Morgunblaðið - 15.01.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 21
VIÐSKIPTI
Ross Perot snýr aftur
New York. Telegraph.
ROSS PEROT, 68 ára gamall
auðkýfingur frá Texas sem
bauð sig fram til forseta í
Bandaríkjunum fyrir sjö árum,
lætur aftur að sér kveða í kaup-
höllum.
Perot hyggst setja hlutabréf í
tækniþjónustu- og ráðgjafarfyr-
irtæki sínu Perot Systems í sölu
í kauphöllinni í New York. Með-
al viðskiptavina fyrirtækisins
eru Swiss Bank UBS, East Mid-
land Electricity og National
Car Rental.
Verðbréfafyrirtækið Morgan
Stanley Dean Witter sér um
hlutabréfaútgáfuna, sem á að
afla 115 milljóna dollara. Perot
Systems er metið á einn og
hálfan milljarð dollara og 40%
hlutur Perots 600 milljónir doll-
ara.
Perot var stórauðugur þegar
hann ákvað að bjóða sig fram
til forseta til að berjast gegn
skriffínnsku í Washington.
Hann seldi fyrra fyrirtæki sitt,
gagnavinnslurisann Electronic
Data Systems, General Motors
bflafyrirtækinu fyrir einn millj-
arð dollara um miðjan síðasta
áratug og samþykkti að keppa
ekki við það fyrirtæki.
------------------
Hlutabréf í
Pharmacia
falla um 5%
Stokkhólmi. Reuters.
VERÐ hlutabréfa í sænsk-
bandaríska lyfjafyrirtækinu
Pharmacia & Upjohn (P&U)
lækkaði um 24 sænskar krón-
ur, eða 5,07%, í 449 krónur
fyrir hádegi á þriðjudag þegar
sænska stjórnin tilkynnti að
hún kynni að ljúka við að selja
7% hlut sinn í þessum mánuði.
,úÚmgi á að kaupa dvínar
alltaf þegar vitað er að svona
mörg bréf verða sett í sölu,“
sagði miðlari nokkur.
Daginn eftir að
samningurinn rann
út 1988 stofnaði Per-
ot fyrirtækið Perot
Systems í Dallas til
að freista gæfunnar
í annað sinn. Perot
er stjórnarformaður,
aðalframkvæmda-
stjóri og forstjóri
fyrirtækisins, starfs-
menn þess eru 5.500
og það jók hagnað
sinn um 45% í 11,2
milljónir dollara
1997.
Perot er nú talinn 3,7 millj-
arða dollara virði, en hann hef-
ur lítið breytzt síðan
í kosningabarátt-
unni 1992 þegar
hann varð kunnur
fyrir hreinskilni.
Það má sjá á heima-
síðu Perot Systems,
þar sem verktökum
er ráðlagt: „Verið
viðbúnir að grípa
tækifærið þegar það
gefst og nýta ykkur
tækifærin til hlítar.
Gerið ykkur grein
fyrir að þið hafið
minna fé undir
höndum og færri starfsmenn en
reyndir keppinautar ykkar.“
Vesturlandsvefurinn opnaður
Eflir fyrirtæki
til framfara
NYR vefur, Vesturlandsvefurinn,
hefur verið opnaður á Netinu og er
honum ætlað að tengja saman allt
vestlenskt efni sem fínna má á Net-
inu. Að auki birtir hann flokkaða
skrá um fyrirtæki og félög á Vestur-
landi. Slóðin er www.vesturland.is
Vefurinn er unninn af vefsmiðj-
unni Andakíl að frumkvæði og til-
stuðlan atvinnuráðgjafar Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi.
Bjarki Már Karlsson, kerfis-
fræðingur og eigandi Andakíls, segir
að vefurinn muni vísa á allt vest-
lenskt vefefni og hafi margir lagt
hönd á plóg við að safna þeim upp-
lýsingum saman. „A Vestur-
landsvefnum er nú hægt að finna allt
þetta efni, annaðhvort með því að
leita eftir landfræðilegri staðsetn-
ingu eða efnisflokkum. Eins geta
lesendur sent inn tilkynningar um
nýtt vestlenskt efni. Aðstandendur
vefsins vona að hann eigi eftir að
nýtast vel sem markaðstæki fjórð-
ungsins á ýmsum sviðum og að hann
styrki þannig stöðu fyrirtækja,
stofnana og félaga í samkeppni og
efli þau til framfara almennt," segir
Bjarki Már.
556 þotur
pantaðar
frá Airbus
París. Reuters.
AIRBUS, flugiðnaðarsamsteypa
Evrópu, segir að hún hafi aldrei
fengið eins margar pantanir og í
fyrra og andvirði þeirra hafi numið
39 milljörðum dollara.
Airbus Industrie fékk fastar
pantanir í 556 farþegaþotur 1998,
færri en Boeing Co sem fékk 656
pantanir að verðmæti 42,1 milljarð-
ur dollara.
Airbus velti 13,3 milljörðum doll-
ara í fyrra og afhenti 229 flugvélar,
en velti 11,6 milljörðum dollara
1997. Óafgreiddar eru pantanir í
1.309 flugvélar að andvirði 92,7
milljarðar dollara, sem er rúmlega
fjögurra ára framleiðsla. Heildar-
verðmæti flugvéla, sem pantaðar
voim í fyrra, jafngildir auk þess
heildarsölu samsteypunnar fyrstu
17 ár starfs hennar, segir í tilkynn-
ingu frá Airbus.
Airbus afhenti 168 mjóar A320
þotur en 127 árið 1997 og 61
A330/340 breiðþotu, samanborið
við 55.
Verðmæti nýrra pantana hjá
Airbus er 30% meira en pantana
1997, er nam 29,6 milljörðum doll-
ara, og 20% fleiri flugvélar hafa
verið pantaðar en 1997, þegar
pantaðar voru 460 flugvélar. Auk
fastra pantana bárust samsteyp-
unni 174 skuldbindingar um 730
pantanir.
Opið laugardag kl. 12-17
*£*&«*&•
/
\
I
I
#
r r
toifliiila
á notuðum bílum í Bílahúsinu
Veruleg verðlækkun.
Kjör við allra hæfi.
Lánum til allt að 60 mánaða og fyrsta afborgun
eftir 3-6 mánuði.
2 fyrstu mánuðirnir eru vaxtalausir.
Visa eða Euro raðgreiðslur til 36 mánaða.
Svo fylgir hverjum bíl nýr GSM sími
Það margborgar sig að skoða
þessa útsölu.
TAL 12 er 12 mánuða GSM áskrift hjá TALI greidd með kreditkorti ^
BÍLAKIÚSHD
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2 • Reykjavík
Símar: 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf 587 7605