Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Vextir lækkaðir á EMU-svæðinu
Engra vaxtabreytinga
að vænta á Islandi
Frankfurt. Reuters.
EVRÓPURÍKIN sem standa að
sameiginlegum gjaldmiðli, evrunni,
komu fjármálamörkuðum á óvart í
gær með því að lækka skammtíma
vexti einum mánuði áður en gjald-
miðillinn verður tekinn upp.
Frakkar og Þjóðverjar stjórnuðu
þessum samræmdu aðgerðum og
lækkuðu helstu vexti sína í 3% úr
3,3%. Hin ríkin sem verða með í
gengissamvinnunni fóru að dæmi
Talningavogir
Hágæða vogir
Verð frá 28.900
án vsk
,£-- vogir cw okkur fat> -
Síðumúla 13, sími 588 2122
þeirra nokkram mínútum síðar.
ítalir skárast úr leik með því að
ákveða 3,5% vexti í stað 3%, sem
bankastjóri þýska seðlabankans,
Hans Tietmeyer, sagði að yrðu
byrjunarvextir evrópsku ríkjanna 1.
janúar.
Að sögn Bii-gis Isleifs Gunnars-
sonar seðlabankastjóra era engar
vaxtabreytingar fyrirhugaðar hér á
landi en síðasta breyting á vöxtum
vai' í september sl. þegar þeir hækk-
uðu um 0,3%, „Við höfum ekki í
hyggju neinar breytingar á okkar
vöxtum í kjölfar lækkunarinnai' í
Evrópu. Allt aðrar aðstæðui- ríkja í
efnahagsmálum á íslandi en í mið-
Evrópu. Við eram frekar að glíma
við ofþenslu og höfum því rekið
fremur aðhaldsama peningastefnu
með tiltölulega háum stýrivöxtum.
Evrópa er að glíma við mikið at-
vinnuleysi og hræðslu við minnkandi
hagvöxt á næsta ári. Það er því um
ólíkar aðstæður að ræða og þess
vegna verður að taka á þeim með
mismunandi hætti,“ segir Birgir ís-
leifur.
Reynt að örva hagvöxtinn
í Evrópu
Birgir ísleifur segir að það sé
einkum tvennt sem liggi að baki
vaxtalækkunum í Evrópu í gær.
„Annars vegar töluverður þrýsting-
ur á seðlabanka í Evrópu og á evr-
ópska seðlabankann, sem tekur til
starfa um áramót, að lækka vexti og
taka þar með þátt í því sem Banda-
ríkjamenn byrjuðu á. Það er að
lækka vexti til þess að reyna að
draga alheimsefnahagslífíð upp úr
þeirri lægð sem það hefur verið í.
Eins hafa upp á síðkastið birst tölur
í Evrópu sem benda til þess að hag-
vöxtur muni minnka í Evrópu
næsta ár. Vaxtalækkanirnar í gær
eru þar af leiðandi komnar til vegna
alheimsefnahagsmálanna og tilraun
til að örva hagvöxt í Evrópu," segir
Birgir ísleifur. Hann segir að í
kjölfar lækkunarinnar í gær hafi
gengi krónunnar frekar styi'kst og
síðdegis í gær hafði gengi krónunn-
ar styrkst um 0,3%.
Vaxtalækkanir komu á óvart
Hagfræðingar furðuðu sig á tíma-
setningu lækkunarinnar, sem
styi'kti dollar og hlutabréfamarkaði
um alla Evrópu. Flestir höfðu ekki
búizt við að vextir yrðu lækkaðir
fyrr en á næsta fundi evrópska
seðlabankans 11. desember.
Oskar Lafontaine, hinn nýi fjár-
málaráðherra Þjóðverja, hefur lagt
fast að þýska seðlabankanum að
draga úr lánskostnaði til að auka
hagvöxt og atvinnu. Tietmeyer
sagði að stjórnmál hefðu ekki haft
áhrif á vaxtalækkunina og margir
hagfræðingar eru honum sammála.
Þar sem hægt hefur á hagvexti í
Evrópu vegna umróts á gjaldeyris-
mörkuðum telja hagfræðingar að
seðlabankar hafí haft ríka ástæðu til
að draga úr lánskostnaði. „Við get-
um jafnvel búist við annarri lækkun
1999,“ sagði sérfræðingur Bank of
America í London.
Tilkynning um almennt hlutafjárútboð og skráningu á Verðbréfaþingi íslands
BUNAÐARBANKIISLANDS HF
kt. 490169-1219
Austurstræti 5,155 Reykjavík
Fjárhæö útboösins er 350.000.000 krónur aö nafnverði og um er aö
ræöa nýtt hlutafé.
Almennt útboösgengi er 2,15.
Tilgangur útboðsins er aö styrkja eiginfjárstööu bankans vegna
aukinna umsvifa í starfsemi hans.
Sölutímabil: 8. desember 1998 til 11. desember 1998.
Síðasti greiösludagur áskrifta er 29. desember 1998
Umsjón meö útboöinu hefur Búnaöarbankinn Veröbréf,
kt. 490169-1219, Hafnarstræti 5, 3. hæö, 155 Reykjavík.
Veröbréfaþing íslands hefur samþykkt aö skrá hlutabréf
Búnaöarbankans á Aðallista þingsins. Stefnt er aö skráningu um
miðjan desember, enda uppfylli félagiö þá öll skilyröi um skráningu.
Nálgast má útboöslýsingu hjá Búnaðarbankanum Veröbréfum og
útibúum Búnaðarbankans og á vefnum, www.bi.is. sem jafnframt
eru sölustaöir hlutabréfanna.
I BIJNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
Sameinaðir verktakar og Reginn
selja Höfðabakka 9
Brunabótamat hús-
sins 2 milljarðar
ÁTTATÍU og sjö prósent fasteign-
arinnar Höfðabakka 9 í Reykjavík,
bogáhús ásamt bakhúsum, eru til
sölu. Fasteignin er allt í allt 24.000
fermetrar að fiatarmáli. Að sögn
Bjarna Thors, stjórnarformanns
Sameinaðra verktaka, á að selja
hlutann allan í einu lagi, ef viðun-
andi tilboð fæst, en brunabótamat
fasteignarinnar er um 2 milljarðar
króna, að sögn Bjarna, og fast-
eignamat um 500 mkr.
Eigendur hússins eru Sameinað-
ir verktakar, sem eiga 75%, Reg-
inn, sem Islenskir aðalverktakar
keyptu 80% hlut í af Landsbankan-
um fyrr í vikunni, sem á 12,5%, og
ríkissjóður, sem á 12,5%.
Bjarni Thors, stjórnarformaður
Sameinaðra verktaka, sagði
ástæðu sölunnar þá að ekki væri í
stefnuskrá félagsins að reka fast-
eignir. „Við ætlum að láta á það
reyna hvort viðunandi boð fæst.
Við erum að losa okkur út úr fast-
eignarekstri og það sama á við um
Regin, en hlutur hans er einnig til
sölp.
í húsinu eru mörg fyrirtæki með
aðstöðu, þeirra á meðal Pricewa-
terhousecoupers, Opin kerfi, Nasco
og Marel sem og Landsbankinn og
Sameinaðir verktakar.
Menn byrjaðir að
þreifa fyrir sér
Stærð allrar fasteignarinnar er
um 24.000 fermetrar, þar af eru
bakhúsin tæpir 17.000 fermetrar að
sögn Bjarna en bogahúsið er um
7.000 fermetrar.
Að sögn Bjarna létu Sameinaðir
verktakar byggja húsið árið 1969,
en þá hófust framkvæmdir við úti-
húsin, og framkvæmdum lauk við
alla fasteignina í kringum 1983.
Bjarni sagði í gærmorgun, eftir
að auglýsing um sölu hússins birtist
í Morgunblaðinu, að nokkrir hefðu
þegar hringt og verið að þreifa fyrir
sér, eins og hann orðaði það.
Aðspurður um verðið sagði
Bjarni að því myndi markaðurinn
ráða en brunabótamat hússins er
um 2 milljai'ðar og fasteignamat
þess um 500 milljónir.
„Meiningin er að selja þetta í
heilu Iagi,“ sagði Bjarni.
Deutsche Bank fær-
ir enn iit kvíarnar
London. Telegraph.
DEUTSCHÉ Bank, stærsti banki
Þýzkalands, hefur skýrt frá fyrir-
ætlunum um að kaupa belgískt fyr-
irtæki franska ríkisbankans Credit
Lyonnaise fyrir 360 milljónir
punda, tæpa 42 milljarða íslenskra
króna, í framhaldi af kaupunum á
Bankers Trust í Bandaríkjunum
fyrir 10,1 milljarð dollara, tæpa 720
milljarða íslenskra króna, með
samningi, sem leiðir til stofnunar
stærsta banka heims.
Samningurinn um kaupin á
Credit Lyonnaise í Belgíu (CLB)
er fyrsta stóra skrefið í þeirri
stefnu Deutsche að koma á fót
stóru netkerfi í Evrópu. Samning-
urinn hefur enn ekki hlotið sam-
þykki eftirlitsyfirvalda í hlutaðeig-
andi löndum, en kemur líklega til
framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi
næsta árs.
„Grundvöllur allrar starfsemi
okkar er í Evrópu,“ sagði Carl von
Böhm-Bezing úr stjórn Deutsche
Bank. „Við verðum að standa föst-
um fótum hér til að ná árangri á
heimsmælikvarða." Hann sagði að
ekki mundi valda nokkrum erfíð-
leikum að fjármagna kaupin.
Þýzki bankinn mun sameina
Belgíudeild sína Credit Lyonnaise
Belgíu, sem er sjötti stærsti banki
landsins með 38 útibú, 950 starfs-
menn og eignir upp á 8,7 milljarða
punda.
SPRON opnar þjónustuver
HINN 1. desember opnaði SPRON notkun Heimabankans svo nokkur
þjónustuver með innhringimiðstöð.
I fyrstu verður innhringimiðstöðin
fyrir SPRON á Skólavörðustíg
(bankanúmer 1150) og SPRON í
Hátúni (bankanúmer 1163) en önn-
ur útibú bætast við fljótlega eftir
áramót.
í þjónustuverinu starfa þjónustu-
fulltrúar sem veita viðskiptavinum
allra afgreiðslustaða SPRON alla
þá þjónustu sem hægt er að veita í
síma, gegnum bréfasíma eða með
tölvupósti. Þar er hægt að fá fjár-
málaráðgjöf, upplýsingar um stöðu
reikninga, upplýsingar um vaxta-
kjör, gengi erlendra gjaldmiðla,
gjaldskrá og þjónustu SPRON. Með
einu símtali í þjónustuverið er hægt
að greiða reikninga eða millifæra
milli reikninga, fá yfirdráttarheim-
ild, sækja um lán og fá aðstoð við
dæmi séu tekin, að því er fram kem-
ur í fí'éttatilkynningu.
Þjónustuver SPRON er opið frá
kl. 9 að morgni til kl. 19 að kvöldi
alla virka daga og símanúmerið er
550 1400.
„Markmiðið með opnun þjónustu-
versins er að bæta enn þjónustuna
við viðskiptavini SPRON en þess
má geta að á þessu ári var einnig
opnuð ný afgreiðsla í verslunarmið-
stöð Hagkaups í Smáranum í Kópa-
vogi en þar er hægt að fá alla þjón-
ustu SPRON, alla daga vikunnai'.
Mánudaga til föstudaga er opið frá
kl. 10-20, laugardaga frá kl. 10-18
og sunnudaga frá kl. 12-18. Þá mun
SPRON opna tvær nýjar afgreiðsl-
ur á Reykjavíkursvæðinu á næst-
unni,“ að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.