Morgunblaðið - 21.02.1999, Side 18
18 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Hetjudáðir í
háloftunum
ERLEJVDAR
BÆKIIR
Spennusaga
FLUG ARNANNA „FLIGHT
OF THE EAGLES"
eftir Jack Higgins. Penguin Books
1999. 339 síður.
í NÝJUSTU spennubók Jack
Higgins, Flugi arnanna eða
„Flight of the Eagles", er inngang-
ur og eftirmáli sem fjallar um
þekktan metsöluhöfund, og hvern-
ig hann af tilviljun komst yfir
söguefni bókarinnar er fjallar um
örlög tvíburabræðra í síðari heims-
styrjöldinni.
Höfundur þessi er mjög Higg-
ins-legur og hrapar ásamt eigin-
konu sinni í Ermarsundið suður af
Bretlandi á lítilli einkaflugvél en
er bjargað í land á stað þar sem
var leynilegur flugvöllur banda-
manna í stríðinu. Heimamenn
segja honum frá bræðrunum
tveimur og eftir frekari rannsóknir
höfundarins kemur í ljós mikil
hetjusaga sem síðan er rakin í
bókinni. Allt er þetta gert í þeim
ágæta tilgangi að ljá ótrúlegri sög-
unni nokkra sannsögulega vikt en
það koðnar allt niður þegar líður á
bókina, sem er formúlukennd í
meira lagi og ótrúverðug.
Flugásar tveir
Flug arnanna, sem nýlega kom út
í vasabroti hjá Penguin-útgáfunni,
er tilraun Jack Higgins til þess að
endurheimta nokkuð af fornri
frægð og er auglýst sérstaklega
sem ný saga frá honum úr seinni
heimsstyrjöldinni. Sem kunnugt er
skrifaði hann Örninn er sestur eða
„The Eagle Has Landed“, sem
sagði frá tilraun nasista til þess að
ræna Winston Churchill, og er hún
líklega þekktasta og besta sagan
hans. Söguþráðurinn í Flugi arn-
anna er talsvert slakari en í raun
ekkert ósvipaður og segir af ægileg-
um ráðagerðum nasista skömmu
fyrir innrásina í Normandí.
Aðalsöguhetjumar eru tveir
hrikalegir flugásar sem, að því er
virðist, réðu mikið til gangi styrj-
aldarinnar. Þeir eru tvíburabræður
og erfðu flughæfnina frá ríkis-
bubbasyninum fóður sínum, sem
var fremsti flugkappi íýrri heims-
styrjaldarinnar. Móðir þeirra er
hins vegar þýsk barónsfrú. Atvikin
haga því svo til að bræðurnir eru
skildir að um tíu ára aldurinn og á
meðan annar elst upp við frelsis- og
lýðræðishugsjónir í Bandaríkjunum
verður hinn hugfanginn af einræð-
is- og fasistahugsjónum í Þriðja ríki
Hitlers (hann reyndar sér að sér
um síðir og reynir að afsaka
flónsku sína en fremur er það mél-
kisulegt).
Báðir verða þeir ómetanlegir og
ódrepanlegir flugásar og fara um
víðan völl þau ár sem styrjöldin
stendur; hvílíkar hetjur hafa ekki
flogið um loftin blá, hvorki fyrr né
síðar. Goðsagnir þessar fá sérstakt
hlutverk undir lokin þegar Himm-
ler ákveður að nýta sér þá bræður í
ákveðnum tilgangi, sem jafnvel get-
ur breytt gangi sögunnar.
Hetjudáðir og
riddaramennska
Inn í það blandast síðan ýmsar
aukapersónur, sögufrægar bæði og
minna þekktar. Engir eru þó meiri
ólikindatól en þeir tvíburabræður.
Stundum er eins og heimsstyrjöldin
hafi aðeins snúist um þá tvo; Hitler
og Roosevelt og Himmler og Eisen-
hower, allir hafa þeir afskipti af
þeim.
Fastakúnnar Higgins fá eflaust
eitthvað íýrir sinn snúð, eins og
hetjudáðir miklar, flugbardaga,
riddaramennsku, leynimakk, sam-
særi, nasistaillfygli og frækilega
bandamenn og auðvitað fléttu sem
bæði er stórhuga og djarflega
framsett. En þeir hafa þá sætt sig
við formúluna, hlægilega einfeldn-
ingslega persónusköpun og spennu-
sögu sem er nær alfarið laus við
spennu. Það sem á líklega að kall-
ast hápunktur sögunnar koðnar
niður í ekki neitt því lesandinn hef-
ur enga trú að því sem fram fer og
sagan rennur út í sandinn. Hug-
myndin er kannski ekki alvond en
allar aðstæður eru fáránlegar, jafn-
vel þótt lesandinn sé ýmsu vanur
frá þessum höfundi.
Arnaldur Indriðason
HANY Hadaya og Bryndís Hall-
dórsdóttir í tangódansi.
Suður-am-
erískt kvöld
í Lista-
klúbbnum
SKEMMTI- og menningardag-
skrá frá mismunandi löndum
Suður-Ameríku verður í Lista-
klúbbnum mánudaginn 22. febr-
úar kl. 20.30.
Hljómsveit Jóhönnu Þórhalls-
dóttur, Six-pack skemmtir.
Andrés Ramón Ies Ijóð
chilenska ljóðskáldsins Pablo
Neruda á frummálinu og Guð-
rún Tulinius og Karl Guð-
mundsson lesa þýðingar sínar á
íslensku. Tníbadorinn Enrique
Canales flytur sönglög frá
heimalandi sínu og Neruda.
Bryndís Halldórsdóttir og Hany
Hadaya dansa tangó, við undir-
leik Six-pack. Þá dansa gestir
frá Kólumbiu og Kúbu salsa- og
merengue-dansa auk kúbanskr-
ar rúmbu.
Umsjón með dagskránni hef-
ur Hólmfríður Garðarsdóttir
spænskukennari.
Ljóðasam-
keppni
unga
fólksins
LJÓÐ unga fólksins er titill á
ljóðasamkeppni almennings-
bókasafna og Máls og menn-
ingar. Þátttakendum er skipt
í tvo aldurshópa, 9-12 ára og
13-16 ára. Þátttakendur
mega koma með eitt til þrjú
Ijóð sem þeir eiga í skúffum
sínum eða semja sérstaklega
fyrir keppnina. Skilafrestur
er til 1. mars.
Dómnefnd skipa: Iðunn
Steinsdóttir, rithöfundur og
formaður nefndarinnar, Jón
Kalman, rithöfundur, Hildur
Hermóðsdóttir, Máli og
menningu, Kristín Birgisdótt-
ir og Kristín Viðarsdóttir,
Þöll, samstarfshópi um
barnastarf á íslenskum bóka-
söfnum.
Verðlaunaafhending fer
fram 22. apríl á sumargleði
Barna og bóka, Islandsdeild-
ar IBBY samtakanna. Þöll,
samstarfshópur um barna-
starf á íslenskum bókasöfn-
um, sér um framgang keppn-
innar. Fyrirhugað er að gefa
úrval ljóðanna út á bók.
VJngi/m er það allra besf
SkoUi ■ ag íræðslúnefnd Sjálfstædisflokksins efnir til tveggja funda um stöóu og stefnu í
skölamálum. Fundirnir eru öllum opnir og allt áhugafölk um skólamál hvatt til að mæta.
Mánudaginn 22. febrúar í Valhöll,
salurl, kl.17.15-18.30.
Okkar sk/lda - þeirra sk/lda
Framsöguerindi:
■ Agaleysi í íslenskum skólum: hvaö vitum við?
■ Ingvar Sigurgeirsson, deildarforseti
framhaldsdeildar KHÍ
• Á ég að gæta bróður míns?
• Hildur Friðriksdóttir, blaðamaður.
■ Uppeldi og ábyrgð
• Þorsteinn Sæberg Sigurðsson, formaður
Skólastjórafélags íslands.
Fundarstjóri er Guðrún Zoega, verkfræðingur.
Fimmtudaginn 25. febrúar í Valhöll,
salurl, kl.17.15-18.30.
Nýjar námskrár - befri skóli
Framsöguerindi:
■ Menning og menntun - forsenda framtíðar
■ Björn Bjarnason, menntamálaráðherra
Sjálfstæðir menn - sterkir einstaklingar
■ Sigríður A. Þórðardóttir, formaður
þingflokks sjálfstæðismanna
í kjölfar flutnings grunnskólans
• Helgi Árnason, skólastjóri.
Sigríður Anna Þórðardóttir
Fundarstjóri er Þorvarður Elíasson,
rektor Verzlunarskóla íslands.
Þorsteinn Sæberg Sigurðsson
Allar frekari upplýsingar um fundinn er hægt að fá á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
í síma 5151700 eða á heimasíðu flokksins www.xd.is
Björn Bjarnason
Helgi Árnason
Hildur Friðriksdóttir
Guðrún Zöega
Þorvarður Elíasson
SJÁLFSTÆÐISFLOKKIIRINN