Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 70
f70 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÁ félagsmiðstöð aldraðra í Árskógum.
Tímaritið
Lifandi
vísindi árs-
gamalt
13. TÖLUBLAÐ tímaritsins Lif-
andi vísindi er nýkomið út með
fjölbreyttu efni. Meðal efnis má
nefna greinina Ur myrkrinu í ljós-
ið, sem greinir frá sérstakri með-
ferð sem gæti hjálpað fjölda ein-
hverfra til að ná bata.
I kynningu á nýrri sjónvarps-
tækni er fjallað um leysigeislasjón-
varp, í annarri grein er fjallað um
baráttu dýrafræðinga íyrir betra
lífi mannapanna. í greininni „Við
erum heimskari í fríunum" er
greint frá þvi að heilinn skreppi
saman þegar fólk er í fríi. Þá er
fjallað um ótta sérfræðinga um að
banvænn inflúensufaraldur geti
verið á næsta leiti, sérstök grein er
um kjamorkueðlisfræðinginn Ric-
hard Feynman, sem hlaut Nóbels-
verðlaunin í eðlisfræði, fjallað er
um námsráðgjöf Háskóla Islands
og greinin Land i gylltum hlekkj-
um fjallar um Burma, ríkasta og
fátækasta ríki Asíu.
» I þættinum Ný þekking er
greint frá ormum sem berjast um
karlkynshlutverkið og í greininni
Ljósskin á húð getur bjargað næt-
ursvefninum er sagt frá því að
flugþreytu, svefnleysi og skamm-
degisþunglyndi sé hægt að með-
höndla með einfaldri ljósameðferð.
Lifandi vísindi er 76 síður,
prentað á afar vandaðan pappír og
skreytt íjölda litmynda. Prent-
vinnsla er unnin í Steindórsprenti
Gutenberg og ritstjóri og ábyrgð-
-armaður er Guðbjartur Finn-
bjömsson.
Aðventustund
*
í Arskógum
AÐVENTUSTUND verður haldin í
félagsmiðstöð aldraðra v/Árskóga
föstudaginn 4. desember kl. 14.
Þar verður m.a. kveikt á aðventu-
kransi, hugvekja í umsjón Ólafs
Skúlasonar, íyrrum biskups, böm úr
Suzuki-tónlistarskólanum, flytja tón-
list og Guðrún Ásmundsdóttir leik-
kona les jólasögu. Jólakaffihlaðborð
verður í boði á 600 kr.
Allir 67 ára og eldri velkomnir.
-----------------
Fræðsla hjá
fötluðum
í DAG, 3. desember á alþjóðlegum
degi fatlaðra, stendur FFA - fræðsla
fyrir fatlaða og aðstandendur - að
kynningu á störfum og starfsviðum
svæðisráða og trúnaðarmanna fatl-
aðra. Fundurinn verður haldinn hjá
Þroskahjálp, Suðurlandsbraut 22 og
hefst kl. 20. Á fundinum munu kynna
störf sín og svara fyrirspumum þau
Halldór Gunnarsson formaður svæð-
isráðs Reykjavíkur, Snorri Aðal-
steinsson formaður svæðisráðs
Reykjaness, Hrefna Haraldsdóttir
trúnaðarmaður fatlaðra í Reykjavík
og Bjami Þór Bjamason trúnaðar-
maður fatlaðra á Reykjanesi. Fatlaðir
og aðstandendur þeirra em hvattir til
að fjölmenna á fundinn og kynna sér
réttindi sín í lögum um málefni fatl-
aðra.
Aðild að FFA eiga: Landssamtök-
in Þroskahjálp, Sjálfsbjörg, Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra og
Styrktarfélag vangefinna.
-------♦-♦-♦------
Vistfræði íslenskra
stöðuvatna
Miðlægur
gagnagrunnur
I DAG dr. Sigurður S. Snorrason
dósent við líffræðiskor HI halda
fyrirlestur um miðlægan gagna-
grunn um vistfræði íslenskra stöðu-
vatna.
I erindinu verður sagt frá sam-
starfi fjögurra rannsóknastofnana
um uppbyggingu miðlægs gagna-
gmnns um vistfræði íslenskra stöðu-
vatna. í gagnagmnninn hefur m.a.
verið safnað upplýsingum um jarð-
fræði og gróðurfar á viðkomandi
vatnasviðum, eðlis- og efnaeiginleika
vatnsins svo og gerð smádýra- og
jurtasamfélaga í svifi og á botni. I
erindinu verður greint frá notagildi
gagnagmnnsins og tekin dæmi til
skýringar.
VETRARVINDAR
2 fyrir 1 á Vetrarvinda!
KVIKMYNDAHATIÐ
I HASKOLABIOI OG REGNBOGANUM
26. nóv.-16. des.
Gegn framvísun þessarar auglýsingar
býður Morgunblaðið lesendum sínum
tvo miða á verói eins á kvikmynda-
hátíðina Vetrarvinda sem haldin er í
Regnboganum og Háskólabíói.
Góða skemmtun!
flárgasttMgtHfr 1
CCMpricikikl
HASKÓLABIÓ
Styrktu Götu-
smiðjuna
RYDENSKAFFI, umboðsaðili Ma-
arud á íslandi, ákvað að senda ekki
út jólakort þetta árið heldur láta
þess í stað gott af sér leiða á jóla-
hátíðinni. Á mánudaginn afhenti
fulltrúi Rydenskaffis fulltrúa frá
meðferðarheimilinu Götusmiðj-
unni-Virkinu 100.000 króna ávísun
til styrktar meðferðarheimilinu,
sem sérhæfir sig í meðferð ung-
menna í vímuefnavanda. Styrkur-
inn kemur sér án efa vel þar sem
meðferðarheimilið hefur enn ekk-
ert öruggt fjármagn til reksturs-
ins.
FULLTRÚI Götusmiðjunnar-
Virkisins, Marsibil Sæmunds-
dóttir framkvæmdastjóri og
fulltrúi Rydenskaffis, Baldur
Árnason sölustjóri.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ Kaffistofunni í Hafnarborg.
Nýr rekstraraðili Kaffistof-
unnar í Hafnarborg
GUÐBJÖRG Ósk Friðriksdóttir
hefur tekið við rekstri á Kaffistof-
unni í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar.
I tilefni þessara breytinga hafa
orðið smávægilegar breytingar,
boðið verður áfram upp á tertur og
smurt brauð en við bætast ýmsir
smáréttir í hádeginu ættaðir frá
Italíu svo sem pasta, ciabatta með
léttsteiktu grænmeti og með súp-
unni verða nýbökuð gerlaus brauð.
Laugardaginn 12. desember nk.
munu allir kórar Hafnarfjarðar allt
frá yngstu deildunum í grunnskóla
koma fram í Hafnarborg. Af því til-
efni mun Kaffistofan bjóða upp á
jólahlaðborð frá kl. 12-20 auk hefð-
bundinna veitinga og verður þá
kaffistofan opin fram eftir kvöldi.
Einnig verður jólahlaðborðið 17.
desember og opið til kl. 23.30. Að
öðru leyti er Kaffistofan opin virka
daga kl. 9-18 en lokað á þriðjudög-
um. Opið er um helgar kl. 11-18.
Þess má geta að Kaffistofan verður
lokuð á milli jóla og nýárs eins og
Hafnarborg.
Þungar
áhyggjur
.ADALFUNDUR Landssamtaka
heilsugæslustöðva haldinn í
Reykjavík 20.11. ‘98 lýsir þungum
áhyggjum yfir þróun mála í mönn-
un læknishéraða á landsbyggð-
inni.
Mikilvægt er að snúa þessari
þróun við og lýsa samtökin sig
reiðubúin til samvinnu við stjórn-
völd um leiðir til úrbóta, þar sem
málið er brýnt,“ segir í ályktun frá
Landssamtökum heilsugæslu-
stöðva.
VÖRURMEÐ
ÞESSU MERKI
MENGA MINNA
Norræna umhverfismerkið
hjálpar þér að velja þær vörur
sem skaða síður umhverfiö.
Þannig færum við verðmæti
til komandi kynslóða.
UMHVERFISMERKiSRÁÐ
HOLLUSTUVERND RÍKISINS
Upplýsingar hjá Hollustuvernd ríksins
í síma 568 8848, heimasíöa: www.hollver.is
Aðventustund
SUNNUDAGINN 6. des. verður að-
ventustund 1 kirkjunni kl. 16. Þar
munu börn úr TTT-starfi kirkjunnar
sýna helgileik og syngja. Barnakór
kirkjunnar flytur söngleikinn
„Hljóðu kirkjuklukkurnar". Stjórn-
un og undirleik annast hjónin Sigur-
óli Geirsson og Vilborg Sigurjóns-
dóttir. Þá verður einnig almennur
söngur þar sem sungin verða að-
ventu- og jólalög.
Strax á eftir aðventustundinni í
kirkjunni verður gengið út á svæðið
fyrir framan Landsbankann, en þar
verður kveikt á jólatré sem er gjöf
frá Hirtshals í Danmörku, sem er
vinabær Grindavíkur. Hefst sú at-
höfn kl. 17 með því að nýráðinn bæj-
arstjóri, Einar Njálsson, flytur
ávaip, barnakór og blásarar úr Tón-
listarskólanum leika og syngja jóla-
lög og jólasveinar koma og láta í sér
heyra.
Allir bæjarbúar eru hvattir til að
taka þátt í þessum samverustundum
í Grindavík á sunnudaginn.
0TRULEGA
Verð kr. 290.
Heildsala — smásala.
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 TT S62 2901 og 562 2900