Morgunblaðið - 14.11.1998, Page 14
14 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
t. Opinn fyrirlestur
HÁSKÚUNN A AKUPEYRI
Titill: „Um hvali og hvalveiðar í menningu norrænna útvegsbænda, 900—1900“.
Fyrirlesari: Dr. Ole Lindquist, Honorary Research Fellow við St. Andrews-háskóla í Skotlandi.
Staður: Salur, Þingvallastræti 23.
Tími: Þriðjudagur 17. nóvember kl. 17.00.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
Akureyrarbær auglýsir lausar til
umsóknar íbúðarhúsalóðir á
Eyrarlandsholti - Teigum
Einbýlishúsalóðir
Mosateigur 10.
Lóð fyrir einbýlishús á einni hæð.
Mosateigur 2-4-6-8.
Lóðir fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með aðkomu frá götu að neðri hæð.
Heimilt er að gera aukaíbúð á neðri hæð.
Mosateigur 1-3-5-7-9-11.
Lóðir fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með aðkomu frá götu að efri hæð.
Heimilt er að gera aukaíbúð á neðri hæð.
Miðteigur 1-3-5-7-9-11-13.
Lóðir fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með aðkomu frá götu að efri hæð.
Heimilt er að gera aukaíbúð á neðri hæð.
Miðteigur 2-4-6-8-10.
Lóðir fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með aðkomu frá götu að neðri hæð.
Heimilt er að gera aukaíbúð á neðri hæð.
Aðrar lóóir
Reitur 1 og 2.
Ódeiliskipulagðir reitir við Holtateig fyrir 29-37 íbúðir á reit 1 og 13-17 íbúðir á
reit 2. Húsin eru á einni og/eða tveimur hæðum.
Lóðarhafi skal gera deiliskipulag af lóð sem sýni m.a. húsgerð og húshæðir og skal
það auglýst samkvæmt ákvæðum skipulagsreglugerðar.
Reitur 3.
Ódeiliskipulagður reitur við Melateig fyrir 31-41 íbúð. Húsin eru á einni og/eða
tveimur hæðum.
Lóðarhaft skal gera deiliskipulag af lóð sem sýni m.a. húsgerð og húshæðir og skal
það auglýst samkvæmt ákvæðum skipulagsreglugerðar.
Rcitur 6.
Skipulagsreitur við Hringteig fyrir 9 íbúðir í rað-eða parhúsum á einni hæð.
Skipulag lóðar sem sýni m.a. húsgerð og húshæðir og Ióðarhafi gerir, verði lagt
fyrir skipulagsnefnd til samþykktar.
Reitur 5.
Skipulagsreitur við Skálateig fyrir fjölbýlishús á þremur til fimm hæðum með íbúð-
um fyrir aldraða ásamt möguleika á húsnæði fyrir þjónustustarfsemi.
Skipulag lóðar sem sýni m.a. húsgerð og húshæðir og Ióðarhafi gerir, verði lagt
fyrir skipulagsnefnd til samþykktar.
Reitur 4.
Skipulagsreitur við Skálateig þar sem gert er ráð fyrir heimavist nemenda fram-
haldsskóla með möguleika á nýtingu sem sumarhótel. Fjöldi hæða er þijár til fimm.
Skipulag lóðar sem sýni m.a. húsgerð og húshæðir og lóðarhafi gerir, verði lagt
fyrir skipulagsnefnd til samþykktar.
Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar 15. júní 1999.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1998.
ATH. Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Umsóknareyðublöð, byggingaskilmála, mæliblöð og aðrar upplýsingar
er hægt að fá hjá byggingafulltrúanum á Akureyri, Geislagötu 9 og
þangað skal skila umsóknum.
Kynningarfundur 17. nóvember nk.
Bygginganefnd boðar til opins kynningarfundar í Víðilundi 22,
þriðjudaginn 17. nóv. ki. 20.00 þar sem farið verður yfir bygginga-
og skipulagsskilmála svæðisins og aðra hluti sem tengjast byggingum á
svæðinu ásamt kynningu á þeim reglum sem munu gilda við úthlutun
lóðanna í bygginganefnd.
Rveeineafulltrúinn á Akurevri
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Jólaskreyt-
ingar á loft
Dagur
íslenskrar tungu
Jónasar-
kvöld í Þela-
merkurskóla
DAGUR íslenskrar tungu er árlega
haldinn hátíðlegur í Þelamerkur-
skóla við Eyjafjörð en 16. nóvember
er fæðingardagur Jónasar Hall-
grímssonar, sem var einmitt uppal-
inn á svæði Þelamerkurskóla.
Mánudagskvöldið 16. nóvember er
öllum boðið að koma á Jónasarkvöld í
Þelamerkurskóla en þar mun Sverrir
Pálsson fyrrverandi skólastjóri flytja
erindi. Einnig munu nemendur Þela-
merkurskóla vera með atriði tengd
deginum, fluttir verða stuttir pistlar
og tónlistarmennirnir Eíríkur Steph-
ensen og Guðmundur Engilbertsson
flytja tónlist.
Nemendur verða með kaffisölu á
staðnum. Dagskráin hefst kl. 20.30
og eru allir velkomnir, jafnt ungir
sem aldnir.
Basar
Samhygðar
SAMHYGÐ, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð á Akureyri og ná-
grenni, efnir til kökubasars eftir
messu í Glerárkirkju á morgun,
laugardaginn 15. nóvember. Agóðinn
rennur til minningarreits um týnda.
Kirkjugestir og aðrir Akureyringar
eru hvattir til að koma og styrkja
gott málefni.
FÉLAGARNIR Jón M. Ragnars-
son og Sigþór Bjarnason, sem
starfa í verslununum JMJ og
Joe’s á Akureyri, stóðu fagmann-
lega að verki, þar sem þeir voru
að setja upp jólatré við vinnu-
staði sína í gær. Jólin verða
nokkru fyrr á ferðinni á Akur-
eyri í ár en venjulega og hefur
verið farið fram á það við kaup-
menn, forsvarsmenn fyrirtækja
og stofnana, svo og allan almenn-
ing í bænum, að þeir setji upp
jólaskreytingar nú á næstunni.
Skátar selja
j ólapakkningar
SKÁTAFÉLAGIÐ Klakkur á
Akureyri ætlar að bjóða bæjarbú-
um til sölu jólavörupakkningar
næstu daga.
Þeir verða á ferðinni í Glerár-
hverfi næstkomandi mánudags-
kvöld, 16. nóvember, á efri brekku
þriðjudagskvöldið 17. nóvember
og á miðvikudagskvöld á neðri
brekku, Innbæ og Oddeyri.
í pakkningunni eru jólapappír,
límbandsrúlla, merkimiðar og
hnota af gjafaborða. Skátar hafa
síðustu sex ár gengið í hús og selt
jólapakkningar en þetta er ein af
helstu fjáröflunarleiðum félagsins.
Vel hefur verið tekið á móti sölu-
fólkinu fram til þessa og vænta
skátar þess að svo verði einnig nú.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar b.s.
Sjö umsókmr um starf
fr amkvæmdastj óra
SJO umsóknh’ bárust um starf fram-
kvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar b.s. Umsækjendur eru
Einar Olafsson, Bjarni P. Magnússon,
Arni Jósteinsson, Elín Antonsdóttir,
Smári S. Sigurðsson, Þorsteinn Ás-
geirsson og Hólmar Svansson.
Sigurður J. Sigurðsson, formaður
stjórnar atvinnuþróunarfélagsins,
sagði stefnt að því að ganga frá ráðn-
ingu framkvæmdastjóra í næstu
viku. Atvinnuþróunarfélag Eyja-
fjarðar er nýtt félag og kemur það í
hlut framkvæmdastjóra í samstarfi
við stjóm að móta starfsemi þess.
Atvinnuþróunarfélaginu er ætlað
að vera leiðandi afl í uppbyggingu
atvinnu á Eyjafjarðarsvæðinu, með
það að markmiði að fjölga atvinnu-
tækifærum og auka fjölbreytileika
þeima starfa sem eru í boði. Tilgang-
ur félagsins er jafnframt að aðstoða
fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu
og samræma stefnu sveitarfélaganna
í atvinnumálum, auk þess að bæta
samkeppnishæfni Eyjafjarðarsvæð-
isins gagnvart öðrum svæðum, inn-
anlands sem utan.
Almennur
félagsfundur
ÞROSKAHJÁLP _____
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Þroskahjálp á Norðurlandi eystra heldur almennan
félagsfund í Iðjulundi, mánudaginn 16. nóvember kl. 20:00
Allir velkomnir
Stiórnin.
Messur og
kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Kirkju-
dagur á morgun. Sunnudaga-
skóli kl. 11 í kirkjunni. Hátíðar-
messa kl. 14. Vígsluafmæli
kirkjunnar. Kaffisala á efth’.
Öldruðum er boðið upp á akstur,
bíll fer frá Víðilundi kl. 13.40 og
kemur við á Hlíð en hann fer til
baka frá kirkjunni kl. 16. Fyrir-
lestur dr. Páls Skúlasonar flutt-
ur í minningu sr. Þórhalls
Höskuldssonar kl. 17. Biblíulest-
ur kl. 20.30 á mánudagskvöld í
umsjá Guðmundar Guðmunds-
sonar. Mömmumorgun kl. 10 til
12 á miðvikudag í safnaðarheim-
ili.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
vera og guðsþjónusta kl. 11 á
morgun, sameiginlegt upphaf.
Guðsþjónusta á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu kl. 16.15. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 20. Biblíu-
lestur og bænastund kl. 20 á
mánudag og náttsöngur kl. 21.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18. Hádegissamvera kl. 12 á
miðvikudag, orgelleikur, altar-
issakramenti og fyrirbænir. Op-
ið hús fyrir foreldra og börn frá
kl. 10 til 12 á fimmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli á morgun, kl.
11, alemnn samkoma kl. 17, gíd-
eonkynning. Unglingasamkoma
kl. 20 um kvöldið. Heimilasam-
band kl. 15 á mánudag, krakka-
klúbbur kl. 17 á miðvikudag fyr-
ir 6-10 ára, 11 plús mínus kl. 17
á föstudag fyrir 10 til 12 ára.
Flóamarkaður á fóstudögum frá
kl. 10 til 17.
HRÍSEYJARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Stærri-Ár-
skógskirkju kl. 11 á morgun.
Guðsþjónusta kl. 14.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Verkleg þjálfun fyrir unglinga
kl. 14 í dag, laugardag, bæna-
stund í kvöld kl. 20 til 21 og opið
hús frá kl. 21 í kvöld. Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar kl.
11.30 á sunnudag. Biblíukennsla
fyrir alla aldurshópa. Anna
Höskuldsdóttir predikar,
brauðsbrotning, léttur hádegis-
verður. Samkoma sama dag kl.
16.30, fjölbreyttur söngur.
Barnapössun fyrir börn yngri en
6 ára. Vonarlínan: 462-1210,
símsvari með uppörvunarorðum
úr ritningunni.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa
í dag, laugardag, kl. 18 og á
morgun, sunnudag, kl. 11 í
kirkjunni við Eyrarlandsveg 26.
KFUM og K: Bænastund kl. 20 á
morgun, sunnudag. Fundur í
yngri deild, fyrir drengi og
stúlkur 8-12 ára kl. 17.30 á
mánudag.
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kyrrðar- og bænastund í Sval-
barðskh’kju sunnudagskvöld 15.
nóvmeber kl. 21.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Messa í Grundarkirkju kl. 13.30
á morgun, væntanleg ferming-
arbörn leiða söng. Sunnudaga-
skólinn hefst í Möðruvallakirkju
kl. 11 á morgun, rútur aka í
skólann. Vikulegar bæna- og
kyrrðarstundir í kapítalinu við
Munkaþverárkirkju með Krist-
ínu Jónsdóttur.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Messa verður í Möðruvalla-
kirkju í Hörgárdal kl. 21 á
sunnudagskvöld. Væntanleg
fermingarbörn hvött til að mæta
með foreldrum sínum en nokkur
þeiiTa lesa úr ritningunni.
ÓLAFSFJARÐARKIRKJA:
Messa í Hornbrekku kl. 14 á
morgun, fjölskyldumessa kl. 17.
Ath. að sunnudagaskólinn verð-
ur í fjölskyldumessunni. Hljóm-
sveitin Hreyfing og aðrir nem-
endur tónlistarskólans spila,
fermingarbörn taka þátt,
kristniboðsstarf kynnt og tekið
við framlögum, kirkjukaffi.
Mömmumorgun frá kl. 10 til 12
á miðvikudag. Alda og Naree
sjá um samveruna, allir vel-
komnir.