Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 49 Mai-ía Bjarnadóttir fæddist og ólst upp á Akureyri umkringd fjörugum systkinum, góðum foreldrum, vinum og félögum. Jafnan minntist hún upp- vaxtarára sinna með sérstakri gleði svo maður fékk á tilfinninguna að þar hefði allan tímann verið gott veður og allir alltaf í góðu skapi. Nýlega vorum við hjónin og Sigurjón, tengdasonur Maríu, að virða fyrir okkur af svölum Hótels KEA húsið þar sem Bjami frá Unnarholci og Solveig kona hans bjuggu og ólu upp sex börn sín, son- inn Einar og dætumar fímm, Unni, Kristínu, tvíburana Maríu og Guð- rúnu og Guðfinnu. Við það minntumst við ft'ásagna Maju og lýsinga á ýms- um atvikum, orðum og gjörðum frá æskuárum. Ung að árum kynntist hún Arnold Henckell og þau gengu í hjónaband og settust að í heimaborg hans, Hamborg. Þar áttu þau góða daga, María kunni vel við sig og naut lífs- ins. Svo fæddust dæturnar, Helga Guðrún 1937 og Hilde Sólveig 1939. Oft sagði hún okkur frá lífinu í Hamborg fyrir stríð, frá görðum og gróðri, fegurð borgarinnar, góðu veðri, kaffíhúsum o.fl. - en hún var mjög hrifin af borginni - frá tengda- foreldrum sínum og öðru venslafólki sem hún hafði bundist vináttu- og tryggðaböndum. Ekki furðar mann heldur á því að þau hafi hrifist af þessari fjörugu og fallegu stúlku úr norðrinu, því María var heillandi manneskja. Svo skall stríðið á og allt breyttist, heimilisfaðirinn var kallaður í herinn og þar kom að Hamborg varð skot- spónn loftárása. „Arið 1943 fluttist ég ásamt tveimur dætrum mínum í hús tengdaföður míns, sem þá var orðinn ekkjumaður. I júlí sama ár hófust loftárásirnar á Hamborg fyiú' alvöru. 26. s.m. vaknaði ég kl. 12.15 eftir mið- nætti við það, að merki var gefið um loftárás og um leið heyrði ég sprengju falla í nági-enninu. Eg fleygði aðeins yfir mig baðkápu og flýtti mér allt hvað af tók niður í loft- vamarskýlið í kjallara hússins ásamt dætrum mínum báðum, 6 og 4 ára, og tengdafóður mínum sem var mjög lítt klæddur, en telpurnar voru berfætt- ar og aðeins í náttfótum. - Að vörmu spori féll fyrsta sprengjan á húsið og rétt á eftir önnur til. Féll þá húsið til grunna nema sá hluti kjallarans, sem loftvamarskýlið vai’ í. Ljósin slokkn- uðu, vatnsleiðslur sprungu og vatnið flóði út úr leiðslunum. Er við áttuð- um okkur nokkumveginn, sagði tengdafaðir minn, að við myndum vera grafin lifandi og yrðum að bíða, þar til okkur bærist hjálp að utan. En ég gat ekki beðið aðgerðalaus og fór strax að leita að útgöngu. Tvenn- ar dyr voru á þessum kjallarahelm- ingi, en rústirnar höfðu lokað þeim báðum, svo ókleift var að komast þar út. Eg tók því það ráð að þreifa með- ft’am veggjunum, til þess að leita að einhverri smugu og fann ég þá uppi undir lofti gat, sem hægt var að skríða út um. Gátum við með miklum erfiðismunum smogið þar út og klifrað yfir rústimar, en svo var illt yfiríerðai', að við voram hálftíma að komast til kunningjafólks okkar, sem bjó í húsi einu 4 mínútna gang frá okkar húsi. Hjá þessu kunningjafólki mínu vorum við það sem eftir var nætur, en morguninn eftir urðum við að leita eitthvað annað, því þar var ekki mat eða drykk að fá og öll vor- um við fatalaus. Þennan morgun birti aldrei af degi, því að borgin viríist öll brenna og niðamyrkur var af reykn- um allan daginn. Ég var berfætt, því ég hafði misst morgunskó þá, er ég hafði á fótunum, og varð nú að leita mér að einhverju til að ganga á. Að síðustu fann ég í einhverjum rústum barnaskó, sem ég gat smeygt tánum í, og sömuleiðis barnavagn, sem ég setti dætur mínar í. Um eiganda hans var ekki spurt, enda efamál, hvort nokkur hefði fundizt. Lögðum við tengdafaðir minn svo af stað með börnin í vagninum og var ferðinni heitið til mágkonu minnar, sem átti heima í útjaðri borgarinnar. Við gengum í 6 klukkustundh- samfleytt, þurftum að fara miklar kiúkaleiðir, því fjöldi gatna var alveg ófær vegna elds og rústa. A þessari leið bar margt hræðilegt fyiár sjónir. For- eldrar sem báru lík barna sinna, fólk sem leitaði að sínum nánustu í rúst- unum, hrúgur af líkum á götunum o.s.ft'v. Að lokum náðum við th mág- konu minnar.“ Þetta er hluti frásagnar Maríu sem birtist í bókinni Lokuð sund. Síðan segir hún frá dvöl þeirra mæðgnanna í Meissen og nágrenni í hálft annað ár, ævintýralegri för þaðan með kolapramma niður Elbu þegar Rauði herinn nálgaðist og flóttamönnum að austan fjölgaði og að lokum undankomu til Danmerkur sem líka var eins og röð af hinum ótiúlegustu tilviljunum og því líkast að á dularfullan hátt væri haldið verndarhendi yfn- þeim. En öll sú saga lýsir líka þrautseigju, hug- kvæmni og óbilandi kjarki Maju, því það var eins og hún kynni ráð við hverjum vanda. Tveimur mánuðum eftir komuna til Kaupmannahafnar fengu þær svo far til íslands með Esju. Ekki er erfitt að gera sér í hugarlund gleði fjölskyldu Maju - sem hér hafði beð- ið milli vonar og ótta - að hafa þær mæðgur úr helju heimtar í orðsins fyllstu merkingu. Arið 1947 komst svo Arnold til Is- lands, settist hér að og bjó til dauða- dags. Fyrst bjuggu þau á Amt- mannsstíg 2 en síðar á Hraunteig 20 og þar kynntist ég þeim þegar við Hilde urðum skólasystur og vinkon- ur. Þau kynni hafa verið mér dýr- mæt þá rúma fjóra áratugi sem síð- an eru liðnir. Þau bjuggu sér gott heimili og fagurt á Hraunteignum, sannkallað- an gi-iðastað og unaðsreit. Þar var Maja drottning í ríki sínu, þar ríkti ástúðleg glaðværð og sérstakur menningarbragur, einstök smekk- vísi og göfugmennska til orðs og æð- is. Þar var gestkvæmt, mikið rætt, mikið hlegið, spilað brids, hlustað á tónlist, yndislegar veitingar bornar fram - og svo sé ég síðar að þarna var verið að ala mann upp, veita veganesti fyirir ailt lífið. f það hef ég sótt lærdóm og gleði æ síðan. Dæturnar tvær voru að vonum yndi og eftirlæti foreldra sinna og þau drógu enga dul á að þau vildu búa sem allra best að þeim, styðja þær til mennta og leyfa þeim að kynnast og njóta alls þess sem þau vissu best. T.d. fóru þau öll saman í ferðalög um talsvert óvenjulegar slóðir - en auðvitað voru þau þaul- kunnug á meginlandi Evrópu og vissu betur en ýmsir aðrir í þá daga hvar var áhugavert að koma og skoða. Skugga dró fyrir sólu 14. apríl 1963 þegar Helga Guðrún fórst í flugslysi við Ósló. Þá held ég að Maja hafi verið sú sterkasta og stutt þau Arnold og Hilde. Nokkrum áram síð- ar fæddist önnur Helga Guðrán, dóttir Hilde og manns hennar, Sigm'- jóns Helgasonar. Gæddi hún tilveru síns fólks lífi og lit. Bróðh' hennar, Hjalti, kom svo í heiminn fimm áram síðai' og birti þá enn. Litlu börnin era nú orðin fullorðið fólk og oft minntist Maja á það við mig hvað þau væra óþreytandi að gera allt sem henni mætti verða til gleði og hugnaðar. Maja hélt reisn sinni og andlegum kröftum til æviloka. Síðustu árin hafa þó verið erfið. Arnold lést á nýársdag 1996. Þá var Hilde orðin veik þótt dult færi og rámu ári síðar var hún öll. Þótt óbærilegt væri bai' Maja það af hetjulund eins og annað. Nú er hún búin að kveðja okkur og ekki annað eftii' en að þakka samverana, þakka veganestið, þakka ógleymanlegri manneskju fyrir að hafa verið til. Við Vikar sendum Helgu, Hjalta og Sigurjóni innilegar samúðar- kveðjur, ennfremur eftMifandi systrum Maríu, þeim Guðrúnu og Guðfinnu, en það er nú svo með þessar óvenju samiýndu systur að sé ein nefnd koma hinar í hug. Vilborg Sigurðardóttir. María Bjarnadóttir Henckell, Maja frænka, var tvíburasystir móð- ur minnar, Guðránar. Þær voru næstyngstar fimm barna þeirra Sól- veigar Einarsdóttur og Bjarna Jóns- sonar bankastjóra íslandsbanka þar í bæ. Þær ólust ugp í borgaralegu og hlýju umhverfi. Arið 1936 fóra tví- burasysturnar í ferð til Evrópu til þess að víkka sjóndeildarhringinn. M.a. dvöldu þær í Hamborg þar sem Maja kynntist verðandi lífsförunaut sínum Ai'nold Henckell. Þau eignuð- ust tvær dætur þær Helgu Guðrúnu og Hilde Sólveigu og framtíðin virt- ist björt og blómum stráð. En enginn má sköpum renna. Heimsstyi'jöldin síðari skall á með ólýsanlegum hörmungum. Til er frá- sögn Maju frænku þar sem hún á yf- irvegaðan hátt lýsir skelfingarnótt- inni 26. júlí 1943 en þessa nótt hófust heiftarlegar loftárásir banda- manna á Hamborg. Þessar árásir beindust ekki síst að almennum borgurum því sprengjuregnið dundi á íbúðarhverfum og grandaði tug- þúsundum manna. Maja frænka komst ásamt dætram sínum og tengdafóður í loftvarnaskýli í kjall- ara húss þeirra. Tvær sprengjur féllu á húsið og jöfnuðu það við jörðu nema þann hluta kjallarans sem skýlið var í. Ljósin slokknuðu, vatnsleiðslur sprungu og rástirnar lokuðu allri útgöngu. A ótrúlegan hátt klifraði Maja upp vegg og komst út um þrönga rifu uppi við loft og gat náð fólki sínu út. Þau voru öll í náttfotum einum klæða og skólaus. Hún fann í nærliggjandi rústum lítinn barnavagn og kom dætrunum þar fyrir. Sjálf tróð hún sér í barnaskó sem hún gat smeygt tánum í en þá fann hún á götunni. Þau biðu af sér nóttina, en næsta dag, segir Maja, „birti aldrei af degi, því borgin virtist öll brenna og niða- myrkur var af reyknum allan dag- inn“. Þá lögðu þau af stað fótgang- andi, hún og tengdafaðirinn, með dæturnar í barnavagninum. Var ferðinni heitið til mágkonu Maju sem bjó stutt fyrir utan Hamborg. Margt hræðilegt bar fyrir sjónir á leiðinni, foreldrar sem báru lík barna sinna, fólk sem hljóp um í leit að sínum nánustu og hrágur af lík- um á götunni. Eftir sex klukku- stunda göngu komust þau á leiðar- enda. Næstu tvö árin má segja að Maja frænka hafi verið á flótta með dætur sínar tvær og sýndi hún þá óbilandi kjark og ótrúlegan dugnað við að komast fyrst til Kaupmanna- hafnar og þaðan til íslands með Esj- unni árið 1945. Fjölskyldan sameinaðist þó ekki fyrr en árið 1947 þegar Arnold kom til íslands og hér bjuggu þau síðan. A síðastliðnu hausti var ég á ferð með Maju frænku í Hamborg og var áhrifamikið að ganga með henni um slóðir þessara örlagaþrangnu at- burða. Örlaganornirnar yfirgáfu ekki Maju þó að hún væri komin í frið- sældina á íslandi því árið 1963 fórst eldri dóttir hennar, Helga Guðrún, í flugslysi við Fornebu-flugvöll í Ósló. Það var Maju frænku hræðilegt áfall. Á nýársdag árið 1996 dó Arnold og rúmu ári síðar yngri dóttirin, Hilde Sólveig. Lífið greiddi Maju þannig mörg þung högg en hún var eins og eikin, bognaði en brotnaði ei og mætti öllu mótlæti af mikilli reisn og hugprýði. Hún var glæsileg kona, dálítið útlendingsleg, hafði tígulega framkomu, hefði get- að verið sögupersóna í bókum Tol- stojs eða Dostojevskíjs, hún var „aristokrat". Eftirlifandi aíkomend- ur Maju eru barnabörnin Helga Guðrún og Hjalti, börn Hilde og Sig- urjóns Helgasonar. Ég kveð Maju frænku með mikilli virðingu og þakka samfylgdina. Helga Hauksdóttir. Hún Maja frænka er svo fín kona. I mínum huga verður það alltaf þannig. Ekki eitthvað sem tilheyrir fortíð heldur bara er. Það er bara skrýtið að maður hitti hana ekki aftur hér. Ég hugsa svo mikið um þegar við hittumst heima hjá mér á Vesturgötu og fengum okkur köku og kampavín og það var svo gaman og við ætluðum alltaf að endurtaka það. „Grand“ er orð sem kemur einna fyrst upp í huga minn þegar ég hugsa um Maju frænku. Líka að hún hafi alltaf verið dálítið útlensk ein- hvern veginn, svona dökk í útliti og með heimskonuyfirbragð og fram- komu. Hún hafði gengið í gegnum því- líka og erfiða reynslu í lífinu að það hlaut að gera hana öðruvísi og sveip- aða einhvers konar leyndardómi. Ég vona að þér líði vel, elsku Ma- ja frænka. Margrét Kristín Blöndal. OSKAR GÍSLASON + Óskar Gíslason fæddist í Reykjavík 29. júlí 1960. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 13. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju 20. nóvember. Þegar við fréttum að þú hefðir skyndi- lega veikst og verið fluttur á sjúkrahús fylltumst við mikilli örvæntingu og grétum mikið. Þá hófst biðin langa, hvort þú sigrað- ist á veikindunum eða ekki. Þetta fannst okkur langur tími, við biðum heima eftir góðum frétt- um, við létum biðja fyrir þér og gerðum allt sem við gátum til að fá þig til baka. En svo var ekki. Við fengum upphringingu frá Aðal- björgu dóttur okkar og hún sagði: Jæja mamma mín, hann Óskar er dáinn. Ég grét í símann og sagði ég trái því ekki Adda mín, er hann Óskar minn dáinn. I því komu Grétar og Guðmundur, eða Doddi eins og við köllum hann. Þeir sáu hvernig komið var og grétu sárt. Óskar minn, ekki datt okkur í hug að það yrði í síðasta skipti sem við sæjum þig þegar þið Kristín, Grétar og Gísli komuð í heimsókn um daginn. Þá var ég með matinn tilbúinn og bauð ykkur að borða en þið vilduð ekki þiggja það í þetta skiptið þar sem þið höfðuð ákveðið að fara í bíó og bjóða strákunum upp á pítsu. Þetta var í síðasta skiptið sem við sáum þig. Á svona' stundum fara margar hugsanir af stað og hugsunin um að dóttir okk- ar og drengirnir ykkar þurfí að ganga í gegnum þessa miklu raun. Þá rifjaðist upp fyrir okkur, þegar við misstum nýfætt barn fyrir mörgum árum. Þá var sagt við mig: Vertu ekki að þessu væli, þú átt þrjú börn fyrir. Okkur fannst þessi setning ákaflega særandi, því sársaukinn er sá sami, hvort sem við eigum ekkert barn eða þrjú, sorgin er sú sama en þetta eru orð sem aldrei gleymast og enginn ætti að segja. Elsku Ki-istín, Grétar og Gísli, við getum vel skilið hvernig ykkur líður og við verðum að trúa því að við hittumst öll aftur. Elsku vinan okkar, við viljum gera allt sem við getum til að styðja þig og drengina í þessari miklu sorg og hugsum til ykkar hverja stund. Ökkur finnst þessi örlög ranglát og eigum erfitt með að sætta okkur við fráfall Óskars. Frá því Óskar kom inn í fjöl- skyldu okkar hefur alltaf farið vel á með okkur öllum. Óskar var róm- antískur og allar gjafimar sem hann gaf Ki-istínu bera vott um það hversu smekklegur hann var. Okkur Grétari og Dodda þótti alltaf svo vænt um þig, elsku Óskar minn. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa okkur ef við leituðum til þín og framkoma þín einkenndist af blíðu og ljúfmennsku. Við viljum koma kæra þakklæti til sr. Sigfúsar B. Ingvasonar, sem var Ki'istínu og sonum hennar svo góður í þessari miklu sorg. Hann kom oft til þeirra og huggaði og sefaði sorg þeirra. Elsku Ásdís og Gísli, við vottum ykkur innilega samúð við missi elsta sonar ykkar. Megi góður guð styrkja ykkur á raunastund. Einnig langar okkur að senda systkinum Öskai's og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Elsku Kiistín, Grétar og Gísli, megi góði guð gefa ykkur styrk og kraft í framtíðinni og vaka yfir ykkur nótt og dag. Þínir tengdaforeldrar Sjöfn Georgsdóttir og Grétar Hinriksson. Óskar starfsbróðir og góður vinur. Það er erfitt að setjast niður og ski-ifa grein eins og þessa. Ég dofnaði all- ur upp við símhring- ingu að heiman frá vinnufélaga mínum, þar sem hann tilkynnti mér að Óskar vinur okkar væri látinn. Þessu bjóst ég ekki við og ósjálfrátt fer maður að hugsa. Óskar, mað>- ur á besta aldri, alltaf hraustur bæði líkam- lega og andlega. Við Óskar unnum saman í 10 ár í vaktavinnu hjá Eldsneytisafgreiðsl- unni á Keflavíkurflugvelli og ég man það eins og það hefði gerst í gær, þegar við hófum störf þar ásamt fleiri félögum. Við vorum ný- liðar við þessi störf, en fengum góða kennslu og leiðbeiningar við afgi-eiðslu flugvélanna frá Baldri Gunnarssyni, stöðvarstjóra. Seinna kom að því að raða mönnum á vakt- ir, og við Óskar völdumst saman. Við áttum vel saman og fann ég til mikils trausts að hafa hann mér vi^, hlið. Árin liðu og við orðnir sjóaðir. Þessi vinnustaður var góður, eins og okkar annað heimili og stöðvar- stjórinn alltaf eins og einn af okkur og hefur alltaf reynst okkm' vel. Óskar hafði mikinn áhuga á körfubolta og fótbolta, bæði ís- lenskum og enskum. Á laugardög- um sátum við oft á kaffistofunni og horfðum á enska boltann, hann hélt mikið upp á Tottenham og spáðum við oft í leikina og gæddum okkur á einhverju góðgæti sem Óskai' hafði, komið með að heiman frá henni Kristínu sinni. Stundum var veisla og þá sérstaklega þegar hún sendi hann með eplakökuna. Hún var alltaf frábær og það fékk hann að heyra og þá varð hann nú hreykinn af henni Kristínu sinni. Öllum aðstandendum Óskars og vinnufélögum votta ég samúð mína. Ég hugsa til Kristínar, Grét- ars og Gísla og votta þeim mína innilegustu samúð. Guð veri með ykkur og styrki ykkur í þessari miklu sorg. Gísli Garðarsson, Tulsa, Bandaríkjunum. Frág&ngur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfeet einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegi'i lengd, en aðrar gi'ein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanh' í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundai' eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.