Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF S691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTrj@MBL.lS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Dómur Hæstaréttar í máli Valdimars Jóhannessonar gegn íslenska ríkinu um fískveiðistjórnun
Lagaákvæði brot á jafn-
ræðisreglu stjórnarskrár
HÆSTIRETTUR komst að þeirri niðurstöðu
í dómi, sem kveðinn var upp í gær, að 5. grein
laga nr. 38 frá 1990 um stjórn fískveiða væri í
andstöðu við jafnræðisreglu 1. mgr. 65. gr.
stjómarskrárinnar og við þau sjónarmið um
jafnræði, sem gæta þurfi við takmörkun á at-
vinnufrelsi samkvæmt 1. mgr. 75. gr. stjórn-
arskrárinnar.
Þessi niðurstaða Hæstaréttar kom fram í
í máli, sem Valdimar Jóhannesson höfð-
aði gegn íslenska ríkinu, þar sem krafíst var
ógildingar á þeirri ákvörðun sjávarútvegs-
ráðuneytis frá 10. desember 1996 að synja
Vaidimari um leyfí til veiða í atvinnuskyni og
aflaheimildir í íslenzkri fiskveiðilögsögu.
Dómsorð Hæstaréttar var að ógilda bæri
ákvörðun ráðuneytisins.
I dómi Hæstaréttar er tekið fram, að ekki
sé tekin afstaða til þess í dómnum, hvort
ráðuneytinu hafí að svo búnu borið að verða
við umsókn málshefjanda, þar sem málið hafí
einungis verið höfðað til ógildingar á ákvörð-
ráðuneytisins en ekki til viðurkenningar á
rétti til tiltekinna veiðiheimilda.
Sjávarútvegsráðuneyti hefði ekki mátt
hafna umsókn Valdimars Jóhannessonar um
veiðiheimildir í landhelgi íslands á grundvelli
þeirra forsendna sem gefnar voru. I dómnum
segir að ekki verði séð að rökbundin nauðsyn
hnígi til þess að lögbinda um ókomna tíð þá
mismunun, sem leiði af 5. grein laga um
stjóm fiskveiða.
I þeirri grein segir að við veitingu veiði-
leyfa komi þau skip ein til greina, sem veiði-
leyfi fengu, samkvæmt ákvæðum eldri laga
um stjórn fiskveiða, auk báta undir 6 brl., með
ákveðnum takmörkunum.
Valdimar sótti um veiðileyfi til sjávarút-
vegsráðuneytisins í desember 1996 og jafn-
framt óskaði hann eftir að sér yrði úthlutað
tilteknum veiðiheimildum. Ráðuneytið hafn-
aði erindinu og kærði Valdimar þá ákvörðun
til Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dæmdi
ráðuneytinu í vil. Hæstiréttur komst að
annarri niðurstöðu.
I dómnum er vitnað í 65. grein stjórnar-
skrárinnar um jafnræði þegnanna fyrir lögun-
um og 75. grein um atvinnufrelsi, en í henni er
tekið fram að atvinnufrelsi megi setja skorður
ef almannahagsmunir krefjist þess. Hæsti-
réttur telur ljóst að löggjafínn hafi talið að al-
mannaheill hafi krafist þess að veiðarnar yrðu
takmarkaðar. Dómstólar geti ekki haggað því
mati, en þær skorður sem settar voru fyrir
veiðunum verði hins vegar að samrýmast
gi-undvallarreglum stjórnarskrárinnar.
Mismununin í ósamræmi
við jafnræðisreglu
Hæstiréttur bendir á að þær skorður sem
settar voru með fiskveiðilögunum hafi leitt til
þess að réttur þeirra sem áttu skip á öndverð-
um níunda áratugnum sé annar en hinna sem
ekki höfðu yfir skipum að ráða, þar sem út-
hlutun aflaheimilda sé bundin við skip. „Af því
leiðir, að aðrir eiga þess ekki kost að stunda
veiðar í atvinnuskyni en þeir, sem fengið hafa
heimildir til þess í skjóli einkaeignarréttar,
ýmist sjálfir eða fyrir kaup, erfðir eða önnur
aðilaskipti."
Hæstiréttur segir um þá ákvörðun Alþingis
að binda úthlutun veiðiheimilda við skip: „Er
óhjákvæmilegt að líta svo á, að þessi tilhögun
feli í sér mismunun milli þeirra, sem leiða rétt
sinn til veiðiheimilda til eignarhalds á skipum
á tilteknum tíma, og hinna, sem hafa ekki átt
og eiga þess ekki kost að komast í slíka að-
stöðu. Þótt tímabundnar aðgerðir af þessu
tagi til vamar hruni fiskistofna kunni að hafa
verið réttlætanlegar, en um það er ekki dæmt
í málinu, verður ekki séð, að rökbundin nauð-
syn hnígi til þess að lögbinda um ókomna tíð
þá mismunun, sem leiðir af reglu 5. gr. laga
nr. 38/1990 um úthlutun veiðiheimilda."
Hæstiréttur telur að með þessu lagaákvæði
hafi verið „lögð fyiirfarandi tálmun við því, að
drjúgur hluti landsmanna geti, að öðrum skil-
yrðum uppfylltum, notið sama atvinnuréttar í
sjávarútvegi eða sambærilegrar hlutdeildar í
þeirri sameign, sem nytjastofnar á Islands-
miðum eru, og þeir tiltölulegu fáu einstakling-
ar eða lögaðilar, sem höfðu yfir að ráða skip-
um við veiðar í upphafi umræddi-a takmark-
ana á fiskveiðum."
Ráðuneytið þarf að skoða afgreiðslu
málsins á nýjan leik
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að
samkvæmt dómi Hæstaréttar yrði sjávarút-
vegsráðuneytið að skoða afgreiðsíu sína á nýjan
leik og þá hvort það gæti synjað þessari beiðni
á öðrum forsendum eða hvort úthluta ætti um-
sækjanda þeim veiðiheimildum sem hann sótti
um.
„Eg held að það sé varla hægt að ætla að
Hæstiréttur hafi ætlað að leggja kvótakerfið í
rúst, eins og sumir halda fram, og jafnvel gera
öll útgerðarfyrirtæki landsins verðlaus á einum
degi. Ég held að það sé oftúlkun hjá mönnum,"
sagði Davíð.
„Ég er mjög ánægður og stoltur yfir að við
skulum eiga Hæstarétt sem hefur þann þroska
að hann tekur á þessu máli. Það er ánægjulegt
og gleður mig ósegjanlega," sagði Valdimar Jó-
hannesson, sem vann málið í Hæstarétti.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði
að Hæstiréttur segði einungis að ekki sé hægt
að synja Valdimari um kvóta á grundvelli 5. gr.
laga um stjóm fiskveiða. Eðlilegast væri því að
nema þessa grein úr gildi. „Mér sýnist því að
hver og einn geti fengið leyfi til að veiða og það
þurfi að afnema þessar úreldingarreglur um að
það þurfi að koma skip fyrir skip. Það er reynd-
ar regla sem LÍÚ hefúr gagnrýnt.“
„Þessi dómur er stórtíðindi og ég efast um að
það sé hægt að finna mörg dæmi um að dómur
Hæstaréttar snerti með jafn beinum hætti póli-
tískt deilumál á Islandi eins og þessi dómur
gerir. Ég tel að þetta mál sé ekki bara lögfræði
heldur endurómur af almennum viðhorfum í
þjóðfélaginu, sem Hæstiréttur hefur fullan rétt
tU að kveða upp,“ sagði Svavar Gestsson al-
þingismaður.
■ Dómur Hæstaréttar/12/38/39
Morgunblaðið/Ásdís
Milljarða hús til sölu
Kristján
syngur í
* Kringlunni
NÝR hljómdiskur Kristjáns Jó-
hannssonar, Helg eru jól, kemur út
í dag. Hafa þeg-
ar verið pöntuð
sex þúsund ein-
tök. Kristján
ætlar að taka
lagið í Kringl-
unni síðdegis á
morgun um leið
og hann áritar
diskinn.
Kristján Jóhannsson, sem kemur
hingað til lands í heimsókn síðdegis
á morgun, verður í Kringlunni frá
tJraiklukkan 16 til að árita diskinn, en
tekur jafnframt lagið með Skólakór
Kársness, sem Þórunn Björnsdóttir
stjórnar.
TÆPLEGA 30 ára gömul fasteign,
sem er að 87% hluta í eigu Sam-
einaðra verktaka, Regins og ríkis-
sjóðs, á Höfðabakka 9 hefur nú ver-
ið auglýst til sölu. Brunabótamat
fasteignarinnar er um tveir millj-
arðar króna. Er fátítt að slíkar
eignir komi á markað.
Stærð fasteignarinnar er um 24
þúsund fermetrar og þar af em
bakhús, sem fylgja með í kaupun-
um, um 17 þúsund fermetrar. í hús-
inu, sem setur mikinn svip á Höfða-
hverfið, reka mörg fyrirtæki starf-
semi sína, en þeirra á meðal em
Opin kerfi, Pricewaterhouse-
Coopers, Nasco og Marel, sem og
Landsbankinn og Sameinaðir verk-
takar. Auglýsing um sölu fasteign-
arinnar, sem birtist í Morgunblað-
inu í gærmorgun, hefur hreyft við
nokkrum aðilum, sem „eru að
þreifa fyrir sér“, eins og Bjarni
Thors, stjómarformaður
Sameinaðra verktaka, orðaði það.
■ Brunabótamat/18
Hrært í
sandkökur
JÓLABAKSTURINN er hafinn
á öllum betri bæjum. Krakkarn-
ir í Skeijakoti voru í gær önn-
um kafin við að búa til deig í
sandkökur fyrir jólin, en þær
eru í miklu uppáhaldi á leikskól-
anum.
Hlíf og
Framtíðin
sameinast
YFIR 90% þátttakenda úr at-
kvæðagreiðslu félagsmanna úr
verkamannafélaginu Hlíf og
verkakvennafélaginu Framtíð-
inni segjast hlynnt sameiningu
félaganna. Talning atkvæða fór
fram í gær í félagsheimili Hlífai-
við Reykjavíkurveg, en þátt-
taka var hins vegar fremur
dræm, eða um 30% hjá Hlíf og
42% hjá Framtíðinni.
AIls eru um 2.000 manns í fé-
lögunum tveimur og verður
brátt hafist handa við að undir-
búa sameiningu félaganna. Seg-
ir Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Hlífar, að nýtt félag ætti
að geta komið út úr aðalfundum
félaganna, sem fram fara í apríl
1999.
„Það er ekki nokkur skapað-
ur hlutur sem mælir með að
kynskipt félög séu heppilegri,"
segir Sigurður.