Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 31
Lofsamlegir dóm-
ar um hljómplötu
Mótettukórsins
Eiríkur Bjarnason frá Bóli
Bjarni Sigurðsson frá Geysi
Lög Eiríks frá
Bóli og Bjarna
EIRIKUR Bjarnason frá Bóli
var einn vinsælasti nikkari og
skemmtikraftur á böilum í
kreppunni miklu á fjórða ára-
tugnuin og þar um kring.
Hann var, að vinsældum, á við
Comedian hannonists, Don-
kósakkakórinn, MA-kvartett-
inn eða Toralf Tollefssen.
Hann samdi fjölda danslaga á
nikkuna sína, hið frægasta og
enn sífellt spilað er „Eg minn-
ist þín“, betur þekkt undir
nafninu „Ljósbrá". Engin full-
boðleg hljóðritun náðist
nokkurn ti'ma af leik Eiríks
sjálfs og aðeins örfá laga hans
voru skrifuð niður á blað. Það
er tjón sem ekki verður bætt.
Nú hefur þó frændi hans og
nemandi Bjarni Sigurðsson frá
Haukadai lagt sig fram um að
bjarga því sem bjargað varð
og gefið út á geisladiski þau
fáu lög Eiríks sem fundust - á
sinn eigin kostnað. Diskurinn
er svo fylltur með lögum
Bjarna sjálfs, sem engu síður
en Eiríkur frændi hans hefur
verið athafnasamur dansmúsí-
kant, leikið á böllum frá fjórt-
án ára aldri og rak sína eigin
hljómsveit „Tríó 72“ um
tveggja áratuga skeið allt frá
árinu 1972. Hér er vasklega að
verki staðið svo sem Bjarni á
kyn til, dýrir hljómlistarmenn
til kvaddir að skrifa niður á
nótnablöð, útsetja, leika og
syngja. Þar á meðal eru nikku-
snillingurinn Grettir Björns-
son og Þuríður Sigurðardóttir
söngkona sem á tvær söng-
perlur á diski þessum. Hinn
velþekkti Jón söngvari (Kr.
Ólafsson) frá Bíidudal er
einnig þarna, Ragnar Páll ger-
ir flestar útsetningarnar og
leikur á hljómborð, Valgeir
Sigurðsson hefur hljóðritað,
Carl heitinn Billich kemur við
sögu ásamt textahöfundunuin
Ágústi Böðvarssyni, Jóni Sig-
urðssyni og Helga Seljan auk
Grétars Guðmundssonar sem
syngur nokkur laganna.
Sitthvað má að flutningnum
finna eins og gengur, m.a. hef-
ur Ljósbráin stundum heyrst
hljóma meira sannfærandi, en
aftur á móti eru hin tvö
sönglög Þuríðar guli - sem og
magt af harmonikuleik Grettis
og þetta eina lag sem Bjarni
leikur eftir sjálfan sig. Utgáf-
an er afrek út af fyrir sig og
greinilega rándýr miðað við
hugsanlegan kaupendafjölda
og á því skilið undirtektir og
stuðning þeirra sem telja sér
málefnið skylt, jafnt í orði sem
verki. Mörg laganna er yndi á
að hlýða.
Eyvindur Erlendsson.
BORGARBÓKASAFNIÐ í Vyborg.
Karlaraddir í
Hallgríms-
kirkju á
aðventu
AÐVENTUTÓNLEIKAR Karla-
kórs Reykjavíkur verða í Hall-
grímskirkju laugardag og sunnu-
dag, 5. og 6. desember, kl. 17 báða
dagana. A efnisskránni verða fjöl-
breytt jólalög og hátíðarsöngvar,
m.a. lög af nýútkominni geislaplötu
kórsins, sem ber heitið Jól, jól, skín-
andi skær.
Með kórnum koma fram ein-
söngvararnir Björk Jónsdóttir,
Signý Sæmundsdóttir og Óskar
Pétursson og hljóðfæraleikararnir
Hörður Áskelsson á orgel Hall-
grímskirkju og Ásgeir H. Stein-
grímsson og Eiríkur Örn Pálsson á
trompeta.
Stjórnandi Karlakórsins er Frið-
rik S. Kristinsson.
Forsala aðgöngumiða er í versl-
unum Eymundsson í Kringlunni og
Austurstræti í Reykjavík en einnig
verður hægt að kaupa miða við inn-
ganginn eftir því sem húsrúm leyfir.
----------------
Konur lesa
í MÍR
MENNINGAR- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna halda árlega bók-
menntakynningu sína á morgun,
laugardag kl. 14, í MÍR-salnum,
Vatnsstíg 10 (bakhús) Reykjavík.
Níu konur lesa úr nýútkomnum
bókum sínum: Auður Ólafsdóttir les
úr bókinni Upphækkuð jörð, Elísa-
bet Jökulsdóttir les úr bókinni Sag-
an af Aðalheiði og borðinu blíða,
Fríða Á. Sigurðardóttir les úr bók-
inni Maríuglugginn, Guðrún Helga-
dóttir les úr bókinni Aldrei að vita,
Guðrún Eva Mínervudóttir les úr
bókinni Á meðan hann horfir á þig
ertu María mey, Kristín Ómarsdótt-
ir les úr bókinni Lokaðu augunum
og hugsaðu um mig, Sigþrúður
Gunnarsdóttir les úr bókinni Fjósa-
kona fór út í heim, Steinunn Eyj-
ólfsdóttir les úr bókinni Jólasólar-
kötturinn og Svava Jakobsdóttir les
úr bókinni Skyggnst á bak við ský.
------♦-♦-♦-----
Horft til
himins í Galleríi
Listakoti
ÁRLEG jólasýning í Galleríi Lista-
koti verður opnuð á morgun, laug-
ardag kl. 15.
Að sýningunni, sem nefnist Horft
til himins, standa nokkrir af með-
limum gallerísins og vinna þær í
hina ýmsu miðla, t.d. grafík, mál-
verk, glerverk, keramík og textíl.
Undanfarin ár hafa listakonurnar
haldið einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum.
Sýningin er opin á á opnunartíma
verslana við Laugaveginn.
-------♦-♦-♦----
Tvennir
aðventutónleik-
ar í Tónskóla
Sigursveins
TVENNIR aðventutónleikar á veg-
um Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar verða á morgun, laugai’dag.
Forskóladeild skólans verður
með tónleika í Langholtskirkju kl.
14. Fluttur verður jólasöngleikurinn
Sagan um litla grenitréð, eftir Ein-
ar Sigurðsson. Rúmlega 100 for-
skólabörn sjá um hljóðfæraleik,
söng og leik undir stjórn kennara
sinna, en sögumaður er Þórarinn
Eyfjörð.
I Grensáskirkju kl. 16 munu rúm-
Iega 70 börn leika verk eftir ýmsa
höfunda á ýmis hljóðfæri úr Suzuki-
deild skólans.
í ÞÝSKA blaðinu Rheinische Post,
sem gefíð er út í Diisseldorf, fékk
hljómdiskur með Sálumessu
Mauricc Duruflé (1902-1986), í
flutningi Mótettukórs Hallgríms-
kirkju undir stjórn Harðar Askels-
sonar, lofsamlega dóma, 24. október
sl. Þar segir m.a.: „Hljómsett
kirkjutónlist Duruflés, sem er undir
áhrifum frá gregorískum söng og
lituð af sefandi impressjónisma, er
flutt af íslendingum án þess að
merkja megi nokkurn sérstakan
norrænan tón. Hér eru engir
vellandi goshverir á ferðinni. Nei,
tónlistin er flutt með svo frönskum
hljómi að maður gæti haldið að
Hallgrímskirkja væri í Chartres,
Lyon eða Toulouse.
Þó munar því að franskir kórar
• Á LÍFSINS leið er gefin út til
styrktar Barnaspítala Hringsins og
forvarnarstarfi meðal barna. I
bókinni segir fjöldi þjóðþekktra
manna og kvenna frá atvikum og
fólki sem ekki gleymist.
I kynningu segir m.a.: „Snemma
hausts kviknaði sú hugmynd að
gefa út bók til styrktar Barnaspít-
ala Hringsins og forvarnarstarfí
I.O.G.T. meðal barna. Leitað var til
fjölda fólks og þess farið á leit að
það legði málinu lið með því að láta í
té efni sem gæti verið „af ýmsu tagi,
gjarnan minningar um atburði sem
hafði mikil áhrif á það, eftirminni-
lega samferðamann, sérstæða
reynslu eða brosleg atvik.“
Efni í bókinni eiga: Arnfríður
Guðmundsdóttir, Benedikt Davíðs-
son, Bjarnfríður Leósdóttir, Ellert
B. Schram, Flosi Ólafsson, Friðrik
Þór Friðriksson, Guðjón A. Krist-
insson, Halldór Ásgrímsson, Heim-
VERK Alvars Aalto eru á sýningu,
sem verður opnuð í Norræna húsinu
á morgun, laugardag, klukkan 15.
Það eru Alvar Aalto stofnunin í
Finnlandi, umhverfísráðuneyti Finn-
lands, Sendiráð Finnlands á Islandi,
Ai-kitektafélag Islands og Norræna
húsið, sem standa að sýningunni en
hún er til að minnast þess að í ár eru
eitt hundrað ár liðin frá fæðingu
hans, (1898-1976).
Sendiherra Finnlands á Islandi,
Tom Södei-man, flytur ávarp við
opnunina, en grein eftir sendiherr-
ann um Alvar Aalto birtist í Lesbók
Morgunblaðsins 14. febrúar sl. Maija
Kairamo arkitekt kynnir bókasafnið
í Vyborg fyrir gestum, en hún setur
upp sýninguna.
Sýningin er þrískipt: í sýningar-
sölum verða til sýnis frumteikningar,
líkan og ljósmyndir frá bókasafninu í
Vyborg, sem teknai’ eru af Jussi
Rautsi.
I anddyri verður fínnsk bygginga-
list rakin í ljósmyndum af verkum
Alvars Aaltos og annaira finnski-a
arkitekta.
Vyborg liggur við Finnska flóa í
NV-Rússlandi og tilheyrði Finn-
landi frá 1812 til 1944, þegar Finnar
eru að staðaldri ekki eins vel
þjálfaðir og þessi íslenski dóm-
kirkjukór. Sópraninn svífur svo
minnir á englahljóm, rétt eins og
kórmenning Skandinavíu hafi eign-
ast útibú handan Atlantsála. Hér er
reyndar flutt gerð af Requiem
Duruflés með þátttöku sellós og
orgels, en það veldur engum skorti
á áhrifamætti, því að tæknimenn-
irnir hafa gert kraftaverk í hljóð-
blöndun.
Við Klais-orgel Hallgi’ímskirkju
situr ungi snillingurinn Hannfried
Lucke. Hann sýnir getu sína einnig
í æsilegri svítu Duruflés nr. 5 og
klykkir út með tokkötunni.
Okkur vantar í augnablikinu ís-
lenskt orð til að tjá mikla aðdáun.
Það verður birt þegar það fínnst.“
ir Steinsson, Helga Soffía Konráðs-
dóttir, Helgi Seljan, Ingibjörg
Pálmadóttir, Jóhannes Bergsveins-
son, Jón Hjörleifur Jónsson, Jón
Arnar Magnússon, Jón Ormar
Ormsson, Lára Björnsdóttir,
Magnús Kjartansson, Magnús
Scheving, Magnús L. Sveinsson,
Margrét Frímannsdóttir, Ólafur
Ásgeirsson, Ólafur Skúlason, Pálmi
Gunnarsson, Ríkharður Jónsson,
Sigrún Magnúsdóttir, Siv Friðleifs-
dóttir, Steingrímur J. Sigússon,
Styrmir Gunnarsson, Þorsteinn
Gíslason, Ögmundur Jónasson, Örn
Friðriksson og Össur Skarphéðins-
son.
Útgefandi er Stoð og styrkur.
Bókin er 192 bls., prentuð í ODda
hf. Magnús I. Torfason sá um útlit
kápu. Einar Þór Einarsson braut
bókin um. Æskan, blaða- og bókaút-
gáfa ehf., annaðist dreifíngu. Verð:
3.290 kr.
urðu að láta hana af hendi til Sovét-
ríkjanna. Árið 1927 var efnt til sam-
keppni meðal arkitekta um hönnun
borgarbókasafns í Vyborg og varð
tillaga Alvars Aaltos fyrir valinu.
Ákvörðun um að byggja safnið var
fyrst tekin árið 1933 og var bygg-
ingu þess lokið 1935. Borgarbóka-
safnið er meðal þriggja helstu verka
Alvars Aaltos sem gerðu nafn hans
þekkt um allan heim. Aalto hannaði
einnig húsgögn og aðra innan-
stokksmuni.
Safnið lenti í miklum hremming-
um eftir að borgin komst á vald Sov-
étríkjanna 1944. Viðhaldi var mjög
ábótavant og um þær endurbætur,
sem voru gerðar í upphafi sjöunda
áratugarins, var ekki haft samráð við
Aalto. Aalto sagði sjálfur að bóka-
safnið stæði en arkitektúrinn væri
horfínn. Eftir fall Sovétríkjanna sótti
í fyrra horf með viðhald og versnaði
ástandið.
Ungur rússneskur arkitekt,
Sergei Kravchenko, beitti sér fyrir
því á níunda áratugnum að snúa
dæminu við og hefja endurbyggingu
og fjársöfnun og fleiri aðilar komu
til bjargar. Finnska umhverfismála-
ráðuneytið hefur frá árinu 1991
fjármagnað og skipulagt viðgerðir á
bókasafninu samkvæmt teikningum
Alvars Aaltos. Finnska mennta-
málaráðuneytið tekur einnig þátt í
viðgerðarkostnaðinum. Ekkja Al-
vars Aalto, Elissa Aalto arkitekt,
beitti sér fyrir því árið 1993 að
stofnað var Vinafélag Borgarbóka-
safnsins í Vyborg. Markmiðið er að
vinna að endurbótum á bókasafninu
og er höfð náin samvinna við Alvar
Aalto stofnunina með Tapani Mu-
stonen arkitekt í forsvari og Alvar
Aalto félagið.
Vinafélög Borgarbókasafnsins
fínnast nú víðar en í Finnlandi, og
stendur yfir fjársöfnun í mörgum
löndum heims. Rússnesk stjórnvöld
eru einnig farin að leggja fram fé til
verksins og virðist framtíð safnsins
nokkuð björt.
Sýningin um Borgarbókasafnið í
Vyborg er liður í að vekja athygli al-
mennings um allan heim á safninu og
stuðla að viðgerð og endurbyggingu
þess. Sýningin er hönnuð af arki-
tektunum Severi Blomstedt og Leif
Englund í samstai'fí við Arkitekta-
safn Finnlands. Sýningin hefur verið
sett upp í Bandaríkjunum og Svíþjóð
en hingað kemur hún frá Bretlandi,
þar sem hún var sett upp í nokkrum
borgum.
Fyrirlestur um Alvar Aalto
Mánudaginn 14. desember kl.
17.15 heldur fil.dr. Göran Schildt
fyrirlestur í fundarsal Norræna
hússins um Alvar Aalto, en hann hef-
ur skrifað 3ja binda verk um ævi og
störf Aaltos auk þess sem þeir voru
góðir kunningjar.
Sýningin í sýningarsölum verður
opin daglega kl. 14-18 nema mánu-
daga og lýkur sunnudaginn 20. des-
ember. Sýningin í anddyri hússins er
opin alla daga frá kl. 9-18, nema
sunnudaga frá kl. 12-18.
Nýjar bækur
33 höfundar styrkja
Barnaspítala Hringsins
Norræna húsið
Sýning til bjarg-
ar Borgarbóka-
safninu í Vyborg