Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Safnaðarstarf Létt sveifla - kvöldmessa í Neskirkju KVÖLDMESSA verður flutt í Neskirkju sunnudagskvöldið 15. nóvember kl. 20.30. Reynir Jónas- son, harmonikkuleikari og org- anisti, sér um tónlistarflutning ásamt hljómsveit og sönghóp. Hljómsveitina skipa Edwin Kaaber á gítar, Ómar Ajcelsson á bassa, Sveinn Óli Jónsson á trommur en sjálfur mun Reynir leika á harmon- ikku. Dagskrá kvöldsins hefst kl. 20 með tónlistarflutningi og kvöld- messan kl. 20.30. Prestur er sr. Halldór Reynisson. Eftir messu verða kaffiveitingar í safnaðar- heimilinu. Auk messunnar um kvöldið er sunnudagaskólinn kl. 11 árdegis. Leikbrúðurnar Mýsla og Músarpési koma í heimsókn, söng- ur, sögur og leikir. Opið hús í safn- aðarheimili frá kl. 10 þar sem böm- in geta litað og fóndrað, og foreldr- ar fengið sér kaffísopa. Atta til níu ára starf verður á sama tíma. Kirkjubíllinn gengur um hverfið fyrir og eftir. Guðsþjónusta er kl. 14. Guðs- þjónustuna annast sr. Sigurður Ami Þórðarson starfsmaður bisk- upsstofu, organisti Reynir Jónas- son. Hj úkrunarfræð- ingar tala í Kvennakirkj unni KVENNAKIRKJAN er sjálfstætt starfandi hópur innan þjóðkirkj- unnar og hefiir haldið guðþjónust- ur einu sinni í mánuði í tæp sex ár. Guðþjónustumar em ekki með hefðbundnu sniði og er áhersla lögð á virka þátttöku kvenna í lestrum og prédikunum en prestur Kvennakirkjunnar er séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Tónlistaratriði er fastur liður og hafa tónlistar- konur lagt Kvennakirkjunni ómet- anlegt lið með söng og hljóðfæra- leik. Bænastund er mikilvægur þáttur guðþjónustunnar. I henni em lesnar upp bænir úr bæna- körfu, sem liggur frammi í mess- unni, og Aðalheiður Þorsteinsdótt- ir leikur hugleiðslutónlist á píanó. Sunnudaginn 15. nóvember kl. 20.30 heldur Kvennakirkjan guð- þjónustu í Digraneskirkju í Kópa- KIRKJUSTARF vogi. Hjúkrunarfræðingarnir Sig- rún Gunnarsdóttir og Laura Sch. Thorsteinsson flytja prédikun sem þær nefna: Hugsaðu hærra - hugs- aðu til Guðs. Tvær ungar stúlkur flytja tónlist, Ásta Mekkín Páls- dóttir á flautu og Ragnheiður St- urludóttir á fiðlu. Kór Kvenna- kirkjunnar leiðir almennan söng undir stjóm Aðalheiðar Þorsteins- dóttur. Á eftir er kaffi í safnaðar- heimilinu. Hjallakirkja 70 ára HÁTÍÐARMESSA verður í Hjallakirkju nk. sunnudag kl. 14 þar sem minnst verður 70 ára af- mælis kirkjunnar, en hún var vígð 4. nóvember 1928. Kirkjusmiður- inn var Kristinn Vigfússon og var smíðað eftir teikningu Þorleifs Eyjólfssonar frá Grímslæk. Að- stoðarmaður Kristins var Berg- steinn Sveinsson múrari á Eyrar- bakka. Kirkjan er glæsileg stein- kirkja með gotneskum gluggum og háum stöpultumi með kúpli. Talið er að kirkja hafi staðið á Hjalla frá um 1000, trúlega alltaf á sama staðnum, nema e.t.v. í upphafí. Hjalli í Ölfusi kemur mjög við sögu kristnitökunnar því að þar bjuggu þeir feðgar Þóroddur Eyvindsson goði og Skafti Þóroddsson lög- sögumaður. Ofan Hjalla stöðvaðist kristnitökuhraunið. Þá komst Hjalli aftur í fréttir sögunnar þeg- ar síðasti kaþólski biskupinn í Skálholti, Ögmundur Pálsson, leit- aði þar skjóls hjá systur sinni árið 1541. Gafst hann upp fyrir dönsk- um hermönnum gegn því að fá að fara frjáls maður. Þeir handtóku hann hins vegar og fluttu um borð í skip áleiðis til Kaupmannahafnar. En biskupinn aldni hlaut samt sitt frelsi því að hann dó í hafí. Söngfélag Þorlákshafnar syngur í messunni undir stjórn Roberts Darling og sóknarpresturinn sr. Baldur Kristjánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Miðbæjar- poppmessa KFUM & K og Dómkirkjunnar MIÐBÆJARPOPPMESSA verð- ur í Dómkirkjunni sunnudags- kvöldið 15. nóvember kl. 21. Tilgangurinn með þessari messu er að bæta menningu miðbæjarins undir merki Jesú Krists og er það söfnuður Dómkirkjunnar og starfsmenn í miðbæjarstarfi KFUM & K sem standa að þessari messu. Það getur verið að okkur finnist kirkjan oft nokkuð þyngslaleg og sein að laga sig að borgarsamfé- laginu. En svo er ekki með boð- skap Jesú Krists. Hann talar jafnt til okkar nú í hröðu og vaxandi borgarsamfélagi og þegar hann ræddi við samferðarmenn sína í ísrael fyrir nær 2000 árum. Þess vegna hvetjum við þig til að koma í Dómkirkjuna á sunnudagskvöldið og láta uppbyggjast af boðskap Jesú Krists, áður en farið er af stað út í nýja vinnuviku. Margir munu þjóna í athöfninni. Hljómsveitin Fjörtíuogtveir ber lofgjörðina uppi. Einnig mun hinn einstaki Kanga kvartett syngja. Predikun flytur stærsti lögreglu- þjónn í Reykjavík, Geir Jón Þóris- son aðstoðaryfirlögregluþjónn. Leikmenn úr KFUM & K ásamt guðfræðinemum munu þjóna í messunni. Prestar eru sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Miðbær Reykjavíkur er sameign okkar allra. Það er löngun margra landsmanna að þar ríki sönn gleði og friður. Boðskapur Jesú ein- kenndist einmitt af því. Láttu sjá þig- Jóna Hrönn Bolladóttir miðbæjarprestur ATVIISIIMU- AUGLÝSINGAR Sýslumaður Rangárvallasýslu Löglærður fulltrúi Staða löglærðs fulltrúa við sýslumannsem- bættið á Hvolsvelli er laustil umsóknar og veit- ist starfið frá 1. janúar 1999. Laun skv. kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og BHMR. Starfsreynsla í embætti er æskileg, en þó ekki skilyrði. Umsóknir berist undirrituðum, sýslumanni, eigi síðar en 1. desember 1998. Sýslumaður veitir nánari upplýsingar í síma 487 8226. Hvolsvelli 12. nóvember 1998, sýslumaður Rangárvallasýslu. Trésmiðir Álftárós ehf. óskar eftir að ráða trésmiði í uppmælingu. Um er að ræða framtíðarstörf í Hafnarfirði, Reykjavík og Mosfellsbæ. Upplýsingar í síma 566 8900. Netfang: www.alftaros.is Wt Á I f t á r ó s TILKYIMISIIIMGAR Basará Hrafnistu í dag, 14. nóv. kl. 13.00, er basar á Hrafnistu. Vöfflur og heitt súkkulaði til sölu. Basarinn opinn mánudag 16. nóv. kl. 10.00— 15.00. Heimilisfólk Hrafnistu í Reykjavík. Handverksmarkaður Handverksmarkaður verður á Garðatorgi í dag, laugardaginn 7. nóvember, frá kl. 10—18. Milli 60 og 70 aðilar sýna og selja muni sína. Kvenfélagskonursjá um kaffisölu. Stórvinningar í Lottó Tíðni stórvinninga í Happahúsinu hefurvakið mikla athygli. Eftirtaldir stórvinningar hafa verið seldir hjá okkur frá ársbyrjun '97 til októberloka '98 8/2 '97 Lottó 5/38 kr. 1.009.420.- 4/6 '97 Víkingalottó kr. 2.598.150,- 23/8 '97 Lottó 5/38 kr. 6.750.810.- 27/12 '97 Lottó 5/38 kr. 6.029.450.- 14/2 '98 Lottó 5/38 kr. 676.020,- 11/4 '98 Lottó 5/38 kr. 2.046.520.- 27/6 '98 Jóker kr. 1.000.000.- 1/8 '98 Jóker kr. 1.000.000.- 24/10 '98 Lottó 5/38 kr. 9.619.440.- 31/10 '98 Lottó 5/38 kr. 1.019.800.- Við hvetjum alla lottóspilara til að láta renna miðunum sínum í gegn í sölukössum íslenskr- ar getspár. Það hafa margir hlotið álitlegar upphæðir sem þeir vissu ekki um. Happahúsið Kringlunni. UPPBOQ Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Aðalgötu 7, Stykkishólmi, þriðjudaginn 17. nóvember 1998 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum: Bjarnarfoss, Staðarsveit, þingl. eig. Sigriður Gísladóttir og Sigurður Vigfússon, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Vátryggingafé- lag íslands hf. Brautarholt 5, hluti, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sigurður Höskuldsson, gerðarbeiðandi S. Helgason ehf., Reykjavík. Engihlíð 22,3. hæð til hægri, Snæfellsbæ, þingl. eig. Snæfellsbær, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna. Ennisbraut 33, hluti, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sigurjón Eðvarðsson, gerðarbeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs og Rafmagnsveitur ríkisins, Reykjavík. Grundarbraut4, Snæfellsbæ, þingl. eig. Fannar Eyfjörð Skjaldarson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Grundargata 21, vesturendi, Grundarfirði, þingl. eig. Trausti G. Björg- vinsson, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs. Helluhóll 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Ársæll Kristófer Ársælsson og Aðalsteina Erla L. Gísladóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Sómi ehf. Hlíðarvegur 13, Grundarfirði, þingl eig. Valgeir Þór Magnússon og Ingibjörg Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Lífeyrissjóður Vesturlands og Tryggingamiðstöðin hf. Höfðagata 5, Stykkishólmi, þingl. eig. Sigurður Hólmar Karlsson, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar. Skólastígur 24, Stykkishólmi, þingl. eig. Björn Sigurjónsson og Guðný Vilborg Gísladóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Sæból 44B, Grundarfirði, þingl. eig. Eyrarsveit, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður verkamanna. Sýslumadurinn í Stykkishólmi, 13. nóvember 1998. FUIMDIR/ MAIMIMFAGIMADUR Aðalfundur Aðalfundur borðtennisdeildar KR verður hald- inn í KR-heimilinu mánudaginn 23. nóvember kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. IMAUOUIMGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu 7, Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Austurvegur 18—20 e.h. Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00. Fagrihjalli 17, Vopnafirði, þingl. eig. Kristín Steingrímsdóttir, gerðar- beiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar, fimmtudaginn 19. nóvem- ber 1998 kl. 14.00 Fossgata 5, Seyðisfirði, þingl. eig. Auður Guðjónsdóttir, gerðarbeiðend- ur Byggingarsjóður ríkisins og Vátryggingafélag íslands hf., fimmtudag- inn 19. nóvember 1998 kl. 14.00. Garðarsvegur 21, Seyðisfirði, þingl. eig. Laufey Birna Óskarsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00. Laugavelir 11, Egilsstöðum, þingl. eig. Haukur J. Kjerúlf, gerðarbeið- andi Fjárfestingarbanki atvinnul. hf., fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00 Leirubakki 4, Seyðisfirði, þingl. eig. Einar Hólm Guðmundsson og Jón Guðmundsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00. Miðás 1—5 hl. 0101 Egilsstöðum, þingl. eig. Eikarás ehf., gerðarbeið- andi Byggðastofnun, fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00 Miðás 1—5 hl. 0201 Egilsstöðum, þingl. eig. Eikarás ehf., gerðarbeið- andi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00. Múlavegur 2, Seyðisfirði, þingl. eig. Jóhann Pétur Hansson, gerðar- beiðendur Byggðastofnun, Byggingarsjóður ríkisins, Lífeyrissjóðir Bankastræti, sýslumaðurinn á Seyðisfirði og Vátryggingafélag íslands hf., fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00 Ránargata 15, Seyðisfirði, þingl. eig. Páll Ágústsson, Axel Jóhann Ágústsson, Helgi Ágústsson, Asgerður Ágústsdóttir og Árni Jón Sigurðsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudag- inn 19. nóvember 1998 kl. 14.00. Selás 1, n.h. Egilsstöðum, þingl. eig. Guðrún Sigurðardóttir, gerðar- beiðandi Fjárfestingarbanki atvinnul. hf., fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00 Skálanesgata 14, Vopnafirði, þingl. eig. Helgi Jóhann Þórðarson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild Húsnæðis- stofnunar og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 19. nóvem- ber 1998 kl. 14.00 Sundabúð 2, Vopnafirði, þingl. eig. Vopnafjarðarhreppur, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður ríkisins, fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00 Sundabúð 3, Vopnafirði, þingl. eig. Vopnafjarðarhreppur, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður ríkisins, fimmtudaginn 19. nóvember 1998 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 13. nóvember 1998.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.