Morgunblaðið - 21.02.1999, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
RÚNAR Freyr Gíslason og Ólafur
Teitur Guðnason tóku lagið.
m
MHWmil.WIB
M
Hugmynd verður
að veruleika
STYRKTARKVÖLD Dyslexiufélagsins sem haldið
var undir yfirskriftinni „Frá hugmynd til veru-
leika“ í samstarfi við Vöku fls. í Þjóðleikhdskjallar-
anum á fimmtudagskvöld, heppnaðist mjög vel,
þrátt fyrir slæmt veður og ófærð á höfuðborgar-
svæðinu. Yfir hundrað manns mættu til að leggja
góðu máiefni lið og skemmtu sér allir hið besta. Á
þriðja hundrað þúsund króna safnaðist og verður
fénu varið til að fjármagna gerð hljóðbóka fyrir þá
nemendur Háskóla íslands sem eru með dyslexíu.
HINIR snyrtilegu Brooklyn Five
skemmtu áhorfendum.
ÁHORFENDUR fylgdust spenntir með.
Páli Skúlasyni, rektori Háskólans, verður afhent
féð á mánudaginn klukkan 14 í herbergi Háskóla-
ráðs.
Hefur þú efni á að missa af þessu?
Allra síðasti dagurinn er í dag!
Opið frá kl. 13.00-18.00
ALGJÖRT VERÐHRUN
Fatnaður og skór
Allt að 80% afsláttur
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 3.900
Buxur frá kr. 1.500
Bolir frá kr. 1.000
Skyrtur frá kr. 1.500
Skór frá kr. 1.000
...snyrtivörur og undirfatnaður
á allra lægsta verði sem sést hefur
Ga'!
Sími 511 1717/18
LjósmyncyRÞB
HRÚTSPUNGAR, sviðasulta, hákarl og harðfiskur ásamt góðum
dönskum miði komu Islcndingum og gestum þeirra
í sannkallað þrumustuð.
Þorrablót í Óðinsvéum
Karlarnir kveðnir
í kútinn
FJÖRIÐ í algleymingi, hljómsveitin Sól
Dögg hélt landanum við efnið
fram á nóttina.
ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ
í Óðinsvéum hélt sitt árlega
þorrablót um síðustu helgi
með pomp og pragt. Þátt-
taka hefur sjaldan verið
betri og mættu um 140
manns auk starfsfólks sem
var um 20 og fékk félagið
vel þegna aðstoð frá íslend-
ingafélaginu í Horsens við
að þjóna öllum þessum
fjölda til borðs.
Fólk tók hressilega til
matar síns og það var ekki
mikið afgangs að loknu
borðhaldi og urðu margir
hissa þegar að loknum
hefðbundnum þorramatn-
um var boðið upp á lamba-
steik með brúnni sósu, en
allt rann þó niður að lokum.
Blandaður kór Færey-
inga og Islendinga söng nokkur lög,
flutt voru minni karla og kvenna og
svo var sungið eins og hefð er fyrir.
Eitthvað reyndist karlmönnunum
þó erfitt að syngja lagið Fóstur-
landsins Freyja, og má segja að
konumar hafi kveðið þá í kútinn, svo
hressilega sungu þær Táp og fjör.
Fluttur var leikþátturinn Rauð-
hetta í nýstárlegum búningi og ein-
hverjir urðu heppnir í happdrættinu
og vann ein stúlka ferð til Islands
en hinir urðu að láta sér lynda eitt-
hvað minna. Hljómsveitin Sól Dögg
hélt uppi fjörinu fram á nótt við
góðar undirtektir landans og kvöld-
ið eftir skemmti hún svo á þorra-
blóti í Álaborg.
Rhonedalur-
inn á veislu-
borðinu
MARGT var um manninn á
Hótel Holti þegar Fransk-ís-
lenska verslunaiTáðið bauð
meðlimum sinum og gestum
þeirra til kvöldverðar þann
14.febrdar sl. Meðlimir ráðsins
frá íslandi og Frakklandi gerðu
sér glaðan dag
enda var máls-
verðurinn haklinn
í framhaldi fram-
haldi af fundi
ráðsins í París 14.
jandar. Mat-
reiðslumeistarinn
Christian Etienne
frá Suður-Frakk-
landi sá um
matseldina en
þema matseðils
Hótels Holts var
Rhonedalurinn. DOMINIQUE Plédel ræðir við Valgerði Ölafsdóttur
og Ingibjörgu
Sólrdnu Gisla-
dóttur borgar-
stjóra.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRIÐRIK Sopliusson heilsar
Roberti Cantoni, sendiherra
Frakklands.
ÞAÐ var hama-
gangur í eldhds-
inu en mat-
reiðslumeistar-
inn Christian
Etienne naut
góðrar aðstoðar
við átta rétta
matseðilinn.