Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Forstöðumaður Verðlagsstofu
Leggjum áherslu á
vönduð vinnubrögð
VALTÝR Hreiðarsson, forstöðu-
maður Verðlagsstofu skiptaverðs,
segir stofunna viðhafa vönduð
vinnubrögð og vísar því fyrir sitt
leyti á bug að seinagangur einkenni
störf stofunnar. Eins og greint var
frá í Verinu í gær gagnrýndi Guð-
jón Ármann Einarsson, fram-
kvæmdastjóri skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Öldunnar, Verð-
lagsstofu í ræðu sinni á formanna-
ráðstefnu Farmanna- og fiski-
mannafélags Islands í síðustu viku.
Hlutverk Verðlagsstofu skipta-
verðs er að fylgjast með fískverði
og stuðla að eðlilegu uppgjöri á
aflahlut fiskiskipa. Valtýr segir að
frá því stofan tók til starfa 1. júní
sl. hafi gögnum verið safnað og ver-
ið sé að vinna úr þeim. „Nú hafa
verið innheimtir á annað hundrað
fiskverðssamningar og það gengur
að mínu mati vel að vinna úr þeim.
Það kemur engin sérstök niður-
staða úr þeirri vinnu en þessi gögn
munu liggja hjá okkur ef á þarf að
halda,“ segir Valtýr.
Verðlagsstofa hefur heimild til að
vísa einstökum málum til úrskurð-
arnefndar útvegsmanna sjómanna
og hefur gert það í tvígang frá því
stofan tók til starfa. Valtýr segir að
deila megi um hvort slíkt teljist
óeðlilega fá mál. „Við leggjum að-
eins áherslu á að rökstuðningur
okkar á málsskot til úrskurðar-
nefndar sé sterkur. Við höfum verið
að láta vinna fyrir okkur tölfræði-
leg gögn sem síðan má hugsanlega
nota í einstökum málum. Þetta tek-
ur sinn tíma og við viljum ekki
hlaupa af stað með upplýsingar
sem síðar geta valdið írafári. Þessi
vinna tekur ekki lengri tíma en ég
bjóst við. Það er mikill misskilning-
ur ef menn hafa haldið að Verðlags-
stofa gerði kraftaverk. Málið er
flóknara en svo.“
I ræðu sinni á formannaráðstefn-
unni vék Guðjón m.a. að mismun-
andi túlkun samtaka sjómanna og
Verðlagsstofu á lögum um verksvið
stofunnar. Valtýr segir sitt mat að
þessi ágreiningur sé óverulegur og
skipti ekki höfuðmáli í starfsemi
Verðlagsstofu.
Auka hrefnukvóta
STJÓRNVÖLD í Noregi hafa
ákveðið að leyfa veiðar á 753 hrefn-
um á næsta ári. Inni í þeirri tölu eru
140 hrefnur, sem ekki náðist að
veiða á fyrri vertíðum. Kvótinn í
fyrra var 671 hvalur, en alls veidd-
ust 624 dýr.
Jan Kristiansen, formaður
norsku hvalveiðisamtakanna, Norge
smaahvalfangerlag, segir að þetta
sé allt of lítill kvóti. Hvalveiðimenn
hafi búizt við mun meiri kvóta enda
sé það í samræmi við tillögur vís-
indamanna. Tveir hrefnustofnar eru
nýttir í Atlantshafinu, stofninn í
austurhlutanum er talinn vera um
184.000 hvalir og 72.000 hvalir á
miðju hafinu.
„Miðað við viðkomu hrefnunnar
og lágmarks vöxt upp á 1 til 2% ætti
kvótinn að vera þrisvar sinnum
meiri en nú verður leyfilegt eða um
2.000 dýr. Það hefur verið talið að
hvalir og selir éti jafnmikið af fiski
og veiðar skili á land. Bæði hvalir og
selir eru hluti lífkeðjunnar í hafinu
eins og fiskarnir og það verður að
nýta þessar auðlindir eins og aðrar í
hafinu til að viðhalda jafnvægi í líf-
keðjunni," segir Kristiansen.
Morgunblaðið/Sigurgeir
SIGURÐUR Einarsson, framkvæmdasljóri ísfélagsins, ræsir nýju verksmiðjuna, en hún er tölvustýrð.
^ Fiskimj ölsverksmiðj a
Isfélagsins endurbyggð
ISFÉLAG Vestmannaeyja hefur endurbyggt
fiskinyölsverksmiðju sína frá grunni og er
vinnsla hafin á ný eftir langt hlé vegna endurbót-
anna. „Með þessari endurbyggingu erum við í
fremstu röð í fiskimjölsiðnaðinum og getum
framleitt hágæða nyöl án mengunar og lyktar,"
segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri ís-
félagsins, í samtali við Verið.
Verksmiðja ísfélagsins var orðin gömul og úr
sér gengin, byggð á árunuin 1964 til 1965. Meng-
un frá henni var nokkur og því aðeins brætt á
veturna til að minnka lykt frá verksmiðjunni. Nú
er hægt að viiuia allt árið án lyktar og mengunar
og bætir það rekstrargrundvöll verksmiðjunnar
venilega að sögn Sigurðar.
Fyrir hágæðanyölið fæst hærra verð, afköstin
aukast úr 600 tonnum í 900 á sólarhring, nýting
eykst, orkunotkun minnkar og færri menn þarf
við daglegan rekstur en áður. Kostnaður við
framkvæmdirnar er um 600 milljónir króna, en
innifalið í því er nýtt hús og megnið af vinnslu-
búnaði verksmiðjunnar.
viðskiptatölvur
Tilboð í desember
Dell OptiPlex™ GX1
InteÞPentium® II örgjörvi 350MHz eða 400MHz
64 MB minni (100 MHz ECC SDRAM)* 6,4 GB diskur
17" skjár • 2xAGP 4MB skjákort
3Com FastEtherlink XL 10/100 netkort
400 MHz Verð kr. 149.900 stgr. m. vsk*
350 MHz Verð kr. 136.500 stgr. m. vsk *
Dell OptiPlex™ G1
InteÞCeleron® örgjörvi 333MHz
128KB skyndiminni • 32 MB minni • 4,3 GB diskur
15" skjár • AGP 2MB skjákort
3Com FastEtherlink XL10/100 netkort
Verð kr. 109.900,-
stgr. m. vsk *
pentium’Q
OptiPlex™
með Intel® Pentium®ll örgjörvum
Dall. Dell merkið og OptiPlex™ eru skrásett
vörumerki Dell Computer Corporation.
Intel® inside merkiö og Intel® Pentium® eru skrásett
vörumerki og MMX er vörumerki Intel® Corporation.
<S3>
EJS hefur hlotiö Tick-IT vottun
á sviöi þjónustu og hugbúnaðargeröar.
Unnið eftir ISO 9001 gæöakerfi.
Grensásvegi 10 • Sími 563 3050 • Fax 568 7115
http://www.ejs.is • sala@ejs.is