Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 23
ERLENT
Annan
hittir
Gaddafi
KOFI Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagðist í gær myndu halda til
Líbýu á laug-
ardag og
væntanlega
eiga þar fund
með Moamm-
ar Gaddafi,
leiðtoga lands-
ins. Er það
talið auka lík-
umar á því að
Líbýumenn
fallist á að réttað verði yfir
mönnunum tveimur sem ákærð-
ir eru fyrir að hafa staðið að
Lockerbie-tilræðinu árið 1992.
Þá sprakk flugvél Pan Am-flug-
félagsins yfir Skotlandi og lét-
ust 270 manns. Talið er að Lí-
býumenn muni fallast á að rétt-
að verði yfir hinum grunuðu í
Hollandi.
Hefnd með
bréfsprengju?
ÁSTRALSKA lögreglan leitar
nú fyrrverandi starfsmanns
skattheimtunnar sem grunaður
er um að hafa staðið að bréf-
sprengjuherferð í Queensland.
Hafa 26 bréfsprengjur fundist
en þær voru stflaðar á yfirmenn
hjá skattinum og er talið að
maðurinn hafi með þeim viljað
mótmæla brottrekstri úr starfi.
Fjórtán forust
í Alsír
FJÓRTÁN manns fórust og 24
særðust í öflugri sprengingu
sem varð við markaðinn í borg-
inni Khemis Miliana í Alsír í
gær. Hafa 37 manns látið lífið í
tilræðum í landinu á fjórum
dögum.
Mandela hitti
Banana
CANAAN Banana, fyrrverandi
forseti Zimbabve, er kominn til
Suður-Afríku og hefur átt fund
með forseta landsins, Nelson
Mandela. Banana flýði land eft-
ir að hann var dæmdur fyrir
ósiðlegt athæfi í heimalandi
sínu og er hann eftirlýstur.
Banana er m.a. dæmdur fyrir
samkynhneigð sem er bönnuð í
heimalandi hans en leyfð í Suð-
ur-Afríku.
50 drukknuðu
í Nígeríu
FIMMTÍU manns drukknuðu
þegar ferju hvolfdi á Benue-
fljóti í Nígeríu. Er orsök slyss-
ins sögð sú að alda frá öðru far-
artæki á fljótinu hafi skollið á
ferjunni.
Ræða
IMF-fund
Jevgení Prímakov, forsætisráð-
herra Rússlands, og Jacques
Chirac, forseti Frakklands,
ræddust í gær við í síma í kjöl-
far fundar Prímakovs og
Michels Camdessus, fram-
kvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, IMF. Sagði Chirac
Camdessus hafa verið jákvæð-
an eftir fundinn en hann hefur
ýjað að því að Rússum verði
veitt aðstoð í janúar.
Gaddafi
Hart deilt um framtíð
lávarðadeildar þing’sins
London. The Daily Telegraph.
HORÐ deila hefur blossað upp inn-
an breska Ihaldsflokksins vegna
þeirrar ákvörðunar Williams Hagu-
es, leiðtogi flokksins, að víkja Cran-
bome lávarði frá sem leiðtoga
flokksins í lávarðadeild þingsins fyr-
ir að samþykkja málamiðlunartil-
lögu stjómarinnar um breytingar á
deildinni.
Samkvæmt málamiðlunartillög-
unni á 91 af 750 aðalsmönnum, sem
eiga erfðarétt til setu í lávarðadeild-
inni, að sitja þar áfram uns þingið
ákveður varanlegt fyrirkomulag
hennar. Aðalsmennimir eiga að
kjósa 75 lávarða í deildina.
Þessi tillaga er veruleg tilslökun
af hálfu stjórnarinnar, sem hefur
stefnt að því að afnema algjörlega
erfðarétt aðalsmanna til að sitja í lá-
varðadeildinni. Hague hafnaði sam-
komulaginu, sakaði stjómina um
„hrossakaup" og að hafa „hlaupið á
sig“ með kúvendingu í málinu.
Sú ákvörðun hans að víkja Cran-
bome lávarði úr skuggaráðuneyti
íhaldsflokksins er mesta áhætta
sem Hague hefur tekið frá því hann
varð leiðtogi flokksins. Hún af-
hjúpaði mikla óeiningu meðal íhalds-
manna um framtíð lávarðadeildar-
innar og beindi athyglinni frá
kúvendingu stjórnarínnar í málinu.
Ólgan í Ihaldsflokknum er svo
mikil að flestir forystumenn hans í
lávarðadeildinni buðust til að segja
af sér. Hague hafnaði því en viður-
kenndi að hugsanlega yrðu frekari
breytingar á forystusveit flokksins í
deildinni.
Hague tilkynnti að
Strathclyde lávarður,
einn af forystumönnum
íhaldsmanna, hefði verið
skipaður eftirmaður
Cranbomes. Sú ákvörð-
un Strathclydes að
þiggja stöðuna kann að
auðvelda Hague að sefa
aðalsmenn sem reiddust
honum vegna brottvikn-
ingar Cranbomes.
Sagði ekki Hague frá
samkoniulaginu
Hague kvaðst ekki sjá
eftir því að víkja Cran-
bome frá fyrir að reyna
að „þröngva" honum til
að samþykkja tillögu stjómarinnar.
Cranbome hóf leynilegar viðræður
við Tony Blair forsætisráðherra um
stjómlagabreytingamar með sam-
þykki Hagues. Hann hélt hins vegar
viðræðunum áfram án vitundar
flokksleiðtogans eftir að skuggaráðu-
neyti íhaldsmanna hafnaði því að
semja við stjómina um málið. Cran-
bome náði síðan samkomulagi við
Blair án þess að segja Hague frá því.
Samkvæmt samkomulaginu áttu
íhaldsmenn að skuldbinda sig til að
hindra ekki afgreiðslu stjórnarfrum-
varpa með því að halda uppi málþófi
vegna stjórnlagabreytinganna gegn
því að einn af hverjum tíu aðals-
mönnunum héldi rétti sínum til setu
í efri deildinni um sinn.
Hague sagði að hann hefði átt
einskis annars úrkosti en að víkja
Cranborne frá. „Það
er aldrei hægt að una
því að einn af frammá-
mönnum flokksins
reyni að breyta stefnu
flokksins án vitundar
eða samþykkis flokks-
leiðtogans eða skugga-
ráðuneytisins," sagði
Hague í bréfi til lá-
varðarins.
Afstaða íhalds-
flokksins í málinu er
þó harla óljós, því tals-
menn hans sögðu í
fyrrakvöld að Hague
myndi ekki greiða at-
kvæði gegn því að 91
lávarður fengi að halda
þingsæti sínu þegar tillagan verður
lögð fyrir þingið á næsta ári. Hann
væri hins vegar andvígur því að
samið yrði um málið fyrirfram og að
tillagan yrði samþykkt án mót-
spymu á þinginu án þess að tillögur
stjómarinnar um varanlega tilhögun
efri deildarinnar lægju fyrir.
Eins og „illa vaninn hundur“
Cranbome lávarður er afkomandi
Williams Cecils, sem varð aðalráð-
herra Elísabetar 1. Bretadrottning-
ar árið 1558, og ætt hans hefur gegnt
veigamiklu hlutverki í breskum
stjómmálum í rúm 400 ár. Lávarður-
inn sagði að brottvikningin væri
réttlætanleg þar sem hann hefði
hagað sér eins og „illa vaninn hund-
ur“. Hann viðurkenndi að hafa reynt
að „þröngva" íhaldsflokknum til að
breyta stefnu sinni. „Hague áleit það
réttilega ögran við sig sem leiðtoga
og rak mig. Hegðun mín var all-
hraksmánarleg."
Cranbome lávarður kvaðst þó
standa við samkomulagið, sem hann
sagði tryggja að allmargir lávarð-
anna fengju tældfæri til að halda
velli á þinginu í stað þess að heyja
vonlausa baráttu gegn breytingun-
um og „deyja með reisn í skotgröf-
unum“. „Fjórðungur brauðhleifs er
betri en enginn.“
Lávarðar styðja tillöguna
Áður en Cranbome var vikið frá
var Ijóst að hann nyti mikils stuðn-
ings meðal íhaldsmanna úr röðum lá-
varðanna. Tæplega 200 lávarðar sátu
fund um málið í fyrradag og margh-
þeirra tóku málstað Cranbomes.
Einn fundarmannanna sagði að 80%
þeirra væra á bandi Cranbomes.
Hague er sagður hafa verið „fólur
og fár“ þegar hann fór af fundinum
vegna þessa mikla stuðnings við
Cranbome lávarð. Heimildarmenn í
starfsliði flokksins sögðu að hann
hefði samt ákveðið að víkja lávarðin-
um frá til að sýna „vott um einarða
forystu“. Áhrifamikil nefnd þing-
manna flokksins studdi þá ákvörðun
síðar um daginn.
Nefnd þingmanna Verkmanna-
flokksins samþykkti tillögu Blairs og
Frjálslyndir demókratar gáfu til
kynna að þeir myndu fallast á hana.
Skuggaráðuneyti íhaldsmanna lýsti
hins vegar yfir fullum stuðningi við
afstöðu Hágues í málinu.
CRANBORNE
lávarður
HAGKADP
17 verslanir og þjónustuaöilar
bjóða frábært vöruúrval til
hátíðarundirbúnings og jólagjafa.
Næg bílastæði.
Við bjóðum læknavaktina velkomna í Smáratorg