Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTITDAGUR 4. DESEMBER 1998 25
ERLENT
Kosningar boðaðar í Indónesíu um mitt næsta ár
Beðið ákvörðunar um
réttarhöld yfir Suharto
Landeignir Suharto-fjölskyldunnar
sagðar svara til að hún ætti alla Jövu
Jakarta. Reuters, The Daily Telegraph.
STJÓRNVÖLD í Indónesíu til-
kynntu í gær, að almennar þingkosn-
ingar yrðu í landinu um mitt næsta
ár. Þá hétu þau einnig að hraða
rannsókn á málum Suhartos, fyrr-
verandi forseta, en hann hefur verið
sakaður um spillingu og mannrétt-
indabrot í 32 ára stjórnartíð sinni,
sem lauk í maí sl. Skýrt hefur verið
frá því, að landeignir Suharto-fjöl-
skyldunnar og samstarfsmanna
hennar séu jafn miklar og öll Java,
stærsta eyjan í Indónesíu.
Harmoko, forseti þingsins, sagði að
loknum fundi með þingleiðtogum og
ráðherrum í ríkisstjóm Habibies, að
ákveðið hefði verið að efna til kosn-
inga 7. júní á næsta ári og myndi nýtt
þing, sem velur forsetann, koma sam-
an 29. ágúst. Ætlunin var, að það kysi
ekki nýjan forseta fyrr en í desember
að ári en margir óttuðust, að Habibie
myndi nota tímann til að treysta sig í
sessi. Er hann ákaflega óvinsæll með-
al landsmanna og nýleg skoðana-
könnun sýnir, að hann nýtur aðeins
stuðnings 7% kjósenda.
Enginn veit hvemig næsta þing
verður skipað en búast má við, að
fjöldi nýrra flokka bjóði fram í þessu
fjórða fjölmennasta ríki í heimi.
Fjölskylduauðurinn
2.800 milljarðar kr.
Indónesísk dagblöð hafa það eftir
embættismönnum, að vænta megi
tilkynningar á næstu dögum um
hugsanleg réttarhöld yfír Suharto,
fyrrverandi forseta. Sumir áætla, að
Suharto og fjölskylda hans hafi
sankað að sér eignum, sem meta
megi til 2.800 milljarða ísl. kr. og
Muslimin Nasution, sem fer með
málefni skóga og búgarða í ríkis-
stjórninni, sagði sl. þriðjudag, að Su-
harto-fjölskyldan og samverkamenn
hennar ættu 22.5 milljón ekrur lands
en það svai-ar til allrar Jövu.
Dagblaðið Jakarta Post hafði eftir
ráðherranum, að komið hefðu fram
vísbendingar um gífurlega spillingu
varðandi þessa auðsöfnun. Flestar
eru landeignirnar á Austur-Kalim-
antan og í Irian Jaya en þar eru
miklir skógar og timburframleiðsla.
Þúsundir námsmanna efndu til
mótmæla í Jakarta í gær og kröfðust
þess, að Suharto yrði dreginn fyrir
dóm.
Aðskilnaðarsinnar í
Quebec slíðra sverðin
Aðskilnaður
ekki á dagskrá
Toronto. Morgunblaðið.
LUCIEN Bouchard, leiðtogi flokks
aðskilnaðarsinna í Quebec í Kanada,
Parti Quebecois (PQ), segir að at-
kvæðagreiðsla um aðskilnað fylkis-
ins frá Kanada verði ekki haldin
næstu tvö árin, að minnsta kosti, að
því er kanadíska blaðið Globe and
Mail greindi frá.
Flokkur aðskilnaðarsinna hlaut
flest þingsæti í fylkiskosningum er
fram fóru á mánudag, en hlutfalls-
lega færri atkvæði en helsti keppi-
nauturinn, Frjálslyndi flokkurinn,
sem er andvígur aðskilnaði. Sagði
Bouchard það greinileg skilaboð frá
kjósendum að þeim væri iyrst og
fremst umhugað um að stjórnvöld
sýndu ábyrgð og aðhald í efnahags-
og félagsmálum, en væru ekki fylgj-
andi því að efnt yrði til atkvæða-
greiðslu um aðskilnað á næstunni.
I kosningabaráttunni sagði
Bouchard að þegar „aðstæður til sig-
urs“ í aðskilnaðaratkvæðagreiðslu
sköpuðust myndi stjórn PQ efna til
hennar.
—
.
Há kommóða: 62.130,-. Spegill: 18.850,-.
Breið kommóða: 48.910,-. Náttborð: 28.690,-.
Höfðagafl Queen Size: 30.140,- King Size: 40.970,
Teg. POTOMAC
Há kommóða: 63.390,-. Spegill: 17.490,-.
Breið kommóða: 50.550,-. Náttborð: 28.680,-.
Höfðagafl Queen Size: 27.140,- King Size: 35.510,-
Há kommóða: 61.740,-. Spegill: 15.300,-.
Breið kommóða: 47.540,-. Náttborð: 27.150,-.
Höfðagafl Queen Size: 26.230,- King Size: 34.430,-
Sofðu í
fallegu
umhverfi
Há kommóða: 69.980,-. Spegill: 27.330,-.
Breið kommóða: 59.980,-. Náttborð: 31.430,-.
Höfðagafl Queen Size: 32.790,- King Size: 40.980,-
Há kommóða: 66.940,-. Spegill: 19.130,-.
Breið kommóða: 52.740,-. Náttborð: 28.140,-.
Höföagafl Queen Size: 24.580,- King Size: 30.140,-
Glæsileg Amerísk svefnherbergishúsgögn.
Sérlega vönduð og mikil prýði fyrir heimilið.
Fallegar kommóður, höfðagaflar og rúm,_______
sem henta mjög vel fyrir hinar frábæru
dýnur. Láttu það eftir þér að gera svefnherbergið
að sannkölluðu draumalandi. Við bjóðum
fjölbreytt úrval og tökum vel á móti þér.
Há kommóða: 65.580,-. Spegill: 16.390,-.
Breið kommóða: 46.450,-. Náttborö: 26.780,-.
Höfðagafl Queen Size: 21.850,- King Size: 27.310,-
Há kommóða: 59.290,-. Spegill: 19.130,-.
Breiö kommóöa: 51.370,-. Náttborð: 27.150,-.
Höfðagafl Queen Size: 28.680,- King Size: 39.610,-
Há kommóöa: 56.560,-. Spegill: 18.850,-.
Breið kommóða: 50.280,-. Náttborð: 27.320,-.
Höfðagafl Queen Size: 27.310,- King Size: 38.240,-
Há kommóða: 67.770,-. Spegill: 21.860,-.
Breið kommóða: 55.190,-. Náttborð: 27.980,-.
Höföagafl Queen Size: 35.510,- King Size: 40.980,-
v
HÚSGAGNAHÖLUN
Bíldshöfðl 20 -112 Rvík - S:510 8000
Þegar þú vilt sofa vel-
UesUlwetur
hesUHneíur
Iiakkíi5ar_
HesUlmetnr
atifornui rusinur
Uókos mjöl J
tnöndlnr
mcð hýöi
möndlur
afhýddar
möndlur
hakkaoar
cXbnetukjamar
! Bráðumkoma
l blessuðjólin...
>
VELJUM ÍSLENSKT!
I