Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
MYNPBÖNP
Andstyggi-
legar kjöt-
bökur
Sweeney Todd____
Hrollvekja
★★
Framleiðandi: Ted Swanson.
Leikstjóri: John Schlesinger. Hand-
ritshöfundur: Peter Buckman. Aðal-
hlutverk: Ben Kingsley, Joana
Lumley og Campbell Scott. (90 mín)
Bandaríkin. Skífan, nóvember 1998.
Bönnuð innan 16 ára.
SWEENEY Todd rekur eigin rak-
arastofu í Lundúnum. Hann fer þó
dálítið offari með rakhnífínn, enda
eiga kúnnarnir það
til að týna tölunni,
ekki síst þeir sem
hvað loðnastir eru
um lófana. Þegar
rannsakandinn
Ben Carlyle rekur
slóð horfíns kaup-
sýslumanns til rak-
arastofu Todds,
sem staðsett er við
hliðina á frægri kjötbökuframleiðslu
frú Lovett, fer hann að leggja saman
tvo og tvo.
Hér er á ferðinni kvikmyndaút-
gáfa af þekktu bresku leikriti, sem
upprunalega var ritað árið 1847, en
hefur verið endurritað og útfært á
ýmsa vegu síðan, m.a. sem vinsæll
söngleikur. Þrátt fyrir ýmis tilbrigði
er meginsjarmur sögunnai' ávallt
hinn sami, þ.e. hin grótesku tengsl
milli morðanna á rakarastofunni og
innihalds kjötbakanna. Umrædd
kvikmynd gerir mjög út á hinn
gróteska þátt, en tekst einhvern veg-
inn að ofgera honum svo að hrylling-
urinn missir marks og verður leiðin-
lega andstyggilegur. Þar má einnig
um kenna illa útfærðri persónusköp-
un hins drápsglaða rakara, sem Ben
Kingsley annai's leikur ágætlega.
Hin skuggalega 18. aldar Lundúna-
stemmning er hins vegar mjög vel
unnin og gefur heildannyndinni tölu-
vert aðdráttarafl þó hún virki illa
sem hrollvekja.
Heiða Jóhannsdóttir
Saklaus á
flótta, aftur
U.S. Marshals________________
II a s a r
★ ★!4
Leiksljórn: Stuard Baird. Aðalhlut-
verk: Tommy Lee Jones, Wesley
Snipes og Robert Downey Jr. 125
mm. Bandarísk. Warner myndir, nóv-
ember 1998. Bönnuð innan 16 ára.
HINN framúrskarandi leikari
Tommy Lee Jones er hér aftur í
hlutverki Sam Gerard, mannaveiðar-
ans mikla sem elt-
ist við Richard
Kimble í „The
Fugitive". „U.S.
Marshals" er í
grundvallaratrið-
um endurvinnsla
þeirrar myndar og
fer allnákvæmlega
eftir formúlunni
sem þar var notuð.
Allt er þó vel unnið og handritið er
ágætlega heppnað svo úr verður hin
ágætasta spennumynd. Tommy Lee
Jones er æðislegur leikari og það er
sama hvaða hlutverk hann fer með,
alltaf stelur hann senunni. Aðrir
leikarar standa sig vel í einfóldum og
formúlukenndum hlutverkum.
Myndin er ákaflega fyrirsjáanleg,
eins og formúlumyndum hættir til að
vera. Henni er þó ekki ætlað að
koma mikið á óvart, heldur er hasar
og spenna í fyrirrúmi. Tæknilega er
engu undan að kvarta og sem heild
er myndin nokkuð yfir meðallagi.
Guðmundur Asgeirsson
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 67^
mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is
LLTAf= €=IT~TH\//\LD Aí