Morgunblaðið - 14.11.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Ný bæjarstjórn mynd-
uð á Egilsstöðum
Egilsstaðir - Fulltrúar Framsókn-
ar- og Sjálfstæðisflokka á Austur-
Héraði héldu blaðamannafund í
gær og kynntu nokkra þætti úr
málefnasamningi sínum en flokk-
arnir hafa verið í viðræðum um
meirihlutasamstarf. Samstarf B-
lista og F-lista leystist upp vegna
ágreinings um nýtt skipurit bæjar-
félagsins og sjónarmiða til um-
hverfismála. A fundinum lagði
Broddi Bjarnason, B-lista, áherslu
á að viðræður við D-lista hefðu
gengið hnökralaust.
Broddi mun áfram gegna starfi
forseta bæjarstjórnar og formaður
bæjarráðs verður Soffía Lárus-
dóttir, D-lista, formaður fræðslu-
og menningarnefndar verður
Katrín Ásgrímsdóttir, B-lista, og
formaður umhverfisráðs Magnús
Jónasson, D-lista. Bæjarstjóri
verður áfram Björn Hafþór Guð-
mundsson.
Ný bæjarstjórn leggur áherslu á
að mörkuð verði skólastefna til
langs tíma sem taki tillit til allra
skólastiga og tengist íþrótta- og
menningarmálum. Ennfremur að
grunnskólinn verði einsetinn frá og
með skólaárinu 1999-2000 og boðið
verði upp á heilsdagsskóla. I at-
vinnumálum er gert ráð fyi-ir að
stofna sjóð sem fer með eignarhlut
sveitarfélagsins í atvinnuíyrirtækj-
um. Stefnt er að því að selja þá
hluti sem bæjarfélagið á í dag og
koma þeim fjánnunum í einn sjóð.
I umhverfismálum lýsir bæjar-
stjórn stuðningi við virkjun norðan
Vatnajökuls, enda verði orkan nýtt
til uppbyggingar atvinnulífs á
Austurlandi og tekið verði fullt til-
lit til umhverfissjónarmiða.
Helsti ágreiningur fulltrúa fyiTÍ
bæjarstjómar var um umhverfis-
mál. Eftir fyrirspum á fundinum
kom fram að starfsmaður umhverf-
isverkefnis bæjarfélagsins hefur
sagt upp störfum eftir að hafa óskað
eftir að fá aukið starfshlutfall úr
50% upp í 80%. Bæjarstjórn svaraði
fyrii-spurnum á þá leið að bæjarfé-
lagið hefði ekki efni á því að auka
þetta starfshlutfall en það skyldi
standa eftir sem áður sem 50% starf
út næsta ár. Auglýst verður eftir
nýjum fulltrúa í hálft starf en leitað
eftir við starfsmanninn að fylgja
ákveðum verkefnum eftir. Broddi
sagði að í upphafi hefði þetta starf
verið hugsað sem ákveðið verkefni
en ekki sem langtímastarf.
Morgunblaðið/KVM
Hlaupið frá skólabókunum
Grundai'firði - Allir mættir nem-
endur og flestir kennarar Grunn-
skóla Eyrarsveitar tóku þátt í nor-
ræna skólahlaupinu 1998. Hér er
um þrjár vegalengdir er að ræða,
þ.e. 10 km sem 50 nemendur hlupu,
en 95 hlupu 5 km og 44 hlupu 2,5
km. Skólarnir geta valið einn dag á
bilinu 1. október til 1. desember til
hlaupsins og völdu Grundfirðingar
þann 5. nóv. Þetta er í 14. skipti
sem íslendingar taka þátt í hlaup-
inu og hefur þátttakan verið mjög
góð hingað til, enda þykir nemend-
um það kærkomin tilbreyting að fá
fullt Ieyfi til þess að hlaupa frá
skólanum og skólabókunum í smá-
stund.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
ELDRI borgarar í Stykkishólmi fylgjast vel með fræðslu um tryggingavernd og brunavarnir.
Píanótónleik-
ar á Isafirði
ÖRN Magnússon píanóleikari held-
ur sína þriðju einleikstónleika á ísa-
firði í dag, laugardag, ki. 17. Tón-
leikarnir verða í tónleikasal Grunn-
skólans.
Á tónleikunum eru eingöngu verk
eftir Beethoven og Debussy. Fyiúr
hlé mun Örn leika tvær píanósónöt-
ur Beethovens op. 27 og er sú síðari
Tunglskinssónatan. Eftir hlé verða
verk eftir Debussy og lýkur tónleik-
unum á Eyju gleðinnar.
Örn hefur komið fram á fjölda
tónleika og leikið inn á geislaplötur,
bæði sem einleikari og í kammer-
tónlist.
Tónleikarnir eru fyrstu áskriftar-
tónleikar Tónlistarfélags ísafjarðar
á þessu starfsári.
----------------
Innsetning
tveggja prófasta
VIÐ messu í Skarðskirkju sunnu-
daginn 15. nóvember kl. 14 mun
biskup íslands, Karl Sigurbjörns-
son, setja sr. Halldóru Þorvarðar-
dóttur, inn í embætti prófasts
Rangárvallaprófastsdæmis. Fráfar-
andi prófastur sr. Sváfnir Svein-
bjarnarson lét af starfi vegna aldurs
1. september sl.
í Víkurkirkju sama dag kl. 21 set-
ur biskup sr. Harald M. Kristjáns-
son í embætti prófasts Skaftafells-
prófastsdæmis. Fráfarandi prófast-
ur, sr. Sigurjón Einarsson, lét af
störfum vegna aldurs 1. október sl.
Stykkishólmi - Nýlega voru eldri
borgarar í Stykkishólmi boðaðir til
fundar um öryggismál sem þeim
tengjast. Það er VÍS í samstarfi við
Landssamband slökkviliðsmanna
og félags eldri borgara sem standa
fyrir forvamardagskrá með eldri
borgurum.
Farið var yfir ýmsa öryggisþætti
og auk þess fjallað um þá trygg-
ingavernd sem þessum aldurshópi
er nauðsynleg í daglegu lífi. Dag-
skráin er sett saman með þarfir
eldra fólks í huga. Gunnar Hjalte-
Eldri borgar-
ar í Stykkis-
hólmi á
fræðslufundi
sted ræddi um tjón á heimilum, á
ferðalögum og nauðsynlega vá-
tryggingavernd. Þá fræddi Ragn-
heiður Davíðsdóttir um slysavarnir
innan og utan heimilis og þjófa-
varnir. Þorbergur Bæringsson
slökkviliðstjóri í Stykkishólmi fór
yfir algengustu tegundir eldsvoða í
heimahúsum og varnir gegn þeim.
Að lokum var öllum fundarmönnum
boðið í kaffi.
Það er ekki oft sem eldra fólk
fær fræðslu um málefni sem tengist
þeim. Reiknað er með að það viti
allt um þessi mál. Fundurinn var
fjölsóttur af eldri fbúum Stykkis-
hólms og greinilegt að þeir höfðu
áhuga á að fræðast og fylgjast með.
Nýtt
bygging-
arfyrir-
tæki
Borgarnesi - Stofnað hefur verið
nýtt byggingarfyrirtæki í Borgar-
byggð sem heitir Sólfell. Að fyrir-
tækinu standa nokkrir af fyrrum
starfsmönnum og eigendum Bygg-
ingafélagsins Borgar sem varð
gjaldþrota fyrir skömmu.
Að sögn Þórðar Þorsteinssonar,
byggingameistara frá Brekku í
Norðurárdal, eins af forsvarsmönn-
um Sólfells, gerði Sólfell tilboð í vél-
ar og tæki þrotabús Borgar en ekk-
ert er komið út úr því ennþá. Hins
vegar tók Sólfell við tveimur verkum
sem Byggingafélagið Borg hafði ver-
ið með og endursamdi um þær fram-
kvæmdir.
Stærra verkið er smíði tveggja
parhúsa fyrir Samvinnuháskólann á
Bifröst, er þar um kennara- og
starfsmannaíbúðir að ræða. Sagði
Þórður að búið væri að steypa
sökkla að húsunum og verkið gengi
vel. Kvaðst Þórður reikna með að
meirihluti fyrrum starfsmanna
Borgar gæti fengið vinnu hjá Sól-
felli.
Auk Þórðar Þorsteinssonar
standa Borgarverk í Borgarnesi,
Trésmiðjan Stígandi á Blönduósi og
Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Borgar, að hinu
nýstofnaða Sólfelli.
Konu á Grenivík
dæmdar bætur vegna
fasteignasölu
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Sparisjóð
Höfðhverfinga, sparisjóðssjóðsstjórann og
fyrrverandi framkvæmdastjóra Kaldbaks
hf. til að greiða óskipt konu nokkurri skaða-
bætur vegna tjóns sem hún varð fyrir við
sölu fasteignar sinnar til Kaldbaks. Voru
henni dæmdar 3.363.431 kr. í bætur ásamt
almennum vöxtum frá 12. febrúar 1994 til
11. október 1995 og dráttarvöxtum frá þeim
degi til greiðsludags.
Málavextir eru þeir að konan seldi fast-
eign sína á Grenivík árið 1991. Kaupandi var
vinnuveitandi hennar, Kaldbakur hf., sem
rak fiskvinnslu og útgerð á staðnum. Var
kaupverðið 6.700.000 kr. Átti að greiða það
með 2.000.000 kr. útborgun, 1.038.575 kr.,
með yfirtöku áhvílandi lána og eftirstöðvar,
3.661.425 kr., með skuldabréfi með veði í
hinu selda.
Framkvæmdastjóri kaupanda sá um
skjalagerð og þinglýsingu þeiira. Atvikaðist
það svo að veðskuldabréfið sem konan tók
við sem greiðslu lenti á 9. veðrétti, meðal
annars á ef'tir skuldabréfi að fjárhæð
6.000.000 kr. í eigu Sparisjóðs Höfðahverfís.
Bú Kaldbaks hf. var tekið til gjaldþrota-
skipta hinn 30. mars 1994. Var fasteignin
síðan seld nauðungarsölu hinn 11. október
1995 á 6.000.000 kr. Keypti sparisjóðurinn
húsið og fékk konan ekkert í sinn hlut. Hún
höfðaði mál til að hnekkja veðsetningunni í
þágu sparisjóðsins sem gekk alla leið til
Hæstaréttar en ekki var fallist á kröfur
hennar (H.1996.2409).
Höfðaði hún þá skaðabótamál á hendur
fyrrgreindum aðilum og var stefnufjárhæð-
in miðuð við tjón konunnar af þeim völdum
að eftirstöðvaskuldabréfið reyndist hald-
laust. Héraðsdómur Norðurlands eystra
sýknaði stefndu og vísaði meðal annars til
H.1996.2409 þar sem ekki töldust sönnuð
þau atvik er snertu forsvarsmenn spari-
sjóðsins sem leitt gætu til þess að veðréttur
hans viki.
Stórkostlegt
gáleysi
Hæstiréttur telur hins vegar í dómnum
sem féll á fimmtudag að framkvæmdastjóra
kaupanda hafi mátt vera ljóst, að samþykki
konunnar væri nauðsynlegt skilyrði þess, að
fært væri að veðsetja eignina til fjármögn-
unar á útborgun kaupverðsins og einnig til
tryggingar öðrum skuldum, sem kaupunum
voru óviðkomandi. Hafi honum borið skylda
til að tryggja, að þetta samþykki yrði veitt,
áður en frá veðsetningu í þágu sparisjóðsins
var gengið. Hafi hann gerst sekur um stór-
kostlegt gáleysi og því beri hann skaðabóta-
ábyrgð á tjóni konunnar.
Aðstoðaði við gerð
eftirstöðvaskuldabréfs
Hvað varðar ábyrgð sparisjóðsstjórans
segir Hæstiréttur að hann hafi gert það að
skilyrði fyrir lánveitingu til Kaldbaks hf. að
sparisjóðurinn fengi veðrétt í eigninni næst
á eftir áhvílandi skuldum án tillits til eftir-
stöðvaskuldabréfsins. Honum hafi verið
ljóst að raunhæf veðtrygging fyrir kaup-
verði, sem ógreitt kynni að vera, yrði þar
með úr sögunni, þar sem eignin væri þá full-
veðsett.
Síðar leitaði konan til sparisjóðsstjórans
um aðstoð við útgáfu eftirskuldabréfs frá
Kaldbaki hf. því vandkvæði höfðu verið á
þinglýsingu fyrsta bréfsins sem gefið var út.
Segir Hæstiréttur að hann hafi gengið frá
skuldabréfinu fyrir hana án þess að benda
henni sérstaklega á, að lán frá sparisjóðnum
væri þar talið meðal áhvflandi og undanfar-
andi veðskulda, og án þess að færa í tal við
hana með nokkrum hætti, að veðtrygging
samkvæmt skuldabréfinu væri lítils eða
einskis virði.
Ætla verði að konan hefði verið betur
komin án útgáfu þessa skuldabréfs og enn
átt þess kost að rétta hlut sinn að einhverju
leyti, hefði henni verið gerð skýr grein fyrir
stöðu sinni á þessum tíma. Var sparisjóðs-
stjórinn því talinn hafa sýnt stórfellt gáleysi
sem leiddi til persónulegrar ábyrgðar hans.
Þá var Sparisjóður Höfðhverfinga og talinn
bera ábyrgð á gerðum sparisjóðsstjórans.
Málið fluttu Jóhannes Sigurðsson hrl. af
hálfu seljanda fasteignarinnar, Ólafur Birg-
ir Árnason hrl. fyrir hönd sparisjóðsins og
sparisjóðsstjórans og Valgarður Sigurðsson
hrl. af hálfu fyrrverandi framkvæmdastjóra
Kaldbaks hf.