Morgunblaðið - 14.11.1998, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 14.11.1998, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 69 Látum reynsl- una ráda Ásgeir Margeirsson, verkfræðingur, skrifai•: Orkumál okkar íslendinga eru að taka miklum breyt- ingum, m.a. með aukinni áherslu á umhverfismál. Vh'kjun háhita til raforkuframleiðslu er að öðlast nýtt líf með stækkun Kröfluvirkjunar og með nýjum raforkuverum á Nesja- völlum og í Svartsengi. Alþingi leikur l.ykilhlutverk í þess- um breytingum. Arni Ragnar Arna- son, alþingismaður, er þar réttur maður á þessum stað. Hann hefur lagt orku-, atvinnu- og umhverfis- málum lið í störfum sínum. Það er nauðsynlegt að velja til setu á Al- þingi fulltrúa með heilsteyptar skoðanir. Andstæður eru oft miklar í orku- og umhverfismálum, en öfg- ar eiga ekki samleið með framförum þjóðarinnar. Ég hvet kjósendur í Reykjaneskjördæmi til að vinna að sameiginlegum fra.mfaramálum okkar allra og styðja Árna Ragnar Árnason til 2. sætis í prófkjöri Sjálf- stæðismanna á Iaugardaginn. ► Meira á Netinu Sköruleg framkoma Ásdfs HaJIa Bragadóttir, formaður SUS, skrifar: í hverju prófkjöri eru einhverjir einstaklingar sem standa upp úr sem þeir frambjóðendur sem koma hvað mest á óvart. í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjanesi er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sá einstaklingur sem einna mesta athygli hefur vakið fyrir skörulega framkomu, sterkar pólitískar skoðanir, heilbrigða lífssýn og mikla forystuhæfileika. Það hefur vakið athygli mína og aðdáun að Þorgerður gefur starfandi stjórnmálamönnum, með áratuga reynslu, ekkert eftir þegar kemur að pólitískum skoðanaskiptum. Fyrir Sjálfstæðisflokkinn er ekki nóg að Þorgerður fari á þing - það verður að tryggja henni sæti í fremstu röð. Kjósum Þorgerði a.m.k. í þriðja sæti. ►Meira á Netinu Þorgerði i þriðja Skarphéðinn Orri Björnsson Vörðustíg 7, Hafnarfirði, skrifar: í prófkjöri sjálf- stæðismanna á Reykjanesi næsta laugardag veljum við sjálfstæðis- menn framboðs- lista okkar. Það skiptir miklu máli að það val takist vel. Það er skylda hvers einasta kjós- anda að velja það fólk sem hæfast er til að vinna að framgangi sjálf- stæðisstefnunnar. Hreppa-, kynja- eða sérhagsmunapólitík má þar hvergi hafa áhrif á. Við hlutlægt mat á frambjóðendum kemur í ljós að Þorgerður K. Gunnarsdóttir á hiklaust erindi í eitt af efstu sætum listans. Ég skora á alla kjósendur í prófkjörinu að veita Þorgerði K. Gunnarsdóttur stuðning í þriðja sætið. Með öflugum stuðningi við Þorgerði tryggjum við framgang kraftmikils talsmanns sjálfstæðis- stefnunnar sem óhætt er að treysta til góðra verka. Listi Sjálfstæðis- flokksins á Reykjanesi verður sterkari með Þorgerði í þriðja. ► Meira á Netinu Skarphéðinn Orrí Björnsson Ásgeir Margeirsson Þorgerður vekur athygli Guðlaug Konrdðsdóttir deildarstjóri, Hafnarfirði, skrifar: í dag velja Reyknesingar frambjóðendur á lista Sjálfstæðis- flokksins til Al- þingis á vori kom- anda. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir lögfræðing- ur er í hópi þessa ágæta fólks sem sækist eftir kjöri í eitt af efstu sæt- um listans. Ég veit af kynnum mín- um af Þorgerði að hún verður góður fulltrúi Reyknesinga á Alþingi fái hún til þess umboð kjósenda í dag. Tryggjum því Þorgerði Gunnars- dóttur öruggt þingsæti með því að greiða henni atkvæði í 3. sæti list- ans. ► Meira á Netinu Þorgerði á þing Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfull- trúi, skrifar: Þorgerður Gunnarsdóttir er í framboði í próf- kjöri sjálfstæðis- manna á Reykja- nesi. Þar fer ung atorkukona með mikla hæfileika. Hún hefur sterka réttlætiskennd, hugsar skýrt og er óhrædd við að halda skoðunum sín- um fram. Það er mikill styrkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa fram- bjóðanda eins og hana. Ég vil hvetja alla til að styðja hana í prófkjörinu í dag. Þorgerður mun sóma sér vel á Alþingi. ►Meira á Netinu Guðlaugur Þór Þórðarson Guðlaug Konráðsdóttir Barnamyndir fyrir ömmu og afa BARNA ^FJÖLSKYLDU LJOSMYNDIR Ármúla 38 • sími 588-7644 Gunnar Leifur Jónasson Sigríði Onnu til forystu Lovísa Hallgrímsdóttir, leikskólastjóri í Mosfellsbæ, skrifar: Reyknesingum gefst nú kostur á að velja trausta og óumdeilda mann- eskju til forystu í kjördæmi sínu, manneskju sem er þekkt að öguðum og málefnalegum vinnubrögðum, án sýndarmennsku. Það er Sigríður Ánna Þórðardóttir sem er verðugur forystumaður Reyknesinga í næstu alþingiskosn- ingum. Forysta hennar eykur möguleika á að kona verði ráðherra- efni Sjálfstæðisflokksins að loknum kosningum næsta vor. Reyknesingar, kjósum mann sem sátt er um til forystu í kjördæminu, kvenmann sem er óumdeildur í störfum sínum og samskiptum við menn og málefni. Kjósum Sigríði Önnu Þórðardóttur til forystu í Reykjanesi, að þvi væri sómi. ► Meira á Netinu Lovísa Hallgrúnsdóttir Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), sími 554 6300. www.mira.is Prologic Framleiöandi: DCV BioNutritions a DuPont Company. Innflytjandi: Pharmaco hf. Haltuuppi vomum liHamans oo auhtu Ný og háþróuð aðferð við vinnslu eggja gerir PROLOGIC að einstöku fæðubótarefni. PROLOGIC er hlaðið vítamínum og næringarefnum sem líkaminn þarfnast til að takast á við krefjandi verkefni dagsins. Ef þú þjáist af þreytu og sleni, finnst þig vanta orku, þá er PROLOGIC fyrir þig! PRQLOGIC gefur þér aukinn lífskraft. Fæst í flestum apótekum og lyfjaverslunum um land allt. litsoihuna Prologic v www.mbl.is Stórglæsilegt úrval af sófasettum í lebri og áklæöi á hreint frábæru veihi. ÁRMÚLA 8, SIMAR 581 2275 og 568 5375 ■‘tSr7 Fullkomið handbragð og eilífur glæsileiki Ný sending húsgagna frá Opið í dag kl. 11-16, sunnudag kl. 15-18. Mörkin 3, sími 588 0640 casa@islandia.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.