Morgunblaðið - 15.01.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 23
ÚR VERINU
Breytingar á lögum um stjórn fískveiða
Nýtt stjórnunarkerfí
krókabáta árið 2000
BREYTINGAR hafa verið gerðar á
lögum um stjórn fiskveiða og voru
þær samþykktar á Alþingi á mið-
vikudag. Lögin sem nú hafa verið
samþykkt á Alþingi hafa hvað mest
áhrif á veiðistjórnun krókabáta, sér-
staklega þeirra sem róið hafa á
sóknardögum. Að öðru leyti eru lög-
in að mestu eins og kveðið var á um
í frumvarpi ríkisstjórnarinnar til
breytinga á lögum um fiskveiði-
stjórnun sem lagt var fram í desem-
ber í kjölfar dóms Hæstaréttar í
kvótamálinu svokallaða. Veiga-
mestu breytingar frumvarpsins
fólust í frelsi til að sækja um og fá
veiðileyfi innan íslensku lögsögunn;
ar og afnámi úreldingarreglna. í
frumvarpinu var einnig kveðið á um
færslu allra krókabáta inn í afla-
hlutdeildarkerfið sem þýddi í raun
að veiðistjórnunarkerfi krókabáta
yrði lagt niður. Þessi þáttur breytt-
ist töluvert í meðförum sjávaiút-
vegsnefndar Alþingis og með breyt-
ingnum verður til nýtt veiðistjórn-
unarkerfi fyrir krókabáta sem kall-
að verður krókaaflamark.
Eins og kveðið var á um í frum-
varpi ríkisstjórnarinnar sem lagt
var fram í desember koma aðeins
þau fiskiskip sem hafa haffærisskír-
teini og eru á skipaskrá Siglinga-
stofnunar íslands eða á sérstaki'i
skrá stofnunarinnar fyrir báta und-
ir 6 metrum til gi'eina við veitingu
leyfa til veiða í atvinnuskyni. í lög-
unum sem samþykkt voru á Alþingi
á miðvikudag er ennfremur kveðið á
um að hvert fiskiskip geti aðeins
haft eina tegund veiðileyfis. Er það
gert til að ekki sé' hægt að róa í öll-
um veiðikerfunum á sama fiskveiði-
ári. Allir geta þannig fengið veiði-
leyfi en verða að ákveða í hvaða
veiðikerfi þeir ætla að vera, að upp-
fylltum öðrum almennum skilyrð-
um. Lögin kveða ennfremur á um
að sjávarútvegsráðherra skipi
nefnd sem endurskoða muni lög um
stjórn fiskveiða og skuli þeirri vinnu
vera lokið fyrir lok fiskveiðiársins
2000/2001.
I dag skiptast ki'ókabátar í tvo
hópa, þorskaflahámarksbáta annai's-
vegai' og sóknardagabáta hinsvegar.
Heildarviðmiðun ki'ókabáta er á
hverju fiskveiðiári 13,75% af ákvörð-
uðum heildarþorskafla landsmanna.
Hlutdeild þorskaflahámarksbáta af
heildarþorskaflanum er 12,64% en
sóknardagabátar 1,01%. Sóknar-
dagabátar hafa hingað til róið í
tveimur kerfum, annarsvegar með
línu- og handfæri en hinsvegar með
handfæri eingöngu. Þar af er hlut-
deild línu- og handfærabáta 0,18%
en handfærabáta 0,93%.
Valið fyrir 1. mars nk.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskistofu lönduðu alls 58 sóknar-
dagabátar sem stunduðu veiðar
með bæði línu og handfæri um 1.741
tonni á fiskveiðiárinu 1997/8, þar af
tæpum 1.582 tonnum af þorski. Af
bátunum 58 fengu 5 bátar yfir 100
tonn á árinu og 25 bátar undir 30
tonna afla, þar af voru 22 bátar und-
ir 10 tonnum og 4 bátar undir einu
tonni.
Alls lönduðu 267 sóknardagabát-
ar sem reru með handfæri eingöngu
um 11.012 tonnum af þorski á síð-
asta fiskveiðiári en um 11.487 tonn-
um að öllum tegundum meðtöldum.
Þar af fengu 154 bátar minna en 50
tonn af þorski og 109 bátar minna
en 30 tonn. 30 bátar í kerfinu fengu
minna en 10 tonn af þorski og 3 bát-
ar fengu minna en eitt tonn.
Samkvæmt nýgerðum breyting-
um verður í upphafi fiskveiðiái'sins
2000/2001 til nýtt veiðistjómunar-
kerfi fyrir krókabáta. Fram til þess
tíma, á yfirstandandi fiskveiðiári og
á fiskveiðiárinu 1999/2000, verður
bátunum gefinn kostur á að aðlag-
Alþingi samþykkti á
miðvikudag breytingar
á lögum um stjórn físk-
veiða. Breytingarnar
snúa einkum að físk-
veiðistj órnunarkerfí
krókabáta og verður
með lögunum í raun til
nýtt kerfi fyrir þá.
Helgi Mar Arnason
rýndi í nýju lögin og
gerir hér grein fyrir
helstu breytingum.
ast kerfinu. Veiðistjórnun þorsk-
aflahámarksbáta helst óbreytt að
loknum aðlögunartímanum, utan
þess að settur verður kvóti á hinar
svokölluðu aukategundir, þ.e. ýsu,
ufsa og steinbít. Veiðistjórnunar-
kei'fi sóknardagabáta breytist hins-
vegar til muna, en nú eru 328
krókabátar í sóknardagakerfinu.
Þeim er samkvæmt nýju lögunum
gert að velja fyrir 1. mars nk. hvort
þeir verða áfram í sóknardagakerfi
eða fara í svokallað krókaafla-
markskerfí. A ki'ókaaflamarki verða
þeir bátar sem áður vom í
þorskaflahámarkskerfi að viðbætt-
um þeim sóknardagabátum sem
velja sér aflahlutdeild. Þorskaflahá-
markskerfi verður þannig ekki til
eftir 1. september árið 2000.
Hvort sem sóknardagabátar velja
krókaaflamark eða sóknardaga
munu báðir hópar róa á sóknardög-
um á aðlögunartímanum. Þeir fá út-
hlutað 40 sóknardögum á yfirstand-
andi fískveiðiári og á því næsta en
hámarksafli hvers báts má þó aldrei
fara yfir 30 tonn, líkt og gert var
ráð fyrir í frumvarpinu frá því í des-
ember. Bátar sem hafa veitt með
handfæri og línu og vilja gera svo
áfram hafa úr 32 sóknardögum að
moða og sama aflahámark velji þeir
þessa leið.
Að loknum aðlögunartímanum
eru sóknardagabátar sem völdu
krókaaflamark komnir með kvóta-
setningu í þorski og verður kvóti
þeirra ákvarðaður út frá reynslu
þeirra í núverandi sóknardagapotti.
Hlutdeild bátanna verður ákvörðuð
þannig að 80% verða miðuð við afla-
reynslu á fiskveiðiárunum 1996/
1997 og 1997/1998 en 20% miðuð við
reiknað þorskaflahámark eða veiði-
reynslu á almanaksárunum 1992,
1993 og 1994. Miðað við þessa út-
reikninga og aflareynslu þessara
báta munu þeir fá úthlutað í
minnsta lagi 500 kílóum þegar þeir
ganga inn í krókaaflamarkskerfið
en í mesta lagi 32 tonnum.
Aukategundir
kvótasettar
Heildar ýsu-, ufsa- og stein-
bítsafla bátanna verður skipt jafnt á
allan hópinn, að undanskildum þeim
bátum sem stundað hafa veiðar í
línu- og handfærakerfi en hlutdeild
þeirra í þessum tegundum verður
ákvörðuð. Hlutdeild þorskaflahá-
mai'ksbáta í aukategundum verður
miðuð við veiðireynslu tveggja
bestu áranna 1996, 1997 og 1998 en
áður en tvö bestu árin eru ákvörðuð
er árið 1998 tvöfaldað.
Krókabátum sem velja krókaafla-
mark verður úthlutað aflahlutdeild
samkvæmt þessum reglum í upp-
hafi fiskveiðiársins 1999/2000 þó svo
að þeir hefji ekki veiðar samkvæmt
reglunum fyrr en á fiskveiðiárinu
þar á eftir.
Þeim bátum sem kjósa að róa
áfram á sóknardögum eftir 1. sept-
ember árið 2000 er úthlutað 23
sóknardögum og verður aðeins
heimil sókn á tímabilinu frá 1. apríl
til 30. september ár hvert og mega
þeir eingöngu fiska á handfæri.
Sjávarútvegsráðherra er þó heimilt
að veita leyfi til annarra sérhæfðra
veiða, s.s. á grásleppu. Ekkert þak
verður á afla hvers báts á ári en
dögum getur fækkað eða fjölgað
eftir heildarveiði hópsins á hverju
ári. Fjöldi sóknardaga fyrir hvert
fiskveiðiár er fundinn út með því að
reikna meðalþorskafla á hvem
sóknardag fiskveiðársins á undan
og deila honum í heildarþorskafla
bátanna. Sóknardögum getur þó
ekki fækkað um meira en 25% milli
fiskveiðiára.
Sóknardagar verða
framseljanlegir
Eftir aðlögunartímann verður
framsal sóknardaga heimilt, innan
hvers fiskveiðiárs eða varanlega.
Misjafnt er þó eftir bátum hve
margir af sóknardögum þeirra
verða framseljanlegir en það fer
eftir því hve mikið bátunum hefur
verið haldið til veiða á síðustu
tveimur fiskveiðiárum. Hafi bátur
þannig ekki nýtt neinn sóknardag
síðustu tvö fiskveiðiár er honum
ekki heimilt að framselja neinn af
þeim 23 sóknardögum sem honum
verður úthlutað að loknum aðlögun-
artímanum. Hafi hann hinsvegar
nýtt helming daganna síðustu tvö
ár, getur hann framselt helminginn.
Hafi þeir fullnýtt alla sóknardagana
mega þeir framselja alla dagana í
nýja kerfinu. Séu sóknardagar
framseldir, skerðast þeir dagar sem
ekki eru framseldir. Ef bátur sem
sóknardagar eru fluttir til er stærri,
í tonnum talið, en sá bátur sem dag-
arnir eru fluttir af, skerðast fluttir
dagar í hlutfalli við stærðarmun
bátanna. Á sama hátt fjölgar sókn-
ardögum sem fluttir eru til minni
báts af stærri.
Samkvæmt nýju lögunum er
heimilt að stækka krókabáta sem
velja krókaaflamarkskerfið upp fyr-
ir 6 tonn. Hinsvegar er bannað að
kaupa stærri báta inn í kerfið. Þetta
gæti til dæmis auðveldað þeim bát-
um sem hingað til hafa verið á sókn-
ai'dögum, en velja sér nú að ganga
inn í krókaaflamarkið, að sameina
aflaheimildir tveggja báta á einn,
enda má búast við að sú aflareynsla
sem þeir taka með sér úr sóknar-
dagakerfinu nægi ekki ein og sér
fyrir einn bát, ætli menn að hafa
veiðarnar að atvinnu.
Líklegt að potturinn
minnki
I nýju lögunum er kveðið á um að
á fiskveiðiárunum 1999/2000 til og
með 2005/2006 skuli árlega úthluta
4.000 lestum af þorski til báta sem
höfðu aflahlutdeild 1. desember
1998 og eru undir 200 brúttótonn-
um. Undanskilið eru 601 tonn sem
úthlutað verður í heildai-pott þeirra
báta sem nú eru í sóknardagakerfi.
Leyfilegur hámarksafli þeirra báta
sem velja að halda áfram að róa á
sóknardögum verður þannig á yfir-
standandi fiskveiðiári um 3.400
tonn. Þessi tala mun að öllum Iík-
indum skerðast vegna þess að þeir
bátar sem velja að fara inn í króka-
aflamark taka aflareynslu sína með
sér úr þessum potti.
Þá mun Byggðastofnun hafa um
1.500 þorskígildistonn til ráðstöfun-
ar á hverju ári á fiskveiðiárunum
1999/2000 til og með fiskveiðiársins
2005/2006 til að styðja byggðarlög
sem lent hafa í vanda vegna sam-
dráttar í sjávarútvegi og verður
heimildunum úthlutað í samráði við
sveitarstjórnir.
ISTUfi
Hefurðu prófað
ostateninga í salatið?
Þú getur notað hvort sem er 11% eða 17%
Gouda til að búa til salat sem erfullkomin,
létt máltíð. Einnigfæst sérstakur Salatostur
tilbúinn í litlum teningum.
LéttOstur
Hreinn, tneð grænmeti eða með sjávarréttum.
Frábært tríó á léttu nótunum.
Smurostamir eru þægilegt, bragðgott
álcgg og líka spennandi í ofnrétti og sósur,
t.d. meðfiski, pasta eða grænmeti.
Kotasæla
með eplum og vanillu.
Fitulítil og freistandi!
Fjölbreytt
úrval
LéttOstur
í 20 g pakkningum.
Handiiægur og fitidítill.
Kotasæla
Lágt fituinnihald ogfáar hitaeiningar!
Hrein, með ananaskurli eða með eplum
og vanillu. Sígild á brauð, hrökkbrauð
og kex, í salöt eða ofnrétti.
Sannkallaður veisluostur.
Léttur og góður með brauði, kexi
ogferskum ávöxtum.
ÍSLENSKIR W,
OStar^ yI
v^inas?* yy
® , ■
W www.ostur.is