Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stjórnendur fbúðalánasjóðs og Landsbankans ræddu saman í gær
ÞAÐ er nú heldur seint í rassinn gripið, góði, þegar maður er kominn með annan fótinn yfir linuna.
ARNA RAGNAR
ÁRNASON
til áframhaldandi
þingsetu
tryggjum honum góða og örugga kosningu!
Kjósendur í Reykjaneskjördæmi:
Prófkjörið er í dag
Takið þátt - axlið ábyrgð,
tækifærið er núna!
Tryggið öflugan og samhentan hóp þingmanna
Sjálfstæðisflokksins þar sem saman veljast reyndir
þingmenn, jafnvægi kynjanna og ferskur andi nýrra einstaklinga.
Þökkum ánægjulega kosningabaráttu og mikinn stuðning.
Stuðningsmenn
Árna Ragnars Árnasonar alþingismanns
Játum reynsluna ráða!
KOSNINGASKRIFSTOFUR: Kópavogur Reykjanesbær
Hamraborg 20a Hafnargata 54
Sími 564-4770 Sími 421-7155
j !< M LÍ1 h\»Mi! i »j ki 1MI :< :<i ii:ki i h kki-aij l»íh.iz-mi c HkW*
NETFANG: ara@althingi.ís HEIMASÍÐA: http://wv/w.althíngi.is-ara/
Fjölskylduráðgjöf í Kópavogi
Vensl fyrir fjöl-
skyldur í vanda
Kolbrún Baldursdóttir
VENSL, fjölskyldu-
ráðgjöf Kópavogs,
var formlega opn-
uð föstudaginn 13. nóvem-
ber sl. Fjölskylduráðgjöf-
in heyrir undir félagssvið
Kópavogsbæjar og stend-
ur þjónustan öllum fjöl-
skyldum með lögheimili í
Kópavogi til boða gegn
vægu gjaldi. Tímapantan-
ir eru teknar niður í síma
554-2907 á fyrirfram
ákveðnum dögum.
Kolbrún Baldursdóttir
sálfræðingur er í forsvari
fyrir Vensl. Kolbrún segir
að lengi hafi verið í bígerð
að koma á fót fjölskyldu-
ráðgjöf í Kópavogi. „Fjöl-
skylduráðgjöfin felst í því
að bjóða fólki að koma og
fá álit ráðgjafa á vandamálum
innan fjölskyldunnar. Vandinn
getur verið ýmiss konar, t.d. í
tengslum við hjónaband eða upp-
eldi bama. Með því að ræða mál-
in áður en vandinn er orðinn
verulegur er stefnt að því að
vinna fyrirbyggjandi starf innan
fjölskyldunnar. Andrúmsloftið á
að vera afslappað enda eiga ráð-
gjafinn og fjölskyldan að vinna
sameiginlega að því að leita leiða
til lausnar á vandanum.
Við höfum ákveðið að ein-
skorða okkur ekki við vanda
para eða barna því auðvitað
tengjast vandamál í tengslum við
uppeldi barna oft hjónábandinu
og öfugt. Með öðrum orðum er
hægt að segja að fólk getið kom-
ið hingað til að fá álit þriðja aðila
á hvers konar vandamálum inn-
an fjölskyldunnar.“
- Hvers vegna varð nafnið
Vensl fyrir valinu?
„Við vorum lengi að finna nafn
fyrir fjölskylduráðgjöfina. Að
lokum komum við niður á nafnið
Vensl. Nafnið hefur fengið ágæt-
ar viðtökur enda er merkingin
afar viðeigandi. Eins og við vit-
um merkir orðið vensl mægðir,
skyldleiki eða tengsl. Orðið er
upprunaskylt orðinu vandi en
upphafleg merking þess orðs er
„eitthvað snúið eða flókið". Um
leið og vensl vísar því merking-
arlega til vandamála er merking-
in hlý og notaleg því að hún vísar
til fjölskyldu okkar, frændfólks
eða vina sem okkur þykir vænt
um. Orðið ber s.s. með sér já-
kvæðan merkingarauka.
Sögnin vensla er af sama toga
og nafnorðið vensl og merkir að
skipta á einhverju eða víxla. í
Venslum skiptir fólk út vanda
sínum fyrir góð ráð.“
- Verður hægt að fá góð ráð í
tengslum við ofnotkun vímuefna
hjá ykkur?
„Já, enda er stofn-
un Vensla einn liður í
vímuvarnaáætlun
Kópavogs. Vert að
vekja athygli á því að
vímuvernaáætlunin er ekki sér-
stakt átak heldur viðvarandi
starf. Stefnan er að ná til barna
og unglinga í gegnum allar við-
eigandi stofnanir sveitarfélags-
ins. Athugað verður hvernig
hægt er að koma til móts við
þarfir barnanna, t.d. styrkja
þeirra innra vamarkerfi, og
minnka þannig hættuna á því að
þau leiðist út í einhvers konar
neyslu."
- Vensl bjóða upp á viðtöl við
einstaklinga og fjölskyldur.
Hvað með meðferðarform á borð
við hópstarf?
„Ef fólk hefur áhuga á því að
hitta aðra með sama markmið
► Kolbrún Baldursdóttir sál-
fræðingur á Félagsmálastofnun
Kópavogs og við fjölskylduráð-
gjöfina Vensl er fædd 23. mars
árið 1959 í Reykjavík. Hún lauk
stúdentsprófi frá Verslunar-
skóla íslands árið 1980, BA-
gráðu í sálarfræði frá HI árið
1986, MA-gráðu í í sálfræðilegri
ráðgjöf og námssálarfræði frá
Rhode Island College í Banda-
ríkjunum árið 1988 og MA-
gráðu í persónuleika- og félags-
sálfræði frá sama skóla árið
1991. Kolbnín lauk uppeldis- og
kennslufræðum til kennslurétt-
inda frá HÍ árið 1993.
Kolbrún hefur m.a. kennt við
Grunnskóla Stokkseyrar, HI,
Öldungadeild MH og Fóstur-
skólann. Hún starfaði hjá Fang-
elsismálastofnun ríkisins á ár-
unum 1991-1993 og var yfírsál-
fræðirigur á Meðferðarstofnun
ríkisins fyrir unglinga, Stuðl-
um, á árunum 1993 til 1998.
Kolbrún hefúr starfað hjá
Kópavogsbæ síðan í ágúst sl.
gefst kostur á því í gegnum hóp-
starf á vegum Vensla. Hópa-
starfið verður ekki aðeins fyrir
foreldra því hægt er að mynda
hópa um sérstök vandamál ung-
linga. Hugsunin er að fólk komi
saman til að ræða málin undir
stjórn fagmanns svona einu sinni
í viku um sex vikna skeið. Með
því móti getur fólk haldið áfram
að vinna í sínum málum. Fyrir
utan að oft felst heilmikill stuðn-
ingur í því að gera sér grein fyrir
því að fleiri eiga við sama vanda
að stríða og maður sjálfur.“
- Þið haldið að þörf sé fyrir
sérstaka fjölskylduráðgjöf >
Kópavogi og ef til vill víðar?
„Við erum í rauninni að renna
algjörleg blint í sjóinn og erum
mikið búin að spekúlera í því
hvað muni gerast.
Eftirspurn gæti orðið
lítil og ef ekki reynist
þörf fyrir starfsemina
er ljóst hvernig fer.
Ef á hinn bóginn eft-
irspurnin segir aðra sögu og
þörfin reynist mikil verður reynt
að byggja starfsemina frekar
upp. Fjölskylduráðgjöfin yrði því
einn liður í þjónustu við Kópa-
vogsbúa í framtíðinni.“
- Nú kostar talsvert að leita
til ráðgjafa á almennum mark-
aði. Hver er stefnan hjá fjöl-
skylduráðgjöfinni hvað verðlagn-
ingu varðar?
„Við gerum ráð fyrir að við-
talið kosti 700 kr. og gjaldið ger-
ir því varla meira en að standa
undir kostnaði. Að leita sér ráð-
gjafar á almennum markaði
kostar oft á bilinu 3.000 til 4.000
kr.“
Vímuverndin
viðvarandi
starf