Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 62
aJB2 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Hundalíf
Smáfólk
U)HEN YOU RE
ALONE IN THE
DE5ERXY0U5IN6
50N65 ABOUT
L0NELINE55.
RT
/0-/6
YOU 5IN6 ABOUT LOVE,
ANDTHE MOON,ANDTHE
5TAR5 ANDTHE ALAMO.
Þegar maður er einn í eyðimörk-
inni syngur maður um einmana-
leikann...
Maður syngur um ástina, tunglið,
stjörnurnar og Alamo...
Kannski gætirðu hreyft varirnar
með mér...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 108 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Svar til Atla Más
Jóhannssonar
Frá Ólafi Þ. Stephensen:
ATLI Már Jóhannsson, íbúi í
Bessastaðahreppi, skrifar lesenda-
bréf í Morgunblaðið sl. sunnudag
vegna samskipta sinna við Lands-
síma Islands hf. Annars vegar tel-
ur Atli að GSM-kerfí Landssímans
sé hrunið og heldur því fram að
80% símtala í gegnum kerfíð slitni
eftir stuttan tíma. Hins vegar
kvartar Atli undan því að hafa ekki
náð símasambandi við neinn hjá
Landssímanum, sem gat svarað
spurningum hans um málið.
Um þetta er í fyrsta lagi það að
segja að GSM-kerfi Landssímans
er ekki hrunið og virkar með ágæt-
um víðast hvar á þeim þéttbýlis-
stöðum þar sem GSM-stöðvar hafa
verið settar upp. Mælingar, sem
gerðar eru reglulega, benda ekki
til þess að um sé að ræða neina
brotalöm af því tagi að samband
slitni í miðju símtali og allur þorri
um 61.000 GSM-notenda í kerfí
Landssímans hefur ekki kvartað
undan slíku. í tilviki Atla Más virð-
ist hins vegar eitthvert vandamál á
ferðinni, sem skýring hefur ekki
fundizt á. Starfsmenn Landssím-
ans hafa rætt við Atla Má og verða
sendir til hans tæknimenn til að
skoða farsímana, sem um ræðir, og
gera mælingar.
í öðru lagi varð röð óheppilegra
tilviljana til þess að Atli Már náði
ekki sambandi frá aðalskiptiborði
Landssímans við neinn, sem svarað
gat spumingum hans á um 20 mín-
útna tímabili fimmtudaginn 26.
nóvember. Það gerist því miður
stundum í fyrirtækjum að enginn
er við, sem kann að svara ákveðnu
erindi strax. Ábendingar, á borð
við þá sem Atli Már setur fram í
lesendabréfinu, verða hins vegar
eðlilega til þess að Landssíminn
kannar fyrirkomulag símsvörunar
hjá sér, í því augnamiði að bæta
þjónustuna við viðskiptavini.
Atla Má og öðrum símnotendum
skal hins vegar bent á að bezti
vettvangurinn til að koma kvörtun-
um á framfæri eða leita upplýsinga
er Þjónustumiðstöð Símans, sem
hefur gjaldfrjálsa símanúmerið 800
7000. Starfsfólk Þjónustumiðstöðv-
arinnar skráir allar ábendingar og
kvartanir og leitast við að svara
viðskiptavinum strax en hefur ella
samband til baka eins fljótt og
unnt er. Þannig er reynt að tryggja
að allir fái skjóta úrlausn sinna
mála.
ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN,
forstöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála Landssíma íslands,
Landssímahúsinu við Austurvöll.
Öræfín laða og seiða
Frá Methúsalem Þórissyni:
NÁTTÚRUAUÐLINDIR íslands,
þ.m.t. orkulindir sem búa í fallvötn-
um og jarðhita, eru sameign þjóðar-
innar. Nýting þessara auðlinda á að
vera undir sameiginlegi'i stjórn
þjóðarinnar fyrir
milligöngu ríkis-
ins. Nýtingin
skal taka mið af
hagsmunum
mannverunnar,
almennings og
sjónanniðum
náttúruvemdar.
Öræfin, ósnortin
náttúra landsins,
eru hluti af arf-
leifð mannkynsins og þess vegna
hafa íslendingar skyldum að gegna
varðandi vemdun þeima. Á hinn
bóginn ber íslendingum engin
skylda til að selja fjölþjóðafyrir-
tækjum orku á lágu verði svo fjár-
magnið geti aukið hagnað sinn.
Hentistefna (jánnagnsins
Umrædd fyrirtæki og hinir and-
litslausu eigendur þeirra hafa sýnt
að þeir láta sig fyrst og fremst
varða eigin hagnað, en ekki þjóðir
og náttúru á þeim stöðum þar sem
valdamenn hafa falboðið
hvorttveggja. Nýleg eigendaskipti á
Álverinu í Straumsvík er til vitnis
um að ábyrgð þessara aðila er eng-
in. Jafnskjótt og meirihluti hluthafa
telur sér það henta selja þeir verk-
smiðjurnar eða loka þeim. Ekki
þarf annað en að aðframkomnar fá-
tækar þjóðir bjóði auðlindir sínar og
íbúa á verði sem gefa fjármagninu
skjótfenginn gróða þá lýkur þeima
skuldbindingum.
Stóriðjudraumnum
veifað
Það er forkastanlegt að horfa
uppá hvað hefur verið að gerast á
Austurlandi. Fyrst sölsa valdamenn
undir sig og fjölskyldui' sínar og
kumpána fiskinn í sjónum, síðan
veifa þeir stóriðjudraumnum fram-
an í Austfirðinga sem hafa verið
sviptir auðlindum sjávarins. í milli-
tíðinni hafa fulltrúar fjármagnsins á
Alþingi afhent sveitarstjórnunum
yfirráð yfir hálendinu til að tryggja
framgang málsins.
Höfnum stóriðju
Aflýsa ber öllum áætlunum um
nýja stóriðju, en leggja þess í stað
alla áherslu á að nýta orkuna sem
býr í fallvötnum og jarðhita til að
bvggja upp vetnisframleiðslu, yi-
rækt og lækka orkuverð til íslensks
iðnaðai' og almennra notenda.
Notkun vetnis í stað olíu m.a. á
fiskiskipaflotanum og efling ís-
lenskrar framleiðslu bæði til notk-
unar innanlands og til útflutnings
mun minnka gjaldeyrisútstreymi,
auka útflutningstekjur og þannig
bæta viðskiptajöfnuð við útlönd.
METHÚSALEM ÞÓRISSON,
í stjórn Húmanistaflokksins.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.