Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MAGNÚS
GUÐLA UGSSON
+ Magnús Guð-
laugsson fædd-
ist í Ólafsvík 19.
maí 1952. Hann lést
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur hinn
27. nóvember af af-
leiðingum bílslyss.
Foreldrar hans
voi-u Ingibjörg
Steinþórsdóttir frá
Ólafsvík, f. 17. janú-
ar 1919, d. 28. ágúst
1998 og Guðlaugur
Guðmundsson frá
Ólafsvík, f. 4. mars
1915, d. 12. apríl
1991. Systkini Magnúsar eru
á.tta: 1) Sonja, f. 10.12. 1939. 2)
Óttar, f. 23.2. 1943. 3) Steinþór,
f. 3.6. 1945. 4) Guðmunda, f.
14.10. 1946. 5) Rafn, f. 15.11.
1949. 6) Sólveig, f. 5.12. 1953. 7)
Björg, f. 3.6. 1956. 8) Guðlaug
Sandra, f. 18.1. 1961. Magnús
var giftur Guðrúnu Haralds-
dóttur, f. 19. júní 1956. Sonur
er Ómar
f. 19. apríl
Magnús og Guð-
rún slitu samvistir.
Sambýliskona
Magnúsar er Lýdia
Fannberg Gunnars-
dóttir, f. 15. mars
1967. Sonur hennar
er Óskar Örn Gísla-
son, f. 7. júlí 1987.
Magnús var upp-
alinn í Ólafsvík og
vann allan sinn
starfsaldur þar. Ár-
ið 1973 stofnaði
hann útgerðarfyrirtækið Enni
hf. ásamt bræðrum sínum og
föður. Gerðu þeir út um árabil
bátana Auðbjörgu SH 197 og
Auðbjörgu II. SH 97. Frá árinu
1981 starfræktu þeir einnig
saltfiskvinnslu til ársins 1997.
Utför Magnúsar fer fram frá
Háteigskirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 15.
Elsku pabbi.
Kveðjustundin kom allt of fljótt.
Eg hélt að við ættum eftir að vera
lengur saman. Ótal góðar minning-
ar renna í gegnum hugann sem eru
mér mjög dýrmætar. Ég er þakk-
látur íýrir öll sumrin og veturinn
1995-1996 þegar við vorum tveir
saman á Hjallabrekkunni. Allar
golfferðimar þegar þú kenndir mér
golfsveifluna og bíltúrarnir þegar
þú leyfðir mér að keyra. Einnig eru
mér minnisstæðar ferðirnar út í
Enni á kvöldin og oft var komið við í
Mýrarholtinu hjá ömmu Ingu ef ljós
logaði í glugganum. Ykkur ömmu
var greinilega ætlað að vera saman
því aðeins þrír mánuðir eru liðnir
síðan hún lést, en hún var þér svo
mikils virði. Þú varst ekki bara
pabbi minn heldur einnig minn besti
vinur. Nú ætla ég að kveðja þig eins
og ég gerði alltaf fyrir svefninn.
Góða nótt elsku pabbi minn, guð
geymi þig og dreymi þig fallega.
Þinn
Ómar Ingi.
Eg fórnaði höndum
opnum lófum
og hrópaði á Guð.
Á samri stundu flugu
tveir þrestir syngjandi
fyrir opinn gluggann
og ég heyrði
þytinn í grasinu
og fjarlægan nið sjávarins,
þá skildi ég
að þú ert mér alltaf nálægur,
Drottinn.
(Sr. Rögnv. Finnbogas.)
Þegar dauðinn hrífur brott fólk
sem er á besta æviskeiði þá verður
það að maður fórnar höndum í ör-
væntingu og efa um vernd hins al-
sjáandi auga almættisins. Þannig er
það núna þegar skyndilega er brott
kvaddur mágur minn, Magnús Guð-
laugsson, einmitt þegar manni
sýndist að hann væri á hátindi síns
lífs og að hans væri mest þörf.
Hann var staddur hér í Ólafsvík
þegar hann fann sig knúinn til að
aka til Reykjavíkur til öryggis unn-
ustu sinnar sem var ein og væntir
sín innan fárra daga. Hann lagði af
stað undir nótt í sína hinstu för.
Magnús var enn barn að aldri
þegar ég sá hann fyrst. Þá hafði
hann stolist til að koma í vinnuna til
móður sinnar sem hafði verið fengin
til að grípa í sfldarvinnu í manneklu.
Hún hafði slegið til þótt hún hefði
stórt heimili. Það var bara þannig á
velmegunarárum byggðarinnar.
Þarna kom þá Magnús og var að
rétta mömmu sinni hönd, 9 ára
gamall.
Þetta var einkennandi fyrir þau
mæðginin því Magnús var alltaf
hlýr og góður við móður sína og
tengsl þeirra náin. Það verður ekki
breyting á því við lát Magnúsar.
Hann fýlgir móður sinni yfir móð-
una miklu því ekki eru nema þrír
mánuðir frá láti hennar. Þetta er
þriðja stóra skarðið á fáum árum í
fjölskylduna í Mýrarholti 14, því
Guðlaugur faðir Magnúsar lést
1991.
Magnús var sjötti í röð níu systk-
ina. Hann ólst upp í góðu atlæti og
varð brátt efnilegur og liðtækur við
flest. Kom fljótt í ljós að hann var
bæði kappsamur og metnaðargjam.
Hann var strax á ungum aldri orðinn
góður skákmaðm-j enda einn af læri-
sveinum Ottós Amasonar bókara,
sem var frumkvöðull að blómlegu
skáklífi í Ólafsvík á þeim árum. Síð-
ari ár iðkaði Magnús golf og var
kappsamur. Raunar mátti segja að
kappið væri svo mikið, að hann sást
ekki alltaf fýrir. Hann gat gosið eins
og eldfjall svo brosað var að en
aldrei var það til lengdar og Magnús
átti alltaf frumkvæðið að því að jafna
svoleiðis smámuni. Hann var glæsi-
menni, góður meðalmaður á hæð,
stæltur og fimur eins og verið hafði
faðir hans. Magnús var líka fríður
maður og bauð af sér mikinn þokka.
Hann var bamgóður og böm og ung-
lingar hændust að honum og htu upp
til hans. Þá mátti heita að hann væri
reglumaður á vín og tóbak alla tíð.
Þegar hann, ásamt fóður sínum
og bræðrum, stofnaði Enni hf. og
þeir hófu fiskverkun, varð Magnús
forstöðumaður fyi-ir verkuninni. Og
það var ekki að sökum að spyrja að
allt var fýrsta flokks. Var það ekki
síst fyrir það að Magnús var afar
kröfuharður á að góður fiskur kæmi
að landi og kveinkuðu sjómenn sér
undan því. Hins vegar hefðu fleiri
verkendur mátt gera slíkt hið sama
og taka ekki við hverju sem var. Og
fiskurinn var ekki geymdur óunninn
í landi hjá Magnúsi, því á þeirri
sömu stundu og landað var tóku
kröftugar hendur starfsfólksins við
fiskinum og unnu hann tafarlaust.
Það var alltaf líf og fjör í Enni, enda
safnaðist til Magnúsar ungt og fjör-
mikið fólk svo að allt var tekið með
áhlaupi. Það var líka vel gert við
fólkið bæði á sjó og í landi. Útkom-
an varð sú að Enni var alltaf með
úrvalsframleiðslu. Enni hafði verið
slitið og Magnús var að leita fyrir
sér með ný verkefni þegar dauða
hans bar að.
En nú er skarð fýrir skildi og
Magnúsar er sárt saknað. Þung-
bærast er fráfallið auðvitað fyrir
unnustu Magnúsar, Lydíu Fann-
berg, sem eins og áður sagði væntir
sín innan fárra daga. Sömuleiðis
fyrir Ómar Inga, 17 ára gamlan son
Magnúsar og Guðrúnar Haralds-
dóttur, en þau höfðu skilið fyrir fá-
einum árum, þótt þau héldu vin-
skap. Ómar Ingi dáði pabba sinn.
Þetta eru erfiðir dagar fyrir þau öll.
Systkini Magnúsar sakna líka góðs
bróður og félaga. Góðar minningar
geymast þó og veita huggun gegn
harmi.
Og Guð mun láta þresti fljúga
fyrir gluggann og vind bærast í
grasi. Niður sjávarins mun vara og
MINNINGAR
vitna um nálægð almættisins. Ég
þakka mági mínum samfylgdina, bið
honum blessunar á nýju tilverustigi
og bið Guð að vernda alla þá sem
honum voru kærir.
Helgi Kristjánsson.
Mig langar að minnast Magga
vinar míns og samferðamanns í
gegnum stóran hiuta lífs míns.
Leiðir okkar lágu fyrst saman í
byrjun árs 1975 og síðan fetuðum
við saman veginn í nítján ár. Mesta
gæfa okkar beggja og gleði í lífinu
var þegar við fengum Ómar, dreng-
inn okkar, sem þá var fjögurra
mánaða. Meðgangan var mjög stutt,
við fengum símhringingu á laugar-
degi og á þriðjudegi var drengurinn
í fangi okkar, tilveran breyttist á
þeirri stundu og varð auðugri og
innihaldsríkari. Þrátt fyrir að slitn-
að hafi upp úr hjónabandi okkar og
þau átök sem því fylgdu náðum við
að halda mjög góðri vináttu og vor-
um hvort öðru mikilvæg.
Nú er komið að leiðarlokum.
Nú
er nóttin
komin til þín
og dagurinn verður að vera án þín
um stundarsakir.
I blænum berast kveðjur okkar.
Vertu
í nóttinni
uns morgnar.
(Anna S. Björnsdóttir.)
Bless elsku vinur minn.
Guð geymi þig.
Guðrún (Gunna).
Enginn veit sína ævina fýix en öll
er og sannast það best þegar maður
í blóma lífsins fellur frá, aðeins 46
ára að aldri, í hörmulegu bílslysi.
Mig langar, Maggi minn, að
þakka þér íýrir síðustu heimsókn-
ina til mín og við ræddum um lífið
og tilveruna og hvernig margt
mætti betur fara í lífi hvers og eins.
Ekki ætla ég að tíunda hvað okkur
fór á milli, það hef ég fyrir mig, en
mikið þótti mér vænt um að þú
skyldir koma þótt á ýmsu hafi geng-
ið. Þegar litið er til baka þá rifjast
upp margar góðai' minningar gegn-
um árin, bæði með fjölskyldunni og
einnig gagnvart vinnunni, því þar
þurftum við oft að hafa samskipti.
Einnig langar mig til að þakka
þér fyrir börnin mín, sem öll stund-
uðu vinnu undir þinni leiðsögn, og
veit ég að þau eiga eftir að búa að
því á lífsleiðinni. Hjá þér lærðu þau
til verka og töluðu oft um hvað þú
værir duglegur og góður við þau.
Ég veit að þau minnast þín með
söknuði eins og fleiri.
Ég ætla ekki að hafa þessi fátæk-
legu orð fleiri, en stundum er of
seint að þakka fyrir sig. Syni þínum
Ómari Inga, systkinum og öðrum
vandamönnum votta ég mína
dýpstu samúð. Guð geymi þig elsku
Maggi.
Bára.
Það var eins og að fá þungt högg
þegar sú frétt barst okkur að Maggi
frændi hefði lent í bflslysi og slasast
alvarlega. Nokkrum dögum síðar
kvaddi hann þennan heim. Við slíkt
áfall sem þetta leitar hugurinn til
baka og við rifjum upp lífshlaupið
með Magga og þá kemur eðlilega
margt upp í hugann.
Magnús Guðlaugsson, eða Maggi
frændi eins og við kölluðum hann
alltaf, var einn af þeim einstakling-
um sem settu svip sinn á bæjar- og
athafnalífið í Ólafsvík. Hann var ann-
álaður dugnaðarmaður og ósérhlíf-
inn til allra verka. Hann var lengst-
um verkstjórinn á sínum vinnustað,
sem stýrimaður með Óttari bróður
sínum á Auðbjörginni og síðar sem
verkstjóri yfir saltfiskverkuninni
Enni. Við störfuðum með honum um
tíma, hvort á sínum vinnustaðnum,
fengum að njóta leiðsagnar hans og
minnumst við þeirra tíma með þakk-
læti og virðingu íýrir stjómanda sem
í senn gat verið harður og sanngjam
við sitt starfsfólk. Maggi hafði mik-
inn metnað í störfum sínum. Á sjón-
um vildi hann alltaf að Auðbjörgin
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 47
----------------------------í*.
fiskaði mest og það er minnisstætt
að við netaveiðar á Auðbjörginni var
kappið oft mikið við að vera fljótastir
að draga netatrossurnar. í saltfisk-
verkuninni var sama kappið og
metnaðurinn fýrh- hendi, þá skipti
máli að vinna hratt og vel og vanda
til verka. Saltfiskurinn frá Enni var
annáluð gæðavara og bar vitni um að
Maggi vildi aðeins láta frá sér það
besta. Maggi vax- ekki allra, hann gaf
sig allan þeim sem hann átti á ein-
hvem hátt hlutdeild í eða líkaði við
en hann gat líka verið öðmm erfiður.
Við nutum þess alla tíð hve góður
frændi og vinur Maggi var, það
sýndi hann bæði með viðmóti sínu og
einnig í verki. Hann var mikill vinur
bamanna og þau minnast hans með
söknuði. Það er minnisstætt hve
glaður hann var þegar við eignuð-
umst okkar fyrra bam, hana Guð-
rúnu. Þá stóð ekki á gjöfunum til
bamsins, en það nægði ekki því móð-
irin fékk sinn skammt af gjöfum
einnig. Þetta sýndi hve góður frændi
Maggi var og hvemig hann hugsaði
um sína.
Nú þegar leiðir skilur þökkum við
Magga samfylgdina og einlæga vin-
áttu. Við vottum Ómari Inga, Guð-
rúnu, Lydiu, systkinum Magga og
öðrum vandamönnum innilega sam-
úð. Blessuð sé minning Magnúsar
Guðlaugssonar.
Drífa, Magnús, Guðrún
og Guðmundur.
Látinn er langt um aldur fram
Magnús Guðlaugsson, einn af dygg-
ustu meðlimum klúbbsins okkar.
Magnús var stofnfélagi í Golf-
klúbbnum Jökli og einn af fáum
stofnfélögum sem hafa verið virkir í
þau 25 ár sem eru liðin frá stofnun
klúbbsins.
Það er mikil eftirsjá að Magnúsi
og er vandfyllt það skarð sem hann
skilur eftir. Hann var framúrskar-
andi kylfingur og bestur í okkar
klúbbi, og má segja að við hinir fé-
lagarnir höfum alltaf verið að keppa
við hann. Oftast hefur hann hlotið
titlana „Meistari klúbbsins" og
„Kylfingur ársins“ og eru ófáar við-
urkenningarnar sem hann hefur
hlotið í gegnum árin.
Magnús hefur styrkt klúbbinn
með ýmsu móti á liðnum árum, bæði
fjárhagslega og með vinnuframlagi.
Hann vann þau verk sem fyrir hann
voru lögð bæði fljótt og örugglega.
Næsta vor þegar golfvertíðin
hefst að nýju verður Magnúsar sárt
saknað af okkur félögunum. Magn-
ús var eins og hluti af golfvellinum,
því það var sama hvenær sólar-
hringsins maður fór í golf, alltaf var
Maggi að spila. Ekki var óalgeng
sjón að sjá þá nafna Magnús og
Magnús Árna ásamt þeim Einari og
Gísla í holukeppni og spiluðu þeir
marga hringi í röð og voru fljótir að
því og var úthaldið alveg ótrúlegt.
I lokahófi klúbbsins nú í október
áttum við félagsmenn góða stund
saman og er ég þakklátur fyrir að
hafa þá getað þakkað Magnúsi fyrir
hans störf í þágu klúbbsins í gegn-
um tíðina, því mikilvægt er fyrir lít-
inn klúbb eins og okkar að eiga
svona góðan og virkan félaga eins
og hann.
Að lokum vil ég votta ástvinum
hans innilegustu samúð.
Blessuð sé minning MagnúsÆr
Guðlaugssonar.
Torfi Sigurðsson
form. GJÓ.
í dag er kvaddur góður vinur
minn. Eg kynntist Magga fyrst þeg-
ar hann var vinnuveitandi minn. Eg
komst fljótt að því hvaða mann
hann hafði að geyma og urðum við
þá strax bestu vinir og munum við
alltaf vera það. Maggi var gull af
manni. Hann var alltaf tilbúinn að
rétta fram hjálparhönd og geijði
alltaf allt sem hann gat og meira,
m.a. í veikindum mínum. Eftir að ég
flutti frá Ólafsvík héldum við alltaf
góðu sambandi. Þegar eitthvað
bjátaði á hjá mér var besta meðalið
að heyra rödd hans og ráðlegging-
ar. Það er sárt að sjá eftir slíkum
manni falla í valinn langt fyrir aldur
fram og ég mun aldrei gleyma öllu
sem Maggi hefur gert fyrir mig.
Elsku Ömar minn. Ég votta þér
mína innilegustu samúð því ég veit
að söknuður þinn er mitóll eftir að
hafa misst bæði pabba og vin. Systk-
inum Magga, sambýliskonu og öðr-
um aðstandendum vil ég einnig
senda samúðarkveðjur og bið ég Guð
að blessa minningu míns besta vin»'.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þín vinkona
Lilja (Digga).
Skila- 1
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf gi'ein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna stólafrests.
Ný og enn haldbetri
sap verkfæri
Öruggara grip léttir vinnuna
og gerir hana ánægjulegri
Fæst í öllum betri byggingavöruverslunum