Morgunblaðið - 15.01.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 11
____________FRÉTTIR_________
Menntamálaráðherra undir-
ritar samning við Italíu
BJÖRN Bjarnason, menntamála-
ráðherra, hefur fyrir hönd ríkis-
stjórnar Islands undirritað samn-
ing við ríkisstjórn Ítalíu um sam-
vinnu á sviði menningar, vísinda og
tækni í því skyni að styrkja vin-
samleg samskipti ríkjanna og auka
gagnkvæman skilning og þekkingu
þeirra á milli með styrkari menn-
ingartengslum. Frú Patrizia Toia,
aðstoðarutanríkisráðherra og öld-
ungadeildarþingmaður, undirritaði
samninginn fyrir hönd i'íkisstjórn-
ar Italíu.
Samkvæmt samningnum, sem
undirritaður var í utanríkisráðu-
neytinu í Róm í gær, skulu ríkis-
stjómir beggja landa meðal annars
efla samvinnu á sviði menntamála,
svo sem með skiptum á sérfræð-
ingum, með því að leggja rækt við
samvinnu á milli háskóla, bjóða
fram námsstyrki til
háskólanáms í löndun-
um og standa að
skiptiheimsóknum há-
skólakennara og sam-
eiginlegum rannsókn-
arverkefnum.
Tengsl menningar-
stofnana efla
Á menningarsviðinu
skal meðal annars
stuðla að því að efla
starfsemi og tengsl
menningarstofnana og
samtaka, efla sam-
vinnu bókasafna og
annarra safna á milli
landanna. Þá skal
stuðlað að samvinnu á sviði tónlist-
ar, danslistar og myndlistar, leik-
listar og kvikmyndalistar með
skiptiheimsóknum
listamanna, þátttöku í
stórhátíðum eða öðr-
um mikilvægum list-
viðburðum. Loks
munu ríkisstjómir
landanna vinna að þró-
un vísinda- og tækni-
samvinnu milli vísinda-
stofnana og samtaka,
bæði opinberra og
einkarekinna í löndun-
um tveimur.
Dagana á undan sat
menntamálaráðherra
málþing í Vatíkaninu í
Rómarborg, sem boð-
að er til af menningar-
ráði páfastóls, undir
forystu Poupard kardínála. Um-
ræðuefni málþingsins er Kristur,
uppspretta nýrrar menningar frá
Evrópu við upphaf nýs árþúsunds.
Málþingið er liður í undirbúningi
sérstakrar ráðstefnu biskupa í
Evrópu, sem haldin verður næsta
haust undir forsæti páfa. Jóhannes
Páll páfí II ávarpaði þingið á síð-
asta degi þess í gær, fimmtudag.
Málþingið er eins og biskuparáð-
stefnan liður í undirbúningi páfa
undir hið heilaga hátíðarár árið
2000. Til þess eru boðaðir fulltrúar,
sem talið er, að gefl mynd af fjöl-
breytileika evrópskrar menningar.
Menntamálaráðherra stjórnaði
meðal annars þeim fundi þingsins,
sem snýst um fjölskyldu og mennt-
un, skóla og háskóla. Meðal ann-
arra gesta á málþinginu, sem í allt
voru um 50 talsins, voru listamenn,
prófessorar, stjómmálamenn og
prestar frá Austur- og Vestur-Evr-
ópu.
Björn
Bjarnason
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STARFSMENN Vegagerðarinnar unnu í gær við að koma fyrir girðingu sem draga
á úr snjósöfnun við Draugahlíðarbrekku við Suðurlandsveg.
Áburðarverksmiðj an
Áhugi fjár-
festa af
hinu góða
HREINN Loftsson, formaður
Framkvæmdanefndar um einka-
væðingu, segir að endurnýjaður
áhugi á kaupum á Áburðarverk-
smiðjunni sé af hinu góða og vel
komi til greina að auglýsa verk-
smiðjuna til sölu á nýjan leik af því
tilefni.
í Morgunblaðinu í gær er frá því
skýrt að þeir tveir hópar fjárfesta
sem gerðu tilboð í Áburðarverk-
smiðjuna í ágúst 1997 hafi samein-
ast og muni vera tilbúnir til við-
ræðna við Framkvæmdanefnd um
einkavæðingu ríkisfyrirtækja með
ákveðin kaup í huga.
Aldrei selt undir
skrapvirði
Hreinn sagði að það væri hins
vegar ófrávíkjanlegt af hálfu Fram-
kvæmdanefndarinnar að það yrði að
auglýsa söluna og gefa öllum hugs-
anlegum aðilum færi á því að bjóða
í, þannig að allir sætu við sama
borð. Þessu hefði verið lýst yíir
þegar í ljós hefði komið að hluta-
bréfín í Áburðarverksmiðjunni
hefðu ekki selst vegna þess að tilboð
hefðu verið of lág. Hitt atriðið væri
að fyrirtækið yrði aldrei selt undir
skrapvirði.
„Þetta eiga allir að þekkja sem
kynna sér verklagsreglur um fram-
kvæmd einkavæðingar, en þessi
endurnýjaði áhugi er mjög ánægju-
legur og það er þá hugsanlegt og
kannski eðlilegt að þessi hlutabréf
verði auglýst til sölu á nýjan leik,“
sagði Hreinn ennfremur.
Ekiðá
hest
AFLÍFA þurfti hest, sem fót-
brotnaði eftir að ekið var á
hann í Laxárdal í gærmorgun.
Að sögn lögreglunnar í Búðar-
dal stórskemmdist bíllinn, en
bflstjórinn slapp ómeiddur.
Atvikið átti sér stað í myrkri
á fáfórnum vegi og stökk hest-
urinn skyndilega inn á veginn
og fyrir fólksbílinn, sem kom
aðvífandi. Bílstjórinn náði ekki
að nema staðar þótt hann væri
á lítilli ferð. Höfðu nokkrir
hestar brotið staura og sloppið
út úr girðingu og var hestur-
inn því laus. Maðurinn gekk á
næsta bæ og tilkynnti óhappið.
VERIÐ er að reisa girðingu við
Draugahlíðarbrekku við Suður-
landsveg rétt ofan við Litlu kaffi-
stofuna sem hafa á þann tilgang
að breyta vindstreng við veginn
þannig að siyór safnist síður á
hann á þessum kafla. Helgi Hall-
grímsson vegamálastjóri segir
tilraunir standa yfir með slíkar
girðingar á nokkrum stöðum á
landinu.
FARIÐ hefur í vöxt undanfarið að
bíleigendur láti ekki framkvæma
nauðsynlegar viðgerðir á bílum sín-
um í sparnaðarskyni og þegar um
öryggisatriði er að ræða hafa verk-
stæði neitað að annast viðgerðir á
þann hátt sem ekki stenst öryggis-
kröfur, að sögn Atla Vilhjálmsson-
ar, verkstæðisformanns hjá Bifreið-
um og landbúnaðarvélum.
Atli sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í gegnum árin hefði verið
algengt að fólk sem kæmi með bfla
sína á verkstæði vildi ekki láta fram-
kvæma þær viðgerðir sem nauðsyn-
legar væru á þann hátt sem kröfur
væru gerðar um, heldur fara ein-
hverja ódýi’ari leið til bráðabirgða.
Vindstreng
breytt með
girðingum
Tilraunir hafa sýnt, að með því
að reisa girðingar á ákveðnum
köflum út frá ríkjandi vindátt og
„Við ráðleggjum fólki hvernig á
að gera hlutinn og þá spyr það oft
hvernig það sleppi út úr þessu sem
ódýi'ast. Við höfum brugðist þannig
við að þegar um öryggisatriði er að
ræða, og í málum sem geta verið
varasöm, þá höfum við hreinlega
ekki tekið þátt í því. Við höfum ein-
faldlega sagt við fólkið við getum
ekki gert þetta eins og það er að
biðja okkur um,“ sagði Atli.
Tekið fram á reikningi
Hann sagði að í öðrum tilfellum
þar sem ekki væri um öryggisatriði
að ræða og samþykkt væri að fara
að vilja fólks væri það tekið skýrt
fram á reikningum fyrir viðgerðina
þar sem snjór hefur safnast megi
færa vindstreng þannig að snjór-
inn falli við girðinguna og vind-
strengurinn færist þannig til að
skafrenningur safnist ekki á veg.
Segir vegamálastjóri slíkar til-
raunir munu standa yfir á næstu
misserum. Þáttur í þeim tilraun-
um Vegagerðarinnar er að
styrkja doktorsnám íslendings í
Noregi.
að hún hafí verið framkvæmd á
þann hátt sem eigandinn bað um.
„Ef um málssókn yrði að ræða þá
kemur það fram að hann bað okkur
um að gera þetta svona, en hvort
það heldur fyrir dómi get ég ekki
fullyrt. Það er mikið um þetta og
ástæðan er auðvitað sú að fólk er að
reyna að spara sér peninga. Algeng-
asta dæmið í þessu sambandi er
rennsli á bremsudiskum. Það er
geflð upp frá verksmiðju að þeir
eigi að standast ákveðin mál og
skipta eigi um þá ef komið er undir
það mál. Fólk vill hins vegai- láta
renna gömlu diskana þótt þeir séu
komnir undir mál til að spara sér
einhverja peninga," sagði Atli.
Ingólfsstrœti 5 S. 551 5080
Verkstæðisformaður hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum
Neita viðgerðum sem ekki
standast öryggiskröfur
^>Q>öWOOöD