Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
HVAÐ KOSTAR DELLAN?
lnð
Golf nýtur vaxandi vinsælda meðal al-
mennings enda aðgengilegt sport, sem
hentar fólki á öllum aldri. Sveinn Guðjóns-
son kynnti sér umstangið og kostnaðinn
sem því er samfara að stunda golfíþróttina
og komst að raun um að fjárútlát vegna
hennar eru ekki svo ýkja mikil í saman-
burði við ýmis önnur áhugamál manna.
Morgunblaðið/Halldór
Kostnaður
GOLF er upprunnið í
Skotlandi og elstu rituðu
heimildir um það eru frá 15.
öld. Fyrsta golfkeppnin fór
fram í Edinborg 1744 og framan af
var golfið einkum stundað af yftr-
stéttarfólki og heldri mönnum. Það
er liðin tíð og golfið er nú almenn-
ingsíþrótt, enda aðgengilegt og hent-
ar fólki á öllum aldri. Til að stunda
golfíþróttina af reisn þurfa menn
vitaskuld að koma sér upp góðu
golfsetti, með tilheyrandi fylgihlut-
um og þeir sem stunda golfið af
ástríðu verða að gefa sér góðan tíma,
en það eru gömul sannindi og ný að
tíminn kostar líka peninga.
Þótt golftímabilinu hafi formlega
lokið með Bændaglímunni fyrstu
helgina í október eru sumir vellir
þeirrar náttúru, að hægt er að spila
þar allt árið, ef Vetur konungur er í
mildu skapi. Einkum eru það vellir
sem standa nálægt sjó á suð-vestur-
homi landsins. Þar að auki geta
menn lengt tímabilið með golfferðum
til suðlægari landa ef efni og ástæð-
ur leyfa. Og vitaskuld þurfa golfarar
að vera búnir góðum útbúnaði til að
standa undir nafni.
Golfsettið
Nevada Bob er alþjóðleg verslun-
arkeðja með golfvörur og undir því
merki eru reknar um 400 verslanir
víða um heimsbyggðina. Ein slík er í
Reykjavík og þar tekur á móti okkur
Hans Henttinen, einn af fjórum eig-
endum íslensku golfverslunarinnar
Nevada Bob, en hann er jafnframt
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
„Við skulum byija á að skoða
járnasett frá Amold Palmer," segir
Hans þegar ég bið hann um að velja
fyrir mig gott jámasett. „Þetta
myndi ég selja kylfingi, sem er ekki
byrjandi heldur kominn eitthvað
áleiðis og vill fá góðar kylfur. Astæð-
an fyrir því að þetta sett verður fyrir
valinu er að hérna ertu með gott
True Tempcr-ska.it, og góðan
Oversize-stálhaus. Það er mikið at-
riði, þegar menn eru að leita sér að
kylfum hvort heldur er hér á
landi eða erlendis, að vera
vissir um að hausinn sé
úr stáli og að skaftið
sé gott. Aldrei að
kaupa kylfu með
ómerktu skafti.
Verðmunur á
kylfum liggur
að miklu leyti
í skaftinu.
Þetta sett
kostar
29.900 krón-
ur og þá erum
við að tala um fullt
járnasett með
níu kylfum, það
er frá jámi
númer 3 og nið-
ur í sandjárn.
Trékylfurnar,
sem ég vel með þessu,
eru einnig frá sama merki
PXI Palmer, en þær kosta
8.400 krónur hver, en viðkomandi
myndi væntanlega kaupa tré númer
1,3 og 5 ef hann vill vera með fullt
sett. Síðan er það „pútterinn“ og
þótt alltaf sé ei-fitt að velja „pútter“
fyrir aðra þá myndi ég í þessu tilfelli
benda á „pútter“ frá Palmer á 2.200
krónur. Hér er viðkomandi kominn
með fullkomið sett, 13 kylfur í pok-
ann, allar frá sama framleiðanda og
allar kylfumar eru með True
Temper-skafti. Sem sagt alvöru kylf-
ur og mjög góð kaup að mínu mati.
Það er reyndar ekkert atriði að hafa
allar kylfurnar í pokanum frá sama
framleiðanda. Margir eru með jáma-
settið frá einum framleiðanda og tré-
kylfur í einhverju öðru merki. Og við
eigum auðvitað ódýrari kylfur en
þessar sem ég valdi, til dæmis byrj-
endasett frá Howson/Hippo þar sem
fullt sett með 13 kylfum kostar
27.900 krónur. Gæðin í þessu setti
era meiri en í venjulegum byrjenda-
settum því þarna ertu einnig með
Tive Temper-skaSt og stálhaus.
Kosturinn við þessar kylfur er að
þær era einnig seldar í stykkjatali.“
Hans sagði að ef menn væra hins
vegar í keppnisskapi og vildu eitt-
hvað verulega flott (og dýrt) þá
mætti nefna nokkrar tegundh- af
jámasettum á verðbilinu 45 þúsund
til 90 þúsund. Þessar tegundir væru
Ping - Taylor Made
Callaway - Palmer - John
Letters - Titleist - King
Cobra og Wilson. „Það
era ýmsir þættir sem
ráða verðinu,“ sagði
Hans. „Gæðin, efn-
ið, skaftið og
einnig merkið.
Það er enginn
vafi á að
kylfur seljast út á merkið. Ef við
tökum til dæmis John Letters-
kylfumar, sem era ódýrastar í
þessum hópi, þá fullyrði ég að
þær era ekkert síðri en sumar
aðrar, sem kosta 20 til 30 þús-
und krónum meira. John
Letters hefur framleitt kylf-
ur síðan 1918 og er virtur
skoskur framleiðandi sem hefur
verðlagt sig lægra en margir aðr-
ir í sama gæðaflokki. Það
stafar af því að hann hefur
ekki náð sterkur inn á
Bandaríkjamarkað,
sem stýrir því að
miklu leyti hvem-
ig varan er verð-
lögð.“
Fatnaður og
fylgihlutir
Þá eru það
golfpokamir.
Hans segir
að margir
kylfingar,
sérstak-
lega
ungir
karlmenn,
Járnasett (9 kylfur) kr. 30.000
Trékylfur (3 kylfur) 25.000
Pútter 2.200
Alls kr. 57.200
Fatnaður og fylgihlutir
Kerrupoki kr. 9.900
Álkerra a 4.800
Regngalli 12.000
Golfskór yjj/A 7.000
Sixpensari 1)1 1.900
Golfbuxur mTm 5.000
Golfhanski 1 l 790
Regnhlíf 1.200
Kylfuhlífar (á 3 trék.) 1.450
Járnahlífar 1.300
Hlífðarpoki 4.000
Boltapakki (18 boltar) 1.980
Kylfubursti 390
Flatargaffall 80
Poki af T-um (20 stk.) 80
Alls kr. 51.870
Vallargjöld l
4.900
KERRUPOKI
9.900
REGNHLÍF
1.200
PÚTTER
2.200
KERRA
4.800
SKÓR
6.300
HÚFA
1.450
REGNGALLI
18.600
Argjald í golfklúbbi kr. 30.000
Vallargjðld (aðrir vellir) 12.000
kr. 42.000
Kostnaður SAMTALS
Golfsett 57.200
Fatnaður og fylgihlutir 51.870
Vallargjöld 42.000
Samtals
kr. 151.070
TRÉKYLFUHLÍFAR
1.450
GOLFSETT
55.100
BUXUR
Morgunblaðið/Golli