Morgunblaðið - 15.01.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15, JANÚAR 1999 33
LISTIR
Morgunblaðið/Björn Blöndal
GUÐBJORG Ingimundardóttir formaður Menningar- og safnaráðs
Reykjanesbæjar afhendir Guðleifi Sigutjónssyni Súluna - menningar-
verðlaun Reykjanesbæjar fyrir árið 1998.
Súlan afhent í
Reykjanesbæ
Keflavík. Morgunblaðið.
Fjöll og krossar
MENNINGARVERÐLAUN
Reykjanesbæjar fyrir árið 1998
hafa verið aflient. Verðlaunastytt-
umar kallast Súlan sem er jafn-
framt tákn Reykjanesbæjar og er
veitt einstaklingi fyrir björgun og
varðveislu menningarverðmæta og
einu fyrirtæki fyrir velvild og fjár-
hagslegan stuðning við menningar-
lífið í bænum. Guðleifur Sigurjóns-
son hlaut einstaklingsverðlaunin
fyrir ómetanlegt starf í sjálfboða-
vinnu árum saman við björgun
menningarverðlauna á svæðinu og
Sparisjóðurinn í Keflavík hlaut fyr-
irtækjastyrkinn.
Við þetta sama tækifæri voru
einnig afhentir styrkir til einstak-
linga og félaga. Þeir einstaklingar
sem hlutu styrki voru: Sigurður
Sævarsson til að fullvinna óperuna
Z-ástarsaga í samvinnu við Vigdísi
Grímsdóttur rithöfund og Asta
Amadóttir myndlistarmaður vegna
myndlistarsýningar í Hafnarfirði.
Þau félög sem hlutu styrki vom:
Leikfélag Keflavíkur til að setja
upp leiksýningar og Félag mynd-
listarmanna fékk við þetta tækifæri
afhentan leigusamning til 5 ára um
húsnæðið við Hafnargötu þar sem
félagið hefur nú aðstöðu.
MYJVPLIST
II a 11 grfmski rkja
MÁLVERK
ÞORBJÖRG HÖSKULDSDÓTTIR
Opið alla daga á tíma kirkjunnar. Til
18. febrúar. Aðgangur ókeypis.
LISTVINAFÉLAG Hallgríms-
kirkju heldur áfram þeim góða sið
að bjóða nafnkenndum listamönn-
um að sýna í anddyri
kirkjunnar, og er af
þeim drjúg prýði. Með
því að skipta reglu-
lega um myndir öðlast
anddyrið hverju sinni
nýtt yfirbragð, sem
má vera kirkjugestum
góð tilbreytni.
A stundum eru
þetta myndir trúar-
legs eðlis, skara trú-
arleg tákn og biblíu-
leg myndefni, en hér
má einnig ganga of
langt, því að litir og
form bera einnig í sér
upphafin skilaboð sem
lesa má í og mikil
listaverk eru guðdóm-
ur í sjálfu sér, óað-
skiljanlegur hluti
sköpunar og kraftbirt-
ings. Það vill stundum
gleymast að við erum
vaxin upp úr myrkum miðöldum,
er almenningur var ólæs, skreyti í
kirkjum eins konar myndasögur
og sjónræn skilaboð. En þessi hefð
hefur reynst mjög lífsseig eins og
víða blasir við og margur viður-
kennir enn í dag ekki annars konar
list í kirkjur, telur hana jafnvel af
hinu illa. Þó hefur það komið í ljós
að framsækin samtímalist fellur
þegar best lætur frábærlega vel að
fomum guðshúsum, og hvergi kom
það betur fram en í Þýskalandi eft-
ir stríð, þá verið var að reisa kirkj-
ur upp úr rústum síðari heims-
styrjaldarinnar og hafði víðtæk
áhrif.
Það má gjarnan minna á þetta,
því vissulega er guðdómur falinn
þeim 7 málverkum Þorbjargar
Höskuldsdóttur, sem nú hanga
uppi, þótt ekki séu krossar og
beinar trúarlegar skírskotanir
nema £ einu þeirra.
Þorbjörg er einn þekktasti mál-
ari sinnar kynslóðar og einkenni
listar hennar hafa fram að þessu
verið að flísaleggja hálendið, sem
þó er meira skírskotun til eldri
hefða í myndlist en að það feli í sér
einhver bein og ótvíræð skilaboð
framyfir hið fagurfræðilega, nema
kannski að vekja til umhugsunar
og þannig séð gott mál.
Fátt hefur breyst í list Þor-
bjargar um áratuga skeið, sem er
engin áfellisdómur, en það var eins
og kenna mætti nokkur þreytu-
merki á sýningu hennar í listhús-
inu Fold á sl. ári. Þó renndi mann í
grun að þetta gæti verið millibilsá-
stand og uppörvunar væri þörf.
Þetta hefur svo
reynst rétt, því lista-
konan hefur sjaldan
mætt ferskari til leiks
en í þessum nýju
myndum sínum. AIls
óhrædd færist hún
mikið í fang og upp-
sker eftir því. Mynd-
verkin hnitmiðuð í
byggingu og frá þeim
stafar ferskleika æsk-
unnar, eins og í allri
gildri list hve gömul
sem hún annars kann
að vera að árum.
Dettifoss sýnist þó
nokkurt hliðarspor
um nákvæmni í
myndbyggingu, og
hliðarspor teljast líka
gluggarnir fjórir, en
þó af gæfuríkari teg-
undinni og þar merkj-
ast mikil átök að baki
einfaldrar byggingar. Meginmáli
skiptir að heildarsvipurinn er afar
sterkur þegar inn er komið, hér er
líkast sem tekið sé þéttingsfast í
hönd gestsins og hann boðinn vel-
kominn í hús Guðs.
Bragi Ásgeirsson
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
SKRIÐJÖKULL, olía á léreft, 125 x 125 cm, 1992.
Sunnudaginn 1 7. janúar
Kl. 13.30 - 14.30
Opinn borgarafundur
STUÐNINGSMENN
Aðgangur ókeypis
og öllum heimill
meðun húsrúm leyfir
HORNAFLOKKUR REYKJAVÍKUR
þeytir lúðra sina
HÖFUOMÁUN FiMM
Jakob Frímann Magnússon kynnir stefnumið sín
HALLGRÍMSKViOA
Hallgrimur Helgason skóld og myndlistarmaður
EiNSÖNGUR
Bergþór Pálsson flytur tvö lög