Morgunblaðið - 15.01.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ógleymanleg stund í Iðnó
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1999 27
beri að leggja slíka yfirlýsingu fram
árlega. Þá fór þingið ennfremur
fram á, að meðlimum og starfsmönn-
um framkvæmdastjórnarinnar yrðu
settar skýrar hegðunarreglur, þar á
meðal reglur um það hvernig menn
veljast í stöður og embætti. Nokkrir
ættingjar og vinir núverandi fram-
kvæmdastjórnai-fulltrúa eru eins og
er í góðum stöðum innan embættis-
mannakei'fisins í Brussel.
„tílfurinn sýndi tennurnar"
Gil-Robles þingforseti sagði á
blaðamannafundi um hlutverk Evr-
ópuþingsins: „Úlfurinn sýndi tenn-
urnar, en beit ekki“. Næst muni
hann bíta.
Patriek Cox, formaður þingflokks
frjálslyndra, sem var meðal helztu
aðstandenda vantrauststillögunnar
sem atkvæði voru greidd um, sagði
að það yrði að breyta ákvæðum
stofnsáttmála ESB þannig, að þingið
gæti dregið einstaka meðlimi fram-
kvæmdastjórnarinnar til ábyi-gðar.
Eina leiðin sem þinginu er fær sam-
kvæmt reglunum eins og þær eru til
að „tukta“ framkvæmdastjórnina er
að lýsa vantrausti á hana í heild, og
það með tveimur þriðju atkvæða.
Þegar upp er staðið, eftir þriggja
daga harkalega togstreitu milli þess-
ara tveggja meginstofnana ESB
(sem átti sér reyndar nokkurra
vikna aðdraganda), gengur fram-
kvæmdastjórnin af hólmi særð en
ekki vegin. Sumir Evrópuþingmenn
sögðu að niðurstaðan markaði upp-
haf nýs þroskaskeiðs lýðræðislegrar
ábyrgðar í stjórnkerfi ESB.
Menn vona að framkvæmdastjórn-
in sé þó ekki særðari en svo, að hún
sé fær um að halda starfi sínu áfram
á mjög mikilvægu skeiði í sam-
runaþróun Evrópu. Aðildaníkin
fimmtán hafa sett sér að ná sam-
komulagi fyrir lok marzmánaðar um
uppstokkun fjáriaga- og sjóðakerfis
sambandsins, en sú uppstokkun er
nauðsynleg til að búa í haginn fyrir
tilvonandi fjölgun aðildarríkja. Ger-
hard Schröder, kanzlari Þýzkalands,
sem þetta misserið gegnir for-
mennsku í ráðherraráði ESB, sagði í
gær að nauðsynlegt væri að drífa
þetta umbótaátak af; fyrr væri ekki
hægt að opna dymar fyrir inngöngu
þeirra ríkja sem bíða hennar
óþreyjufull.
Tafland
Flugstjórinn
sá ekki flug-
brautina
Bangkok. Reuters.
FLUGMAÐUR flugvélar Thai
Airways, sem brotlenti í Taílandi í
desember með þeim afleiðingum að
101 fórst, sá ekki flugbrautina er
hann kom inn til lendingar. Þetta er
haft eftir mönnum sem koma
nálægt rannsókn á orsökum flug-
slyssins.
Flugvélin, sem var af gerðinni
Airbus A310-200 og hafði innan-
borðs 146 manns, brotlenti í fenja-
lendi við slæm veðurskilyrði stuttu
eftir að flugmaðurinn hafði ákveðið
að gera þriðju tilraun til að lenda á
flugvellinum í Surat Thani, en flug-
vélin var að koma frá Bangkok.
Mun hljóðriti vélarinnar staðfesta
að flugmaðurinn kvartaði yfir
slæmu skyggni stuttu áður en vélin
skall á jörðinni. I vikunni birti dag-
blað í Taílandi hluta af samskiptum
flugstjórans við flugturninn í Surat
Thani. „Ég sé ekki flugbrautina
ennþá. Bíðið eitt augnablik," sagði
flugmaðurinn í annarri lendingartil-
raun sinni. Er hann var spurður
hvort hann hygðist reyna þriðja
sinni að lenda vélinni svaraði hann:
„Já, ég ætla að reyna aftur.“
Blindflugslendingar-
búnaður aftengdur
Fulltrúar taílenskra stjórnvalda
upplýstu í síðasta mánuði að slökkt
hefði verið á um helmingi lending-
arljósa á flugvellinum, og að þannig
hefði verið síðustu tvo mánuðina áð-
ur en slysið átti sér stað. Ekki hefur
enn fengist útskýrt hvers vegna
slökkt var á ljósunum. Þar að auki
var ekki á staðnum blindflugslend-
ingarbúnaður, sem aðstoðar flug-
menn við lendingu í slæmum veður-
skilyrðum. Umfangsmiklar endur-
bætur hafa verið í gangi á flugvell-
inum og mun blindflugslendingar-
búnaðurinn hafa verið aftengdur af
þeim sökum.
bornar upp. Sýndu þingmenn af-
stöðu sína til hverrar tillögu með því
að stinga hendi ofan í þar til gerða
rifu á borðum sínum og þrýsta þar á
hnapp. Til áhersluauka réttu þeir
hins vegar jafnframt flestir upp
hönd eða bentu þumlinum niður til
að afstaða þeirra færi örugglega
ekki á milli mála.
Spruttu á fætur
Þegar þessu var lokið var gert
nokkurra mínútna hlé á þingstörfum
áður en gengið var til atkvæða um
sjálfa vantrauststillöguna. Hún tók
ekki langan tíma og héldu margir
niðri í sér andanum á meðan José
Maria Gil-Robles þingforseti las upp
niðurstöður atkvæðagreiðslunnar.
Þær höfðu ekki fyrr verið birtar en
þingmenn spruttu á fætur og geyst-
ust út úr þingsalnum áfjáðir í að tjá
sig við fjölmiðla. Framkvæmda-
stjórnin, sem mætt var í heild sinni,
lét sig þar á móti hverfa.
Viðbrögðin voru vægast sagt
blendin. Sumir þingmenn spurðu
sjálfa sig hvernig fjölmiðlar myndu
túlka niðurstöðuna. Flestir voru á
því að jafnt framkvæmdastjórn sem
þingið hefðu annaðhvort „tapað“ eða
unnið „varnarsigur“. Niðurstaðan
væri jafntefli, hvernig sem á málið
væri litið. „Það er ekki búið að setja
punkt fyrir aftan málið, heldur
kommu,“ sagði Patrick Cox, tals-
maður frjálslyndra, en þeir greiddu
langflestir atkvæði með vantraust-
stillögunni. Þrátt fyrir að fylking
frjálslyndra hefði beðið lægri hlut
hefði þó markmið málarekstursins
náðst að hluta að mati Cox.
Pauline Green sagði hins vegar
niðurstöðuna hafa verið „spark í aft-
urenda framkvæmdastjórnarinnar"
og að Santer hefði staðfest það sjálf-
ur í ávarpi sínu fyrr um daginn.
Nokkrir þingmenn voru á því að
atkvæðagreiðslan um málið allt
hefði styrkt stöðu þingsins, fram-
kvæmdastjórnin yrði að taka aukið
tillit til þess í framtíðinni.
Græninginn Per Gharton sagðist
hins vegar telja að báðar stofnanirn-
ar hefðu veikst, ekki síst þingið, þar
sem málið hefði ekki náð alla leið.
„Það var hneyksli hvernig sósíalist-
ar héldu á málum, lögðu tillöguna
fram og drógu svo aftur til baka,“
sagði Gahrton. Hann kvaðst telja að
þeir sem greitt hefðu atkvæði gegn
tillögunni hefðu verið að lýsa yfir
beinum stuðningi við framkvæmda-
stjórnina. Santer hefði sjálfur sagt í
samtölum við þingið skömmu fyrir
atkvæðagreiðsluna að þannig myndi
hann túlka niðurstöðuna.
Áhrif á næstu
framkvæmdastjórn?
Margir þingmenn lýstu yfir þeirri
von að málið allt hefði áhrif á val
næstu framkvæmdastjórnarinnar en
lýstu jafnframt yfir efasemdum um
að sú yrði raunin, þótt umboð ein-
hverra yrði eflaust ekki endurnýjað.
Menn vildu lítið tjá sig um hugsan-
leg áhrif á Evrópukosningar sem
haldnar verða í vor. Kjósendur ættu
flestir hverjir erfítt með að gera
greinarmun á framkvæmdastjórn-
inni og Evrópuþinginu. Þá lýstu
nokkrir þingmenn yfir efasemdum
með óháðu nefndina sem kanna á
spillingu innan framkvæmdastjórn-
arinnar.
„Mér virðist þetta vera ótrúleg
blanda af pólitík og óháðu nefndar-
starfi. Ég fæ ekki séð hvernig
nefndin á að verða óháð vegna hinna
beinu pólitísku afskipta þingsins af
henni,“ sagði Heidi Hautala, finnsk-
ur þingmaður Græningja. Hún sagði
niðurstöðuna milliveg, sem fram-
kvæmdastjórnin gæti ekki verið
ánægð með, þar sem sett hefði verið
ofan í við hana. Hins vegar mætti
ekki gleyma því að þingið ætti ekki
að vera dómstóll, heldur löggjafar-
samkunda.
D.L. Coburn
Rommí
áhorfendurog
"...bráðskemmtilegt, tragikómík af bestu ge
S.A.B. Mbl.
...áminning um hvað leikhús er" G.S. Dagur
"Guðrún Ásmundsdóttir náði svo fullkomlegu valdi
á persónunni að hún sendi hroll niður bakio á
manni"5.A DV.
"Stjarna sýningarinnar er Erlinqur Gíslason sem átti
sannkallaðan stórleik í hlutverki Wellers" G.S.
Dagur.
"Éq á von á því að sýningin muni ganga lengi fyrir
fullu húsi og fyrir mína parta mæííég með henni"
S.A.B. Mbl.