Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.02.1999, Blaðsíða 56
TVÍMÆIAIAUS1 i mmammmmmmm ÞARFASTI m wmmmmmmtmmmtmm N TÞJÓNNUNN WWW.NYHHRII.IS llirt Netfíníty I NÝHERJI MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Könnun á viðhorfum nema við Háskóla Islands Telja námið vera NYNEMAR við Háskóla Islands eru að jafnaði ekki í náminu af hugsjón heldur mun frekar af hagsýni, að sögn Stefáns Sigurðssonar hagfræð- ings. Hann hefur kannað viðhorf og væntingar 1000 háskólanema. Bæði kyn telja að háskólanámið verði arðbær fjárfesting en konumar búast við talsvert lægri launum en karlamir. 42% aðspurðra reikna með að starfa hjá hinu opinbera, álíka margir hjá einkaað- ila en 16% hafa hug á að starfa sjálfstætt og var hlutfallslega mest um að nemendur í heimspeki- deild vildu starfa sjálfstætt. Háskólanemar geta ekki stundað fulla vinnu á vetuma, þurfa að greiða ýmsan kostnað og borga af námslánum en álíta þó að jafnaði að arðsemin af náminu að teknu tilliti til fómarkostnaðarins verði um 12%. Era þá að sjálfsögðu ekki teknir með í reikninginn hðir sem erfitt er að meta til fjár eins og áhugaverðara starf en fengist hefði án menntun- ar. Fram kemur að nemendur í verkfræði og hag- fræði/viðskiptafræði gera sér mestar væntingar um arðsemi námsins, telja það vera ávísun á vel launað starf. Tekjuvæntingar guðfræðinema vom á hinn bóginn minnstar. Er spurt var um ástæður fyrir því að hefja há- skólanám sögðust aðeins um 15% telja að aukin hamingja samfara menntun hefði haft mikil áhrif á arðbært ákvörðunina. Þátttakendur vora beðnir að setja í forgangsröð eftir mikilvægi þættina „áhugavert starf‘, „laun“ og „atvinnuöryggi" og reyndist örygg- ið neðst á blaði. Stefán gagnrýnir íyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á arðsemi menntunar og telur að þær hafi gefið villandi mynd af raunveruleikanum. Könnun sína gerði hann 1996 og var hún upphaflega styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna en einnig komu til styrkir frá menntamálaráðuneytinu og fyrirtækjum. Nálgast má netútgáfu rannsóknarinnar í heild á slóðinni www.@.is/studentarafhugsjon. ■ Stúdentar af hugsjón eða hagsýni?/18 Enn á varð- bergi vegna snjókomu SNJÓKOMA var áfram í Siglufirði og Bolungarvík í gær og útlit fyrir að fólki yrði ekki hleypt í bili í hús sem rýmd voru þar á föstudag. Nokkur óvissa var á hádegi í gær um hvemig snjókomubelti myndi leggjast yfir á þessum slóðum en talið ráðlegt að sýna varúð. Snjó- flóðaathugunarmenn skoðuðu að- stæður í gærmorgun og sáu ekki merki um spýjur en skyggni var takmarkað. Spáð er áframhald- andi norðanátt víðast hvar um landið og björtu veðri syðra og því trúlega óhætt að viðra sig með göngutúr við Tjörnina og víðar. Vöruflutn- ingabíll og vagnar ultu VÖRUFLUTNINGABÍLL með aftanívagni valt við Kvísker í fyrr- inótt og sömuleiðis vagn aftan í öðrum bíl á sömu slóðum. Hávað- arok var á stuttum kafla á vestan- verðum Breiðamerkursandi og fljúgandi hálka. Engin slys urðu á "'inönnum. Fjórir flutningabílar voru saman á austurleið á þessum slóðum og þegar komið var austur að Kvískerjum var harður vindstreng- ur ofan af jökli eins og oft er á um 10 km kafla á þessum slóðum. Valt þá fiskflutningabíll á hliðina og aft- anívagn annars. Hinir bílamir héldu áfram. Þá biðu nokkrir flutn- ingabflar af sér veðrið við Freys- nes í fyrrinótt. Talsvert rok var enn á þessum slóðum í gænnorgun og var ekki vitað hvenær hægt yrði að fá tæki á staðinn til að ná bflnum uppá veg á ný. Hringvegurinn lokaðist um skamma stund en fljótlega vai- ^hægt að aka framhjá. Umferð var þó sáralítil. Morgunblaðið/Kristinn Sérfræðingar telja stjórnvöld þurfa að sýna aðgát Ymis teikn eru á lofti um ofþenslu SÉRFRÆÐINGAR í efnahags- málum telja ýmis teikn á lofti um að ofþensla gæti orðið í efnahags- lífinu sem myndi ógna verðstöðug- leika. Verðbólga hafi verið mjög lít- 0, miðað við þensluna, sem skýrist meðal annars af hagstæðu inn- flutningsverði. Þeir telja þó fulla ástæðu fyrir stjórnvöld til að vera á varðbergi. Már Guðmundsson, aðalhag- fræðingur Seðlabanka Islands, segir að best hefði verið að taka á ÝÍfrmikilli aukningu eftirspurnar og vaxandi viðskiptahalla með lægri útgjöldum eða hærri sköttum. Hann segir ýmislegt benda til að aukið aðhald í peningamálum og/eða ríkisfjármálum þurfi að koma til ef forðast eigi ofhitnun og brotlendingu hagkerfisins. Þórður Friðjónsson, ráðuneytis- stjóri í viðskiptaráðuneytinu, segir hættumerkin í efnahagsmálum augljós. Efnahagslífið sé á toppi hagsveiflunnar. „Þess vegna er ástæða til þess að hið opinbera sýni ýtrastu aðhaldssemi í hagstjórn. Það má hins vegar alltaf deila um nákvæmlega hvenær rétti tíminn er til að fara í aðhaldsaðgerðir.“ Fölsk öryggiskennd Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Islands, segir íyrirhyggju í fjárlagagerð vera of litla. „Við núver- andi kringumstæður ætti ríkissjóður að sýna myndarlegan afgang. En því er ekla að heilsa. Það á einnig við um sveitarfélögin, sem halda áfram að safna skuldum. Góðærið hefur fyllt menn falskri öryggiskennd. Þetta hefur gerst hvað eftir annað undangengna áratugi, og ástandið væri tryggara nú ef við hefðum lært meira af mistökum fyrri ára.“ Friðrik Már Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að ástæða sé til að vera á verði gagnvart auk- inni verðbólgu. Ekki verði gengið öllu lengra á sömu braut í efnahags- málum. „Það er mjög æskilegt að slá á eftirspum, ekki eingöngu vegna verðbólguhættu heldur vegna mikils viðskiptahalla, meðal annars vegna mikillar aukningar á innflutn- ingi neysluvöru.“ Agnar Hansson, framkvæmda- stjóri viðskiptasviðs Viðskiptahá- skólans, veltir fyrir sér af hverju ís- lendingar haldi uppi sjálfstæðum gjaldmiðli. „Það er óvíða sem utan- ríkisviðskipti era jafn stór hluti af umfangi hagkerfísins og hér, þar sem innflutningur nemur um 40% af vergri landsframleiðslu." ■ Þenslan ógnar/10 11% fjölgun flugfarþega til og frá landinu 1998 127 þúsund fleiri farþegar FARÞEGAR í millilandaflugi til og frá Islandi vora alls 1.250 þúsund á seinasta ári eða 127 þúsund fleiri en á árinu 1997. Er þetta 11% fjölgun skv. upplýs- ingum Flugmálastjómar. Þetta jafngildir því að flug- ferðum til og frá landinu hafi fjölgað um 820 á árinu eða um rúmlega tvær ferðir á dag allan ársins hring með fullskipaðri 150 sæta þotu á borð við Boeing 737- 400, sem mikið era notaðar í flugi á milli Islands og annarra Evrópulanda. Vöruflutningar jukust um 6% Vöra- og póstflutningar í milli- landaflugi námu alls liðlega 27 þúsund tonnum í fyrra sem er 2% aukning frá 1997. Vöraflutn- ingar jukust um 6% en flutning- ur á pósti dróst saman um 5%. Samkvæmt tölum Flugmála- stjórnar voru áningarfarþegar á Keflavíkurflugvelli 367 þúsund í fyrra eða 29% af heildarfarþega- fjöldanum. Þetta er næstmesti fjöldi áningarfarþega í sögu flug- vallarins en árið 1971 voru þeir 375 þúsund. Alls fóra 22.200 millilandafar- þegar um Reykjavíkurflugvöll í fyrra eða 2% fleiri en árið áður. Millilandafarþegar á Akureyri vora 2.200 í fyrra sem er 53% samdráttur á milli ára og á Egilsstaðaflugvelli fækkaði þess- um farþegum um 19% en þar vora þeir 565 talsins. Þessi mikla fækkun á Akureyri skýrist af því að sl. haust voru ekki í boði helg- arferðir í beinu flugi á mifli Akureyrar og ýmissa borga í Evrópu, skv. upplýsingum Flug- málastjórnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.