Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ
. 54 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
' FRÉTTIR
í DAG
Norðurlandameistaramótið
í samkvæmisdönsum
LANDSLIÐ íslands í samkvæmis-
dönsum heldur til Gautaborgar á
föstudagsmorgun, til þátttöku í
Norðurlandameistaramótinu sem
haldið verður laugardaginn 5. des-
ember. Mót þetta er haldið árlega,
fyrstu vikuna í desember og eru
þátttakendur frá öllum Norðurlönd-
unum.
Aðeins einu sinni hafa Islending-
ar hlotið Norðurlandameistaratitil í
þessari keppni, en það var árið 1994
þegar Haraldur Anton Skúlason og
Sigrún Yr Magnúsdóttir sigruðu í
aldursflokknum 11 ára og yngri.
Oftar en ekki hafa íslendingar hafn-
að í öðru sæti og Danir sigrað.
Landsliðið í ár er skipað eftirfar-
andi danspörum: 12-13 ára: Hrafn
Hjartarson og Helga Björnsdóttir,
Kvistum, og Davíð Gill Jónsson og
Halldóra Sif Halldórsdóttir, Guil-
toppi. 14-15 ára: Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir, Gulltoppi og Isak Nguyen
Halldórsson og Halldóra Ósk Reyn-
isdóttir, Hvönn. 16 ára og eldri:
Kári Örn Óskarsson og Margrét
Guðmundsdóttir, Dansíþróttafélagi
Hafnarfjarðar, og Ragnar Már Guð-
mundsson og Kristíana Ki'istjáns-
dóttir, Hvönn. 35 ára og eldri: Björn
Sveinsson og Bergþóra María Berg-
þórsdóttir, Gulltoppi.
jólasveinar á
jólakorti
LANDSBÓKASAFN íslands - Há-
skólabókasafn gefur um jólin út
jólakort með teikningum úr safni
handritadeildar af íslenskum jóla-
sveinum eftir Tryggva Magnússon
(1900-1960).
I myndai-öðinni eru 15 teikningar
sem upphaflega voru gerðar sem
myndskreyting við jólasveinavísur
Jóhannesar úr Kötlum í bókinni
Jólin koma sem fyrst kom út 1932.
Ætlunin er að gefa út allar mynd-
irnar í röðinni. Um þessi jól eru
komin út sex kort. A hinu íyrsta er
teikning af jólasveinunum 13 á leið
til byggða en síðan koma þeir einn
af öðrum Stekkjastaur, Giljagaur,
Stúfur, Þvörusleikir og Pottaskefíll.
Jólakortin eru með texta þar sem
gerð er stuttlega grein fyrir lista-
manninum og íslenskri jólasveina-
hefð bæði á íslensku og ensku.
Kortin eru fáanleg í afgreiðslu
Landsbókasafns í Þjóðarbókhlöðu
og í nokkrum bókaverslunum.
Jólabasar í
Höllubúð
SLYSAVARNAKONUR í Reykja-
vík verða með jólabasar í Höllubúð,
húsi deildarinnar, að Sóltúni 20 (áð-
ur Sigtúni 37) sunnudaginn 6. des-
ember. Margir góðir munir og kök-
ur verða til sölu. Kaffi og heitar
vöfflur verða á boðstólum.
Við væntum þess að velunnarar
deildarinnar heimsæki okkur á
sunnudaginn. Basarinn hefst kl. 14.
Slysavarnakonur, tekið verður á
móti munum í Höllubúð laugardag
og sunnudag milli kl. 11 og 14.
Menntamálaráð-
herra talar í
Kaupmannahöfn
ÍSLENSKI söfnuðurinn í Kaup-
mannahöfn kemur saman í St. Páls
kirkju í kvöld, fóstudag, kl. 19.30.
Þar verður fjölbreytt dagskrá
heimamanna, þar sem m.a. böm úr
Kirkjuskólanum sýna helgileik.
Öflugt tónlistarlíf er meðal Islend-
inga í Kaupmannahöfn og munu
tveir íslenskir kórar syngja á sam-
komunni. Kvennakórinn í Kaup-
mannahöfn undir stjórn Ingibjargar
Guðjónsdóttur söngkonu og Kór ís-
lenska safnaðarins undir stjórn
Ólafar Jónsdóttur píanóleikara. Þá
leika saman Úlfhildur Ösp Indriða-
dóttir á fiðlu og Anna Emelía Pét-
ursdóttir á píanó. Einnig leika tvö
börn saman tvíleik. Það setur sér-
stakan hátíðarsvip á þessa sam-
komu, að menntamálaráðherra,
Björn Bjarnason, kemur í heimsókn
og flytur ræðu.
Þessi samkoma er jafnan fjölsótt
og vinsæl og þykir góður undirbún-
ingur fyrir jólahald meðal íslendinga
hér í borg. Að lokinni athöfn í kirkj-
unni verður síðan boðið upp á
súkkulaði og piparkökur í Jónshúsi.
Handverk í
Hafnarfirði
KJARNI handverksfólks í Hafnar-
firði, ásamt handverksfólki úr ná-
grannabyggðarlögum, hefur verið
með markað fyrir vörur sínar liðna
laugardaga.
„Viðtökur hafa verið mjög góðar
og mun handverksfólkið því halda
markaðnum áfram alla laugardaga
til jóla í verslunarmiðstöðinni Firði,
miðbæ Hafnarfjarðar,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Papar á
Dubliners
HLJÓMSVEITIN Papar leikur á
Dubliners í kvöld, föstudagskvöld, og
einnig laugardagskvöld.
Hljómsveitin leikur írska og
islenska tónlist í bland. I blaðinu í
gær var sagt að hljómsveitin myndi
leika á veitingastaðnum Inferno en
átti að vera Dubliners.
Töskur og veski
frá
Tilvaldar jólagjafir
Tískuverslun»Kringlunni 8-12 « Sími 553 3300
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Slæm
frammistaða
fjölmiðla
UM síðustu helgi var hæfi-
Ieikakeppni grunnskóla í
Laugardalshöll. Þai: voi-u
ábyggilega mættir um
1.000 unglingar. Flutt voru
sextán atriði sem mikil
vinna var lögð í og voru
þau vel útfærð og fór allt
vel fram. Fjölmiðlar sáu
sér ekki fært að fjalla um
keppnina fyrir utan að
Stöð 2 birti örstutt frá
verðlaunaafhendingunni.
En ef þarna hefðu verið
ólæti, drykkjuskapur og
skemmdarverk hefðu sjálf-
sagt allir fjölmiðlar blásið
málið út en þar sem allt fór
vel fram var ekki minnst á
þessa keppni. Það er eins
og fjölmiðlar fjalli aðeins
um það sem miður fer en
ekki það sem vel er gert.
Unglingur.
Þakkir fyrir grein
LESANDI hafði samband
við Velvakanda og vildi
hann þakka fyrir grein
sem Jón Baldur skrifai' í
Morgunblaðið þriðjudag-
inn 1. desember. Segir les-
andi að þetta sé tímabær
umræða um nagladekk
vegna hinna skaðlegu af-
leiðinga.
Lesandi
Athugasemd
við athugasemd
við Rabb
LÚTHERSTRÚ er trúin
okkar. Byggist hún á Nýja
testamentinu. Biblíulegur
skilningur annars vegar og
félagslegur og heimspeki-
legur skilningur hins veg-
ar er tvennt ólíkt og hall-
ast fólk yfirleitt að því síð-
arnefnda. Fólk getor hald-
ið því fram sem því finnst
réttast án þess þó að það
þurfi að vera almenn skii-
greining á hlutunum. Þvi
andmæli ég bréfi því er
Sóley Jónsdóttir fi’á Akur-
eyri ritaði til Velvakanda
Morgunblaðsins og birtist
1. desember. Samkvæmt
félagsfræðinni, samanber
Charles Darwin, sem
skrifaði Uppruni tegund-
anna 1859; að maðurinn
væri ein dýrategund af
mörgum. Atferli dýra væri
greinilega arfbundið og því
virðist mega draga þá
ályktun að hið sama ætti
við um manninn. (Ian Ro-
bertson 1981).
Bestu kveðjur,
Þórhildur
Þórmundsdóttir
Undirföt og
sígarettur
Á SUNNUDAGINN var,
29. nóvember, kom jóla-
auglýsingalisti undirfata
frá Triumph með Morgun-
blaðinu. I listanum eru
myndir af fallegum undir-
fótum og náttfötum sem
ungar glæsilegar íyrirsæt-
ur klæðast. Á síðu 6 og 11
eru myndir af fallegri fyr-
irsætu í svörtum undirkjól
með sígarettu í munnin-
um. Hvaða erindi á þessi
sígaretta í auglýsinguna?
Er verið að gefa í skyn að
reykingar séu þokkafullar
eða það sé flott að reykja
eins og unglingar sem
byrjaðir eru að reykja
svara stundum þegar þeir
eru spurðir hvers vegna
þeir hafi byrjað? Er þetta
kannski dulbúin sígarettu-
auglýsing? Svona auglýs-
ingar hljóta að teljast
mjög óæskilegar þegar
hugsað er um óhollustu
reykinga og kostnað heil-
brigðisþjónustunnar af
fylgikvillum þeirra. Ekki
hvetur það heldur til
kaupa á fyrrnefndum und-
irfötum.
Áskrifandi Mbl.
Tapað/fundið
Hvítsaumsdúkur
með blúndum
HVÍTSAUMSDÚKUR
með blúndum, sem saum-
aður var í Húsmæðraskóla
Reykjavíkur árið 1948 af
Margréti, hefur verið
týndur í langan tíma. Mar-
grét fór með dúkinn í
Þvottahúsið Grýtu sem þá
var í Nótatúni árið 1950 og
hefur ekkert til hans
spurst síðan. Hans er sárt
saknað. Þeir sem geta gef-
ið einhverjar upplýsingar
eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við
Margréti í síma 562-3157.
SKAK
llin.vjón Margeir
Péturvvn ii
Staðan kom upp á rúss-
neska meistaramótinu í
Sankti-Pétursborg í sumar.
Evgení Solosjenkín
(2.535) var með
hvítt og átti leik, en
Ildar Ibragimov
(2.610) var með
svart og var að
leika illa af sér, með
35. - Df7-d5?? sem
gaf færi á fremur
einföldum vinnings-
leik:
36. Hxg6+! - Kf7
37. Df5+ og svartur
gafst upp.
Desemberhelg-
arskákmót TR
hefst í kvöld kl. 20 í HVÍTUR leikur og vinnur
félagsheimili TR, Faxafeni
12. Þá verða tefldar þrjár
atskákir en laugardag og
sunnudag eru tefldar tvær
kappskákir hvorn daginn
sem hefjast kl. 10 og 17
laugardag og kl. 10.30 og 17
sunnudag. Verðlaun eru kr.
12 þús., 8 þús. og 5 þús.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
AMORGUN, laugardaginn 5.
desember, verður haldinn form-
legur stofnfundur sameinaðs félags
Starfsmannafélagsins Sóknar, Fé-
lags starfsfólks í veitingahúsum og
Dagsbrúnar og Framsóknar - stétt-
arfélags. I leiðara fréttablaðs fyrr-
nefndra félaga er fjallað um sam-
runa félaganna og segir þar að und-
anfarin þrjú ár hafi verið unnið
sleitulaust að sameiningu stéttarfé-
laganna á Reykjavíkursvæðinu.
Athyglisverðar hugleiðingar eru
settar fram í leiðaranum og eftir að
greint er frá því að frá og með
morgundeginum verði tvö stór stétt-
arfélög starfandi á Reykjavíkur-
svæðinu, með um 30 þúsund félags-
menn, eða um helming allra allra fé-
lagsmanna ASÍ-félaga á landinu,
segir svo meðal annars í leiðaranum:
„Það vekur þá spurningu hvort
ekki sé nauðsynlegt að Alþýðusam-
bandið verði á ný samband stórra
eininga með beinni aðild. Vandi
hreyfingarinnar í skipulagsmálum
endurspeglast vel í samskiptum
stærstu félaga og landssambanda
eins og glöggt kom í ljós í síðustu
kjarasamningum.
Yfirburðastaða stóru félaganna er
staðreynd. Nauðsynlegt er að taka
þá staðreynd til umræðu innan
hreyfingarinnar áður en það verður
að vandamáli. Alþýðusambandið
hefur reynt að mynda áhrifaafl með
landssamböndunum, sem hafa lítil
völd vegna þess að ákvarðanir liggja
úti í félögunum. Því verða menn að
hafa það í huga, eins og forystu-
menn félaganna, sem nú eru að sam-
einast, höfðu að leiðarljósi alla tíð,
að taka meira tillit til hagsmuna
heildarinnar en hagsmuna einstakra
forystumanna."
XXX
VÍKVERJI bíður spenntur eftir
kvikmynd sem honum hefur
verið sagt að komi í eitthvert ís-
lensku kvikmyndahúsanna - hann
veit ekki hvert - einhvern tíma eftir
áramót. Það er mynd um enska sell-
ósnillinginn Jacqueline du Pré, sem
byggð er á bók systkina hennar, Hil-
ary og Piers. Bókina kalla þau A
Genius In The Family, Snillingur í
fjölskyldunni, og víst er að það er
ekki ofsagt.
Englendingurinn Andy Paterson,
meðframleiðandi Ágústs Guðmunds-
sonar að kvikmyndinni Dansinn,
framleiðir myndina um du Pré, og
ræddi ofurlítið um hana í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í haust -
þegar greint var frá áformum þeirra
félaga am að koma sögunni um Jör-
und hundadagakonung á hvíta tjald-
ið.
Myndin um du Pré var sýnd á
kvikmyndahátíð í Kanada í haust og
hlaut afar góða dóma. Aðalleikkonan
er Emily Watson, sú hin sama og sló
í gegn í þeirri mögnuðu mynd Br-
eaking the Waves , sem kölluð var
Brimbrot á íslensku. Að sögn Pater-
sons þurfti hún ekki að hugsa sig
tvisvar um þegar henni var boðið
hlutverk Jacqueline du Pré í mynd-
inni; heillaðist raunar þegar leik-
stjórinn sagði henni söguna og hvað
hann hefði í huga. Tók því hlutverk-
ið að sér áður en handrit hafði verið
skrifað.
Víkverji hefur verið að lesa um-
rædda bók systkinanna og er einnig
heillaður. Saga þessa mikla selló-
snillings er ótrúleg. Du Pré var
undrabarn. Hóf að leika á selló
fimm ára og vakti fljótlega athygli
fyrir ótrúlega hæfileika, næmi og
þroska og lék víða við frábærar
undirtektir. Sextán ára kom hún
fyrst fram sem atvinnumaður en
stórkostlegum ferli lauk eins og
hendi væri veifað tíu árum síðar. Al-
varlegur sjúkdómur kom í ljós;
sjúkdómur sem dró hana til dauða á
fjórtán árum.
Fróðlegt er að lesa hvernig
undrabarn - í þessu tilviki í tónlist -
er frábrugðið venjulegu barni. Stór-
kostlegir hæfileikar á einu sviði gera
það að verkum að ekkert verður
„venjulegt“. Hún stjórnar í raun
fjölskyldunni. Allt snýst um hana.
Saga du Pré, sem giftist öðru undra-
barni, píanóleikaranum og hljóm-
sveitarstjóranum Daniel Barenboim,
er í senn yndisleg og átakanleg.
Myndin hlýtur að verða mögnuð.