- vissum almannatryggingum og heil- brigðisþjónustu og sanngjömu skattakerfi. Við þurfum atvinnulíf sem keppist um að bæta hag almennings. Til þess þarf samkeppnin að vera um vinnuafl almennings eða viðskipti við almenning. Sérstaða mín í þessu prófkjöri byggist á því að ég veit, að sam- keppnin sem kvótakerfið skapar er ekki af þessum toga. Sjávarútvegur- inn er að fækka störfum og hann erOr að selja til útlanda. Samkeppnin hér heima verður fyrst og fremst um kvóta en ekki um vinnuafl og við- skipti fólks. Ef mín rödd heyrist í flokknum, þá mun þetta stærsta hagsmunamál allra stétta verða skoðað af víðsýni og þekkingu og ég mun brýna samherjana til að gera það sem kemur almenningi best. Ég býð mig fram vegna þess að ég get gert framtíð þjóðarinnar betri og gert sjálfstæðismenn stoltari af flokknum sínum. Höfundur er hagfræðingur og sæk- ist eftir 2. sætinu íprófkjöri sjálf- stæðismanna á Reykjanesi. HOTEL SKJALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16 NYTT HOTEL A BESTA STAÐ í MIÐBORGINNI VETRARTILBOÐ Verðfrá kr. 2.700 á mann í 2ja manna berbergi. Morgunverðarblaðborð innifalið. Frir drykkur á veitingabúsinu Vegamótum. Simi 511 6060, fax 511 6070 guesthouse@eyjar.is www.gagnagrunnur.is HeímFIutt þekkÍNq Laugardaginn 14. nóvember kl. 14 - 16 Kynningarfundaröð fslenskrar erfðagreiningar Dr. Ásgeir Björnsson: Hvernig stöðvast nýmyndun próteina? Asgeir starfar sem sérfræðingur á rannsóknarstofu íslenskrar erfða- greiningar. Hann lauk B.S. gráðu í líffræði frá Háskóla íslands 1984 og hóf doktorsnám við örverufræöideild Upp- salaháskóla en lauk því við Stokkhólms- háskóla 1994. í erindi sínu ræðir Ásgeir um prótein sem aðalefnahvata lifandi fruma. Gestum fundarins gefst kostur á að skoða rannsóknarstofur íslenskrar erfða- greiningar undir leiðsögn vísindamanna og þiggja kaffiveitingar að því loknu. S L E N S r f 6 a g r e i n i Lyngháls 1,110 Reykjavík K n g
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.