Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 54
^4 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐLEGUR DAGUR FATLAÐRA
> •• +
Avarp Oryrkjabandalags Islands
á degi fatlaðra
Afléttum
aðskilnaðar-
stefnunni
MEÐ mannréttindasáttmálum
höfum við Islendingar skuldbundið
okkur til að tryggja að hver ein-
staklingur eigi kost á fullri þátt-
töku í menningar- og mannlífí þjóð-
arinnar. Þegar við nú fógnum
hálfrar aldar afmæli Mannrétt-
indayfírlýsingar Sameinuðu þjóð-
anna er við hæfi að líta ögn í eigin
barm og spyi’ja: Hvernig höfum við
staðið við okkar hlut?
Vart þarf að fara mörgum orðum
um að þeim öryrkja sem einungis
getur reitt sig á bætur almanna-
trygginga er í reynd haldið frá eðli-
legri þátttöku í mannlífinu. Hann
má kallast góður ef hann þarf ekki
*að leita á náðir hjálparstofnana, en
tölur sýna að rámur helmingur
skjólstæðinga Hjálparstofnunar
kirkjunnar og Rauða krossins er
öryrkjar - fólk sem vegna fötlunar
og veikinda hefur ekki til hnífs og
skeiðar. Þetta ástand hefur Hjálp-
arstofnun kirkjunnar gagnrýnt og
skorað á íslensk stjómvöld að bæta
svo net almannatrygginga að þeir
sem þurfí á því að halda geti skap-
að sér mannsæmandi líf.
Aðskilnaðarstefna
á grundvelli fötlunar
Til viðbótar við þessar lágu bæt-
ur er hér á landi beitt ýmsum
stjómvaldsaðgerðum sem sporna
gegn atvinnuþátttöku öiyrkja,
menntun og fjölskyldulífí. Hér er
fyrst og fremst um að ræða jaðar-
skatta og tekjutengingar sem
gagnvart öryi'kjum ná út fyrir öll
réttlætis- og skynsemismörk. Má í
því sambandi minna á að bæði
prestastefna og umboðsmaður fatl-
aðra hjá Sameinuðu þjóðunum hafa
gagnrýnt það að hér á landi skuli
tekjutrygging öryrkja háð tekjum
maka þeirra, gagnstætt því sem
viðgengst um atvinnuleysisbætur
'"'og aðrar ti-yggingabætur. Það vek-
ur því óneitanlega nokkra furðu að
á sama tíma og stjórnmálamenn
hafa hvað mestar áhyggjur af
stöðu fjölskyldunnar og háum jað-
arsköttum skuli þeir ekki hefjast
handa þar sem gróflegast er grafið
undan fjölskyldum og jaðarskattar
koma harðast niður.
Ljóst er að þótt það eigi ekki að
heita svo að hér séu í gildi sérregl-
ur um borgararéttindi öryrkja, þá
er það svo í reynd. Það er líka ljóst
að ef eitthvert annað ríki færi
svona með fólk á gnindvelli litar-
háttar myndum við kalla það að-
skilnaðarstefnu, mótmæla á al-
Jj'jóðavettvangi og taka þátt í við-
skiptabanni. Hér er með öðrum
orðum um aðskilnaðarstefnu að
ræða - aðskilnaðarstefnu sem
grundvölluð er á fötlun.
I dag vill enginn kannast við að
hafa kært sig kollóttan um kyn-
þáttamisrétti og hér á landi hefur
skilningur á jafnrétti kynjanna
aukist svo mjög að segja má að
þegar talað er um jafnréttismálin
þá detti okkur varla annað í hug en
átt sé við jafnrétti karla og kvenna.
I allri kvenfrelsisumræðunni, sem
vitaskuld hefur verið giíðaidega
mikilvæg fyrir allt okkar samfélag,
er eins og það hafí farið framhjá
stjórnmálamönnum að jafnrétti er
hvergi eins gróflega brotið og
gagnvart öryrkjum. Þeir ráðamenn
sem ákvarða öryrkjum jafn lágar
bætur og raun ber vitni verða að
fara að horfast í augu við þá stað-
reynd að með því eru þeir að úti-
loka þá frá eðlilegri þátttöku í sam-
félaginu, að með því eru þeir að
framfylgja aðskilnaðarstefnu.
Lífseigir
fordómar
En hvers vegna virðast ráða-
menn ekki skynja alvöru málsins?
Því miður verður ekki framhjá því
horft að allt of stór hluti svarsins
felst óhjákvæmilega í þeirri stað-
reynd að þorri stjórnmálamanna á
enn of langt í land með að bera
fulla virðingu fyrir fótluðum, á
m.ö.o. við of mikla fordóma að
stríða. Og þegar talað er um for-
dóma er rétt að taka það skýrt
fram að fordómar eru okkur í fæst-
um tilfellum með öllu sjálfráðir eða
meðvitaðir, og oftar sprottnir af lít-
ilsigldu sjónarhomi en illum hvöt-
um. Þetta má glöggt sjá hjá ýms-
um þeim sem telja sig hafa fullan
skilning á réttindabaráttu öryrkja
en afhjúpa sífellt hug sinn með
tungutakinu einu, tala til dæmis
um samúð í stað samstöðu og
mannúð í stað mannréttinda, tala
um þá sem minna mega sín og jafn-
vel sína minnstu bræður.
Við minnumst þess stundum
með óhug hve stutt er síðan lögin
um vistarbandið voru afnumin, síð-
an konur fengu kosningarétt, og að
ekki skuli vera nema mannsaldur
síðan svokallaðir sveitarómagar -
sem gjarnan var annað nafn yfír
öryrkja - fengu kosningarétt. Eins
víst er að eftir einungis aldartjórð-
ung muni börn okkar og barnabörn
krefja okkur skýringa á því hvern-
ig á því hafí staðið að allt til loka
tuttugustu aldarinnar hafi í reynd
verið hér í gildi sérreglur um borg-
araréttindi öryrkja, aðskilnaðar-
stefna sem grundvölluð var á fótl-
un. Þá munum við þurfa að viður-
kenna að ekki hafí fyrirfundist sið-
menntuð velmegunarþjóð sem
eyddi eins litlu broti þjóðartekna
sinna í ti-yggingabætur til öryrkja.
Þá munum við þurfa að viðurkenna
að við kærðum okkur kollótt um þá
meðferð sem fatlaðir voru látnir
sæta, meðferð sem átti ekki sinn
líka meðal nágrannaþjóðanna.
Siðferðisbrestur
ráðamanna
Sú öld sem nú er senn á enda var
í upphafi öld sjálfstæðisbaráttu.
Síðar tóku við verkalýðsbarátta og
loks kvenfrelsisbarátta. Þótt enn
megi bæta um betur á öllum þess-
um sviðum blasir við að mannrétt-
indi öryrkja verða eitt stærsta mál-
efnið sem stjómmálamenn næstu
ára þurfa að takast á við, kynna sér
og taka afstöðu til. Þá mun til þess
verða tekið hverjir það verða sem
fyrstir ganga fram fyrir skjöldu og
þegar upp verður staðið munu
sagnfræðingar halda því til haga
hvað hver og einn gerði og hvað
hann lét ógert.
Öryrkjabandalag íslands hefur
vakið athygli á því að á síðustu
fimm árum hafa örorkulífeyrir og
tekjutrygging einungis hækkað um
þriðjung þess sem lágmarkslaun
hafa hækkað á sama tíma. Öryrkja-
bandalagið hefur einnig vakið at-
hygli á því að ekkert nágrannaríkja
okkar ver eins litlu broti þjóðar-
tekna sinna til öryrkja og umhugs-
unarvert hvort ekki sé löngu orðið
tímabært að bandalagið kynni
þessa þjóðarsmán fyrir helstu sam-
starfsríkjum okkar á vettvangi
Norðurlandanna og Evrópu, kynni
þetta a.m.k. fyrir þeim erlendu
gestum og blaðamönnum sem
hingað koma.
Biskup Islands og landlæknir
hafa hvor á sinn hátt gengið fram
fyrir skjöldu til að vekja athygli á
þeim siðferðisbresti sem endur-
speglast í bótaupphæðum al-
mannatrygginga. Landlæknir hef-
ur að auki fært rök fyrir því að sú
fátækt sem stjórnvöld ákvarða ör-
yrkjum auki á veikleika og veki
upp nýja sjúkdóma sem kosta sam-
félagið vemleg fjárátlát, sé með
öðram orðum alvarlegt heilbrigðis-
vandamál. En rannsóknir hafa sýnt
að þegar fjárhagsvandræði bætast
við langvarandi veikindi og fótlun
leiðir það gjarnan til mikillar and-
legrar vanlíðunar, þunglyndis, fé-
lagslegi’ar einangi-unar og ein-
manaleika. A hinn bóginn má
benda á að með hækkun örorku-
bóta um nokkra tugi þúsunda
myndi ríkissjóður fá ráman helm-
ing til baka i einu eða öðra formi,
og era þá ótalin ýmis óbein útgjöld
sem slík ráðstöfun myndi spara
þjóðfélaginu.
Gjá milli þings
og þjóðar
Það gleymist gjaman að með
hinum lágu bótaupphæðum er ekki
aðeins verið að lítilsvirða öiyrkj-
ann, heldur einnig börn hans. Þeim
gengur misvel að skilja að fátæktin
sem þeim er gert að búa við á ræt-
ur að rekja til fötlunar móður eða
fóður, hvað þá að þau geti skilið
þann hug sem býr að baki hinum
lágu bótum - hugsunarhátt þeirra
manna sem gera börnum ókleift að
taka þátt í félags- og tómstunda-
starfi með jafnöldram sínum, fara
með þeim í ferðalög, læra á hljóð-
færi, æfa íþróttir o.s.frv.
Hvort heldur okkur líkar það
betur eða verr verðum við að
horfast í augu við þá staðreynd að
framganga íslenskra ráðamanna í
málefnum öryrkja endurspeglar
ekki aðeins alvarlegan siðferðis-
brest, heldur er hún óhagkvæm og
skammsýn - sáir fræjum fordóma
og grefur undan þeim siðferðisgild-
um sem við viljum gjarnan tráa að
hér hafi verið höfð að leiðarljósi í
bráðum þúsund ár.
Nýlega birti Félagsvísindastofn-
un Háskólans niðurstöður um-
fangsmestu könnunar sem gerð
hefur verið á viðhorfum íslendinga
til velferðarmála. Einhver afdrátt-
arlausasta niðurstaða þeirrar
könnunar var sú að yfirgnæfandi
meirihluti þjóðarinnar er búinn að
fá nóg af því hvernig farið er með
öryrkja í þessu ríka landi. Yfír-
gnæfandi meirihluti þjóðarinnar
vill að ti-yggingabætur öryrkja
verði hækkaðar. Þetta gengur
þvert á þá forgangsröðun sem
ráðamenn hafa fylgt og sýnm að
hér hefur almenningur orðið fyi'ri
til að átta sig á hve röng og siðlaus
stefna stjórnvalda er í málefnum
öiyrkja. Sú gjá sem þama er stað-
fest milli þings og þjóðar sýnir að
meðal hins óbreytta almennings er
að verða hugarfarsbreyting, að
daunillt loft fordómanna er þar á
verulegu undanhaldi.
Askorun til Alþingis
Um leið og Öryrkjabandalag ís-
lands þakkar þeim fjölmörgu aðil-
um, kirkjunnar mönnum, land-
lækni, fjölmiðlum og almenningi,
þann stuðning sem auðfundinn hef-
ur verið á síðustu vikum, skorar
bandalagið á Alþingi að aflétta því
neyðarástandi sem ríkir í trygg-
ingamálum öryrkja og búa svo um
hnúta að bætur dragist aldrei aftur
úr þróun launavísitölu.
Bandalagið skorar á Alþingi að
viðurkenna hina margvíslegu sér-
stöðu öryrkja með því að hækka
grannlífeyri sérstaklega og mest
hjá þeim sem verða fyrir varan-
legri örorku á æskuárum. Hafa ber
í huga að hér er um að ræða fólk
sem ekki hefur átt þess kost að
ávinna sér lífeyrissjóðsrétt, eignast
húsnæði og njóta þeirra launa og
lífsfyllingar sem heilbrigðri
starfsævi fylgir. Þvert á móti hefur
það, oft frá unglingsaldri, búið við
þrengstu fjárhagsskorður sem
þekkjast og borið margvíslegan
kostnað af fótlun sinni.
Að síðustu skorar Öryi'kja-
bandalag Islands á stjórnvöld að
afnema þegar í stað skerðingu bóta
vegna tekna maka og létta til muna
jaðarsköttum af því fólki sem harð-
ast verður fyrir þeim.
Baráttan gegn aðskilnaðarstefnu
íslenskra stjórnvalda er hvorki
kjarabarátta né mannúðarbarátta.
Hún er mannréttindabarátta.
uppboo
ÝMISLEGT
íbúð óskast í desember
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir.
Hafnarlóð 6, hluti C Skagaströnd, þingl. eig. Hjörleifur K. Júlíusson,
gerðarbeiðandi Landsbanki islands hf., lögfræðideild, mánudaginn
7. desember 1998 kl. 14.00.
Skagavegur 15, efri hæð og bílskúr, þingl. eig. Einar Ólafur Karlsson,
gerðarbeiðendur Lífeyrirssjóður verkalýðsfélaga á Norðurlandi vestra
og sýslumaðurinn á Blönduósi, mánudaginn 7. desember 1998
kl. 13.30
Blönduósi 2. desember 1998.
t Sýslumaðurinn á Blönduósi.
Fatnaður
Mjög þekkt og virt stór dönsk verslunarkeðja,
leitar að kaupendum að gæðafatnaði, prjóna-
vörum og sokkavörum fyrir alla aldurshópa,
af umframlager okkar — á kostnaðarverði og
tilbúið til flutnings.
Svörum fyrirspurnum strax, skjót þjónusta.
United Sales,
sími 0045 36 493847,
fax 0045 36 493857.
íslensk hjón, búsett erlendis, óska eftir góðri
íbúð til leigu miðsvæðis í Reykjavík frá 1. des-
embertil 1. janúar. Verðhugmynd 40—60 þús-
und krónur. Góðri umgengni heitið.
Vinsamlega hafið samband í síma 565 4865
og leggið inn nafn og símanúmer.
www.mbl.is