Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ
?0 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
Undurljúftfyrir
báttinn
v
l*r‘“
‘ ‘v- V '• v’ ,
/ fynmiki3oghr^andÍ
7 morffun<tári(J
I Peppermint
t., mjw,«Tf
Endurnœrandi
ogfrúkandi ^
FÓLK í FRÉTTUM
EIN
DAG
í EI
Björgvin Halldórsson er áberandi
á íslenska Tónlistanum sem sjá
má hér neðar á síðunni. Hann
syngur Snæfinn snjókarl á
safnplötunni Pottþéttum jólum 2
sem eru í efsta sæti og „dóttir
mín syngur lagið Ég hlakka svo
til,“ skýtur hann inn í. Þá syngur
Björgvin titillag safnplötunnar
Söknuður sem er í öðru sæti og
gefin er út til minningar um Vil-
hjálm Vilhjálmsson. Auk þess
framleiddi hann plötuna Einu sinni
var ásamt Gunnari Þórðarsyni og
söng lögin ásamt kór Öldutúns-
skóla. Þessi plata hefur nú verið
endurútgefin og skipar fjórða sæti
Tónlistans rúmum tveimur
áratugum eftir að hún kom fyrst
út. Hér er fjallað um Björgvin,
plötuna Einu sinni var og einnig er
Gísli Rúnar Jónsson leikari með
meiru fenginn til að segja deili á
manninum.
Nafn: Björgvin Halldórsson
Fæðingarstaður og ár: 16. apríl
árið 1951 í Hafnarfirði.
Fjölskylda: Eiginkona hans er
Ragnheiður B. Reynisdóttir og
eiga þau tvö börn, Svölu og
Hrafn.
Plata á Tónlistanum: Einu sinni
var.
Upptökutími: „Við gerðum hana í
Englandi er við bjuggum þar og
ætli upptökurnar hafi ekki tekið
mánuð,“ svarar Björgvin. „Þetta
er fyrri platan af tveimur. Sú síðari
nefnist Út um græna grundu.“
Útgáfudagur- Einu sinni var kom
upphaflega út á hljómplötu árið
1977 og síðan á geisladiski 6.
október á liðnu hausti.
Lagafjöldi: 12
Mínútur: Tæpar 30
Plötur: „Ef allar plötur eru taldar
með sem ég hef verið viðloðandi
eru þær á bilinu 130 til 140,“ segir
Björgvin.
Hvenær hófst ferillinn: „Fyrir
hátt í þrjátíu árum.“
Mottó: „Bara að láta einn dag
nægja í einu.“
HVER ER MAÐURiNN?
Lýsing Gísla Rúnars Jónssonar leikara
►„Það er mikill stíll; fagurkeri; sælkeri; veikleiki fyrir þekktum vöru-
merkjum og öllu sem lýtur að tækni. Fyrstur til að eignast allt það
nýjasta í „modern electronics" á íslandi, jafnvel á undan framleiðand
anum. Hann hefur fjölbreyttan smekk á lífsins lystisemdum; er ákaf-
lega nákvæmur í vinnubrögðum og óskadraumur hljómplötuútgef-
andans sem stjórnandi upptöku vegna drifkraftsins. Getur verið erf-
iður í umgengni en er virkilega
verðugur heilmikillar umgengni.
Einhver orðheppnasti og hnyttn-
asti núlifandi Islendingur sem
um getur. Það væri nú þegar
hægt að gefa út langa þykka
bók bara með tilsvörum hans og
hótfyndni. Einhver mesta nátt-
úrurödd í íslenska dægurlaga-
bransanum og syngur ævinlega
beint frá hjartanu með sinni eigin
rödd. Lífið væri miklu dauflegra
víðast hvar á landinu þar sem
hann þekkist persónulega ef
hans nyti ekki við.“
Tónlistinn
Fátt sem
kemur á
óvart
POTTÞÉTT jól 2 eru í efsta
sæti Tónlistans og var Aðal-
steinn Magnússon hjá Skíf-
unni, sem gefur þau út,
spurðui- hvað væri eiginlega á
safnplötunni. „Þetta er safn-
plata með íslenskum og er-
lendum jólalögum,“ segir Að-
alsteinn. „Eitt nýtt jólalag er
á plötunni eftir Kára Waage
sem Helgi Björnsson syngur
og heitir það Jólastafrófíð.
Alls eru 40 lög á plötunni,
m.a. Gleði og friðarjól með
Pálma Gunnarssyni sem hef-
ur verið ófáanlegt um
nokkurn tíma.“
Eiga þeir sem kaupa Pott-
þétt Jól 2 líka fyrstu plötuna?
„Það held ég,“ svarar Aðal-
steinn eftir andartaks um-
hugsun. „Pottþétt Jól komu
út fyrir jólin 1996 og hafa
selst í nálægt 20 þúsund ein-
tökum.“
Kom eitthvað þér á óvart á
Tónlistanum að þessu sinni?
„í sjálfu sér ekki,“ segir
Aðalsteinn. „Helst að Grease
skuli vera á uppleið á listan-
um eftir hálft ár í dreifingu.
Platan er að nálgast platínu-
sölu á íslandi og er þá önnur
platan á þessu ári til að kom-
ast í 10 þúsund eintök en hin
var íslenskir karlmenn með
Stuðmönnum sem komin er í
17 þúsund eintök."
Finnst þér listinn gefa trú-
verðuga mynd af plötusöl-
unni?
„Já, mér fínnst hann mjög
raunhæfur og raunhæfasti
listi sem ég hef séð. Allar
stærstu plötubúðirnar taka
þátt og allar gefa þær upp
réttar sölutölur þannig að
þetta er besta nálgun sem
hægt er að fá.“
48. VIKA
NONAME
"■•■■■"co s m e t i cs —.
‘Kýnning
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
N0 NAME andlit ársins 1998
Kynning, Silla Páls förðunarfræðingur
ráðleggur í dag kl. 14-18.
Spes, Háaleitisbraut 58-60
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
NO NAME andlit ársins 1998
NO NAME
• —.. COSMETICS ——
Kýnninfi
Helga Sæunn förðunarfræðingur gefur
ráðleggingar í dag frá kl. 14-18
Sautján, Laugavegi
Dansleikur
veröur í Ásgarði - Glæsibæ föstudagskvöld
kl. 22-3 og laugardagskvöld kl. 23-3.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar
leikur fyrir dansi.
Nr.; var vikur Diskur Flytjandi Útgefandi
1. i (7) 3 Pottþétt Jól 2 Ýmsir Skífan
2. ; (1) 3 Söknuður: Minning um Viihj. V. Ýmsir Skífan
3. ; (4) 4 These Are Specinl Tlmes Celine Dion Sony
4. 1 (2) 5 Einu sinni var Ýmsir Skífan
5. ; (3) 4 Bestof 1980-1990 U2 Polygram
6. ; (-) 1 Gorage Inc. Metallica Polygram
7. ; (5) 3 Gullnn hliðið Súlin hans Jóns mins Spor
8. • (6) 3 Lodies And Gentlemen George Michael Sony
9. i (12) 2 Klnssík Diddú Skifan
lO.i(-) 1 Pottþétt 14 Ýmsir Spor/Skífan
11.1(10) 4 Heimurinn og ég Ýmsir Spor
12.; (9) 2 Alveg eins og þú Land og synir Spor
13. |(17) 5 Arfur Bubbi Skífan
14. i (22) 10 Grease-íslensk Ýmsir Skífan
15.;'(53) 3 Sönglögin í leikskólnnum 2 Ýmsir Stöðin
16.! (8) 3 Supposed Former Infatuation Alanis Morissette Warner
17. i (34) 1 Baywatch Ýmsir Spor
18. i (13) 2 Tical 2000: Judgement Day Method Man Polygram
19.1(37) 1 Pottþétt Jól Ýmsir Spor
20.1(35) 1 Into The Light Friðrik Karlsson Spor
21. i (—) 1 Fram i heiðanna ró Karlakórinn Heimir Kh
22.1(11) 3 Romanza Andrea Bocelli Polygram
23. i (15) 5 You've Come A Long Way Baby Fatboy Slim Sony
24. i (16) 4 Sultans of Swing Dire Straits Polygram
25.; (27) 5 Where We Belong Boyzone Polygram
26. i (33) 4 Pottþétt 13 Ýmsir Skífon/Spor
27.; (42) 1 Hlóturinn lengir lifið Papar Spor
28.1(60) 1 One's Mariah Carey Sony
29.1(28) 10 Hello Nasty Beastie Boys EMI
30.1(30) 9 Never Say Never Brandy Warner
Unnið af PricewuterhouseCoopers I somstarfi við Samband hljómplötuframleiðenda 09 Morgunblaðið.