Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 33
$ SUZUKI —m* —— MORGUNBLAÐIÐ eða hvort barnið stofni til átaka eða verði fyrir áreitni, svo dæmi séu tek- in.“ Þjóðlegur matur en engar kökur I samverustundinni, klukkan 11.15, slappa börnin vel af. Þar hefur hver fundið sína rassamottu eins og þau kalla hringlaga spjald með nafn- inu þeii'ra á. Gugga byrjar á að tala um hvaða dagur sé í dag og þau syngja mánaðarsönginn. Hrafnhild- ur, 4 ára, sem er aðstoðarmaður Guggu þennan dag, lítur út um gluggann og hugar að veðri og til- kynnir hinum að það sé léttskýjað og finnur mynd á töflu sem er fyrir ofan þau á veggnum sem lýsir veðrinu. Agúst hjálpai' henni við þetta starf. Annars situr hann kyrr og prúður og fylgist vel með því sem fram fer. Á haustönn í Skólatröð er það óskráð regla að ræða um vináttuna, en þá eru líka margir krakkar að byrja í leikskólanum. Ki-akkarnir í eldri deildinni, sem kallast Fagra- holt, hafa búið sér til lista yfú- það hvað sé að vera vinur. Einnig hafa þau sett saman ákveðnar samskipta- reglur. „Þegar við erum að vinna með samskipti tökum við fyrir ýmsa fleiri þætti eins og til dæmis reið- ina,“ segir Gugga. „Við látum þau finna að reiði er ósköp eðlileg, en að maður verði að kunna að tjá hana á réttan hátt. Ekki bæla hana niður eða láta hendur skipta heldur með því að tala um hana.“ Þegar þau hafa rætt um lífsins gagn og nauðsynjar les Gugga fyrir þau sögu. Klukkan er að verða 12 og það er komið að hádegisverði. í Skólatröð er lögð sérstök áhersla á næringuna. Næi’ingan-áðgjafi hefur lagt línurn- ar um að maturinn sé hollur og nær- ingarríkur. Þennan daginn er ljúf- feng grænmetissúpa sem matráður- inn Asgerður Halldórsdóttir hefur lagað og brauð og ostur. Unnur segir að við matseðlagerðina sé fjölbreytni fæðunnar höfð að leiðarljósi og litið notað af sykri, salti eða fitu við mat- argerðina. „Krakkarnir í Skólatröð fá aldrei unnar kjötvörur eða kökur. Það er þó ekki alveg rétt hjá mér, því stundum fá þau heilhveitipönnu- kökur og þá fá þau pínulítinn sykur út á,“ segir hún svolítið kímin. „Þeg- ar einhver á afmæli er ekki boðið upp á kökur heldur fá þau poppkorn, sem þau eru ánægð með. Asgerður bakar í staðinn nýtt brauð, sem þyk- ir afar gott.“ Unnur segir að þau leggi áherslu á að hafa matinn sem þjóðlegastan. I því skyni er tekið slátur í Skólatröð og börnin hjálpa til við að brytja mörinn. Einnig er haldið þorrablót og á jólafóstunni er borinn fram ís- lenskur jólamatur. Þegai’ leikskólakennararnir í Skólatröð skoða matarvenjur barn- anna hafa þeir að viðmiði hvernig matarlyst börnin hafa, hvort þau eru matvönd, matsár eða kunna sér ekki hóf. Þá er fylgst með færni barnanna við matarborðið eins og hvort þau sulla niður, nota fingurna, nota hníf og gaffal, smyi’ja og hella sjálf, svo dæmi séu tekin. Ágúst er duglegur að borða en hann tekur sér góðan tíma til þess, enda þarf hann að spjalla margt við vini sína. I Skólatröð er einnig fylgst með svefni barnanna og koma foreldram- ir inn í þann þátt. Kannaðar eru svefnvenjur barnsins, sefm’ það ró- legt, sefur það eitt í rúmi, er barnið svæft og svo framvegis. En Unnur tekur það fram að næg hvíld sé und- irstaða þess að barninu líði vel yfir daginn. Eftir að matmálstíma lýkur tekur útiveran við. Ágúst fer í gallann sinn og skundar út. Fyi’st hleypur hann fimm hringi í kringum leikskólann, því það á að púlsmæla hann til þess að kanna þol hans, sem er gott, en Ágúst er mikill íþróttamaður og heldur með Breiðabliki. I útiverunni eru börnin að ieika sér í rólum og sandkassa en mest aðdráttarafl hef- ur þó stór steinahrúga sem er á leik- svæðinu og þau klifra í. Þegar útiveru Iýkur fai’a börnin í eldri deildinni út í íþróttasal Kópa- vogsskóla sem er við hliðina á Skóla- tröð. Unnur segir að leikskólinn hefði fengið styrk úr þróunarsjóði leikskóla til að þróa hreyfistarf skól- ans og því fá börnin sérstaka íþrótta- tíma einu sinni í viku. Mínei’va AI- freðsdóttir leikskólakennari sem jafnframt er íþróttakennari var ráð- in til að vera með börnin í þessum tímum. Ágústi finnst gaman í íþrótta- tímunum, sem hefjast klukkan 2.30 og segir að honum ftnnst skemmti- legast í bandí. Hann útskýrir hvað það er, en „það er eiginlega eins og íshokkí nema ekki er leikið með skauta á fótunum heldur eru krakk- arnir bara berfættir". Mínerva byrj- ar tímann á því að hita börnin upp. Hún segir þeim að ímynda sér að þau séu flugvél sem fljúgi í himin- geimnum. Eitt barnanna í hópnum hreyfir sig ekki en situr eins og í kuðungi. Mínerva gengur til þess og FJÖLSKYLDUBÍLLINN sem þú breytir í SENDIFERÐABÍL með einu handtakíl spyr hvað sé að. „Mín flugvél er bil- uð inni í flugskýlinu,“ segir barnið og fer hvergi! fþróttirnar æfðar í stórum íþróttasal Þegai’ þau hafa hitað sig upp læt- ur Mínerva þau æfa sig á því að hoppa úr rimlunum ofan á þykka dýnu. Með þessu er hún að styrkja þau í að þora að hoppa úr hæð. Einnig gera þau ýmsar íþróttaæf- ingar eins og að fara kollhnís, standa á höndum og hoppa á tram- bolíni. Þá fara þau í hópleik sem heitir Hákarlinn kemur. Hann lýsh- sér þannig að börnunum er skipt í tvo hópa gullfiska og sverðfiska. LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 33 SUZUKI WAGONR? DRIF = ÖRYGGI = LIPURÐ = RÝMI =ÚTSÝNI 4.8m Mínerva stendur í miðjum salnum og er hákarlinn. Hún kallar á gull- fiskana eða sverðfiskana og eiga þeir að synda í kringum hákarlinn og hann á að reyna að éta þá. Þetta finnst krökkunum skemmtilegur leikur ekki síst Ágústi sem æpir upp yfir sig þegar hann er étinn af há- karlinum stóra. Það eru glöð og ánægð börn sem þramma heim í nónhressinguna, en þá er klukkan að verða 3.30. Unnur segir að nónhressingin hafi ekki haft mikið vægi til þessa í matarvenjum barna, en þær í Skólatröð hafi viljað leggja meiri áherslu á þennan mat- málstíma. Fengu þær næringarráð- gjafa í lið með sér sem gerði fyrir þær nákvæma útlistun á því hvað ætti að hafa í nónhressingu. Við vor- um í marga mánuði að þróa þennan lista,“ segh’ hún. Þegar Ágúst hefur borðað nægju sína fer hann að sinna listinni. Hann setur á sig málarasvuntu, tekur sér pensil í hönd og tekur sér stöðu fyrir ft’aman málaratrönurnar. „Listsköp- un er einn þeirra þátta þar sem við skoðum færni bai’nanna. Við höfum rekið okkur á það að þegar börnin hafa hreyft sig mikið þá er eins og spretti fram þörf til listsköpunar," segir Unnur. „í listsköpun þjálfa þau fmhreyfingar og læra að þekkja efni og liti. Þegar við metum listsköpun skoðum við teikningar barnanna, meðal annars hvernig teiknigetan hefur þróast. Við skoðum einnig fín- hreyfingarnar og virkni við listsköp- unina, svo eitthvað sé nefnt. Degi er tekið að halla og klukkan er að verða 4.20 þegar hér er komið sögu og senn líður að því að börnin fari heim. Dagskráin er þó ekki al- veg á enda, því eftir er jógatími hjá Guðrúnu Hvönn Sveinsdóttir jóga- og grunnskólakennara. Reyndar átti jógatíminn, sem er einu sinni í viku, ekki að vera í dag, en vegna þess að við vorum í heimsókn var ákveðið að gefa okkur innsýn í hann. í jógatím- anum kennir Guðrún Hvönn þeim hvernig hægt er að styrkja og teygja vöðva líkamans og á eftir slaka þau á undir hlýju teppi. Þegar Ágúst stendur upp eftir tímann segir hann að stundum þegar Guðrún gleymi tónlistinni sem hún spilar þegar þau slaka á láti hún þau hlusta á niðinn í ofninum í staðinn. Hvort ætli honum finnist skemmtilegra? Að hlusta á ofninn," segir hann hiklaust! Það hefur verið fróðlegt og ánægjulegt að fylgjast með starfinu í Skólatröð og þó að Ágúst sé búinn að vera allan daginn i leikskólanum er hann brattur, en það verður þó ör- ugglega þreyttur drengur sem leggst á koddann í kvöld. JÍ^HIeðslurými J^P^Aðgangur ELGSPRÓFIÐ fagon R+ fer svig- og stýrihæfniþrautir án vandkvæða. autq,motor und sport 60 KM/KLST. uiomi Aksturseiginleikar (mm) WAGOnR* er nýr fjölnota bíll frá Suzuki. Með frumlegri og skemmti- legri hönnun hefur tekist að sameina í einum bíl, nettan sendiferðabíl og rúmgóðan fjölskyldubíl með f^nota- gildi, fí*öryggi og ff^þægindum í fyrirrúmi. Framhjóladrifinn 1.079.000 kr. 4X4 með ABS 1.259.000 kr. SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.