Morgunblaðið - 28.02.1999, Page 14
14 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Slagurinn í 1. deildar keppninni í handknattleik hefst á ný í kvöld með sex leikjum
Deildarmeistaratitill-
inn til Aftureldingar?
_ Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
JON Kristjánsson, þjálfari og leikmaður Vals í 1. deild karla. Skúli Gunnsteinsson telur að Valsmenn hafi eflaust nýtt hvfldina vel. „Ég er t.d. viss
um að Jón Kristjánsson verður sterkur í næstu leikjum. Hann átti við meiðsl að stríða í síðustu leikjum og gat því ekki beitt sér sem skyldi.“
Fj. leikja U J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
UMFA 19 6 2 1 238:210 8 0 2 268:248 506:458 30
STJARNAN 19 6 1 2 236:215 6 0 4 231:248 467:463 25
FRAM 19 6 0 3 247:216 5 0 5 251:252 498:468 22
KA 19 7 0 3 270:246 4 0 5 227:230 497:476 22
HAUKAR 19 7 0 3 274:250 2 2 5 239: 248 513:498 20
ÍBV 19 9 0 1 244:210 0 2 7 201:223 445:433 20
VALUR 19 4 1 4 210:191 5 0 5 222:224 432:415 19
ÍR 19 8 1 1 268:242 1 0 8 200:243 468:485 19
FH 19 4 1 4 223:208 3 1 6 232:251 455:459 16
HK 19 3 2 5 244:250 2 3 4 211: 227 455:477 15
GRÓTTA/KR 19 2 2 5 217:217 1 2 7 233:278 450:495 10
SELFOSS 19 4 1 5 249:257 0 1 8 197:248 446:505 10
Keppni í 1. deild karla
hefst í kvöld á nýjan
leik eftir nálega þriggja
vikna hvfld. Sex leikir
eru á dagskrá í kvöld
og í Mosfellsbæ geta
heimamenn í Aftureld-
ingu tryggt sér deildar-
meistaratitilinn. Björn
Ingi Hrafnsson ræddi
við Skúla Gunnsteins-
son, þjálfara Aftureld-
ingar, og bað hann að
spá í spilin.
SKÚLI Gunnsteinsson tók við liði
Aftureldingar fyrir síðustu leik-
tíð. Þá vantaði Mosfellinga
herslumuninn á að ná titlum, „gáfu
allt of mikið eftir frá jólum,“ ejns og
þjálfarinn orðar það sjálfur. I kjöl-
fai'ið varð uppstökkun; níu fasta-
menn hurfu á braut og aðrir komu í
staðinn. Þrátt fyrir það hefur Skúla
tekist að stilla saman strengi og
koma saman álitlegu liði.
Þetta sannaðist heldur betur á
dögunum er Mosfellingar tryggðu
sér bikarmeistaratitilinn í fyrsta
sinn - með öruggum sigri á FH í úr-
slitaleik. Liðið hefur nú fimm stiga
forystu á toppi 1. deiidar og aðeins
þijár umferðir eftir. Það er þvi ljóst
að Afturelding tryggir sér deildar-
meistaratitil með sigri á KA í kvöld.
Tími hefndarinnar
Það er kaldhæðni örlaganna, að
einmitt KA-menn náðu að stela þeim
titli af Frömurum og Aftureldingu á
lokasprettinum í fyrra og nú má því
segja að tími hefndarinnar sé runnin
upp.
„Jú, það fer ekkert á milli mála að
við ætlum okkur sigur í kvöld og þar
með að hampa deildarmeistaratitlin-
um. Við misstum naumlega af honum
í fyrra, en erum nú reynslunni ríkari
og ég held að okkur takist að sigra -
en leikurinn verður efiaust mjög
jafn,“ sagði Skúli í gær þegar Morg-
unblaðið bað hann að spá í leiki
kvöldsins.
Skúli segir ljóst að ekki megi van-
meta norðanmenn, þeir hafi verið á
talsverðri siglingu áður en kom að
hvíldinni. „KA-menn eru sterkir og
búa að stórum aðdáendahópi hér fyr-
ir sunnan. Eg á von á því að stuðn-
ingsmenn okkai' séu ennþá kátir yfir
bikarúrslitaleiknum og því ætti
stemmningin í húsinu að geta orðið
mjög góð.“
Hann segist þó ekki hræddur um
að sínir menn séu mettir eftir bikar-
leikinn. „Við viljum fá fleiri titla, það
er ekki spurning. Við erum ekkert
hættir, þessi titill er vel innan seil-
ingar fyrir okkur og svo er það úr-
slitakeppnin. Hún er sjálfstætt mót
og þar getur allt gerst, en við eigum
ekki verri möguleika en önnur lið.“
Skúli segir að allir séu heilir í sínu
liði, en eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, handarbrotnaði Hilm-
ar Bjarnason, leikstjórnandi KA í
vikunni og verður frá í fjórar til sex
vikur.
Spennandi í Garðabæ
Stjarnan í Garðabæ hefur leikið
vel á leiktíðinni undir stjóm Einars
Einarssonar þjálfara. Liðið er nú í 2.
sæti deildarinnar - hefur 25 stig,
þremur stigum meira en Fram og
KA sem koma þar á eftir.
Stjaman fær IR í heimsókn og
Skúli segir að það verði án efa
spennandi leikur. „Leikir þessara
liða á undanförnum ámm hafa oft
verið ansi skrautlegir og IR-ingum
hefur oft tekist að sigra í Garðabæn-
um. Bæði lið hafa til mikils að vinna,
ÍR þarf einhver stig til að tryggja
sæti sitt í úrslitakeppninni og
Stjarnan er enn í baráttu við okkur á
toppi deildarinnar.
Eg hallast heldur að sigri minna
gömlu félaga úr Garðabæ, þar em
toppleikmenn í ölium stöðum og mun
meiri breidd en hjá Breiðhyltingum.
En það verður tæpt og úrslitin gætu
ráðist á síðustu mínútunni."
Sigfús aftur með Val
Valsmenn taka á móti Haukum að
Hiíðarenda og Skúli telur að Vals-
menn hafi nýtt þriggja vikna hvíld-
ina vel. „Ég er alveg klár á því. Vals-
menn hafa ekki leikið allt of vel í vet-
ur og ekki er spurning að þeir eiga
nokkuð inni - eiga eftir að bæta sig.
Þeir hafa eflaust nýtt hvíldina vel og
ég er t.d. viss um að Jón Kristjáns-
son verður sterkur í næstu leikjum.
Hann átti við meiðsli að stríða í
síðstu leikjum og gat því ekki beitt
sér sem skyldi."
Sigfús Sigurðsson, línumaður ís-
lenska landsliðsins, er snúinn aftur á
æskuslóðirnar á Hlíðarenda og verð-
ur með í kvöld. „Ég á von á Vals-
mönnum sterkum og koma Sigfúsar
dregur auðvitað ekki úr því. Hins
vegar er hefð fyrir mjög jöfnum
viðureignum þessara liða á undan-
fórnum árum og ég hallast raunar á
að jafntefli verði úrslitin í þessum
leik. Vinni annað hvort liðið, ræðst
það af sigurmarki undii- lokin - ég er
sannfærður um það.“
FH verður að vinna
í Hafnarfirðinum taka heimamenn
í FH á móti Selfyssingum og Skúli
telur að um auðveldan sigur heima-
manna verði að ræða.
„Selfyssingar eru því sem næst
fallnir niður í 2. deild og ég held að
FH-ingar verði ofjarlar þeirra í
þessum leik. Þeir töpuðu fyi-ir okkur
í bikarúrslitunum á dögunum og nú
er næsta takmark þeirra að tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni. Þar
þurfa þeir ekki aðeins að vinna sína
leiki, heldur verða þeir einnig að
treysta á úrslit í öðrum leikjum og
því verða næstu leikir liðsins eflaust
mjög spennandi.“
FH er í 9. sæti deildarinnar, en að-
eins átta efstu liðin komast í úrslita-
keppnina. I 7. og 8. sæti eru Valur og
IR og Hafnfirðingar verða að sækja
sæti til þeirra ætli þeir sér að kom-
ast í úrslitakeppnina.
Framarar vinna HK
í íþróttahúsinu við Safamýri taka
Framarar á móti HK úr Kópavogi.
Hjá Fram snýst baráttan um að
halda sér í hópi fjögurra efstu liða og
fá þannig heimaleikjarétt í úrslita-
keppninni, en barátta HK gengur
fremur út á að forða sér endanlega
frá falli. Liðið á haria litla möguleika
á sæti í úrslitakeppninni.
„Framarar vinna þennan leik ör-
ugglega að mínu mati, enda er ekki
mikil pressa á liðinu og ekki lengur
möguleiki á deildarmeistaratitlinum.
Þeir eru með sterkari leikmenn en
HK og eflaust hefur Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari liðsins, ein-
hver ráð í pokahorninu til að stöðva
kollega sinn í HK, Sigurð Sveinsson
sem verið hefur helsta vopn liðsins í
vetur,“ segir Skúli.
Guðmundur Guðmundsson hefur
nú tilkynnt að hann hætti með Fram
eftir þessa leiktíð - hyggst taka við
þýska íslendingaliðinu Bayer Dor-
magen. „Þetta hefur varla mikil áhrif
á leik liðsins," segir Skúli.
Fellur Grótta/KR?
Baráttuleikm' verður á Seltjarnar-
nesinu er Grótta/KR fær ÍBV í heim-
sókn. Fátt annað en fall blasir við
heimaliðinu, en fjarlægur möguleiki
ynnist með sigri í þessum leik. Eyja-
menn verða þar eflaust erfið hindr-
un, en þeir geta þó ekki stært sig af
miklum árangri á útivelli í vetur -
hafa ekki unnið einn einasta leik.
„Ég hitti Einar Baldvin [Árnason,
leikmann Gróttu/KR] á dögunum og
hann sagðis að Grótta/KR ætlaði að
vinna sína leiki og forða sér frá falli,“
segir Skúli. „Ég ætla því að spá
heimamönnum sigri í þessum leik,
þeir hafa allt að vinna og svo eru
Eyjamennirnir ekki sterkir á útivelli
eins og dæmin sanna.“