Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ A austrænu astralplani TÓJVLIST Háskólabíó SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Schumann: Sinfónía nr. 3; Bruch: Konsert f. víólu og klarínett; Atli Heimir Sveinsson: Flower Shower. Unnur Sveinbjarnardóttir, víóla; Ein- ar Jóhannesson, klarínett; Sinfóníu- hljómsveit íslands u. stj. Stephens L. Mosko. Háskólabíói, fimmtudaginn 3. desember kl. 20. „VOLDUG hljómsveitarverk“ ku vera sérkenni gulrar tónleikaraðar á þessu starfsári Sinfóníuhljóm- sveitar Islands, en sá var einkenn- islitur tónleikanna í Háskólabíói i gær. Stjórnandi kvöldsins, banda- ríska tónskáldið Stephen Mosko, sem kennir nú tónsmíðar við Cali- fornia Institute of the Arts, hefur komið hingað til lands áður, fyrst til að ganga á fjöll, síðar til að rannsaka íslenzka þjóðlagatónlist, en mun sem hljómsveitarstjóri kunnastur fyrir túlkun nýrrar tón- listar. Pað var því einnig nokkur forvitni að því hvemig manni sem hefur módernisma síðustu áratuga að sérsviði skyldi takast upp við gömlu meistarana. Þriðja og síðasta sinfónía Ro- berts Schumanns (1810-56), kennd við Rínarfljót, er af mörgum talin bezta sinfóníuverk hans, þó að með nokkrum rétti megi fremur kalla hana sinfóníska svitu. Margir hafa sakað Schumann um að vera slakur orkestri, en aðrir haldið því fram, að þótt jafnvægi milli hljóðfær- aradda hans sé ekki jafn „sjálfstill- andi“ og hjá mestu meisturum greinarinnar, geti slyngur stjórn- andi kallað það fram. I vondu húsi eins og Háskólabíói verður slíkt alltaf erfiðara en ella. Ekki heyrðist manni honum takast svo afleitlega í þeim efnum, burtséð frá fullsterkum pákum í 1. þætti og stundum of áberandi hoi'nakór seinna í verkinu. Hvíld- arsesúrurnar í landlerhrynjandi 2. þáttar voru fallega mótaðar, þó að barokklega strengjavíraverkið mætti vera meira samtaka, líkt og ýmislegt í hægum miðþættinum, og fínallinn hafði góða snerpu. Dómkirkjulegur 4. þátturinn var hins vegar svolítið daufur, þrátt fyrir mikilúðlegan lúðrablástur, og bar fullmikinn svip af sorgarmarsi. Tvíleikskonsertar fyrir klarínett og víólu eru næsta fátíðir í sígildri tónlist, og gæti umrætt fimmtu- dagskvöld hæglega hafa verið í fyrsta skipti sem íslenzkir áheyr- endur fengu að heyra slíkt verk. Konsert Bi-uchs var saminn 1911, aðeins tveim árum fyrir Vorblót Stravinskys, en gæti verið saminn aldarþriðjungi fyrr, enda stendur verkið öllu nær síðrómantík Bra- hms og Bruckners. Raunar var klassískt jafnvægi Mendelssohns meginfyrirmynd hans, og þó að Brahms hafi metið Bruch mikils, var hann einnig fljótur að sjá í gegnum hina miídu tæknilegu færni Bruchs, sem duldi fagurlega þá staðreynd að Bruch hafði ekki hlotið náðameista stórsnillings í vöggugjöf. Mörgum hlustanda hef- ur sennilega komið á óvart að heyra ávæning af þjóðlagastefinu alkunna, „Vermaland þú fagra“, í 1. þættinum, en það kann að eiga sér þá skýringu, að Brueh setti saman hlj ómsveitarsvítuna Sch wedische Tánze (Op. 63) árið 1892. Góður þokki var af verkinu í heild, og sérstaklega af leik sólist- anna, þar sem flauelsmjúkir víólu- tónar Unnar Sveinbjarnardóttur og kattliðugt klarínett Einars Jó- hannessonar sungu margan íðil- fagran ástardúett. I heild hefði mátt heyrast ögn betur í víólunni, en af hendi höfundar virtist klar- ínettið hafa nokkum forgang hvort eð var. Jafnvægið við hljómsveitina var aftur á móti víðast hvar gott undir öraggri stjórn Moskos. Flower Shower Atla Heimis Sveinssonar átti, eins og heiti verksins bendir til, heyi'anlegar rætur að rekja til andrúmslofts „blómabarna" hippaskeiðsins. Það var upphaflega samið 1973 en birt- ist nú í nýrri endurgerð. Fyrir nægilega gamla hlustendur, þ.e.a.s. þá sem komnir eru á skallahippa- aldur, var tíðarfarslýsing Atla óyggjandi eins og fingrafar. Hljóð- vist verksins var útfærð í þrívídd; hljómsveitinni hafði verið skipt nið- ur í 7 hópa á sviðinu, og aftast úr sal hljómuðu hljóðfærahljóð og effektar úr hátölurum af segul- bandi undir stjóm höfundar. Eftir langan og smám saman æ minna gisinn inngang um hálftón- bilsfram færðist slagverkið í æðra veldi í n.k. nútíma „Darstellung des Chaos“, er lauk á löngum blás- arahljómi. Þá kom til skjala púls- rytmi, fyrst í mynd hristu eða „hel- enustokks" sem skekinn var jafnt og þétt líkt og sistram við forneg- ypzkt helgihald. Básúnutilbrigði um sömu tóna bættist við og smám saman bumbur í bít-ættuðum sam- slætti, og því fönki lauk á samsöng hljóðfæraleikara á síítrekuðu ör- stefi. Bít-slætti lauk þá skyndilega og við tók ólýsanleg edens- stemmning á æðsta astralplani við liggjandi orgelpunkt, himneskan harpslátt og austrænar tvíblöð- ungsstrófur úr óbói og ensku horni með áberandi „vellíðunar“-sexund- um. Verkinu lauk með dreifðu klappi flytjenda um leið og óbóist- inn gekk spilandi út af sviðinu, klappi er „krossfeidaði" eins og sagt er á hljóðvei’smáli, við brosmildar undirtektir áheyrenda. Sem næst útilokað var að átta sig á hversu vel (eða illa) verkið var flutt, en fáum virtist þó hafa leiðzt að ráði þessar 33 mínútur. Ríkarður 0. Pálsson Norræna húsið Einleikstónleikar Dorothy Stone þverflautuleikara BANDARÍSKI þver- flautuleikarinn Dorothy Stone heldur einleikstónleika í Nor- ræna húsinu laugar- daginn 5. desember kl. 12 á hádegi. A efnisskrá eru verk eftir íslensk og erlend tónskáld, þar á meðal Mist Þorkelsdóttur, Stephen L. Mosko, Karlheins Stock- hausen, Wadada Leo Smith og framflutn- ingur á verki eftir Hilmar Þórðarson sem samið er sérstaklega fyrir hana. Dorothy Stone er einn þekktasti þverflautuleikari Bandaríkjanna sem sérhæfir sig í flutningi sam- tímatónlistar. Hún er stofnandi California EAR Unit-tónlistarhóps- ins og hefur komið fram með honum auk einleikaraferils á tónleikum víða um veröld. Gefinn hefur verið út fjöldi geislaplatna með flautuleik Dorothy Sto- ne og era þeir fáanlegir undir merkjum eins og Crystal, New Albion, Newport Classics, 0.0. Discs, Tzadik, No- nesuch Record Labels og Voyager á CD- ROM-formi. Hún hefur gefið út einleiksdisk undir heitinu None but the Lonely Flute þar sem m.a. eru verk eftir Milton Babbitt og Stephen Mosko sem þeir sömdu sérstaklega fýrir hana auk verka eftir bandarísku tónskáldin John Cage, Morton Feldman og Kathryn Alexander. Nú nýlega kom svo út plata með fjögurra klukkutíma tríó- verki Mortons Feldmans, For Phil- ip Guston, sem hefur hlotið góða umsögn gagnrýnenda, segir í frétta- tilkynningu. Dorothy Stone Fjórir lesarar í Súfistanum LESIÐ verður upp úr nýjum bók- um í bókakaffi Súfistans I húsa- kynnum Máls og menningar, Laugavegi 18, í kvöld kl. 20.30. Einar Örn Gunnarsson les úr bók sinni Tár paradísarfuglsins, Elísa Björg Þorsteinsdóttir les úr þýðingu sinni á Sléttuúlfinum eftir þýska nóbelsskáldið Hermann Hesse, Kristinn R. Ólafsson les úr skáldsögu sinni Pósthólf dauðans og Sveinn Einarsson les úr skáldsögu sinni Rafmagnsmaðurinn - Nú birt- ir í býlunum lágu. Tóna- og skáldamál í Listaklúbbnum í LISTAKLÚBBI Leikhús- kjallarans mánudaginn 7. des- ember kl. 20.30 kynna nýir skáldsagnahöfundar verk sín og ný hljómsveit, Sídróma, leik- ur frumsamda tónlist. Jón Karl Helgason les úr Næturgalanum; Guðrún Eva Mínervudóttir kynnir smá- sagnasafn sitt Á meðan þú horfir á mig ertu María mey; Huldar Breiðfjörð les úr bók sinni Góðir íslendingar; Auður Jónsdóttir les úr bók sinni Stjómlaus lukka og Auður Ólafsdóttir flytur ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni kafla úr sögu sinni Upphækkuð jörð. Hljómsveitin Sídróma leikur einungis djass-funk og aðrar tónlistarstefnur skapa hinn sér- staka sídrómuhljóm. Hljóm- sveitina skipa Kristmundur Guðmundsson trommur, Helgi Mar Hallgrímsson gítar, Erla Björg Þórisdóttir bassa og Ei- ríkur Ki-istjánsson trompet. Kynnir kvöldsins verður skáldið Sjón. Fyrirlestur um bandaríska tónsmídi BANDARÍSKA tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Stephen Mosko heldur fyrirlestur um nýj- ustu strauma í bandarískri tón- smíði, föstudaginn 4. desember kl. 17-19 í húsakynnum Tónlistarskól- ans í Reykjavík, Laugavegi 178, 4. hæð. BOKASALA í nóv, Röð ritill/Hö(undurAlt9efandi 1 ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON I SILD OG FISK/Gyifi Gröndal/ Forlagið 2 ÁHYGGJUR BERTS/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 3 STEINGRÍMUR HERMANNSSON - ÆVISAGA/ Dagur B. Eggertsson/Vaka-Helgafell 4 TALNAPÚKINN/ Bergljót Arnalds/ Virago 5 ALDREI AÐ VITAI/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell 6 EINS OG STEINN SEM HAFIÐ FÁGAR/ Guðbergur Bergsson/ Forlagið 7 NE-HEI! SAGÐI EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/ Mál og menning 8 STAFAKARLARNIR/ Bergljót Arnalds/ Virago 9-10 SÉRÐU ÞAÐ SEM ÉG SÉ?/ Þórarinn Eldjárn/ Vaka-Helgafell 9-10 TEITUR TÍMAFLAKKARI/ Sigrún Eldjárn/ Forlagið Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 EINS OG STEINN SEM HAFIÐ FÁGAR/Guðbergur Bergsson/ Forlagið 2 SÉRÐU ÞAÐ SEM ÉG SÉ?/ Þórarinn Eldjárn/ Vaka-Helgafell 3 MARÍUGLUGGINN/ Fríða Á. Sigurðardóttir/ Forlagið 4 NORÐURLJÓS/ Einar Kárason/ Mál og menning 5 LEIT/ Stephen King/ Fróði 6 GULLRÁNIÐ/ Jack Higgins/ Hörpuútgáfan 7 AUGUN f BÆNUM/Sindri Freysson/Vaka-Helgafell 8 BROTASAGA/BjörnTh. Björnsson/ Mál og menning 9 LÁTTU SEM EKKERT SÉ/ Mary Higgins Clark/ Skjaldborg 10 MORGUNÞULA í STRÁUM/ThorVilhjálmsson/ Mál og menning ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 PERLUR ÚR LJÓÐUM ÍSLENSKRA KVENNA/ Silja Aðalsteinsdóttir valdi Ijóðin/ Hörpuútgáfan 2 HÁRFÍNAR ATHUGASEMDIR/ Halldóra Thoroddsen/ Höfundur 3 ÞAR SEM ÞAÐ ER SÉÐ/ Þorgeir Rúnar Kjartansson/ Einar 4 EDDU KVÆÐI/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/ Mál og menning 5 SKAGFIRSK SKEMMTILJÓÐ - II/ Bjarni Stefán Konráðsson safnaði efni/ Hólar 6-9 í GARÐI KONU MINNAR/Guðjón Sveinsson/ Mánabergsútgáfan 6-9 SPÁMAÐURINN/ Kahlil Gibran/ islendingasagnaútgáfan 6-9 TREASURES OFICELANDIC VERSE/Árni Sigurjónsson valdi efni/ Mál og menning 6-9 TVEGGJA HEIMA SKIL/ Björn Erlingsson/ Kjölur 10 GIMSTEINAR - LJÓÐ16 HÖFUNDA/ Ólafur Haukur Árnason valdi efni/ Hörpuútgáfan ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 AHYGGJUR BERTS/Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 2 TALNAPÚKINN/ Bergljót Arnalds/ Virago 3 ALDREI AÐ VITA!/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell 4 NE-HEI! SAGÐI EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/ Mál og menning 5 STAFAKARLARNIR/ Bergljót Arnalds/ Virago 6 TEITUR TÍMAFLAKKARI/Sigrún Eldjárn/ Forlagið 7 ÉG HEITI BLÍÐFINNUR-EN ÞÚ MÁTT KALLA MIG BÓBÓ/ Þorvaldur Þorsteinsson/ Bjartur 8 NÓTTIN LIFNAR VIÐ/ Þorgrímur Þráinsson/ Fróði 9 BESTU BARNABRANDARARNIR - BRJÁLAÐ FJÖR/ Börn sömdu og söfnuðu efni/ Hólar 10 GETTU HVE MIKIÐ ÉG ELSKA ÞIG/ Sam McBratney og Anita Jeram/ Mál og menning ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 ALMANAK HASKOUNS1999/ Háskóii ísiands 2 HÆSTVIRTUR FORSETI/ Ritstj. Guðjón Ingi Eiriksson og Jón Hjaltason/ Hólar 3 ALMANAK HINS ÍSLENSKA ÞJÓÐVINAFÉLAGS 1999/ / Hið íslenska þjóðvinafélag 4 HEIMSATLAS/ Ritstj. Björn Þorsteinsson og Kristján B. Jónasson/ Mál og menning 5 AMAZING ICELAND/ Helgi Guðmundsson og Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 6-7 GOÐSAGNIR HEIMSINS/Ritstj. Dr. Roy Willis/ Mál og menning 6-7 LITLA BRANDARABÓKIN - 2/1 steinegg 8 ÆVISAGA ÞORSKSINS/ Mark Kurlansky/ Hans Kristján Árnason 9 AF BESTU LYST/ Ritstj. Laufey Steingrímsdóttir/ Vaka-Helgafell 10 ÍSLAND, LANDIÐ HLÝJA í NORÐRI/ Torfi H. Tulinius og Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið ÆVISOGUR OG ENDURMINNINGAR 1 ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON I SILD OG FISK/ Gylfi Gröndal/ Forlagið 2 STEINGRÍMUR HERMANNSSON - ÆVISAGA/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell 3 ÚTKALL - FRAM AF FJALLI/ Óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan 4 LÍFSGLEÐI -VII/ Þórir S. Guðbergsson/ Hörpuútgáfan 5 ÞJÓÐSÖGUR JÓNS MÚLA ÁRNASONAR - II/ Jón Múli Árnason/ Mál og menning 6 BLÖNDUKÚTURINN/ Bragi Þórðarson/ Hörpuútgáfan 7 GLYMJA JÁRN VIÐ JÖRÐU/ Árni Gunnarsson/ Skjaldborg 8 PETURBEN ./ Jakob F. Ásgeirsson/ Mál og menning 9 Á MÖRKUM MANNABYGGÐA/ Lawrence Elliott/ Mál og menning 10 NÁÐUGA FRÚIN í RUZOMBEROK/ Jónas Jónasson/ Vöxtur Bókabúðir sem tóku þátt í kðnnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bóksala stúdenta, Hringbraut Bónus, Holtagörðum Hagkaup, Skeifunni Eymundsson, Kringlunni Penninn, Hallarmúla Penninn, Kringlunni Hagkaup, Smáratorgi Kópavogi Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókval, Akureyri KÁ, Selfossi Tónspil, Neskaupstað Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka I nóvember 1998 Unnið fyrir Morgunblaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Fólag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.