Morgunblaðið - 14.11.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 39
í verslun okkar.
Stúlar
Skrifstofuhúsgögn
Sýningarsalur
SófasEtt
verður yfirmaður
þróunarsviðs
BIW
ðJENSENdÖflum..
Verið velkomm
i^\TM ■ HUSGOGN
SÍÐUMÚLA 30 » SÍMI 5B8 6822
Dpið: Mán-fös 10-18 • Fim 10-20 • Lau 11-16 • Sun 13-16
Furuhusgagn Dynur
3000 m2
Rum
Kosningaskrifstofur:
Hafnargata 37a, Reykjanesbæ, sími 421 7202
Hamraborg 5, Kópavogi, sími 564 3492
Kaffi og meðlæti
Allir velkomnir
tæki, segir Páll Gísla-
son, og það er óþolandi
og siðlaust að mismuna
fyrirtækjum eftir aldri
eigenda.
Þegar lög um réttindi sjúklinga
voru samþykkt á Alþingi í vor og
tóku gildi 1. júlí sl., er hvergi getið
um réttindi aldraðra sjúklinga.
í 1. gr. I. kafla laga um réttindi
sjúklinga stendur:
„Óheimilt er að mismuna sjúk-
lingum á grundvelli kynferðis, trú-
arbragða, skoðana, þjóðernisupp-
runa, kynþáttar, litarháttar, efna-
hags, ætternis og stöðu að öðru
leyti.“ Þegar farið var yfír þessa
grein á fundum í ráðuneyti og
nefndum, þar sem við áttum full-
trúa var sett inn í þessa grein
„aldri“. Þetta orð virðist hafa fallið
niður og er það mjög miður, bæði í
raun og hugmyndafræðilega, því
ég tel þetta grófa mismunun vegna
aldurs. Það getur ekki verið ætlun-
in að mismuna fólki eftir aldri,
heldur á faglegum grundvelli og þá
getur aldur verið liður í þeim
ákvörðunum, sem teknar eru í
sambandi við sjúkdómsgreiningu
og meðferð. Heilsufar fólks fer
ekki eiginlega eftir aldri, heldur
þarf faglegt mat að koma til fram-
kvæmda af fólki, sem kann þar til
verka. Hafi þetta orð „aldur“ fallið
út fyrir mistök, þá þarf að leiðrétta
það.
Fátækir bændur
Þá er nú á döfinni reglugerð frá
landbúnaðarráðuneyti um að
bændur, sem eru orðnir 70 ára og
stunda ennþá fjárbúskap, skulu
ekki njóta sama rétts til greiðslu úr
ríkissjóði. Tilgangur virðist vera
augljós þ.e.a.s. fækka bændum og
þá sérstaklega þeim sem lítinn bú-
skap stunda og taka þá „eina kind“
fátæka mannsins til að geta bætt
öðrum betur. Nú veit ég ekki nógu
vel hvernig styrkjakerfi til land-
búnaðar er háttað. Það er sjálfsagt
Búskapur er fyrir-
AÐSENDAR GREINAR
Ágætu Reyknesingar
Ég bió um stuðning í
2. sætið.
Bestu kveðjur
alþingismaöur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi fer fram í dag.
í prófkjörinu gefst kjósendum tækifæri
til aö sýna hug sinn til einstakra fram-
bjóöenda meö vali á listann.
Réttindi
aldraðra skert!
Páll Gíslason
í ÁRATUGI hefur
Tryggingastofnun rík-
isins styrkt mikið fatl-
aða öryrkja og aldraða
með ákveðinni fjárupp-
hæð til kaupa á bifreið,
þar sem fötlun myndi
annars hindra fólk að
leita lækninga svo sem
sjúkraþjálfun, sund
o.fl.
Þetta hefur verið
viðurkennt, sem nauð-
synlegur þáttur í
sjúkratryggingu við-
komandi sjúklings.
Nú bregður svo við
að sjúklingum, sem
orðnir eru 70 ára, er neitað algjör-
lega um slíka aðstoð, sem hefur
verið sem hér segir:
mikið bæklað fólk 700 þús. kr. á 3ja
ára fresti, minna bæklað fólk 230
þús. kr. á 5 ára fresti
svo að sjá má á þessu að fólk með
lágar tekjur munar verulega um
þennan stuðning.
Mér er tjáð að áður hafi verið
miðað við 75 ára, en nú er „afneit-
un“ miðuð við 70 ára. Þetta er af-
greitt svona neikvætt fyrir eldra
fólk. Þetta teljum við hjá Félagi
eldri borgara algjörlega óviðun-
andi. Því að aldur út af fyrir sig er
ekki sú viðmiðun, sem aldur einn
kemur til greina. Menn eldast mis-
munandi líkamlega og andlega, svo
að aldur segir ekki nema að nokkru
leyti um fæmi og þörf fyrir aðstoð.
flókið eins og reglu-
gerðafarganið á öðrum
sviðum er og umdeilan-
legt, en að aldur við-
komandi komi þar við
sögu er óþolandi og
siðlaust. Margir eldri
bændur drýgja litlar
tekjur úr hfeyrissjóði
með búskap í litlum
mæh og er þetta jafn-
framt drjúg starfslok.
Búskapur er fyrirtæki
og ekki hægt að mis-
muna fyrirtækjum eft-
ir aldri eigandans.
Vonandi kemur þetta
ekki til framkvæmda.
Þetta hlýtur að vera brot á
mannréttindum samkvæmt stjóra-
arskrá Islands.
Góðir þingmenn, athugið það.
Fyrirtæki rekin af eldra fólki
hljóta að hafa sama rétt og önnur.
Höfundur er formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni.