Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 2

Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hæstiréttur felldi eignaskipti í tugmilljona búi úr gildi Skipti eigna við skilnað bersýnilega ósanngjörn Skilorð og sekt vegna skatta- misferlis gefið að sök að hafa látið undir höf- uð leggjast að telja fram til skatts tekjur sem hann hafði af útseldri þjónustu sinni á sama tímabili, sem námu um 3,5 milljónum króna. Með þeirri háttsemi sinni komst hann hjá greiðslu tekjuskatts og útsvars að fjárhæð um 730 þúsund krónur. Loks var hann ákærður fyrir bók- haldsbrot, þ.e. að hafa ekki haldið lögboðið bókhald og samið ársreikn- inga á umræddu tímabili. Vítaverð háttsemi Viðurkenndi maðurinn skýlaust sakargiftir. Háttsemi mannsins er að mati dómsins mjög vítaverð og er þá litið til þess að hún stóð yfir í nær þrjú ár. Var maðurinn sem fyrr segir dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið og til gi'eiðslu 800 þúsund króna sektar í ríkissjóð, en þriggja mánaða fangelsi komi í stað sektar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. HÆSTIRÉTTUR íslands felldi í gær úr gildi þrjá fjárskiptasamn- inga hjóna, sem þau gerðu með sér árið 1995 í kjölfar skilnaðar síns. Mál þetta fjallar m.a. um hlutafjár- eign í kvótasterku sjávarútvegsfyr- irtæki sem hjónin áttu. í fyrsta samningnum frá 3. apríl 1995, sem gerður var viðauki við, auk viðbótarsamnings, vegna óánægju konunnar með sinn hlut, var hlutafé hjónanna í fyrirtæki því sem þau áttu 81,46% hlut í, skipt á milli þeirra. Verðmæti hlutafjárins var 35,2-41,6 milljónir króna. Var þá lagt til grundvallar að markaðsvirði alls hlutafjár í félaginu væri 55-65% af 78,6 milljónum króna, sem dómskvaddir matsmenn töldu hafa verið eigið fé félagsins 3. apríl 1995. Niðurstaða matsmanna 19. október sama ár leiddi hins veg- ar í ljós að verðmæti hlutafjárins var 84,9 til 100,3 milljónir króna. í dómi Hæstaréttar segir að verð- mæti 81,46% hlutar í fyrirtækinu hafi verið 50-59 milljónum króna meira en matsíjárhæðin 3. apríl. Svarar það til þess að virði konunn- ar, sem falla skyldi manninum ein- um í skaut eftir fjárskiptasamningn- um, hafi verið 25-29,5 milljónum króna meira í október en í apríl 1995. „Þegar litið er til þess og annars, er áður greinir, þykir aðaláftýjandi hafa sýnt nægilega ft-am á að sam- komulag um fjái'skipti hjónanna sé bersýnilega ósanngjarnt,“ segir í dóminum. Hæstiréttur sýknaði manninn af kröfu konunnar um lífeyri frá 27. október 1995 til 6. nóvember 1997, en dæmdi hann hins vegar til að gi-eiða konunni 1 milljón ki'óna í málskostnað í héraði og Hæstai'étti. Dóminn kváðu upp Gunnlaugur Claessen og Arnljótur Bjömsson, hæstaréttai'dómai’ar og Björn Þ. Guðmundsson settur hæstaréttar- dómari. Lögmaður eiginkonunnar var Sigurður G. Guðjónsson hrl. og lögmaður eiginmannsins var Ragn- ar H. Hall hrl. KARLMAÐUR á fimmtugsaldri hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í tveggja mán- aða fangelsi skilorðsbundið og til greiðslu sektar að upphæð 800 þús- und krónur vegna brota á lögum um virðisaukaskatt og tekju- og eigna- skatt. Manninum, sem úrskurðaður var gjaldþrota árið 1994, var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt, en hann hafði ekki staðið skil á þeim virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni árin 1993 til 1995, samtals að upphæð rúmlega 900 þúsund krónur. Honum var einnig Dagsbrún/Framsókn, Sókn og FSV sameinast 12 til 14 þúsund manns verða í nýja félaginu STOFNFUNDUR nýs verkalýðs- félags sem til verður með samein- ingu Dagsbrúnar/Framsóknar, starfsmannafélagsins Sóknar og Félags starfsfólks í veitingahúsum verður haldinn á morgun, laugar- dag, kl. 14 á Hótel íslandi. I nýja félaginu verða 12-14 þús- und félagsmenn og verður það næststærsta verkalýðsfélagið hér á landi næst á eftir Verzlunarmanna- félagi Reykjavíkur. Dagsbrún og Framsókn samein- uðust í eitt félag um síðustu áramót og síðastliðið vor samþykktu fé- lagsmenn í því og félagsmenn í Sókn og Félagi starfsfólks í veit- ingahúsum að sameinast í eitt fé- lag. Fyrsta stjórnarkjör í félaginu fer fram í febrúar næstkomandi, en samkvæmt samkomulagi félaganna sem nú sameinast verður Halldór Björnsson, formaður Dagsbrún- ar/Framsóknar, formaður nýja fé- lagsins næstu tvö árin, en þá verð- ur kosinn nýr formaður. Halldór var kosinn fonnaður Dagsbrún- ar/Framsóknar til tveggja ára eftir sameiningu félaganna og með hon- um í stjórn nýja félagsins verða lík- lega sex aðrir. Halldór sagði í samtali við Morg- unblaðið að skrifstofur nýja félags- ins verði í Skipholti 50d þar sem Dagsbrún/Framsókn er til húsa. Morgunblaðið/RAX Bílþvottur til öryggis í skammdeginu EKKI veitir af að þvo bílinn og það er fljótleg og einföld Ieið við þvottinn að nota þrýstidælur, eins og þessa, sem leigubílstjóri mundar hér á bílaþvottastöð í bænum. Ohreinindi og tjara standast ekki þrýstinginn og skolast burt á svipstundu. Þegar sól er lágt á lofti í skammdeginu er mikilvægt að vera með hreinar framrúður til þess að bflstjórar sjái um- hverfí sitt sem best. Jóla- kort á mbl.is Á JÓLAKORTAVEF mbl.is er lesendum boðin sú þjónusta að senda kort til vina og vanda- manna. Hægt er að senda jóla- og afmæliskort. Mjög auðvelt er að búa til kortin og er það skýrt skref fyrir skref jafn- harðan og kortið er búið til. Ekki er hægt að senda kort nema á netfang viðtakanda, en það er slegið inn ásamt nafni hans þegar kortið er búið til. Móttakandi fær síðan tölvu- póst þar sem fram kemur hver sendi kortið. Einnig er gefin upp slóð sem slá má inn til að tengjast jólakortavefnum til að skoða kortið. í tölvupóstinum fylgir einnig númer sem mót- takandi getur slegið inn í gluggann vinstra megin á upp- hafssíðu ásamt netfangi sínu. Með því móti er hægt að skoða eitt eða fleiri kort sem viðtak- anda hefur borist. Sendandi fær einnig tölvupóst þegar móttakandi hefur skoðað kort- ið svo fremi hann hafi slegið inn netfang sitt. Hægt er að nálgast jóla- kortavefinn með því að smella á hnappinn Jólakort innan flokksins Dægradvöl eða smella á hnapp með sama nafni til hægri á síðunni. Þá má einnig slá inn slóðina www.mbl.is/kort m wm Shb fif 1É Éf 8! É It ■WWIUb Fjórar kyn- slóðir undir sama þaki Kallar nýr lífsstill á breytta borg? Blaðinu í dag fylgir átta siðna auglýs- ingabæk- lingur frá Fróða, „Góðar jólagjafir" Er sóknarleikur lands- liðsins nógu góður? / C3 Alfreð Gíslason verður þjálfari Magdeburg/C1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.