Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 54
^4 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ALÞJÓÐLEGUR DAGUR FATLAÐRA > •• + Avarp Oryrkjabandalags Islands á degi fatlaðra Afléttum aðskilnaðar- stefnunni MEÐ mannréttindasáttmálum höfum við Islendingar skuldbundið okkur til að tryggja að hver ein- staklingur eigi kost á fullri þátt- töku í menningar- og mannlífí þjóð- arinnar. Þegar við nú fógnum hálfrar aldar afmæli Mannrétt- indayfírlýsingar Sameinuðu þjóð- anna er við hæfi að líta ögn í eigin barm og spyi’ja: Hvernig höfum við staðið við okkar hlut? Vart þarf að fara mörgum orðum um að þeim öryrkja sem einungis getur reitt sig á bætur almanna- trygginga er í reynd haldið frá eðli- legri þátttöku í mannlífinu. Hann má kallast góður ef hann þarf ekki *að leita á náðir hjálparstofnana, en tölur sýna að rámur helmingur skjólstæðinga Hjálparstofnunar kirkjunnar og Rauða krossins er öryrkjar - fólk sem vegna fötlunar og veikinda hefur ekki til hnífs og skeiðar. Þetta ástand hefur Hjálp- arstofnun kirkjunnar gagnrýnt og skorað á íslensk stjómvöld að bæta svo net almannatrygginga að þeir sem þurfí á því að halda geti skap- að sér mannsæmandi líf. Aðskilnaðarstefna á grundvelli fötlunar Til viðbótar við þessar lágu bæt- ur er hér á landi beitt ýmsum stjómvaldsaðgerðum sem sporna gegn atvinnuþátttöku öiyrkja, menntun og fjölskyldulífí. Hér er fyrst og fremst um að ræða jaðar- skatta og tekjutengingar sem gagnvart öryi'kjum ná út fyrir öll réttlætis- og skynsemismörk. Má í því sambandi minna á að bæði prestastefna og umboðsmaður fatl- aðra hjá Sameinuðu þjóðunum hafa gagnrýnt það að hér á landi skuli tekjutrygging öryrkja háð tekjum maka þeirra, gagnstætt því sem viðgengst um atvinnuleysisbætur '"'og aðrar ti-yggingabætur. Það vek- ur því óneitanlega nokkra furðu að á sama tíma og stjórnmálamenn hafa hvað mestar áhyggjur af stöðu fjölskyldunnar og háum jað- arsköttum skuli þeir ekki hefjast handa þar sem gróflegast er grafið undan fjölskyldum og jaðarskattar koma harðast niður. Ljóst er að þótt það eigi ekki að heita svo að hér séu í gildi sérregl- ur um borgararéttindi öryrkja, þá er það svo í reynd. Það er líka ljóst að ef eitthvert annað ríki færi svona með fólk á gnindvelli litar- háttar myndum við kalla það að- skilnaðarstefnu, mótmæla á al- Jj'jóðavettvangi og taka þátt í við- skiptabanni. Hér er með öðrum orðum um aðskilnaðarstefnu að ræða - aðskilnaðarstefnu sem grundvölluð er á fötlun. I dag vill enginn kannast við að hafa kært sig kollóttan um kyn- þáttamisrétti og hér á landi hefur skilningur á jafnrétti kynjanna aukist svo mjög að segja má að þegar talað er um jafnréttismálin þá detti okkur varla annað í hug en átt sé við jafnrétti karla og kvenna. I allri kvenfrelsisumræðunni, sem vitaskuld hefur verið giíðaidega mikilvæg fyrir allt okkar samfélag, er eins og það hafí farið framhjá stjórnmálamönnum að jafnrétti er hvergi eins gróflega brotið og gagnvart öryrkjum. Þeir ráðamenn sem ákvarða öryrkjum jafn lágar bætur og raun ber vitni verða að fara að horfast í augu við þá stað- reynd að með því eru þeir að úti- loka þá frá eðlilegri þátttöku í sam- félaginu, að með því eru þeir að framfylgja aðskilnaðarstefnu. Lífseigir fordómar En hvers vegna virðast ráða- menn ekki skynja alvöru málsins? Því miður verður ekki framhjá því horft að allt of stór hluti svarsins felst óhjákvæmilega í þeirri stað- reynd að þorri stjórnmálamanna á enn of langt í land með að bera fulla virðingu fyrir fótluðum, á m.ö.o. við of mikla fordóma að stríða. Og þegar talað er um for- dóma er rétt að taka það skýrt fram að fordómar eru okkur í fæst- um tilfellum með öllu sjálfráðir eða meðvitaðir, og oftar sprottnir af lít- ilsigldu sjónarhomi en illum hvöt- um. Þetta má glöggt sjá hjá ýms- um þeim sem telja sig hafa fullan skilning á réttindabaráttu öryrkja en afhjúpa sífellt hug sinn með tungutakinu einu, tala til dæmis um samúð í stað samstöðu og mannúð í stað mannréttinda, tala um þá sem minna mega sín og jafn- vel sína minnstu bræður. Við minnumst þess stundum með óhug hve stutt er síðan lögin um vistarbandið voru afnumin, síð- an konur fengu kosningarétt, og að ekki skuli vera nema mannsaldur síðan svokallaðir sveitarómagar - sem gjarnan var annað nafn yfír öryrkja - fengu kosningarétt. Eins víst er að eftir einungis aldartjórð- ung muni börn okkar og barnabörn krefja okkur skýringa á því hvern- ig á því hafí staðið að allt til loka tuttugustu aldarinnar hafi í reynd verið hér í gildi sérreglur um borg- araréttindi öryrkja, aðskilnaðar- stefna sem grundvölluð var á fótl- un. Þá munum við þurfa að viður- kenna að ekki hafí fyrirfundist sið- menntuð velmegunarþjóð sem eyddi eins litlu broti þjóðartekna sinna í ti-yggingabætur til öryrkja. Þá munum við þurfa að viðurkenna að við kærðum okkur kollótt um þá meðferð sem fatlaðir voru látnir sæta, meðferð sem átti ekki sinn líka meðal nágrannaþjóðanna. Siðferðisbrestur ráðamanna Sú öld sem nú er senn á enda var í upphafi öld sjálfstæðisbaráttu. Síðar tóku við verkalýðsbarátta og loks kvenfrelsisbarátta. Þótt enn megi bæta um betur á öllum þess- um sviðum blasir við að mannrétt- indi öryrkja verða eitt stærsta mál- efnið sem stjómmálamenn næstu ára þurfa að takast á við, kynna sér og taka afstöðu til. Þá mun til þess verða tekið hverjir það verða sem fyrstir ganga fram fyrir skjöldu og þegar upp verður staðið munu sagnfræðingar halda því til haga hvað hver og einn gerði og hvað hann lét ógert. Öryrkjabandalag íslands hefur vakið athygli á því að á síðustu fimm árum hafa örorkulífeyrir og tekjutrygging einungis hækkað um þriðjung þess sem lágmarkslaun hafa hækkað á sama tíma. Öryrkja- bandalagið hefur einnig vakið at- hygli á því að ekkert nágrannaríkja okkar ver eins litlu broti þjóðar- tekna sinna til öryrkja og umhugs- unarvert hvort ekki sé löngu orðið tímabært að bandalagið kynni þessa þjóðarsmán fyrir helstu sam- starfsríkjum okkar á vettvangi Norðurlandanna og Evrópu, kynni þetta a.m.k. fyrir þeim erlendu gestum og blaðamönnum sem hingað koma. Biskup Islands og landlæknir hafa hvor á sinn hátt gengið fram fyrir skjöldu til að vekja athygli á þeim siðferðisbresti sem endur- speglast í bótaupphæðum al- mannatrygginga. Landlæknir hef- ur að auki fært rök fyrir því að sú fátækt sem stjórnvöld ákvarða ör- yrkjum auki á veikleika og veki upp nýja sjúkdóma sem kosta sam- félagið vemleg fjárátlát, sé með öðram orðum alvarlegt heilbrigðis- vandamál. En rannsóknir hafa sýnt að þegar fjárhagsvandræði bætast við langvarandi veikindi og fótlun leiðir það gjarnan til mikillar and- legrar vanlíðunar, þunglyndis, fé- lagslegi’ar einangi-unar og ein- manaleika. A hinn bóginn má benda á að með hækkun örorku- bóta um nokkra tugi þúsunda myndi ríkissjóður fá ráman helm- ing til baka i einu eða öðra formi, og era þá ótalin ýmis óbein útgjöld sem slík ráðstöfun myndi spara þjóðfélaginu. Gjá milli þings og þjóðar Það gleymist gjaman að með hinum lágu bótaupphæðum er ekki aðeins verið að lítilsvirða öiyrkj- ann, heldur einnig börn hans. Þeim gengur misvel að skilja að fátæktin sem þeim er gert að búa við á ræt- ur að rekja til fötlunar móður eða fóður, hvað þá að þau geti skilið þann hug sem býr að baki hinum lágu bótum - hugsunarhátt þeirra manna sem gera börnum ókleift að taka þátt í félags- og tómstunda- starfi með jafnöldram sínum, fara með þeim í ferðalög, læra á hljóð- færi, æfa íþróttir o.s.frv. Hvort heldur okkur líkar það betur eða verr verðum við að horfast í augu við þá staðreynd að framganga íslenskra ráðamanna í málefnum öryrkja endurspeglar ekki aðeins alvarlegan siðferðis- brest, heldur er hún óhagkvæm og skammsýn - sáir fræjum fordóma og grefur undan þeim siðferðisgild- um sem við viljum gjarnan tráa að hér hafi verið höfð að leiðarljósi í bráðum þúsund ár. Nýlega birti Félagsvísindastofn- un Háskólans niðurstöður um- fangsmestu könnunar sem gerð hefur verið á viðhorfum íslendinga til velferðarmála. Einhver afdrátt- arlausasta niðurstaða þeirrar könnunar var sú að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er búinn að fá nóg af því hvernig farið er með öryrkja í þessu ríka landi. Yfír- gnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill að ti-yggingabætur öryrkja verði hækkaðar. Þetta gengur þvert á þá forgangsröðun sem ráðamenn hafa fylgt og sýnm að hér hefur almenningur orðið fyi'ri til að átta sig á hve röng og siðlaus stefna stjórnvalda er í málefnum öiyrkja. Sú gjá sem þama er stað- fest milli þings og þjóðar sýnir að meðal hins óbreytta almennings er að verða hugarfarsbreyting, að daunillt loft fordómanna er þar á verulegu undanhaldi. Askorun til Alþingis Um leið og Öryrkjabandalag ís- lands þakkar þeim fjölmörgu aðil- um, kirkjunnar mönnum, land- lækni, fjölmiðlum og almenningi, þann stuðning sem auðfundinn hef- ur verið á síðustu vikum, skorar bandalagið á Alþingi að aflétta því neyðarástandi sem ríkir í trygg- ingamálum öryrkja og búa svo um hnúta að bætur dragist aldrei aftur úr þróun launavísitölu. Bandalagið skorar á Alþingi að viðurkenna hina margvíslegu sér- stöðu öryrkja með því að hækka grannlífeyri sérstaklega og mest hjá þeim sem verða fyrir varan- legri örorku á æskuárum. Hafa ber í huga að hér er um að ræða fólk sem ekki hefur átt þess kost að ávinna sér lífeyrissjóðsrétt, eignast húsnæði og njóta þeirra launa og lífsfyllingar sem heilbrigðri starfsævi fylgir. Þvert á móti hefur það, oft frá unglingsaldri, búið við þrengstu fjárhagsskorður sem þekkjast og borið margvíslegan kostnað af fótlun sinni. Að síðustu skorar Öryi'kja- bandalag Islands á stjórnvöld að afnema þegar í stað skerðingu bóta vegna tekna maka og létta til muna jaðarsköttum af því fólki sem harð- ast verður fyrir þeim. Baráttan gegn aðskilnaðarstefnu íslenskra stjórnvalda er hvorki kjarabarátta né mannúðarbarátta. Hún er mannréttindabarátta. uppboo ÝMISLEGT íbúð óskast í desember Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir. Hafnarlóð 6, hluti C Skagaströnd, þingl. eig. Hjörleifur K. Júlíusson, gerðarbeiðandi Landsbanki islands hf., lögfræðideild, mánudaginn 7. desember 1998 kl. 14.00. Skagavegur 15, efri hæð og bílskúr, þingl. eig. Einar Ólafur Karlsson, gerðarbeiðendur Lífeyrirssjóður verkalýðsfélaga á Norðurlandi vestra og sýslumaðurinn á Blönduósi, mánudaginn 7. desember 1998 kl. 13.30 Blönduósi 2. desember 1998. t Sýslumaðurinn á Blönduósi. Fatnaður Mjög þekkt og virt stór dönsk verslunarkeðja, leitar að kaupendum að gæðafatnaði, prjóna- vörum og sokkavörum fyrir alla aldurshópa, af umframlager okkar — á kostnaðarverði og tilbúið til flutnings. Svörum fyrirspurnum strax, skjót þjónusta. United Sales, sími 0045 36 493847, fax 0045 36 493857. íslensk hjón, búsett erlendis, óska eftir góðri íbúð til leigu miðsvæðis í Reykjavík frá 1. des- embertil 1. janúar. Verðhugmynd 40—60 þús- und krónur. Góðri umgengni heitið. Vinsamlega hafið samband í síma 565 4865 og leggið inn nafn og símanúmer. www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.