Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 37 LISTIR BROSANÐI DJASS Saga Skotlands undir þak Edinborg. Reuters. TOIVLIST M ú I i n n á Soloni íslandusi SVEIFLUDJASS Gítar Islancio. Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson, gítarar, og Jón Rafnsson, bassa. Sunnudagskvöldið 29. növ. ÞAÐ var í september sl. að Robin Nolan Jazz Band lék á Fógetanum. Tveir gítarar og bassi í sígauna- sveiflustíl Django Reinhards, eins fremsta snillings Evrópudjasssög- unnar. Á Múlanum á sunnudags- kvöldið síðasta heyrðum við sömu hljóðfæraskipan og tónlist byggða á sama grunni. Þó voru tónleikar þessir ólíkir og kannski speglaðist það í tveimur Django-ópusum er tríóin léku bæði: Minor Swing og Nuages. Krafturinn var mun meiri í Nolan tríóinu í Minor Swing en lý- ríkin tærari í Nuages hjá Gítar Islancio. Má segja að Björn hafi flogið sonnettuflug í sóló sínum með ljúfum titringi á hárréttum stöðum. Kannski var helsti galli Gítar Islancio hve rytminn var kraftlítill á köflum. Þessi tegund tónlistar þarfnast rytma sem hefur öll blæ- brigði sveiflunnar á valdi sínu og hér eru engar trommur til að styðjast við. Ætli Rosenberg tríóið sé ekki fremst þeirra tríóa sem nú fást við sígaunasveiflu og Ferrébræður, þeir Boulou og Elias, eru ansi ferskir og hafa m.a. gefíð út skífu með bassa. Sá var Niels-Henning og gjörbreytti bræðradúóinum. Tríó þessarar gerðar hafa ekki starfað á Islandi svo ég muni og það var munur á Nolan og félögum og Birni og hans mönnum að í stað hinnar hefð- bundnu skiptingar í sóló og hryngít- ar, sem tíðkast hefur síðan á dögum Djangotríósins, sem er fyrirmynd þessa alls, skiptust Björn og Gunnar á hlutverkum. Það var dálítill taugatitringur í tríóinu er fyrsta lagið, Fasenathing Rhythm eftir Gershwin, var spilað með slettu af Jóni Páli og svo fór þetta smásaman að lagast uns fullu öryggi var náð í snilldartúlkuninni á Nuages. Tvö verk eftir Chick Corea voru á dagskrá: Spain, sem Guð- mundur heitinn Ingólfsson lék sem oftast, og Annandos Rumba. Voru þau þokkalega leikin og nutu yfir- burðir Björns sem djassleikara þar sín nokkuð, þó Gunnar ætti fallegan og flamenco-skotinn sóló í Spain. Og það var kannski það sem var skemmtilegast við þetta kvöld að heyra hinn ástsæla lagahöfund poppsins, Gunnar Þórðarson, spinna djass. Hann var á hinni arm- strongsku línu svíngsins í túlkun sinni. Fór ekki of langt frá laglín- unni, en bætti við hana á hinn smekklegasta hátt. Eitt af betri lög- um kvöldsins var útsetning þeirra félaga á Sir Duke, sem Stevie Wonder samdi til heiðurs Duke Ell- ington og djassinum. Þeir þremenn- ingar léku ópusinn að mestu sam- stiga og þarna átti Gunnar fallegan sóló, þar sem stefjaspuninn réð ríkj- um. Björn hugleiddi meira útfrá hljómunum, þó hann færi sér hægt í þeim efnum. Tvö frumsamin lög léku þeir fé- lagar. Kokkteil sem þeir sömdu í sameiningu, en voru ekki alveg viss- ir um þó, þar sem índíánaástarsöng- ur, Balistemmning og popprytmi blandaðist ýmsu fleiru og svo var lag eftir Gunnar: Götur Keflavíkur, þarsem sígaunafjölskyldur höfðu greinilega flust í bæinn. I einu síðasta verkinu upphófst barrokkdúett, líkt og hjá Ferré bræðrum á skífunni Trinity, en í stað þess að halda útí buskann í Out of Nowhere, var endastöðin í Vermalandi og Jón Rafnsson lék ágætlega melódískan sóló í þjóðvís- unni. Brosið sem kviknað hafði fyrr um kvöldið var enn á sínum stað, en það dofnaði aðeins í síðasta laginu: Fool on the Hill eftir þá Lennon og McCartney - dálítið gítarsullleg út- gáfa, en aukalagið kveikti bros að nýju: It Don’t Mean a Thing If You Aint Got That Swing eftir Duke Ell- ington og í þvi felst kjarni málsins. Án sveiflunnar lifir tríó eins og þetta ekki og hana þarf að efla. Eftir ára- mótin munu þeir félagar taka upp þráðinn að nýju og ég er viss um að þeir eflast að þrótti og dáð og fínna djassinum marga nýja fylgismenn. Vernharður Linnet ELISABET Englandsdrottmng opnaði á mánudag nýtt listasafn í Edinborg sem helgað er sögu Skotlands. Þá var einnig þjóðhá- tíðardagur Skota og því mikið um dýrðir er safnið var opnað. Ekkert hefur verið til sparað við byggingu safnsins enda hefur hún verið um- deild. Kostnaðurinn við hana á sinn þátt í því en hann nemur um 52 milljónum punda, um 6 milljörð- um ísl. kr. Safnið stendur skammt frá hjarta borgarinnar, í Chamber- stræti, og var því ætluð lóð árið 1952. Húsin á henni voru rifin, m.a. byggingin sem hýsti einn sögufrægasta skóla borgarinnar en lóðin stóð eigi að síður lengi auð. Þegar liafist var handa við bygginguna reyndust tveir sýning- argripanna, lest og og gufuvél, svo stórir að þeim var komið fyrir á byggingarlóðinni og svo byggt ut- an um þá. Inngangur safnsins er hringlaga turn sem minnir á kast- ala. Hann hefur ekki fallið öllum í geð, t.d. hafa þeir feðgar, Filippus drottningarmaður og Karl prins, lýst vanþóknun sinni á útliti hans sem sá eldri telur minna helst á gaskút. Aðrir hafa hins vegar bor- ið Iof á hönnun Gordons Bensons og Alans Forsyths, sem þeir segja endurspegla sögu borgarinnar og vera viðeigandi umgjörð um þá 10.000 muni sem þar er að finna, listmuni og safngripi. Ur turninuin er farið um undir- göng inn í sex sýningarsali safns- ins. Byijað er á því að skoða stein- gervinga, þeirra á meðal Lizzie, elsta steingerving heims, sem fannst í Skotlandi. Þá er farið yfir 900 ára trúar- lega og pólitíska sögu Skotlands, skoðuð beinagrind heilags Kólúmba, sem kristnaði Skota, munir sem voru í eigu Maríu Skotadrottningar og fallöxi sem var notuð við almennar aftökur í Edinborg löngu áður en fallöxin í byltingunni í Frakklandi öðlaðist frægð. Haldið er áfram í söguskoðun- inni fram á þessa öld en sýningar- salurinn sem helgaður er 20. öld- inni er jafnframt sá umdeildasti. Þar hafa ýmsir þekktir einstak- lingar verið fengnir til að tilnefna hluti sem þeir telja táknræna fyrir líf sitt og þann tíma sem þeir hafa upplifað. Tony Blair forsætisráð- herra valdi sér Fender Stratocast- er rafmagnsgítar og Sean Connery kvikmyndaleikari valdi Arbroath- yfirlýsinguna frá 1320 sem er sjálfstæðisyfirlýsing Skotlands. Af öðrum munuin má nefna Saab-bif- reið, getnaðarvarnapillu, bijósta- haldara og rennilás. 20" LG sambyggt sjónvatp og video. Með Black Hi-Focus skjá, skarpari mynd, PAL/SEGAMBG með NTSC video, 100 rása mynni, rafraen barnalæsing og fjarstýring. 2ja hausa VHS- video með NTSC afspilun, Digital AutoTracking, hægt að stilla á "replay". Hágæðatæki á góðu verði. 20” LG sjónvarp með Black Hi-Focus skjá sem gefur einstaklega skarpa mynd. Hátalarar að framan, ACMC sjálfvirkuur stöðvaleitari, 40 rása minni, Fjarstýrinq og rafræn barnalæsing og fl. Hægt að fá með og án textavarps. Black Line myndlampi, flatari skjár, Nicam Stereo, íslenskt textavarp, allar aðgerðir á skjá, Pal/NTSC, barnalæsing, tenqi fyrir höfuðtól, 2x20 W magnari, 2 Scarttengi o.mtl. NYTT LG 6 hausa stereo videotæki. Topptækið fráLG, NICAM HiFi stereo. Gefur ftillkomna upptöku og afspilun. Long play, fjarstýring, 80 stöðva minni, barnalæsing og fl. LG Brauðvél, úlbúið brauð , vegur ca. 700 gr. Tímastillir hægt að stilla \ vélina allt að 13 tímum fyrir bakstur. 3 stíllingar Ijóst meðal, eða dökkt MS-283MC örbylgjuofn, 28 Irtra, Multiwave 900W, öflugur og vandaður Ummál: (h,b,d) 53 x 32,2 x 39,2 /16,3 kg. LG uppþvottavél.lítil en öflug Ummál 50x54 cm. Vegur aðeins 24 kg, úr ryðfríu stáli. Mál: (b,h,d.)35x33x25,5 cm. 7,2kg. Wð erum í r'æSta hUS' V'ð IK£a % VERIÐ VELKOMIN í VERSLUN OKKAR Opið allar helgar til jóla! RÍIFMKMPERZLUN ÍSLflNDS Lf - AN NO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.