Morgunblaðið - 28.02.1999, Síða 10

Morgunblaðið - 28.02.1999, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Síðan íslendingar hættu hvalveiðum hef- ur umræðan um að hefja veiðar á ný fengið byr undir báða vængi með jöfnu millibili, en Islendingar allan tím- ann verið tvístígandi. Nú bíða menn eftir því hvort alþingismenn taki að þessu sinni af- dráttarlausa afstöðu með eða á móti hval- veiðum, en málið er rætt á Alþingi þessa dagana. Að því er Hild- ur Friðriksdóttir kemst næst eru tals- menn samtaka hér á landi, sem hafa látið skoðanir sínar í ljós, al- mennt ekki á móti hval- veiðum til frambúðar, en telja að fyrst verði að kynna málstað Is- lendinga erlendis. TILLAGAN, sem ligg- ur nú fyrir Alþingi, um að hefja hvalveiðar á ný er ekki sú fyrsta þess efnis, en Siv Frið- Íeifsdóttir einn flutn- ingsmannanna telur, að þingmenn hafi aldrei verið nær því að ná niður- stöðu í málinu. „Ég vona að sú afstaða verði tek- in, að við upphefjum ákvörðun Al- þingis sem var tekin á sínum tíma og varð til þess að við hættum hval- veiðum. Sú ákvörðun hefur alltaf háð okkur. Nú eru menn svolítið að togast á um hversu afdráttarlaus textinn í þingsályktunartillögunni eigi að vera, því deildar meiningar eru um hvernig hagsmunum okkar er best fyrir komið.“ Siv segir að verði ákvörðun tekin um hvalveiðar þurfi kynning að fara fram samhliða. Hún líkir þessu við það þegar Islendingar færðu fisk- veiðilandhelgina út í 200 mílur, þá hefði ekki þýtt að fara fyrst til er- lendra stjórnvalda og spyrja hvort það yrði ekki í lagi. Þá hefðu auðvit- að komið fram mjög harkaleg við- brögð. „Þetta er skref sem þarf að taka og útskýra um leið fyrir stjóm- völdum helstu viðskiptalanda okkar, hvers vegna við erum að hefja hval- veiðar. Við lifum á því að nýta nátt- úruauðlindir okkar og þá á ekki að undanskilja hvalinn frekar en eitt- hvað annað.“ Hún kveðst ekki eiga von á því, að þær spár muni ganga eftir að mark- aðir verði fyrir áfalli ef hvalveiðar hefjast á ný. Það hafí ekki sýnt sig hingað til, svo sem þegar vísinda- veiðar stóðu yfir 1986-89, en þá hafi sömu aðilar verið með hávær rök um að markaður okkar myndi fara illa og ferðaþjónustan tapa. „Meira að segja jókst ferðaþjónustan um 30% á þessu tímabili," sagði hún. Hugs- anlega fáum við eitthvert högg á mörkuðum en hún telur að það verði óverulegt. Mismunandi sjónarmið Þeir sem styðja hvalveiðar vísa í vísindarannsóknir en samkvæmt þeim er talið óhætt að veiða tak- markaðan fjölda hvala af ákveðnum tegundum. Rök þeirra hníga einnig að því að með áframhaldandi hvala- friðun muni hvalurinn éta það mikið af fiski, að hann verði kominn í veru- lega samkeppni við íbúa landsins. Þá er einnig vísað í Ríó-sáttmálann frá 1992, þar sem þjóðir heims skrifuðu undir, að ríki heims eigi að stuðla að sjálfbærri þróun og sjálfbærri nýt- ingu auðlinda heims. Ff;.^ ^ ■ÍPfW ffl 'j : -j. - Morgunblaðið/RAX Togast á um HVALINN Hvaða áhrif hefði það haft á ákvörðun um ís- landsferð ef íslendingar væru hvaðveiðiþjóð? Ferðamenn á leið úr landi spurðir álits I könnun Ferðamálaráðs sumarið 1997. Engin áhrif Mjög neikvæð Frekar neikvæð Mjög/frekar jákvæð Veit ekki 7% Þeir sem eru andvígir hvalveiðum óttast að umhverfisverndarsinnum takist með áróðri sínum að telja fólk á að sniðganga íslenskar sjávarfurð- ir og eyðileggja mikilvæga markaði. Rætt er um hótanir um viðskipta- bann á ísland og á undanfórnum ár- um hafa menn einnig horft í ríkara mæli til ferðaþjónustunnar. Þeir benda á vaxandi vinsældir hvala- skoðunar, hún sé arðbær atvinnu- grein, sem eigi ekki samleið með hvalveiðum. Veiðar ekki útilokaðar um alla framtíð Af umfjöllun og svörum tals- manna hagsmunaaðila má skilja að fæstir virðast útiloka hvalveiðar um ókomna framtíð. Hins vegar hafa æ oftar heyrst þær raddir á síðustu mánuðum og árum, að nauðsynlegt sé að kynna sjónarmið Islendinga, að tímasetningin skipti máli, sem og heildarhagsmunir þjóðarinnar allr- ar. Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. er orðinn langþreyttur á hiki stjórnmálamanna, enda hefur hval- veiðifloti hans legið við bryggju frá því veiðum var hætt árið 1989. „Ég er ekkert á móti því að senda menn út af örkinni til að heimsækja ríkis- stjórnir í Evrópu og Bandaríkjunum og tilkynna hvað stjórnvöld hér hyggist gera. Menn verða hins veg- ar að ákveða hvað þeir ætla að gera áður en þeir hefja kynningu. Það þýðir ekkert að tala og tala og kynna eitthvað sem enginn veit hvað er,“ segir hann. Kristján leggur áherslu á að það hljóti að vera lífsnauðsynlegt að veiða hvali til þess að þeir fjölgi sér ekki um of, ef stofnarnir á annað borð þoli veiðar. Verið sé að setja kvóta á alla fiskistofna vegna of- veiði, en þarna séu „stórtækar ryksugur á ferð“. Auk þess skapi veiðarnar atvinnu og tekjur. „Einnig verður að athuga að umhverfis- vemdarsinnar og þeir sem eru and- snúnir hvalveiðum láta ekki hér staðar numið. Þeir eru andvígir fisk- veiðum og kalla trollið til dæmis „fallhlíf dauðans". Þeh munu því stoppa fiskveiðar líka, ef ekkert verður að gert.“ Á ráðstefnu hér á landi í mars 1997 skýrði Trond Bjprndal prófess- or við Viðskiptaháskólann í Bergen frá því, að tekjur norskra hvalveiði- manna af hverju veiddu dýri hefðu lækkað um nær helming frá því að veiðarnar hófust á ný árið 1993. Verðið þá hafi að vísu verið hátt JÓHANN Siguijónsson, forsljóri Hafrannsóknastofnunar, hefúr komið að hvalveiðimálum og hvalarannsóknum um tveggja ára- tuga skeið. Einnig var hann sendi- herra og aðalsamningamaður ís- lands í fiskveiðimálum á áranum 1996-98. Jóhann segir að verði hvala- stofnarnir látnir vaxa upp í það sem þeir voru áður en veiðar hófust telji íslenskir vísindamenn að afrakstur þorskstofnsins muni minnka umtalsvert til langs tíma litið. Hann segir að Hafrannsókna- stofnunin og starfsmenn hennar líti á hvali sem nýtanlega auðlind í samkeppni við aðra nytjastofna okkar. Hann kveðst jafnframt skilja mikilvægi þess að auka á (jölbreytni í atvinnulffinu. Á það hafi réttilega verið lögð áhei-sla um áratuga skeið. „Samt eru fiskafurðir ennþá um 70% af vöru- útflutningi iandsins. Ef við ætlum að renna á rassinn í þessu máli líst vegna skorts á hvalkjöti, en einnig sagði að verð hefði lækkað um helm- ing milli áranna 1996 og 1997. Krist- ján Loftsson kveðst ekki hafa neinar áhyggjur af þessum þætti. „Hval- veiðar er góður atvinnurekstur, ann- ars væru menn ekki í þessu,“ sagði hann. Menn óttast viðbrögð erlendis Fyrr í þessum mánuði varaði Jon Yard Arnason, formaður Amerísk- íslenska verslunarráðsins, við að áhrif neikvæðrar umræðu í Banda- ríkjunum myndu vega þyngra en hugsanlegur efnahagslegur ávinn- ingur Islendinga af veiðunum. Ræddi hann um hugsanlegt við- mér ekki á framtíðina." Hann tekur fram, að vissulega muni menntun, tækniþekking og nýjar greinar svo sem líftækni skapa aukna fjölbreytni, ep menn megi ekki gleyma þvf, að Islend- ingar séu matvælaframleiðendur. Að baki því liggi auðug fiskimið okkar og sérþekking í sjávarút- vegi. Vaxtarbroddur í atvinnulífi sé oftar en ekki í tengslum við sjávarútveginn. Hann tekur sem dæmi, að útflutiúngur á hátækni hafi ekki síst náð flugi í greinum, sem snúi að sjávarútvegi, svo sem í tölvugeiranum. skiptabann á íslenskar vörur og sagði tímasetninguna þar að auki vera óheppilega, þar sem samstarf þessara þjóða stæði yfir vegna landafundanna miklu. Einnig hefði Island fengið mikla kynningu vegna flutnings Keikós til landsins. „Þetta er því varla rétti tíminn til þess að taka ákvörðun um að leyfa hvalveið- ar á ný burtséð frá því hvort rökin að baki ákvörðuninni eru góð og gild eður ei,“ sagði Arnason. Einar Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Landafundanefndar, sem hefur langa reynslu af því að verja hagsmuni íslendinga af nýt- ingu auðlinda hafsins, telur sömu- leiðis, að viðskiptahagsmunir séu í Spurður hvort hvalveiðar og hvalaskoðun geti farið saman telur hann svo vcra, en segir að komi til veiða þurfi að takmarka þær við svæði líkt og svæðalokanir í fisk- veiðum. Viðhorfíð að breytast Jóhann telur að hugtakið „sjálf- bær nýting“ sé að öðlast fastari sess í samfélagi þjóða og eigi eftir að styrkja okkur í framtíðinni. Með Ríó-sáttmálanum frá árinu 1992 skrifuðu þjóðir heims undir sáttmála, þar sem tekið er fram, að ríkjum beri að stuðla að sjálfbærri Hvalaskoðun og hvalveiðar geta vel farið saman

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.