Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 56

Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 56
56 LAUGAKDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, WERNER P.H. TESSNOW, Gullsmára 11, Kópavogi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 8. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju mánu- daginn 16. nóvember kl. 13.30. Unnur Tessnow, Baldvin Karin Jaap, Erna Federling Jóhanna Jóhannsdóttir, Hulda Björg Baldvinsdóttir, Jóhannes Kristjánsson, Hafdís Erla Baldvinsdóttir, Einar Ragnarsson, Helgi Magnús Baldvinsson, Bára Mjöll Ágústsdóttir og barnabarnabörn. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og lang- amma, LILJA V. HJALTALÍN ARNDAL, andaðist á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnar- firði fimmtudaginn 12. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði föstudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Jón Hj. F. Arndal, Margrét Jóhannsdóttir, Finnbogi F. Arndal, Hjördís S. Arndal, Kristjana F. Arndal, Þorgeir Þorgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær vinur minn, sonur okkar, faðir og bróðir, ALFREÐ BJARNI JÖRGENSEN múrari og tamningamaður lést af slysförum fimmtudaginn 12. nóvem- ber. Freyja Hilmarsdóttir, Guðrún K. Jörgensen, Bent Bjarni Jörgensen, Sigrún Ólafsdóttir, Per S. Jörgensen, Agnar Bjarni Jörgensen, Aðalheiður S. Jörgensen. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, ÓSKAR GÍSLASON, Smáratúni 39, Keflavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 13. nóvember. Kristín Grétarsdóttir, Grétar Óskarsson, Gísli Óskarsson, foreldrar, tengdaforeldrar og systkini. + Elskulegur eiginmaður minn og faðir, TORFI ÓLAFSSON, Nýlendugötu 7, lést á hjartadeild Landspítalans ac fimmtudagsins 5. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug Margrét Guðmundsdóttir, Jóna G. Torfadóttir. + Ástkær móðir okkar, ELÍSABET INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Árbæ, Reykhólasveit, lést á Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt 12. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Börn hinnar látnu. UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR + Unnur Guðjóns- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 25. júní 1913. Hún lést á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 1. nóvem- ber síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Landa- kirkju 13. nóvember. Hún bjó í næsta húsi við okkur og var kölluð Unnur leikkona, enda prímadonnan í Leikfé- lagi Vestmannaeyja. Við kölluðum hana Attímo. Hún sagði alltaf eitthvað svoleiðis þegar hún sveif inn í eldhúsið heima, þreif yngsta bamið á heimilinu í fang- ið og dansaði polka um eldhúsgólfið. Við vorum komin til vits og ára þegar rann upp fyrir okkur ljós; hún var að syngja á dönsku: At De maa, huske paa o.s.frv. Stundum sleppti hún dansinum, beygði sig brosandi yfir vögguna og spurði: „Hvui- er nú sem ertu? Hvur heldurðu að geti verið það sértu“? Og drengurinn í vöggunni horfði heillaður á þennan sniiling í spurningalist. Seinna kölluðum við hana frú Hraðlöpp. Hún kallaði Helgu Jó- hannesdóttur hjúkrunarkonu, aðra stórstjörnuna í nágrenninu, frú Krosslöpp. En Ki’osslöpp var ekki sátt við nafngiftina fyrr en Hraðlöpp fékk sína. Morgunrútan hjá frú Hraðlöpp var að heimsækja Jónu systur í austurbænum og Þuru syst- ur á Hásteinsveginum. A leiðinni heim kom hún við hjá okkur. Þá var alltaf sett upp leikrit, hún lék, við horfðum á. Oftar en ekki sló klukkan tólf í miðju leikriti og Fúsi var á leið- inni upp Heiðarveginn í mat. Þá flaug hún hrópandi út úr dyrunum: „Ég verð að fara heim og teikna mat handa honum Fúsa.“ Stundum fékk hún að veiða nokkrar kartöflur upp úr pottin- um og stökk með þær sjóðheitar í lúkunum heim. Sumir sögðu að hún hefði hoppað jcfir vegginn milli húsanna svo hún sæist ekki frá götunni. En Fúsi vissi örugglega í hvaða potti þær voru soðnar. Hann lék líka sína rullu óað- finnanlega allt til enda. Það þyrfti heila bók til þess að rifja upp öll þau ævintýri sem hún skóp. Um hverja Týs- þjóðhátíð þegar illa leit út með veður stökk hún út á tröppur, horfði til him- ins og sagði: „Ég held að hann sé að ganga inn í sig.“ Lyftist þá brúnin á mannskapnum. Síðan hefur þessi setning verið notuð þegar illa lítur út með þjóðhátíðarveðrið. Ogleymanleg- ar eru kosninganæturnar. Því þrátt fyrir mikla vináttu náðu pólitískar skoðanir í þessu litla samfélagi yfir allt póhtíska litrófið og vai- óspart hlaupið milli húsa til þess að láta álit sitt í ljós. Henni brást ekki kímnigáf- an þá frekar en endranær. Einhvern- tíma guldu okkar menn mikið afhroð og hennai- líka, nema á einum smá stað bættu þeir við sig einu atkvæði. Kom hún þá sigri hrósandi og hróp- aði: „Mínir menn eru að vinna á!“ Af einhverjum ástæðum hafa flest- ar af vinkonunum á Heiðarveginum kvatt þennan heim í nóvember. I desember, eftir lát einnar þeÚTa, lýsti hún þvi yfir að hún væri svo slöpp og leiðinleg að nú færi hún að hrökkva upp af. Fékk hún það svar að hún væri búin að missa af því þetta árið því kellurnar á Heiðarveg- inum skildu við í nóvember. Þá breytti hún um tón og sagði: „Nújá, þá á ég svolítið eftir.“ Hún lést 1. nóvember sl. Unnur vai- ASTA OLOF ÞÓRÐARDÓTTIR + Ásta Ólöf Þórð- ardóttir var fædd í Neðri-Breiðadal, Önundarfirði, 22. mars 1905. Hún lést á DAS í Reykjavík 7. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Þórður Sig- urðsson vegaverkslj. og bóndi í Neðri- Breiðadal, f. 7.10. 1868 á Jörva á Kjal- arnesi, d. 17.11. 1956, og Kristín Ragnheiður Krist- jánsdóttir, f. 24.2. 1874, d. 26.2. 1936. Ásta átti fjögur systkini sem öll eru látin, Sigríður J., Sturla, Gróa S. og Guðmundur Sveinbjörn. Árið 1927 giftist Ásta eiginmanni sín- um Guðmundi Þor- keli Jónssyni frá Ytri-Veðrará, f. 17.9. 1896, d. 24.2. 1975, og eignuðust þau átta börn sem öll eru á lífi, Jón, Ásmund- ur, Dórótea, Þórður K., Gunnar, Steinar, Gústaf og Þórdís. Ásta og Guðmundur bjuggu lengst af á Flateyri en hún flutti að Bollagötu 2, Reykjavík, eftir að hún varð ekkja og síðar á DAS. Jarðsett verður í Holti, Önund- arfirði, í dag. Elsku amma, Hvar sem þú ferð um lög og láð þar liggur leiðin þín þar ljómar allt af birtu og yl ó, elsku amma mín. Þá bæn ég ber í bijósti mér þá er ég minnist þín að Guð hann ætíð verndi þig og blessi, amma mín. (Sig. Oskars.) Ég sakna þín. Far þú í Guðs friði. Þín nafna Ásta Gústafsdóttir. Mig langar að minnast ömmu í nokkrum orðum. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til ömmu á Bollagötuna. Þegar amma kom til dyra ljómaði hún öll og var alltaf jafn hissa að sjá að komnir væru gesth-. Að setjast við eldhúsborðið með ömmu, fá heimabakaðar kökur og hlusta á hana segja sögur frá því þegar hún var ung er eitthvað sem aldrei gleymist. Amma var líka til staðar ef mér lá eitthvað á hjarta, tilbúin að hlusta og gefa góð ráð. Amma var stórkostleg kona sem ég mun minnast með mikilli virðin,gu og söknuði. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystígarð drottíns í þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól Dóttir í dýrðar hendi Drottins mín sofðu vært hann sem þér huggun sendi hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifir nú. (Hallgr. Pétursson.) Guð geymi þig amma og verndi um alla eilífð. Bjarni Þór Gústafsson. alltaf nálæg, jafnt á gleðistundum og þegar sorgin knúði dyra og verður ógleymanlegur þáttur í lífi okkar. Afkomendur Svövu og Oddgeirs, Heiðarvegi 31 (fyrir gos). Hún Unnur okkar Guðjóns er horf- in af leiksviðinu, en minning hennar lifir í hugum okkar sem störfuðum með henni í Leikfélagi Vestmanna- eyja. Unnur hóf leiklistarferil sinn í Ki n n ai'hvol s systrum árið 1950 og sló svo rækilega í gegn að enn er í minn- um haft. Eftir þennan eftirminnilega leiksigur varð ekki aftur snúið, og má segja að Unnur hafi helgað Leikfélagi Vestmannaeyja næstu fjörutíu ár í lífi sínu meira og minna. Mörg eru þau hlutverkin sem hún túlkaði á sviðinu, og að auki var hún formaður félagsins í mörg ár, með allri þeirri vinnu og ábyrgð sem því fylgdi. Einnig var hún heiðursfélagi leikfélagsins. Að auki leikstýrði hún sjö leikverkum sem leikfélagið setti upp. Ógleymanleg er ferð sem leikfé- lagið fór með „Margt býr í þokunni“ um Vestfirði á árinu 1978. Þar lék Unnur eitt af aðalhlutverk- um og var eiginlega leiðtogi hópsins. Við sýndum víða við góðar undirtekt- ir, og sjálf höfðum við mikla ánægju af þessu leikferðalagi. Unnur var mikill húmoristi og sagði skemmti- lega frá. Það var alltaf glatt á hjalla í kringum hana. Hún var svo orðhepp- in og skemmtileg og maður gleymir ekki frumsýningarveislunum sem hún tók þátt í. Þar gat hún sameinað allan hópinn í allskonar leikjum svo maður tali nú ekki um þegar hún fór á kostum að segja sögur af sérkenni- legu fólki, og allir vitlausir úr hlátri. Síðasta hlutverkið sem hún tók að sér á vegum leikfélagsins var í revi- unni „Brimsorfnir klettar" árið 1989. Þar fór hún með kvæðið „Dóttir eyj- anna“ eftir Hafstein Stefánsson. Þar var hún í hlutverki gamallar konu sem rifjar upp ævi sína. Það var okkur mikil gleði að hún skyldi taka þetta að sér, því um þetta leyti var hún hætt að leika og heilsan farin að bila. Hennar er sárt saknað af öllum sem kynntust henni. Leikfélag Vestmannaeyja þakkar henni öU árin og sendir fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Unnur okkar, Far þú í friði, friður Guós þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem.) Félagar úr Leikfélagi Vestmannaeyja. Hvílík forréttindi að hafa átt sam- leið með þeim sem skilur eftir stórt skarð. Þau sannindi renna upp þegar við Alþýðuflokksfélagar kveðjum nú kvenskörunginn Unni Guðjónsdótt- ur, félaga okkar. Unnur var virkur félagi í Alþýðu- flokksfélagi Vestmannaeyja, hafði gengið ung að árum jafnaðarstefn- unni á hönd. Hún sat í félagsmála- ráði fyrir Alþýðuflokkinn nokkur kjörtímabil og voru málefni aldraðra henni einkar hugleikin. Hún sat einnig bæjarstjórnarfundi á árunum 1973 til 1978 ásamt fleiri nefndar- störfum sem hún tók að sér fyrir Al- þýðuflokkinn. Unnur var ætíð hress og kát og gott að leita til hennar með hin ýmsu málefni. Hún var drífandi persóna, það gustaði af henni og aldrei var nein lognmolla í kringum hana. Unnur bakaði heimsins bestu kleinur sem hún færði okkur í stór- um stíl á kosningaskrifstofuna fyrir hverjar kosningai'. Eftirminnilegt er okkur eldri flokksfélögum þegar þær vinkonur, Unnur og Marta, voru að skipuleggja sig fyrir kosningar og áttu þær engan sinn líka. Það er huggun harmi gegn að eiga góðar minningar um góða konu. Um leið og við kveðjum Unni og þökkum henni samfylgdina viljum við senda Sigfúsi, börnum, barnabörnum og öðrum aðstandendum innilegar sam- úðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Alþýðuflokksfélagar í Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.