Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 50
-50 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Ástkær sambýlismaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, DAVÍÐ ÓLAFSSON, Hvítárvöllum, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 1. desember. Vigdís Eiríksdóttir, Ólafur Davíðsson, Þóra Stefánsdóttir, Davíð Ólafsson, Katrín Arna Ólafsdóttir, Arnþór Ólafsson. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍS G. VIBORG, Barmahlíð 36, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 1. desember. Guðríður Þorsteinsdóttir, Viðar G. Elísson, Guðrún Elsa Elísdóttir, Þorsteinn Elísson, Ásta Fríða Baldvinsdóttir, barnabörn og langafabarn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRGVIN GUÐNASON, lllugagötu 16, Vestmannaeyjum, sem lést á heimili sínu fðstudaginn 27. nóv- ember, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 5. desember kl. 14.00. Erna Alfreðsdóttir, Auðbjörg Svava Björgvinsdóttir, Helgi Þór Gunnarsson, Aðalheiður Björgvinsdóttir, Ómar Reynisson, Guðný Björgvinsdóttir, Georg Skæringsson, Sigfríð Björgvinsdóttir, Hallgrímur Gísli Njálsson, Harpa Björgvinsdóttir, Ólafur Vestmann Þórsson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA HJARTARDÓTTIR, Vesturgötu 69, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudag- inn 4. desember kl. 15.00. Bjarni Magnússon, Guðlaug Magnúsdóttir, Frank P. Hall, Björg Magnúsdóttir, Örn Henningsson, Magnþóra Magnúsdóttir, Árni Thorlacius, Ingibjörg Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, KRISTJÁN PÁLSSON, Hlíf 2, Torfunesi, lést mánudaginn 30. nóbember sl. Útför hans fer fram frá ísafjarðarkirkju laugar- daginn 5. desember kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins lótna, er vin- samlega bent á Sjúkrahús ísafjarðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, * Guðmunda Jóhannsdóttir. BJARNIKRISTINN BJARNASON + Bjarni Kristinn Bjarnason fæddist á Ondverð- arnesi í Grímsnesi 31. ágúst 1926. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 22. nóvember síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Dómkirkjunni 2. desember. Kveðja frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur Látinn er hér í bæ Bjarni K. Bjarnason, fv. borgardómari og síð- ar hæstaréttardómari. Þar fór ein- lægur skógræktarmaður sem hann var og mátti sjá hann á langri leið vinna að hugsjón sinni á margvís- legan hátt. Hann var kjörinn í aðal- stjórn Skógræktarfélags Reykja- víkur árið 1979 og sat þar til 1989 er hann lét þar af störfum vegna embættisanna. Þar var Bjarni sí- kvikur og glaður og flutti fjölda til- lagna. Hann var ódeigur boðberi nýrra hugmynda og að því leyti elt- ist hann aldrei. Hann var vakinn og sofinn í ræktun og kom upþ trjá- lundum á ýmsum stöðum í Arnes- þingi. Trén í Húnbogalundi á Laug- arvatni og við Ashildarmýri munu geyma nafn hans. Utan embættis og funda var Bjarni einlægur og vinfastur, sfleitandi og ungur í anda, alltaf að finna eitthvað nýtt að gleðjast yfir. Hann átti sér hug- sjón, draum um nýtt land viði vaxið og til dauðadags vann hann að upp- fyllingu þess draums. Skógi'æktarfélagið þakkar störf hans og sendir fjölskyldu hans samúðarkveðjur. Asgeir Svanbergsson. Eg varð fastagestur á heimili þeirra Bjarna og Olafar fyrir tæp- um sex árum, er leiðir okkar Tinnu lágu saman. Aður en ég hitti Bjarna í fyrsta skipti hafði Tinna sagt mér, að ég mætti búast við lít- ilsháttar yfirheyrslu um ætt mína og upp- runa. Ég gekk í gegn- um þá prófraun og ekki leið á löngu þar til Bjarni var farinn að reka mig á gat í þeim efnum. Ættfræði var aðeins eitt af áhuga- málum Bjarna. Hans stærsta hugðarefni var auðvitað skógræktin, sem hann sinnti af rómuðum dugnaði. Bjarni var ótrúlega vel að sér á flestum svið- um og fróðleiksfúsari manni hef ég varla kynnst. Hann var fljótur að seilast í uppflettirit ef vafi lék á höndum um þau málefni sem bar á góma. Bjarni studdi ákaflega vel við bakið á fólkinu sínu og hafði mikinn áhuga á því sem það var að fást við. Þeim eiginleika fékk ég að kynnast í ríkum mæli og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Sérstaklega ánægjulegt finnst okkur Tinnu, að Bjarni og Ólöf skyldu geta heimsótt okkur til Mi- ami síðastliðinn vetur. Þetta var sérlega vel heppnuð ferð hjá þeim hjónum og þá, sem endranær, fund- um við hversu mjög þeim var annt um okkar hagi. Ég er afar þakklátur Bjarna fyr- ir allt sem hann hefur gert fyrir okkur Tinnu og kveð hann með miklum söknuði. Elsku Ólöf, þér sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Einar Scheving. Þegar Bjarni K. Bjarnason er kvaddur koma margar minningar og tilfinningar upp í hugann. Mér er efst í huga innilegt þakklæti til Bjarna fyrir að hafa reynst dóttur minni einstaklega^ vel undir öllum kringumstæðum. I skjóli hans fann hún traust og öryggi. Sterk réttlæt- istilfinning hans hafði góð áhrif á hana og Bjarni var henni mikilvæg fyrirmynd um heiðarleika og ábyrgð. Hann veitti henni gott Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. f>að eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, fóstur- faðir og bróðir, MAGNÚS GUÐLAUGSSON, Hjallabrekku 3, Ólafsvík, og Lautasmára 3, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í Reykja- vík föstudaginn 4. desember kl. 15.00. Lydía Fannberg Gunnarsdóttir, Ómar Ingi Magnússon, Óskar Örn Gíslason, systkini og aðrir aðstandendur. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma MAGNFRÍÐUR KRISTÓFERSDÓTTIR, Kleppsvegi 62, sem lést föstudaginn 27. nóvember sl., verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 4. desem- ber kl. 13.30. Stefán Sigmundsson, Sigmundur S. Stefánsson, Kára Hrönn Vilhjálmsdóttir, Kristófer V. Stefánsson, Alda Guðmundsdóttir, Kristín Stefánsdóttir, Pétur Önundur Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. veganesti fyrir lífið. Hann sýndi mér einnig traust og velvilja og var afar ráðagóður, fyrir það er ég einnig þakklátur. Það er því með miklum trega en djúpu þakklæti sem ég kveð Bjarna K. Bjarnason. Ég og fjölskylda mín sendum Ólöfu og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð geymi Bjama K. Bjarnason. Asgeir Haraldsson. Kveðja frá Árnesingafélaginu í Reykjavík Þau sorgartíðindi bárust í síðast- liðinni viku að Bjami Kristinn Bjarnason hæstaréttardómari frá Öndverðarnesi væri látinn. Bjarni Kr. var einn af máttarstólpum Ár- nesingafélagsins í Reykjavík í ára- tugi. Hann gegndi ýmsum trúnað- arstörfum fyrir félagið, lengst af sem ritari og sérlegur ráðgjafi um gróður og tijárækt. Bjarni Kr. á stóran þátt í gróðursetningu hinna ýmsu tegunda trjáplantna í lundum þeim austanfjalls sem Ámesingafé- lagið hefur gengist fyiir að gróður- setja í. Má þar nefna lundinn á Þingvöllum og í Áshildarmýri á Skeiðum. Þegar ég kom í stjóm félagsins fyrir nokkmm ámm hafði Bjarni Kr. verið heiðursfélagi í nokkur ár og var hættur opinberum trúnaðar- störfum fyrii- félagið. Þó hafa fáir verið virkari í félagsstarfinu undan- farin ár en Bjarni Kr. og frú Ólöf kona hans, og má nefna stóran þátt þeirra í afmælishátíðinni miklu á Áshfldarmýri árið 1996 er þau gróðursettu fallega birkihríslu með frú Vigdísi Finnbogadóttur, þáver- andi forseta Islands. Bjarni lét ekki þar við sitja heldur hefur reglulega vitjað um hrísluna ásamt öðrum gróðri og lifir hún góðu lífi í Vigdís- arlundi. Ég vil þakka Bjarna Kristni alla hans greiðasemi og hvatningu við félagsstarf Árnes- ingafélagsins hin síðari ár. Frú Ólöfu og fjölskyldu sendum við fé- lagsfólk innilegar samúðarkveðjur og biðjum þeim Guðs blessunar. Hjördís Geirsdóttir, formaður. í gegnum árin hefur heimili Bjarna og Ólafar alltaf verið staður hlýju og vináttu í minn garð. Ég tengdist Ólöfu og Bjarna sterkum böndum strax í æsku í gegnum Tinnu frænku. Sem smástrák tóku þau mig með Tinnu á skíði í Skála- fell og upp í sumarbústað að planta trjám. Það var nú ekki lítið mál með ærslabelg eins og mig, efast ég ekki um að lítið hefur verið um skipulagða gróðursetningu þá dag- ana. Oft átti ég mikla fundi með Bjarna í stofunni. Það var gaman að rökræða við hann þó svo að yfir- leitt hafi ég verið í hlutverki hins hlustandi lærlings. Fyrir strákling voru þessar stundir með Bjarna stórar, maður var fullorðinn í stutta stund, eða allt þar til Ólöf og Tinna voru komnar á ,jæja...“-tóninn. En allar leiðir liggja til Rómar... Síðasti „stofufundurinn" okkar Bjarna var rétt fyrir Rómarferð þeirra hjóna í haust. Þar var ég á heimavelli. Ólöf spurði mig um Rómverja og bæjarlífið. Bjarni meira um aksturs“menninguna“, stjórnarfar og gróðurfar. Saman létum við svo okkur dreyma um fornmenningu Rómar, ævintýra- heim Napólí og dulúð vatíkansins. Ég votta Bjarna virðingu mína og séndi fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Bárður Orn. ^li i m xx x x jy H H H H H H H H H H H Erfidrykkjur u Sími 562 0200 ., CIIIIIIIITTIH H H H H H H H H H
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.