Morgunblaðið - 21.02.1999, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Spenna eykst í bandarískum stjórnmálum
Er tími
kvenna
kominn?
BAKSV,Ð
Vera kann að eiginkonur tveggja þekkt-
ustu stjórnmálamanna Bandaríkjanna
verði í framboði árið 2000. Ásgeir Sverris-
son segir frá vangaveltum um að þær Hill-
ary Clinton og Elizabeth Dole hyggist
stíga út úr skugga eiginmanna sinna og
gera atlögu annars vegar að öldungadeild-
inni en hins vegar að sjálfu Hvíta húsinu.
UTLIT er fyiir að konur
verði venju fremur áber-
andi í bandarískri stjóm-
málaumræðu næstu miss-
erin. Tvær mjög þekktar konur, sem
teljast í þungavigtarflokki í banda-
rískum stjómmálum, hafa gefið til
kynna að þær hyggist láta til sín taka
í kosningunum haustið 2000. Hér
ræðir um þær Hiliary Clinton, eigin-
konu Bandaríkjaforseta, og Eliza-
beth Dole, eiginkonu Bobs Dole, sem
Clinton lagði að velli í forsetakosn-
ingunum árið 1996.
Hugsanlegt framboð þessara
kvenna hefur þegar kailað fram mikl-
ar umræður og vangaveltur í Banda-
ríkjunum. Hillary Clinton staðfesti í
liðinni viku að hún væri að hugleiða
framboð í kosningunum árið 2000 en
samstarfsmenn hennar og aðdáendur
munu nú þrýsta ákaft á hana um að
gefa kost á sér þá um haustið. Er þá
horft til kosninga til öldungadeildar-
innar í New York-ríki en hvert hinna
50 ríkja Bandaríkjanna á tvo fulltrúa
í þessari deild þingsins.
Fáni Dole á Ioft á ný?
Elizabeth Dole er vitanlega ekki
jafn þekkt utan Bandaríkjanna en
hún á athyglisverðan feril að baki
auk þess sem hún hefur jafnan stutt
eiginmann sinn Bob Dole dyggilega á
stjómmálabrautinni. Ummæli frú
Dole á síðustu vikum gefa til kynna
að hún sé alvarlega að hugsa um að
gefa kost á sér í forkosningum
Repúblíkanaflokksins í því augnamiði
að verða útnefnd frambjóðandi
flokksins í forsetakosningunum árið
2000. Frúin kann þess vegna að taka
upp merki eiginmannsins, sem ítrek-
að sóttist eftir húsbóndavaldi í Hvíta
húsinu en hefur nú dregið sig í hlé.
Sjálf hefur Elizabeth Dole ekki
lýst því yfir með óyggjandi hætti að
hún hyggist sækjast eftir útnefningu
flokksins en framganga hennar öll er
hins vegar til mai-ks um að hún hafi
slíkt í undirbúningi. í janúar til-
kynnti frú Dole að hún ------------
hefði afráðið að segja af
sér embætti forseta
Rauða kross Bandaríkj-
anna og hún hefur verið
óvenju mikið á ferðinni í
New Hampshire-ríki en þai- hefjast
að öllu jöfnu prófkjör Repúblíkana-
flokksins. Gott gengi í New Hamps-
hire hefur löngum verið talið eitt
helsta skilyrði þess að frambjóðandi
geti gert sér vonir um að standa uppi
sem fulltrúi flokks síns í forsetakosn-
ingum.
Fyrr í mánuðinum fluttí Elizabeth
Dole ræðu í New Hampshire, sem
erfitt var að túlka með öðrum hætti
en þar færi frambjóðandi til embætt-
ráðgáta
ast verðugui- andstæðingur ákveði
hún að fara fram. Skoðanakannanir
gefa t.a.m. til kynna að hún myndi
sigra A1 Gore, núverandi varaforseta
Clintons, sem allt bendir til að verði
fulltrúi Demókrataflokksins.
Elizabeth Dole gæti vafalaust sótt
verulegt fylgi til kvenna, sem reynst
hafa tryggir kjósendur demókrata í
undangengnum forsetakosningum.
Ýmislegt bendir til þess að Gore eigi
undir högg að sækja í þeim herbúð-
ELIZABETH Dole ræðir við fréttamenn er hún var á ferð í New Hampshire á dögunum.
Reuters
is forseta. Opinberlega átti ræðan að
vera eins konar kveðjuávarp hennar
til Rauða krossins, sem hún hafði
stýrt frá 1991, en frú Dole kaus að
nota tækifærið og fjalla um fram-
göngu sína í embætti á mjög svo póli-
tískum nótum. Hógværðin reyndist
ekki vefjast fyrir henni er hún rifjaði
upp framgöngu sína í embætti for-
seta Rauða krossins, sem hún lýsti
sem þrotlausri sigurgöngu stofnun-
arinnar og hafði þar raunar nokkuð
til síns máls.
Dugleg og hæfur stjórnandi
Víst má heita að frammistaða
hennar í þessu embætti verðm- tekin
til rækilegrar skoðunar ákveði hún
að fara fram. Almennt virðist fjái-
hagur Rauða krossins bandaríska
hafa vænkast í forsetatíð hennar en
hins vegar er hún vænd um að hafa
ráðið fyrrum pólitíska samherja í
margvísleg embætti innan samtak-
anna auk þess sem hún þykir um of
hafa treyst á persónuleg tengsl sín
við valdamenn og auðkýfinga til að fá
þá hinu sömu til að láta fé af hendi
rakna til starfseminnar.
Þá halda andstæðingar frúarinnar
því fram að hún hafi úr hófi fram nýtt
sér embættið til að treysta og fegra
ímynd sína. Þetta hafi hún aukin-
heldur augljóslega gert til að auka
möguleika sína á hinum pólitíska
leikvelli. Hún hafi skipulega forðast
að nafn hennar væri bendlað við
nokkuð það sem talist gæti „óþægi-
legt“ í rekstri Rauða krossins. Aðdá-
endur hennar fullyrða hins vegar að
leitun sé að hæfari stjórnanda og
undir það hafa ýmsir, sem ekki fylla
þann flokk, neyðst til að taka.
Reynsla hennar er enda mikil og
Elizabeth Dole hefur sýnt og sannað
að þar fer greind kona og hæf á
mörgum sviðum.
Enn liggur ekki fyrir hveijir
hyggjast gefa kost á sér í forkosning-
um Repúblíkanaflokksins vegna for-
setakosninganna. Margir þekktii-
--------- menn hafa verið nefndir til
Elizabeth Dole sögunnar m.a. George
er mörgum Bush ynfTÍ og Dan Qu-
ayle, fyrrum varaforseti.
Ljóst er hins vegar að
Elizabeth Dole mun reyn-
HILLARY Clinton hefur stutt
dyggilega en kann nú að hyggja
feril í stjóramálum.
um enda þykir maðurinn í meira lagi
„trénaður“ og heldur ólíklegur til að
vekja hamslausan pólitískan áhuga.
Þá gætu störf Elizabeth Dole fyrir
Rauða krossinn komið að gagni við
að vinna hylli innflytjenda og minni-
hlutahópa, sem sífellt verða áhrifa-
meiri í bandarískum stjómmálum.
Þótt allt það sem hér á undan hef-
ur verið rakið geti aðeins fallið undfr
vangaveltur má fullyrða að framboð
af hálfu Elizabeth Dole myndi teljast
til stóratburða í bandarískri stjórn-
málasögu. Menn hafa oft velt því fyr-
ir sér hvaða ástand þurfi að ríkja í
Bandaríkjunum til þess að kona verði
kjörin forseti. Viðhorfsbreyting virð-
ist hafa átt sér stað ef marka má ný-
lega Gallup-könnun hvar 82% að-
spurðra kváðust tilbúin til að greiða
konu atkvæði sitt væri hún sannan-
lega hæf til að gegna embætti þessu.
Djásnin í kórónunni
Báðar hafa þessar konur, þær Hill-
ary Clinton og Elizabeth Dole, staðið
þétt að baki eiginmanna sinna í póli-
tískri baráttu þeirra. Heimsbyggð-
inni allri er kunnungt um hollustu
Hillary Clinton við eiginmann sinn og
frú Dole hefur í gegnum tíðina líkt og
forsetafrúin verið talin helsta djásnið
í kórónu Bob Dole. Þessar konur eru
þó um flest ólíkar þótt metnaðurinn
virðist sameina þær. Frú Dole á
þannig að baki sjálfstæðan stjóm-
málaferil á meðan Hillary Clinton
hefur staðið í skugga bónda síns þótt
enginn efist um pólitíska hæfileika
hennar og skriðþunga að tjaldabaki.
Elizabeth Dole er 62 ára og hefur
síðustu 30 árin verið virk á stjóm-
málasviðinu. Ferill hennai' hófst í for-
setatíð Lyndons Johnsons en hún
gegndi síðar embættum ráðherra at-
vinnu- og samgöngumála í forsetatíð
þeirra Ronalds Reagans (1981-1989)
og George Bush (1989-1992).
Frú Dole hefur verið borin saman
bónda sinn
á sjálfstæðan
við Margaret Thatch-
er, íyrrum forsætis-
ráðherra Bretlands.
Líkt og ,járnfrúin“
kemur hún úr flokki
hægra megin miðj-
unnar og hún virðist
með sama hætti og
frú Thatcher fær um
að rjúfa hefðir t.a.m.
þá að konur geti ekki
gert sér vonir um að
ná alla leið á toppinn í
stjórnmálum. Frá
Dole þykir ágætlega
sjónvarpsvæn og sagt
er um hana að hún
búi í óvenju ríkum
mæli yfir persónu-
töfrum suðurríkjabú-
ans (faðir hennar var
ágætlega stæður
blómasali í Salisbui'y
í Norður-Karolínu).
Hún þykii' einnig orð-
heppin vel og sló í
gegn er hún tók undir
með bónda sínum að
getuleysislyfið Viagra
væri ,frábært lyf ‘ en
áður hafði Bob Dole
lýst yfir því að hann
gæti vel hugsað sér
að kynnast virkni þess af eigin raun.
Líkt við Reagan 1964
Mikla athygli vakti, er frá Dole
flutti ræðu sem þótti mögnuð á
flokksþingi repúblíkana í San Diego
árið 1996 þegar útnefning eigin-
manns hennar var staðfest. Var
frammistaða hennar borin saman við
fræga ræðu, sem Ronald Reagan
flutti á flokksþinginu 1964 og vakti
m.a. vangaveltur um hvort hann
hefði reynst heppilegri frambjóðandi
en Barry Goldwater, er þá fór fram
fyrir flokkinn. Vera kann að þessi
samanburður eigi eftir að reynast
réttmætur og fráin reynist eins og
Reagan forðum sterkari fi'ambjóð-
andi en eiginmaðurinn.
Elizabeth Dole hefur hins vegar
aldrei boðið sig fram til að gegna
pólitísku embætti og efasemdir eru
um að hún myndi fá þolað það mikla
álag, sem slíku fylgir. Stuðnings-
menn hennar gera lítið úr þessari at-
hugasemd og benda á að hún hafi
öðlast mikla reynslu við hlið eigin-
mannsins, sem bauð sig þrívegis
fram í því skyni að verða frambjóð-
andi Repúblíkanaflokksins og tapaði
fyrir Bill Clinton 1996 eftir að hafa
loks náð þessu markmiði.
Bob og Elizabeth Dole
hafa verið gift í 23 ár og
sjálfur hefur öldunga-
deildarþingmaðurinn fyrr-
verandi sagt að draumur
hans um að flytja í Hvíta húsið geti
enn ræst því hann geti vel hugsað sér
að fylgja eiginkonunni þangað. Ætla
mætti að Dole, sem er 14 árum eldri
en eiginkonan, væri búinn að fá sig
fullsaddan af stjómmálum en menn,
sem nærri þeim standa, fullyrða að
hann geti vel hugsað sér að taka slag-
inn einu sinni enn.
Frá Dole er mörgum ráðgáta. Hún
er barnlaus, trárækin mjög og sagt
er að hún hafi engin áhugamál. Hún
82% eru tilbú-
in að kjósa
konu forseta
er lögfræðingur að mennt frá Har-
vard og sagan segir að móðir hennar
hafi kastað upp er hún kunngjörði
henni að hún hygðist leggja út í það
nám. Móðirin ku hafa vonað að hún
fetaði aðrar og hefðbundnari leiðir
með tilheyrandi bameignum og hús-
móðurstörfum.
í pólitískum efnum þykir ekki fylli-
lega ljóst hver heimspeki Elizabeth
Dole er. Hún hefur verið heldur
ófmmleg í umræðuefnum sínum,
rætt nokkuð nauðsyn þess að lækka
skatta og bæta menntakerfið. Hins
vegar vitna menn óspart til reynslu
hennai’ af fjáröflunarstarfi fyrir
Rauða krossinn bandaríska enda
ljóst að frambjóðandi sem ekki nær
að safna minnst 20 milljónum dollai’a
(um 1.400 milljónum króna) getur
tæpast gert sér vonir um að hljóta
útnefningu flokksins.
I forustuhlutverki
Þegar horft er yfii' sviðið bendir
ýmislegt til þess að tími kvenna sé að
renna upp í bandarískum stjórnmál-
um. Madeleine Albright hefur undan-
farin ár gegnt embætti utanríkisráð-
herra og þannig orðið sú kona, sem
formlega hefur haft mest vald í
stjómmálasögu Bandaríkjanna.
Skriðþungi kvenna á þingi hefur
sömuleiðis farið vaxandi auk þess
sem Hillary Clinton hefur verið iðin
við að halda fram „kvenlegum“
áhersluatiiðum í valdatíð eiginmanns
síns í Hvíta húsinu. Á þetta ekki síst
við um félagsmál, heilbrigðis-, trygg-
inga- og menntamál en á öllum þess-
um stóm og sífellt mikilvægari svið-
um hafa konur tekið forustuna í póli-
tísku tilliti. Skyndilega virðist sú
hugmynd að kona ráði ríkjum í Hvíta
húsinu ekki jafn fjarlæg og áður. Að
auki verður þess vart í könnunum að
kjósendur séu í auknum mæli tilbún-
ir til að styðja frambjóðanda, sem á
einhvern hátt er fallinn til að rjúfa
pólitískar hefðfr og skapa áhuga.
,Aldamótaandinn“ kann einnig að
hafa þar einhver áhrif.
Vangaveltur um framboð þeirra
Hillary Clinton og Elizabeth Dole
hafa þegar haft vemleg áhrif. Þannig
þykir líklegt að verði frambjóðendur
flokkanna tveggja báðir karlmenn
muni þeir íhuga vandlega þann
möguleika að fá sterka kvenfram-
bjóðendur í embætti varaforseta.
Ekkert verður að svo stöddu full-
yrt um möguleika þessara tveggja
kvenna ákveði þær að fara fram. Við
blasfr t.a.m. að Hillary Clinton
myndi þurfa að sigrast á
margvíslegum erfiðleik-
um, ekki síst fjárhagsleg-
um, ákvæði hún að sækj-
ast eftir þingsæti. And-
stæðingur hennar yrði
einnig í þungavigtarflokki, líklega
Rudolph Giuliani, hinn vinsæli borg-
arstjóri New York. Ennfremur
þyrfti frá Clinton að vera búin undir
að svara spurningum er varða fjár-
reiður hennar og meint spillingarmál
er þau hjónin bjuggu í Arkansas á
ríkisstjóraárum Clintons.
Hitt virðist ljóst að konur muni í
vaxandi mæh gegna mótandi hlut-
verki í stjórnmálaumræðunni í
Bandaríkjunum á næstunni.