Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 14

Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Vel heppnaðir menningardagar barna á Dalvík Hinir ungu hlýddu á þá eldri fara með þulur MENNINGADAGAR barna liafa staðið yfir á Dalvík þessa viku en þeim lýkur um helgina. Það eru þrjár konur á Dalvík, Linda Björk Holm, Arna Valsdóttir og Þuríður Sigurðardóttir, sem hafa skipulagt menningardagana en fleiri hafa komið við sögu enda um viðamikla dagskrá að ræða. „Þetta hafa verið mjög ánægjulegir dagar og þátttaka mun betri en við áttum von á,“ sagði Linda Björk. Menningar- sjóður Svarfdæla styrkti fram- takið auk þess sem leitað var til fyrirtækja og stofnana í bænum og voru viðtökur svo góðar að sögn Lindu að þær fengu næstum of mikil framlög! Dagskrá menningardaganna er miðuð við yngstu börnin, frá 0 til 7 ára, en það sagði Linda gert m.a. af þeirri ástæðu að minnst væri um að vera fyrir þann ald- urshóp, en aftur á móti væri ýmsilegt í boði fyrir eldri börnin. „Þetta hefur verið afskaplega skemmtileg vika, viðburðarík og góð,“ sagði Linda, en margt hef- ur verið gert. Samverustund var á Dalbæ, dvalarheimilinu í bænum, í gær, en þar áttu ungir og aldnir sam- an góða stund. Eldra fólkið las upp sögur og fór með þulur við ómælda ánægju þeirra yngri, enda óvön slíku. Þá var hópur barna við listvinnu í Þinghúsinu Grund, sem þær Lena á Dæli og Lilla á Hæringsstöðum sáu um, en þar var þæfð ull og útbúið teppi sem börnin hönnuðu. Sögur, leikrit og dansspuni Hinir fullorðnu hafa komið í sögustund á bókasafnið og sagt börnunum sögur af því þegar þau voru börn. I útstillingar- glugganum í bókabúðinni Sogni hefur verið látbragðsleikur og Héraðsdómur Norðurlands eystra Dæmdur fyrir fjár- svik og skjalafals RÚMLEGA fertugur karlmaður á Akureyri hefur í Héraðsdómi Norð- urlands eystra verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þai' af 9 mánuði skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar að upphæð 100 þúsund krónur. Maðurinn var í tveimur ákæru- skjölum ákærður annars vegar fyrir fjársvik og umferðarlagabrot og hins vegar fyrir skjalafals. Maður- inn var ákærður fyrir að hafa selt Landsbankanum á Akureyri tékka að fjárhæð 426.000 krónur. Hann hafði fengið óútíylltan tékka hjá fyrirtæki á Akureyri til að fram- lengja víxil. Þess í stað sveik ákærði peninga af bankanum, eins og segir í ákæruskjali, sem hann notaði síð- an til eigin þarfa. Einnig var maðui-- inn ákærður fyrir ölvunarakstur og fyrir að aka á móti einstefnu. Þá var maðurinn ákærður fyrir skjalafals, með því að falsa nafn móður sinnar sem sjálfskuldará- byrgðarmanns vegna yfirdráttar- láns að fjárhæð 750.000 krónur. Einnig fyrir að falsa nafn móður sinnar á veðleyfi sem heimilaði fyr- irtæki hans að veðsetja húseign hennar til tryggingar láni frá Landsbankanum að fjárhæð 2,5 milljónir króna og fyrir að falsa nafn móður sinnar sem þinglýsts eiganda íbúðar á skjal um breytingu á greiðsluskilmálum skuldabréfs. Akærði viðurkenndi brot sín fyrir dómi. Það var Ólafur Ólafsson hér- aðsdómari sem kvað upp dóminn. Blaðbera Vantar í eftirtalin hverfi: Innbærinn, Akureyri. Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri sími 461 1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst Ot 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Tölvur og tækni á Netinu rijþmbl.is AKUREYRI .. Morgunblaðið/Kristján BÖRNIN á leikskólunum Krflakoti og Fagrahvaninti heimsóttu íbúa Dalbæjar í gær, en nú standa yfir menningardagar barna á Dalvík. Kolbrún Pálsdóttir sem veitir Dalbæ forstöðu las Grýlukvæði fyrir börnin, en mesta athygli þeirra vakti þegar Unnur Sigurðardóttir sem komin er á tíræðisaldur fór nteð þulur fyrir þau. Unnur kann ótrúlega mikið af þuluni og fer vel með. Þá sungu ungir og aldnir samaii nokkur jólalög og í lok heimsóknarinnar fengu börnin drykk og smákökur. leikrit og þá hafa börnin málað stórt málverk sem hangir uppi í íþróttahúsinu. Einnig fengu börnin í hendur netakúlur sem þau höfðu fijálsar hendur með að útbúa og urðu margar æði skrautlegar. Kúlurnar eru til sýnis í verksmiðju Sæplasts. Fyrsta árs nemar á leikskóla- braut Háskólans á Akureyri komu í heimsókn og settu upp dansspuna og tóku börnin þátt og þótti spennandi. Tískusýning á kjólunum hennar ömmu, leikrit og þátttaka í íþróttaæfingum hefur einnig verið á dagskrá. Mikið verður um að vera í dag og verður ýmislegf í gangi fyrir utan bakaríið á staðnum, Kór Dalvíkurskóla syngur, sönghóp- ur barna úr Húsabakkaskóla, Góðir hálsar og Tjarnai'kvartett- inn koma einnig fram og þá mun leynigestur mæta á svæðið. Morgunblaðið/Kristján Brunavarnaátak fyrir jól og áramót LANDSSAMBAND slökkviliðs- manna og slökkviliðin í landinu hafa árlega efnt til svokallaðs Brunavarnaátaks fyrir jól og áramót. A þessum árstíma er notkun opins elds, rafmagns- tækja og annars búnaðar í há- marki og af þeim sökum hafa hlotist bæði eldsvoðar og alvar- leg slys. Markmiðið með Brunavarna- átakinu er að hvetja til varkárni í umgengni við eld og að hugað sé að þeim búnaði sem getur valdið íkveikju. Einnig er lögð áhersla á að hafa eldvarnabúnað heimilis- ins í lagi, eins og slökkvitæki, reykskynjara og eldvarnateppi. Slökkviliðsmenn á Akureyri heimsóttu nemendur í 3. bekk í Glerárskóla í gær og þá komu krakkar í 3. bekk í Oddeyrar- skóla í heimsókn á slökkvistöð- ina. Eftir að börnin í Oddeyrar- skóla höfðu hlýtt á stuttan fyrir- lestur, fengu þau að prófa að sprauta vatni með brunaslöngu og vakti sú uppákoma mikla at- hygli þeirra. Þeim til aðstoðar voru slökkviliðsmennirnir Þor- björn Haraldsson og Viðar Þor- leifsson varðstjóri. Tónlistarskólinn Nemendatón- leikar TVENNIR tónleikar verða á vegum Tónlistarskólans á Akureyri á morg- un, laugardaginn 5. desember. Fyrri tónleikarnir verða í Lóni við Hrísa- lund og hefjast þeii- kl. 14 en þar koma fram nemendur gítardeildar. Síðari tónleikarnir verða kl. 16 í Glerárkirkju þar sem blásarasveit skólans, blokkflautusveit og Lúðra- svejt Akureyrar spila. A sunnudag, 6. desember, verða tónleikar strengjadeildar á sal Tón- listarskólans, þeir hefjast kl. 20 og þar koma fram nemendur á efri stig- um á fiðlu, lágfiðlu og selló. Erindi um Gása GÁSAFÉLAGIÐ gengst fyiú' opn- um fundi á Akureyri á morgun, laug- ardaginn 5. desember kl. 14, en hann verður í stofu C-08 í Verkmennta- skólanum á Akureyri. Á fundinum munu þau Margrét Hermanns-Auðardóttir fornleifa- fræðingur og Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur flytja erindi um eldri og fyrirhugaðar fornleifarannsóknir að Gásum og um framleiðslu- og verslunai'hætti í íslensku bænda- samfélagi á miðöldum. Umræður að loknum erindum. Fundurinn er öll- um opinn og aðgangur ókeypis. Kirkjustarf LAUFÁSPRESTAKALL: Guðs- þjónusta í Grenivíkurkirkju kl. 14 á sunnudag, 6. desember. KyiTðar- og bænastund í kirkjunni kl. 21. um kvöldið. Til sölu Subaru Legacy GX 2.2, árg.'97, ekinn 8 þús km. dökkblár, upphækkaður, álfelgur, ABS, líknarbelgir, Cooper xgr vetrardekk o.fl. Verð 2.100 þús. Ath.: skipti á ódýrari. Upplýsingar hjá Bílasölu Höldurs s. 461 3020. Aðventu- kvöld í Möðru- vallakirkju AÐVENTUKVÖLD verður í Möðruvallakirkju í Hörgárdal sunnudagskvöldið 6. desember og hefst það kl. 20.30. Ræðumaður er Valgerður Vai- garðsdóttir djákni en auk hennar koma fram nemendur úr Tónlistar- skóla Eyjafjarðar, kór undir stjórn Birgis Helgasonar syngur og barna- og unglingakór flytur helgi- leik. Þá les Bjarni Guðleifsson jóla- sögu. Sunnudagaskólinn verður sama dag í sömu kirkju og hefst hann kl. 11 í umsjón Hannesar og Söru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.