Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 55
Sagan
endurtekur sig
ÞEGAR vinstri-
menn tóku við völdum
í Reykjavík 1978 hófst
mikil raunasaga. Veru-
legur skortur var á
lóðum til bygginga,
skattar hækkuðu og
skuldir jukust. Nú
tuttugu árum síðar
virðist sem sagan sé að
endurtaka sig og gott
betur. Abyrg stjóm
borgar byggist á hag-
stæðum vaxtarskilyrð-
um fyrir borgarbúa
sem laða að fólk og
fyrirtæki. Stefna R-
listans beinist að því
að leggja álögur á þá sem búa í
borginni og sníða þeim þröngan
stakk. Það er engu líkara en
vinstrimenn telji það engu breyta
um búsetu manna, þótt dæmin
sanni annað. Á sama tíma hafa ná-
grannasveitarfélögin boðið betur á
flestum sviðum. Arangurinn lætur
ekki á sér standa; þróun Reykja-
víkur stöðvast og mikil þensla á
sér stað í Kópavogi og Mosfellsbæ.
Ólíkt höfumst við að...
Á síðustu fjórum árum hefur R-
listinn safnað um sjö milljörðum í
rekstrarskuldir. Þetta er á sama
tíma og ríkissjóður greiðir niður
Vinstrimenn vaða í
kunnuglegum villum,
segir Eyþór Arnalds,
og hafa lítið lært af
dýrkeyptri reynslu.
skuldir sínar, enda er góðæri og
skatttekjur því drjúgar. Þó tekur
nú steininn úr þegar kemur að
skattheimtunni. Á sama tíma og
ríkið lækkar skattprósentuna
hækkar útsvarsskattur borgarinn-
ar. Útsvarsgreiðendum Reykjavík-
ur hefur lítið fjölgað, enda er svo
komið í dag að engar lóðir eru fá-
anlegar og borgaryfírvöld atast í
einstökum húseigendum í borg-
inni.
Eftir að vinstri meirihlutinn féll
og sjálfstæðismenn tóku við 1982
var farið hratt af stað og Grafar-
vogur skipulagður. Vöxtur
Reykjavíkur fór aftur á fullan
skrið og rekstur borgarinnar tók
ííkinu fram. Á þessum tíma var oft
talað um tvö hagkerfi í landinu,
hinn þungi ríkissjóður undir stjórn
Steingríms Hermannssonar og hin
öfluga borg undir stjórn Davíðs
Oddssonars. í dag sjáum við and-
hverfuna, óstjóm í rekstri borgar-
innar á sama tíma og rekstur ríkis-
ins vekur aðdáun víða um Evrópu.
Skuldir ríkisins em greiddar niður
og skattar lækka. Skuldir borgar-
innar stórhækka og skattar
hækka. Og fleiru er við að bæta.
Skýrir valkostir
R-listinn lætur gera fyrir sig
mikið af skýrslum og geta þær
kostað tugi milljóna eins og nýleg
dæmi sanna. Fyrir kosningamar í
New York-borg 1993 gerði borgar-
stjórinn Dinkins, sem er
demókrati, svokallaða Kmmmer-
feld-skýrslu. Þar var meðal annars
lagt til að borgin ætti að hækka
skatta, leggja á sorphirðugjald og
rýra þjónustu. Borgarstjóraefni
repúblíkana, Rudio
Giuliani, valdi að fara
þveröfuga leið og boð-
aði skattalækkanir til
eflingar borgarinnar.
Þegar Giuliani tók síð-
an við völdum hófst
hann handa þegar í
stað og lækkaði skatta
og bætti skilyrði
borgarbúa og fyrir-
tækja hratt. I dag,
fimm ámm síðar, er
árangurinn öllum ljós.
Tekjur New York-
borgar hafa stórauk-
ist og störfum hefur
fjölgað um 110.000.
Öryggi borgarbúa og fyrirtækja
hefur stóraukist og lífsgæði þai-
með. Ef farið hefði verið eftir til-
mælum vinstrimanna og skýrslu
Krummerfeld væri ólíku saman að
jafna.
í Reykjavík er likt og farið hafi
verið eftir þessari uppskrift
vinstrimanna þar sem er blanda af
skattahækkunum, auknum fjár-
greiðslum til félagsmála og stór-
kostlegum vexti í stjórnkerfinu
með nýjum millistjórnendum.
Þessi uppskrift leiddi á sínum tíma
til slæmrar fjárhagsstöðu Reykja-
víkur og skorti á nýju byggingar-
svæði. Nákvæmlega sama staða er
komin upp nú.
Bókhald og blekkingar
Fræg er bókhaldsflétta R-list-
ans fyrir síðustu kosningar þegar
reynt var að fela skuldir borarinn-
ar með skuldafélagi sem kallað er
„Félagsbústaðir hf.“. Eina sjáan-
lega markmið stofnunar félagsins
var að laga vondar tölur borgar-
sjóðs. Þarna „seldi“ borgarsjóður
félagslegar íbúðir sínar nýju fyr-
irtæki sem einnig var í eigu borg-
arinnar fyrir alls 4.353,5 milljónir
króna. Þetta er svipað og ef bóndi
seldi sjálfum sér hlöðuna til að
laga stöðuna á bankareikningn-
um, skammgóður vermir það. Nú
á að halda áfram á sömu braut og
reyna að blekkja með svipuðum
bókhaldskúnstum. Það undarleg-
asta er samt það að vinstri meiri-
hlutinn.virðist trúa þessum blekk-
ingum sjálfur. Nýjasta aðferðin er
svo að rýra eigið fé veitustofnana
verulega, eða um allt að tíu millj-
arða króna. Þetta er ekkert annað
en aukin skuldsetning. Og þetta
kallar sú sem nú er borgarstjóri
hallalausan rekstur!
Uppgjöf
Allar þessar aðgerðir eiga það
sammerkt að vera skammtíma-
lausnir sem gera illt verra. Dæm-
ið frá New York-borg sýnir svo
ekki verður um villst að vöxtur
verður ekki til með álögum, held-
ur skattalækkunum. Ekki með
blekkingum heldur skýrum kost-
um sem öllum eru ljósir. Reykja-
vík hefur mikla möguleika ef rétt
er á spilunum haldið. En þá þarf
að snúa við blaðinu hratt. Nýir
skattar R-listans sýna þau hafa í
reynd gefíst upp á rekstri borgar-
innar. I stað þess að bæta vaxtar-
skilyrðin eru lagðar nýjar álögur
á einstaklinga, fyrirtæki og nú
síðast á borgarfyrirtækin sjálf.
Frekari vitna þarf ekki við.
Höfundur er varaborgarfulltrúi.
Eyþór Arnalds
Moldviðri
eða feluský
Forsætisráðherrann
okkar, sem er sérlega
kunnur fyrir hógvær-
an, kurteisan og mál-
efnalegan málflutning,
veitti okkur sem mald-
að höfum í móinn útaf
óskabarni hans,
„frumvarpi um mið-
lægan gagnagrunn á
heilbrigðissviði“, hóg-
væra áminningu á
málþingi tölvuspek-
inga hér um daginn.
Hann talaði þar m.a.
um moldviðri útaf per-
sónuvernd, sem við
hefðum þyrlað upp,
auðvitað af öfund og tortryggni
gagnvart frómum og lítillátum
flytjendum fagnaðarboðskapar um
ómælt dollaraflæði, hundruð starfa
og eilífa heilsu. Slíkt hlaut að kalla
á fóðurlega áminningu þess sem
ekki aðeins veit betur, heldur ber
ábyrgð á andlegri og tímanlegri
velferð þjóðarinnar. Honum láðist
reyndar að geta þess,
að það voru aðrir en
við, sem erum vantrú-
aðir á fagnaðarboð-
skapinn, sem rótuðu
moldviðrinu upp í
byrjun.
Það er gamalt her-
bragð, einkum í sjó-
hemaði, að felast í
reykskýi, annaðhvort
til að leynast fyrir
óvinum sínum eða
koma þeim að óvör-
um. I þessum anda
var herbragðið, sem
frumkvöðlar íslenskr-
ar erfðagreiningar
notuðu til að læðast inn í vitund ís-
lensks almennings. Reykskýið var
gert úr lauskveðnum loforðum um
atvinnu, aukinn hagvöxt og bætta
heilsu, ekki aðeins til handa oss
íslendingum, heldur allri hrjáðri
mannkind um víða veröld. Svona
til að þétta skýið var landstjóm-
endum gefið í skyn að með ráðum
Árni Bjömsson
frumkvöðlanna mætti lækka
kostnað við heilbrigðisþjónustuna,
sem náttúrlega hefði átt að leiða
af sjálfu sér með útrýmingu sjúk-
dóma. Feluskýið grúfir enn yfir
landinu og þjóðinni, en nokkur
teikn eru á lofti um að það kunni
að vera að þynnast (sbr. síðustu
Gallup-könnun). Líkur eru þó til
þess að það muni byrgja nægilega
mörgum alþingismönnum nægi-
Feluskýið grúfir yfir
landinu og þjóðinni,
------7---------------
segir Arni Björnsson,
en nokkur teikn eru á
lofti um að það kunni
að vera að þynnast.
lega lengi sýn, til þess að þeir
muni í blindni samþykkja gagna-
grannsfrumvarpið. Almenningur
mun ná áttum þó síðar verði og
reykskýið fjúka. Ef einhverjir
sitja þá eftir með súr í augum og
ræmu í hálsi, mættu þeir skoða
það sem fóðurlega áminningu; frá
- t.d. heilbrigðri skynsemi.
Höfundur er læknir.