Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 53

Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 53*** AÐSENDAR GREINAR að friður á vinnumark- aði er einn af mikilvæg- ari þáttum efnahags- mála. Samtök launa- fólks höfðu ekki minnsta grun um að borgin mundi éta upp næstu skattalækkun, sem lofað var í tengsl- um við samningana, með hækkuðu útsvari. Augljóslega geta brostnar væntingar samningsaðila, svo sem hér um ræðir, stefnt friði á vinnumarkaði í hættu eins og þegar hefur komið fram í máli verkalýðsleiðtoga. Forsætis- ráðherra ber skylda til að reyna að sporna gegn aðgerðum sem svo augljóslega geta fyi’st og fremst Miðað við hinar síend- urteknu, stórkallalegu ályktanir sem borgar- stjóri dró af sínum röngu forsendum, segir Orri Hauksson, er vart óeðlilegt að hún greini einnig frá niður- stöðum sínum nú þegar réttu tölurnar hafa komið fram. verið efnahagslega skaðvænlegar fyrir Island. Hlutverk forsætisráð- herra í þessu máli er ekki sérkenni- legra en svo. Ályktanir dregnar þegar forsendur henta Það alvarlegasta í málflutningi borgarstjóra á undanförnum dög- um hefur verið röng notkun hennar á tölum um ríkissjóð og þær álykt- anir sem hún hefur dregið þar af. Hún margsagði til dæmis og birti um það sérstaka mynd hér í Morg- unblaðinu að skatttekjur ríkisins hefðu aukist um 30,8% á tveimur árum, sem er rangt, rétta talan er milli 17 og 18%. Borgarstjóri hefur nú viðurkennt að hafa þarna gert mistök í talnameðferð og á reyndar hrós skilið fyrir að víkja sér ekki undan ábyrgð í því efni. Miðað við hinar síendurteknu stór- kallalegu niðurstöður sem hún komst að á hinum röngu forsend- um hefði hins vegar vart verið óeðlilegt að hún drægi sambæri- legar ályktanir þegar hinar réttu forsendur höfðu komið fram. Það lét hún algjörlega undir höfuð leggjast. Svo skal böl bæta Hvers vegna staglaðist borgar- stjóri svo þráfaldlega á því að skatttekjur ríkis væra að aukast um 30,8% á tveimur árum, á meðan hún stóð í þeirri trú? Ástæðan er einfóld. Borgarstjóri vildi draga upp þá mynd að ríkissjóður væri í krónum talið að fá meiri skattauka en borgarsjóður. Af þeirri ástæðu væri réttlætanlegt að hækka skatt- prósentu borgarbúa. Nú þegar hún veit að ríkissjóður er að auka skatt- fé sitt um mun minna en borgar- sjóður hlýtur hún væntanlega að álykta í hina áttina, að borgarsjóð- ur verði að minnka skattheimtu sína. Eða hvað? Kjarni málsins er eftirfarandi: Annars vegar hafa skatttekjur ríkissjóðs aukist um rúm 17% á tveimur árum og skuldir ríkissjóðs eru greiddar niður um 30 milljarða á þessu ári og næsta. Þar að auki hefur skatthlutfall lækkað um það bil um 10% undanfarin misseri, eða 4 prósentustig. Hins vegar hafa skatttekjur borgarsjóðs hækkað um 23% á tveimur árum samkvæmt borgarstjóra, en skuldir borgarsjóðs staðið í stað. Skuldir borgarfyrirtækja hafa hins vegar vaxið umtalsvert undanfarin ár vegna tilfærslu skulda frá borgar- sjóði. Útsvarshlutfallið mun hækka um 6,7% um næstu áramót, eða um 0,75 prósentustig auk fleiri skatta- hækkana borgar undanfarin ár. Og svo gripið sé til orða borgarstjóra: „Og beri menn svo saman.“ Orri Hauksson [BDaffle® y Negro MATARLITIR fyrir kökur, marsipan og skreytingar 15 mismunandi litir L acKonfektmór..^ | % 4. Skólavörðustíg 21a • 101 Reykjavík Sími / Fax: 552 1220 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf.is PIPAR OG SALT r g| ) Klapparstíg 44 ct\>s0' Sími 562 3614 Fieiri tölur í óhag En borgarstjóri er óheppin með fleiri dæmi sem hún velur sér. Hún segir í Morgunblaðinu 2. desember að „það var í tíð borgarstjórans Da- víðs Oddssonar, sem lagt var út í þá óhemju fjárfestingu sem Ráðhúsið og Perlan er“. Hún gefur til kynna að slæm fjárhagsstaða borgarinnar sé vegna þessara framkvæmda. Sama dag birtist í blaðinu úttekt á þróun fjármála borgarinnar undan- farin ár. Þar kemur fram að árið 1991, þegar Davíð Oddsson lét af störfum sem borgarstjóri, voru skuldir borgarsjóðs um fimm og hálfur milljarður og skuldir sam- stæðureiknings borgarinnar rúm- lega sjö milljarðar, sé reiknað á verðlagi ársins 1997. Árið 1997 voru skuldir borgarsjóðs rúmlega fjórt- án milljarðar og skuldir samstæðu- reikningsins tæplega tuttugu millj- arðar á verðlagi þess árs. Aukning- in er margfóld. Það fer því ekki á milli mála hversu rakalaust og ósvífíð það er hjá borgarstjóra að halda því að fólki að skuldir borgar- innar séu áratugar gamlar og þá- verandi borgarstjóra að kenna. Nú- verandi borgarstjóri er vissulega ekki öfundsverður af því að komið sé í hámæli að hún færi í sínar hirslur þá skattalækkun sem laun- þegar áttu í vændum. Það réttlætir þó ekki að svara gagnrýni með því að búa til allt aðra sökudólga en í hlut eiga. Skattamál borgarbúa og friður á vinnumarkaði eru mikil- vægari mál en svo að þau sé hægt að afgreiða með yfirklóri þar sem óskyldum atriðum er blandað inn eða gífuryrðum á grundvelli rangra talna. Höfundur er aðstoðarmaður forsætisráðherra. YS OG ÞYS hefur verið um útsvarsbreyt- ingar í Reykjavík und- anfarið. Eðlilega. Borgin ætlar að hækka útsvarsprósentuna um 0,75% á sama tíma og ríkið lækkar tekjuskatt um 1%. Þannig munu skattar Reykvíkinga því aðeins lækka um 0,25% um áramót. Al- menningur hlýtur að spyrja sig hvernig geti á því staðið að ríkið geti lækkað skatta, en borgin þurfi að hækka? Er stjórn ríkisfjármála eða stefna ríkisstjórnar svo miklu betri en borgaryfirvalda? Ólíkt hafast þeir að og von er að spurt sé hvernig þessu víkur við. Ástæðan er einföld og hverjum manni augljós sem vill kynna sér. Ríkið lækkar skatta, segir Helgi Hjörvar, og sendir borginni reikninginn. Undanfarin ár hefur ríkið lagt sí- vaxandi álögur á sveitarfélögin, án þess að færa þeim tekjur á móti. Skv. útttekt Sambands íslenskra sveitarfélaga nema þær álögur í ár þremur milljörðum króna. Þannig hefur ríkið skapað svigrúm í rekstri sínum til að lækka tekjuskatt um 1% um áramótin, en sú aðgerð kostar einmitt þrjá milljarða. Gallinn er bara sá að sveitarfé- lögin eiga ekki fyrir þeim reikningi sem ríkið sendir þeim, svo forsætisráðherrann geti leikið skattalækk- unarhlutverkið. "t- Árum saman hafa sveitarfélögin þolað hverjar álögur ríkisins á fætur öðrum og nú er einfaldlega nóg komið. Segja verður ríkinu skýrt og skil- merkilega hingað og ekki lengra. Ef Reykjavík á að borga skatta- lækkun Reykvíkinga með álögum ríkisins á borgarsjóð, verðum við einfaldlega að draga úr skattalækk- uninni með útsvarshækkunum til að mæta auknum álögum ríkisins á borgina. Og er nema von að almenningur undrist. Ríkið lækkar skatta og sendir borginni reikninginn. Borgin^ svarar með því að breyta útsvari í samræmi við lagaheimildir sem rík- ið hefur veitt henni og samræmist við önnur sveitarfélög, og skattar hins almenna launamanns hækka um 0,75% og lækka um 1% sama daginn. Eru það nú jólasveinar! En óskammfeilnin er ríkisins. Höfundur er borgarfulltrúi. Hringekja fáránleikans Helgi Hjörvar Dýw> þTiwö ol HASA fyiíi geímfoTO n no fínmlég tyiii þig Faxafeni 5 • 108 Rvk ■ Simi:588-8477 ■ L" -:iii - - .„L —jý /gf: yLL'.,L;ú 1 ^ n)U.' Si t ^Jt***?* 1 £• / f m J m 1 r:T . • ^ L fe. :-v --*** 1 IgHfe 1 wæm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.