Morgunblaðið - 21.02.1999, Page 12

Morgunblaðið - 21.02.1999, Page 12
12 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ margþættum verkefnum af ríkinu. í fyrsta lagi fær þingið vald til að móta langtíma atvinnustefnu. I því felst að héraðsþinginu er ætlað að semja og samþykkja áætlun um afc- vinnu- og byggðaþróun þar sem fram komi markmið um uppbygg- ingu atvinnulífs og leiðir til að ná þeim markmiðum. Ríkið mun svo leggja til fé til að standa straum af aðgerðum samkvæmt sérsjökum samningi við héraðsþingið. I öðru lagi munu Skánverjar fá í hendur yfirstjórn samgöngumála á svæðinu og annast skipulagningu fram- kvæmda á því sviði. I þriðja lagi fær héraðsþingið vald til að móta menn- ingarstefnu með því að ákvarðanir um opinberar fjárveitingar til menningarstofnana flytjast frá rík- inu til héraðsins. Við þetta bætast svo verkefni frá lægri stjórnsýslu- einingum en þar munar mestu um heilbrigðismálin sem, eins og fyrr greinir, leggjast til við brottfall landsþinganna. I haust var í fyrsta skipti kosið til héraðsþingsins um leið og þing- og sveitastjórnakosningar fóru fram í landinu. Kosið var um 144 sæti á þinginu og buðu allir stærstu stjómmálaflokkar landsins fram, auk nokkurra minni og staðbund- inna flokka. I kosningunum skiptust atkvæði nokkuð jafnt milli hægri og vinstri blokkanna og um tíma var ekki ljóst hvaða flokkar tækju við stjómartaumum í héraðinu. Eftii’ samningaviðræður við smáflokkana tókst hægrimönnum að mynda meirihluta á þinginu og skipa því fyrstu héraðsstjórn Skánar. Raunar hefur það valdið nokkram deilum, sem meðal annars Göran Persson forsætisráðhema hefur dregist inn í, að til að geta stjórnað þurfa hægri flokkarnir að reiða sig á stuðning Skánai-flokksins sem hefur á stefnuskrá sinni að fækka innflytj- endum á Skáni. Ekki er þó ljóst hvaða áhrif flokkurinn mun hafa á stefhumótun í héraðinu en málið er afar viðkvæmt, ekki síst í ljósi þess að óvíða í Evrópu era innflytjendur fleiri miðað við heildaríbúafjölda en á Skáni. Veit ríkisvaldið hvað það gjörir? Við stjómmálafræðideiid háskól- ans í Lundi hefur verið farið af stað með rannsóknarverkefni sem hefur að markmiði að fylgjast með og kortleggja þróunina. Að sögn Magnusar Jerneck dósents, sem stýrir verkefninu, eru fjölmargir þættir sem munu hafa áhrif á hveiju fram vindur og hvert þróun- in leiðir. Frá því að hugmyndin um aukna sjálfstjóm héraða kom upp í landinu, hefur gætt nokkurar spennu í samskiptum Skánar og ríkisvaldsins. Samkvæmt lögunum er ríkisstofnunum og aðilum á veg- um ríkisins skylt að aðstoða héraðs- yfirvöld eftir fóngum við fram- kvæmd atvinnu- og þróunaráætl- ana. Það hefur hins vegar nokkuð borið á tregðu af hálfu rfldsstofnana að uppfylla þessa skyldu. Jerneck telur að í raun megi spyija hvort ríkið viti hvað það gjörir. Að sögn hans er alveg ljóst að breytingarnar era komnar til að vera og að þetta sé bara byrjunin. Með lögunum um breytta verkaskiptingu ríkis og hér- aða hafi þingið í Stokkhólmi velt af stað snjóbolta sem komi bara til með að stækka eftir því sem tímar líða. Tregðan í samskiptum héraðs- yfirvalda og rfldsstofnana sé eðileg valdatogstreita sem leiði af breyt- ingunum. Hingað til hefur þróunin fyrst og fremst verið leidd af stjórn- málamönnum en eftir að héraðs- þingið kom saman til síns iyrsta fundar hefur athygli atvinnulífsins og almennings verið vakin í vaxandi mæli. Það er í raun ekki fyrr en á allra síðustu mánuðum að íbúar Skánar hafa áttað sig á að tal um aukið sjálfsforræði er ekki orðin tóm heldur lifandi veraleiki. Með tilkomu bráarinnar yfir Eyrarsund opnast svo nýir möguleikar til upp- byggingar og atvinnuþróunar á svæðinu sem án efa munu hafa áhrif í stjómmálalegu tilliti. Ýmislegt bendii- því til þess að í Svíþjóð séu að verða sögulegar breytingar á hinu pólitíska landakorti. Höfundur er stjómmálafrædingur. UM síðustu áramót tók nýstofnað héraðsþing Skánar til starfa og er það hluti af viðamiklum breytingum sem eru að eiga sér stað í sænskum stjórnmálum. Þær eru angi þróun- ar sem verið hefur í gangi í Evrópu undanfarin ár og ekki sér fyrir end- ann á. Þótt menn vilji e.t.v. ekki ganga svo langt að segja að „vofa gangi ljósum logum í Evrópu“, er ljóst að áhrif héraðastefnunar svokölluðu verða sífellt greinilegri í stjómmálum álfunnar. Nú er röðin komin að Svíþjóð - og Skáni. Víða í Evrópu hafa að undan- förnu átt sér stað pólitískar hrær- ingar sem talið er að muni geta valdið miklum breytingum á stjórn- arfari í ríkjum álfunnar. Hér er átt við héraðastefnuna eða héraðavæð- inguna svokölluðu sem mjög svo hefur verið til umræðu á síðustu ár- um. Þótt sögur af andláti þjóðríkis- ins séu mjög svo orðum auknar, er það staðreynd að fullveldi ríkja er ekki lengur það sem það var. Ekki aðeins hafa ríki í vaxandi mæli af- hent pólitískt ákvörðunarvald til yf- irþjóðlegra stofnana í Evrópusam- bandinu, heldur hafa einnig átt sér stað breytingar á valdahlutfóllum innan ríkja. þar sem þessi þróun hefur gengið hvað lengst, s.s. í Belgíu og á Spáni, hafa í raun orðið til sambandsríki í stað einingar- ríkja áður. Með stjórnarskrár- breytingum hafa héröð innan þess- ara ríkja fengið í hendur stjórn ým- issa málaflokka sem áður hafa heyrt undir ríkisvaldið. I mörgum tilfellum hefur þetta haft í för með sér mjög aukið sjálfsforræði hérað- anna þótt formlega sé fullveldi víða enn óskipt hjá þjóðríkinu. Nokkuð deildar meiningar eru um hvað valdi þessum breytingum nú, en vist er að Evrópusamruninn og lok kalda stríðsins hafa hér áhrif. Reyndar er óvarlegt að slá föstu hvað er orsök og hvað afleiðing í þessu samhengi en tengslin eru augljós. Þegar verið var að leggja drög að Maastricht-sáttmálanum á sínum tíma, má segja að héraðastefnan hafi komist á dagskrá fyrir alvöru. Vegna þrýstings frá ólíkum héröð- um innan Evrópu var sett á stofn héraðanefnd sem ætlað er að gæta hagsmuna héraðanna við ákvarð- anatöku innan ESB. Að auki var héraðavæðing mjög svo til umræðu í sambandi við innlimun hinnar um- töluðu nálægðarreglu í sáttmálann. Eftir að Danir felldu samkomulagið í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1991 varð nálægðarreglan að mati margra það eina sem gæti bjargað Evrópusamrananum. Nálægðar- reglan var þannig upphaflega hugs- uð sem ráð til að mæta áhyggjum fólks af því að aukinn samruni þurrkaði endanlega út fullveldi ríkj- anna og stefndi þjóðerninu í voða. En reglan hefur jafnframt orðið að vopni í höndum þeirra sem beijast fyrir aukinni valddreifingu innan ríkjanna. Deilur um túlkun nálægð- arreglunnar hafa þannig átt stóran þátt í að gera héraðavæðinguna áberandi í stjórnmálum Evrópu. Miðstýring víkur í Svíþjóð Svíar hafa ekki farið varhluta af þeim umræðum sem uppi hafa ver- ið í Evrópu um héraðastefnuna á undanfómum árum. Aðild Svíþjóð- ar að Evrópusambandinu hefur einnig orðið til að auka fylgi við stefnuna þar í landi. Allt frá því á 17. öld hefur Svíþjóð verið í hópi þeirra ríkja Evrópu sem búið hafa við hvað mesta miðstýringu. Þannig var t.d. sænska velferðarríkið sem sleit bamskónum eftir síðari heims- styijöld mjög miðstýrt. Ein grann- stoð þess var jafnræði þegnanna gagnvart lögum og jafn aðgangur að margs konar samfélagsþjónustu. Fyrir bragðið voru löggjöf og stjórnvaldsaðgerðir gjaman mjög miðstýrðar. Þrátt fyrir að sjálfsfor- ræði sveitarfélaga sé eitt af þeim pólitísku markmiðum sem sett eru fram í stjómarskrá Svíþjóðar hefur það í reyndinni verið afar takmark- að hingað til. I landinu, sem er bæði stórt og dreifbýlt, hefur þó víða verið til staðar sterk héraðsvitund meðal íbúanna og umræður undan- FULLTRÚAR á hinu nýja héraðsþingi Skánar að störfum. ■IF r u tt Timamot að verða á Skáni Á Skáni í Svíþjóð er nú verið að gera til- raun með aukna sjálfstjórn héraðsins. Óli Jón Jónsson fjallar hér um framkvæmd þess og hugsanlegar afleiðingar ef vel tekst til. farið hafa stuðlað að þvi að hún hef- ur komið upp á yfirborðið. Árið 1993 leiddi þetta til þess að á þing- inu náðist þverpólitísk samstaða um að skipa nefnd til að kanna möguleika á aukinni valddreifingu í landinu með því að flytja verkefni frá ríkisvaldinu til héraða. Nefndin skilaði áliti árið 1995 og í framhaldi af því voru sett lög sem af ýmsum era talin marka tímamót í sænsk- um stjórnmálum. Lögin kveða á um að til reynslu skuli héruðin Kalmar, Gotland og Skánn fá aukin verkefni í sínar hendur, bæði frá ríkisvaldi og einnig frá lægri stjómsýslustig- um. I Svíþjóð eru stjómsýslustigin þijú: rfld, landsþing og sveitarfé- íög. Breytingarnar ganga raunar mislangt í hverju hinna þriggja héraða en víst er að þær eru rót- tækastar á Skáni. Þar hættir lands- þingið að vera til sem sjálfstætt stjórnsýslustig og verkefni þess, sem eru einkum heilbrigðismál, flytjast til hins nýja Skánarhéraðs (Region Skáne). Að auki er á Skáni kosið beint til fulltráasamkomu héraðsins, héraðsþingsins, en í hin- um tveimur héruðunum mun hérað- ið í raun eingöngu verða regnhlífar- hugtak og ekki á sama hátt bein tengsl milli þess og kjósenda. Sam- kvæmt lögunum á tilraunin á að standa til loka ársins 2002 og er þá meiningin að kanna hvernig til hef- ur tekist og taka ákvörðun um framhaldið. Sérstaða Skánar Það era nokkrar ástæður fyrir því að breytingarnar ganga lengra á Skáni en á hinum stöðunum. Skánn hefur ætíð notið töluverðrar sér- stöðu innnan sænska ríkisins vegna sögu sinnar og legu. Ekki eru nema rétt rámlega 300 ár síðan blóðug- ustu átök Norðurlandasögunnar leiddu til að svæðið lenti undir sænsku kránunni eftir að hafa lotið Danakonungi um aldir. Skánverjar hafa fyrir vikið gjaman viljað líta á sig sem sérstakan hóp innan ríkis- ins og þar er ýmislegt sem minnii’ á nálægðina við Danmörku, s.s. gróð- urfar, mannvirki, og svo auðvitað „skánskan", mállýskan sem töluð er á þessu svæði. Þessi blöndun kemur e.t.v. ekki síst fram í fána Skánar sem er gulur kross á rauðum fleti; þ.e.a.s. eins og blanda af þjóðfánum Danmerkur og Svíþjóðar. Skánn er eflaust það hérað innan Svíþjóðar þar sem héraðahyggjan hefur verið hvað öflugust og það um langan tíma. Samkvæmt hinum nýju lögum mun héraðsþing Skánar taka við

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.