Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 48

Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ + 1 Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma MAGNFRÍÐUR KRISTÓFERSDÓTTIR, Kleppsvegi 62, sem lést föstudaginn 27. nóvember sl., verður jarðsungin frá Áskirkju í dag, föstudaginn 4. desember, kl. 13.30. -Cái Stefán Sigmundsson, Sigmundur S. Stefánsson, Kára Hrönn Vilhjálmsdóttir, Kristófer V. Stefánsson, Alda Guðmundsdóttir, Kristín Stefánsdóttir, Pétur Önundur Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur frændi okkar, SAMÚEL M. HANSEN frá Skálum á Langanesi, lést mánudaginn 16. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir góða umönnun. Jóhann Friðriksson, María Friðriksdóttir, Ásdís Lúðvíksdóttir og fjölskyldur. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLL Á. PÁLSSON skipstjóri, Þormóðsgötu 21, Siglufirði, sem lést fimmtudaginn 26. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laug- ardaginn 5. desember kl. 14.00. Jón Gunnar Pálsson, Sigþóra Oddsdóttir, Guðmundur Pálsson, Rósa Eiríksdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, dóttur, tengdamóður og ömmu, ÓLAFAR ÞÓRARINSDÓTTUR, Blómsturvöllum 4, Grindavrk. Sérstakar þakkir færum við Kvenfélagi Grinda- víkur fyrir ómetanlega aðstoð. Guð þlessi ykkur öll. Sigríður Jónasdóttir, Sigurður Sævarsson, Ingibergur Þór Jónasson, Bergvin F. Freygarðsson, Fjóla Kristín Freygarðsdóttir, Guðveig Sigurðardóttir, Þórarinn Ólafsson, Ólöf Sigurðardóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, ömmu, dóttur, systur og fyrrverandi eiginkonu, ÁSDÍSAR PÁLSDÓTTUR, Sléttahrauni 19, Hafnarfirði. Páll Ragnar Kristjánsson, Kolfínna Líf Pálsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Gunnar Páll Ægisson, Eva Björk Kristjánsdóttir, Páll Ólafsson, Maria Guðmundsdóttir, systkini og Kristján Ingi Gunnarsson. MINNINGAR BJARNI KRISTÓFERSSON + Bjarni Kristó- fersson fæddist á Akranesi 21. júlí 1917. Hann lést 19. nóvember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Akra- neskirkju 24. nóv- ember. Fimmtudaginn 19. nóvember barst mér sú fregn að góður starfsfélagi um tveggja áratuga skeið hefði andast þá um morguninn. Mig setti hljóðan og ég minntist margra góðra og ánægjulegra stunda sem við höfðum átt saman. Við Bjami hófum störf um svip- að leiti hjá Rafveitu Akraness. Hann þó heldur fyrr eða í júní árið 1966, þegar hann var ráðinn flokksstjóri hjá rafveitunni. Bjarni var sjómaður af gamla skólanum. Sjórinn átti hug hans og Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áratöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Svem'r Einarsson, útfararstjóri Utfararstofa Islands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. wWw.utfararstofa.ehf.is/ gaman var að ræða við hann um sjómennsku og sjósókn, enda var hann hafsjór af fróð- leik í því efni fyrir landkrabba eins og mig. Hann var glað- lyndur og gamansam- ur og að sjómanna hætti kjarnyrtur, skóf ekki utan af hlutunum og sagði jafnan sína meiningu tæpitungu- laust. Hann átti lengi trillu, sem hann sótti sjóinn á jafnframt því sem hann starfaði hjá rafyeitunni. Arið 1974 ákvað þjóðhátíðar- nefnd Akraness að láta gera heim- ildarmynd um Akranes á 1100 ára afmæli Islandsbyggðar. Eg átti sæti í nefndinni og bað ég Bjarna um að leyfa kvikmyndatökumanni að fara með í róður og varð hann góðfúslega við þeirri beiðni. í myndinni er geymd góð mynd af sjósóknaranum og trillukarlinum Bjarna Kristóferssyni. Bjarni var góður vinnufélagi, harðduglegur til allrar vinnu og kom það sér oft vel fyrir rafveit- una. Eg minnist Bjarna þegar við fórum í starfsmannaferð að Blönduvirkjun, þegar hún var í byggingu. Bjarni hafði þá nokkrum ánim fyrr látið af störfum vegna aldurs og búinn að fara í aðgerð, þar sem tekið var af báðum fótum fyrir neðan hné, en hugurinn var sá sami og dugnaðurinn ódrepandi, enda fór hann um allt á hækjum sínum og vildi enga aðstoð eða hjálp þiggja. Síðast hittum við vinnufélagarn- ir Bjarna í kveðjuhófi í árslok árið 1995, þegar Rafveita Akraness var sameinuð fleiri veitum í Akranes- veitu. Enn var Bjarni sami dug- legi og glaðlyndi félaginn, þótt aldurinn væri farinn að færast yf- ir. Já, það eru margar minningar sem leita á og það er líka gott að geyma góðar minningar í huga sér. Minning um traustan og góðan dreng lifir. Eg og fjölskylda mín og fyrrver- andi samstarfsmenn á Rafveitu Akraness sendum börnum Bjarna og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Bjarna Kristóferssonar. Magnús Oddsson. OLOF ÞÓRARINSDÓTTIR + Ólöf Þórarinsdóttir fæddist í Grindavík 17. janúar 1955. Hún lést á Landspitalanum 19. nóvem- ber siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Grindavík- urkirkju 28. nóvember. Elsku Lóa mín. Það er komið að skilnaðarstund. Miklu fyrr en nokkurn grunaði, en svona er lífið. Þeir góðu fara fyrst, þú varst alltaf örlát, skilningsrík og hlý. Þú hefur þurft að stíga yfir marga þröskulda í lífinu og barist af öllum krafti. Ég dáðist að öllum þínum styrk sem þú hefur haft í gegnum tíðina. Kynni okkar hafa staðið í 15 ár í gegnum hana Siggu þína. Margt brölluðum við saman, sem þú gast hlegið að og stríddir okkur á ýms- um prakkarastrikunum. Mér fannst alltaf gaman að koma til þín í kaffi og spjalla, þú komst fram við mig sem vinkonu þína líka. Ymislegt gerðum við okkur til dundurs, ég, þú og Sigga. Ég mun sakna þeirra stunda mik- ið. Ég dáðist að því hvað þú og Sigga voruð nánar, ekki bara mæðgur heldur bestu trúnaðar- vinkonur líka og allt þar á milli. Þín verður saknað sárt. Elsku Sigga mín, Ingi, Bergvin, Fjóla, Ólöf og Siggi. Ég votta ykk- ur mína dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur á erfiðri stundu. Anna Schmidt. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR Þ. SÖRENSEN frá Selfossi, síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Eir, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- daginn 5. desember kl. 11.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Félag alzheimerssjúklinga í síma 587 8388. Björg Þ. Sörensen, Hafsteinn P. Sörensen, Helga H. Sörensen, Herdís E. Sörensen, Hafsteinn Tómasson, barnabörn og barnabarnabörn. + Minningarathöfn um elskulega móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNBORGU GUÐMUNDSDÓTTUR, Ballará, Dalabyggð, verður í Fossvogskirkju föstudaginn 4. des- ember kl. 13.30. Jarðað verður á Skarði, Skarðsströnd, laugar- daginn 5. desember kl. 13.30. Sætaferðir frá BSÍ laugardaginn 5. desember kl. Guðmundur Magnússon, Guðrún Magnúsdóttir, Guðríður S. Magnúsdóttir, Haraldur S. Jónsson, Elín Magnúsdóttir, Elísabet Magnúsdóttir, Svavar Guðmundsson, Ólafía Magnúsdóttir, Sæmundur Kr. Sigurlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. 9.00. Kæra vinkona. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú íylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (V. Briem.) Ég kveð þig, kæra vinkona og þakka þér fyrii' allt. Börnum, tengdasyni, barnabarni, foreldrum, systkinum og öðrum aðstandend- um votta ég mína dýpstu samúð. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Valgerður Magnúsdóttir. ÚTFARARSTOFA OSWALDS sfMi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTRÆTI -ÍB • 101 REYKJAVÍK LÍKKISTUVINNUSI'OFA EYVINDAR ÁRNASONAR I 1899

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.