Morgunblaðið - 21.02.1999, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 21.02.1999, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Sumir eru bara ofvirkir Svafa Grönfeldt er ein af ofurkonum ís- lands. Hún er ráðgjafi hjá Gallup, kennari ---- 7---------------—— í Háskóla Islands, er leiðbeinandi fjölda út- skriftarnema, móðir og eiginkona, sem er að ljúka doktorsnámi. Hildur Friðriks- dóttir ræddi við Svöfu um stjórnun starfs- mannamála og doktorsritgerðina, sem sýn- ir fram á sterk tengsl á milli þjónustuvilja starfsmanna og afkomu fyrirtækja, þjón- ustumenningar og hagnaðar, að einhæf störf hafa letjandi áhrif á þjónustulund, en mikið vinnuálag í skamman tíma eykur þj ónustuvilj a. SVAFA Grönfeldt er fram- kvæmdastjóri starfs- manna- og þróunarsviðs Gallups en jafnframt einn af eigendum fyrirtækis- ins. Starfmu fylgir mikill erill og þeytingur á milli fyrirtækja, þar sem í því felst ráðgjöf og nám- skeiðahald. Hún varð lektor við við- skipta- og hagfræðideild Háskóla Islands í fyrra fyrst kvenna, þar sem hún kennir stjórnun, en einnig er hún vinsæll leiðbeinandi útskrift- amema og er sjálf að leggja loka- hönd á doktorsritgerð. Augljóslega þarf mikla skipulagn- ingu til að koma öllu þessu heim og saman og því á hún til að koma of seint á stefnumót eða jafnvel að verða að afboða það á síðustu stundu. Þó er ekki hægt annað en fyrirgefa henni, því þegar hún loks- ins lætur sjá sig geislar af henni orkan og jákvæðnin. „Ástandið að undanfórnu hefur verið óvenju slæmt,“ segir hún sér til afsökunar. „Yfírleitt er skipulag- ið gott og þegar mér tekst að hafa það í lagi er ekkert mál að komast yfir þetta allt. Þá vaknar maður á morgnana og spólar í verkefnin, kemur heim á kvöldin og gerir ekk- ert umfram það nauðsynlegasta." Svafa talar hratt, er kná í hreyf; ingum og óformleg í framkomu. í rauninni má líkja henni við storm- sveip. „Sumir eru bara ofvirkir og ég er örugglega ein af þeim, því ég lauk BA-prófi í stjórnmála- og fjölmiðlafræði á tveimur og hálfu ári og vann allan tímann á DV. Ég fann ekki fyrir því,“ segir hún þegar hún er sest yfír bolla af heitu súkkulaði, sem hún yljar sér með á höndunum. Margir kannast við Svöfu frá yngri árum þegar hún stundaði frjálsíþróttir af miklu kappi. Hún segist ekki í vafa um að hún búi að því ennþá að hafa tekið þátt i keppnisíþrótt. „Það á við um úthald- ið og einbeitinguna. Maður veit að árangurinn byggist á einstaklings- framtakinu en samt sýnir reynslan að hópurinn er i raun miklu öflugri en einstaklingurinn. Það hef ég lært hjá starfsfólki Gallup, þar sem hóp- starfið er styrkur fyrirtækisins." Alltaf unnið mikið Svafa segist alltaf hafa unnið mikið, til dæmis öll menntaskólaár- in. „Ég held að þetta sé spurning um einbeitni. A sínum tíma fór ég í eiginleikamat hjá Gallup í Banda- ríkjunum, sem fólst í 2 % tíma yfir- heyrslu. Út úr því kom einmitt, að þegar ég ákveð eitthvað þá stefni ég beint þangað og ekkert truflar mig. Þess vegna held ég að ég geti til skamms tíma gert svona mikið. Annars er ég dæmigerður hrútur, þannig að ég fæ fljótt leiða á hlutun- um og verð að finna mér eitthvað nýtt að gera,“ segir hún svo sposk á svip. Éftir stúdentspróf hóf hún störf á auglýsingadeild DV, varð því næst markaðsstjóri og síðar blaðamaður eitt sumar. „Ég grínast gjarnan með það, að hefði ég verið ráðin í smáauglýsingarnar hefði ég strax verið rekin, því ég er bæði les- og skrifblind. Þetta háir mér að því leyti, að stundum fæ ég ekki alveg rétt samhengi í setningarnar eins og þegar ég les til dæmis Sjálf- stæðisflokkurinn í staðinn fyrir sjó- menn. Ég verð líka að láta lesa allar skýrslur mjög vandlega yfir áður en ég sendi þær frá mér. Þetta virðist þó aðallega vera skrifblinda, því ég les á ljóshraða. Þegar ég var í fram- haldsskóla þótti þetta vera einhver fljótfærni - sem það er kannski að einhverju leyti,“ segir hún glettin. „Eftir 8-9 ára veru á DV fór ég til Flórída og lærði starfsmanna- og boðskiptafræði. Ég var orðin leið á markaðsstjórastöðunni aðallega vegna þess að ég var ekki sammála markaðssetningu blaðsins. Við náð- um að vísu stöðugt inn áskrifendum en aðrir duttu jafnharðan út.“ Á vetuma var hún í námi í Band- aríkjunum en sumarið sem hún vann á DV sem blaðamaður kom starfið hjá Gallup óvænt upp í hendur hennar og hún sló til. „Það tók mig samt þrjár tilraunir að segja upp hjá DV, því mér fannst eins og ég stæði í skilnaði, enda hafði ég alist þarna upp. Ég sé ekki eftir þessari ákvörðun og hugsa á hverjum degi, hvað ég hafi verið heppin að fá starfið." Starfsánægja og ánægja viðskiptavina Svafa hóf störf hjá Gallup í árs- byrjun 1995 og var ráðin til að opna deild, sem sérhæfði sig í grunn- rannsóknum á ástandi í fyrirtækj- Þegar skipulagið er gott er ekkert mál að komast yfir þetta allt Morgunblaðið/Golli SVAFA Grönfeldt segir að það sé góð blanda að vera kennari og ráðgjafi, því hvor þáttur fyrir sig styrki hinn, um, þ.e. hvernig starfsánægja er, hvemig tryggð starfsmanna er við fyrirtækið, hvernig stjórnuninni er háttað, boðskiptum og fleira. „Ég var ekki lengi ein, en nú erum við níu sem sinnum starfsmannatengd- um málefnum. Gallup hefur vaxið feiknamikið á undanförnum 5-6 ár- um og eru starfsmanna-, þjónustu- og markaðsrannsóknir einn mesti vaxtarbroddur fyrirtækisins. Nú starfa 35 sérfræðingar og hátt í 100 starfsmenn hjá fyrirtækinu þegar mest er að gera.“ Svafa segir að mörg fyrirtæki séu farin að gera reglulegar kann- anir eins og að framan greinir. „Afstaða starfsmanna til fyrirtæk- isins er reglulega mæld til að fylgjast með því hvernig mann- auðnum líður,“ segir hún og bætir við: „Þetta er rétt eins og að telja peningana sína. Á sama tíma er mæld afstaða viðskiptavinanna og það er lygileg fylgni á milli starfsánægju og ánægju viðskipta- vinanna." Að sögn Svöfu er árangur fyrir- tækjanna sem hafa farið í gegnum ráðgjöf í samræmi við afstöðu yfir- stjórnenda þeirra. „Þau verkefni sem hafa mistekist má rekja til þess að yfirstjórnin hefur ekki helgað sig verkefninu og dregið í land eða ekki haft trú á verkefninu frá upphafi og því valið úr eitthvað sem. hentaði þeim. Síðan hrynur spilaborgin. Þetta er eins og með góða kökuupp- skiift, það þýðir ekki bara að velja hveitið og sykurinn heldur verður að taka alla uppskriftina til að kak- an verði góð.“ Hins vegar þar sem vel hefur tek- ist má sjá aukna vellíðan starfsfólks speglast í færri veikindögum auk þess sem færri starfsmenn hætta. „Einnig er mun meira um nýsköpun þegar menn breyta þessum stíl, oft á tíðum aukin afköst og klárlega bætt þjónusta." Mánaðarlega í London Einu sinni í mánuði fer Svafa til London vegna doktorsritgerðar sinnar, sem hún vonast til að geta varið í vor við London School of Eeonomics. Ritgerðin fjallar um þjónustuvilja fyrirtækja og hvern- ig stjórnendur geta aukið hann meðal starfsmanna sinna. „Menn hafa unnið stök verkefni, sem benda til sambands á milli þjón- ustuvilja og afkomu fyrirtækja, en þetta er fyrsta langtímarannsókn- in sem gerð er og hún staðfestir þessi tengsl. Fyrirtækjum, sem sýna þjónustuvilja, vegnar betur og þau ná meiri árangri til lengri tíma en þar sem þjónustuvilji er lít- ill. Einnig kemur upp úr dúmum, að þjálfun hefur bara örlítil áhrif á hvern- ig þjónustu menn veita. Hingað til höfðu menn talið að til að bæta þjónustuna væri annaðhvort að binda allt í þjónustustaðla sam- kvæmt gæðakerfum eða að senda starfsfólk á brosnámskeið. Hvort tveggja er gott og gilt, en hins veg- ar liggur miklu meira að baki. Fjögur atriði hafa áhrif á hversu viljug við erum til að veita þjónustu. Sterkasti hvatinn er hvort menn hafa innbyggða þörf eða löngun til þess. í öðru lagi skiptir tryggð við fyrirtækið miklu máli. í þriðja lagi getur stjórnandinn byggt upp sterka þjónustumenningu. Gallinn er sá að mörg íslensk fyrirtæki hafa tilhneigingu til að taka taka einn þátt út úr, eins og að hengja upp alls kyns slagorð um þjónustu eða búa til staðla, en þeir gleyma hinum atriðunum. I fjórða lagi skiptir máli samspil umbunar og refsingar. Reynslan af þvi að tengja þjónustubónusa við laun hefur verið upp og ofan. Miklu happadrýgri leið er að spila á innri viljann og þjónustumenningu fyrir- tækisins og umbuna frekar starfsmönnum vel fyrir störfin al- mennt.“ Augu og eyru fyrirtækisins Svafa segist verða vör við breyt- ingar á hugsunarhætti stjórnenda um að vanda val á starfsfólki eða „framlínunni“ eins og hún kallar það. Þá á hún við fólk við símsvörun, í mótttöku, áfgreiðslufólk á kassa og slíkt. „Miklu máh skiptir að velja hæft starfsfólk í þessi störf og greiða því sómasamleg laun, því það er augu og eyru fyrirtækisins. Eitt fyrirtækið sem ég skoðaði sker sig til dæmis úr fyrir að hafa færri starfsmenn en samkeppnisaðilarnir en veita betri þjónustu. Ástæðan er sú, að þeir fá hæfara fólk til starfá af því að þeir greiða hærri laun. Fyrir vikið er fólkið líka tryggara fyrirtækinu." Hún nefnir fleiri þætti sem hafa áhrif á vilja starfsfólks til að veita góða þjónustu, svo sem þekkingu á Þegar ég ákveð eitthvað þá stefni ég beint þangað og ekkert truflar mig

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.