Morgunblaðið - 28.02.1999, Side 36
36 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Miklar breytingar í sjávarútvegi
Mexíkó á undanförnum árum
Ahrifamáttur
einkarekstrar
eykst sífellt
Sjávarútvegur Mexíkó færist hægt og bít-
andi yfír í nútímalegra form og er á réttri
leið, þrátt fyrir ýmsar brotalamir. Gfsli
Héðinsson, sjávarútvegsfræðingur hjá
Þörungaverksmiðjunni að Reykhólum,
hefur kynnt sér sjávarútveginn á þessum
slóðum og rekur hér gang mála í fískveiði-
stjórnun, veiðum og vinnslu.
JÁVARÚTVEGUR í
Mexíkó hefur gengið í
gegnum miklar breytingar
á undanförnum árum.
Breytingarnar hafa falist í því að
minnka áhrif stjórnvalda í iðnaði al-
mennt. Árið 1992 voru sérleyfi sam-
vinnufélaga til veiða ákveðinna teg-
unda innkölluð og rekstur ríkisrek-
ins útvegsbanka hætt. Einnig hefur
einkaleyfi ríkisrekins pökkunar- og
markaðsfyrirtækis (Ocean Garden)
á útflutningi rækju verið afnumið
og ríkisreknar stoðstofnanir eru í
auknum mæli farnar að sinna þörf-
um sjávarútvegsins.
Einkaaðilar hafa stofnað með sér
landssamtök útgerðamanna
(CANAINPES) og hefur áhrifa-
máttur þeirra aukist mikið á kostn-
að samvinnuhreyfínganna sem hafa
farið halloka í baráttunni eftir að
áherslur stjórnvalda breyttust.
Fiskveiðistjóniun
og rannsóknir
Mikil brotalöm er í fiskveiði-
stjórnun og er áætlað að óskráður
afli árið 1996 hafi verið rúm 180
þús. tonn sem er um 13% af heildar-
afla ársins. Kannski er það ekkert
meira vandamál en brottkast afla
við Islandsstrendur. Sjávarútvegs-
ráðuneytið (Secretaría de Pesca) 1
Mexíkóborg stjórnar rannsóknum,
lögum og reglugerðum í gegnum
svæðisskrifstofur og rannsóknaset-
ur í hafnarborgum og bæjum. Þrátt
fyrir afnám laga og reglugerða og
minna skrifræðis, gegna mexíkósk
stjómvöld lykilhlutverki við fram-
þróun sjávarútvegsins.
Afar litlar forsendur eru fyrir
takmörkun veiða í Mexíkó þar sem
þekking á veiðiþoli stofna er lítil. Þó
eru stjórnvöld sér meðvitandi um að
ótakmörkuð sókn getur haft alvar-
legar afleiðingar og reynt hefur ver-
ið að minnka sóknina í ákveðnar
tegundir. Rækjuveiðum er stjórnað
með veiðileyfum, veiðitímabilum og
möskvastærð í trolli. Túnfiskveiðar,
stærri skipa en 363 MT, verða að
uppfylla kröfur fískistofu
(SEPESCA) sem eru mótaðar af
samþykktum alþjóða túnfiskveiði-
ráðsins.
Sardínuveiðum er stjómað með
takmörkun veiðitímabils og lág-
markslengd á veiddri sardínu. Veið-
ar á öðram fisktegundum em óheft-
ar. Rétt er að geta þess að útgerð í
Mexíkó verður að vera í meirihluta-
eigu mexíkóskra aðila.
Rannsóknir í sjávarútvegi em
mjög skammt á veg komnar og lítið
er vitað um veiðiþol stofna og dreif-
ingu físktegunda innan lögsögunn-
ar. Tilfínning höfundar er að rann-
sóknir sem stundaðar era stýrist af
almenningsáliti og markaðsöflum
en ekki af hagnýtu rannsóknar-
sjónamiði sem nýta mætti til mót-
unar sjálfbærrar fiskveiðistefnu.
Fullyrða má að innan lögsögu
Mexíkó megi finna margar ónýttar
tegundir, þó að sóknin í marga
stofna sem veiddir eru í dag sé um-
fram veiðiþol þeirra.
Heildai-afli árið 1996 við strendur
Mexíkó var 1.347 þús. tonn sem er
rúmlega 300 þús. tonnum minna en
aflí Islendinga sama ár. Heildarafl-
inn margfaldaðist á seinni hluta 8.
áratugarins og hefur afli síðustu
tuttugu ára verið á bilinu
1.100-1.400 þús. tonn. Veiðar á
fimm fisktegundum eru yfir 50%
þess sem aflað er og em þær sard-
ína, túnfiskur, mojarra, smokkfisk-
ur og rækja. Rúm 25% aflans árið
1996 var sardína en aðrar tegundir
voru undir 10% af aflanum.
Margar fisktegundir
Aflaverðmæti árið 1996 var 970
milljónir US$ (gengi 31/12 ‘96).
Rækja, túnfiskur, kolkrabbi, moj-
arra og smokkfiskur skapa yfir 50%
verðmætanna. Verðmæti rækjunn-
ar vegur þar langþyngst og eða
30%, túnfiskur rúm 15% en verð-
mæti annarra tegunda em undir
7%.
Fiskiskipafloti í Mexíkó sam-
anstendur af útgerð rækjuskipa,
túnfiskveiðiskipa, nótaskipa, botn-
fiskveiðiskipa og svokallaðra pan-
gas-báta sem eru litlir strandveiði-
bátar.
I rækjuveiðiflotanum í Mexíkó
em 2.260 skip og skiptist fjöldi
þeirra jafnt á milli aústur- og vest-
urstrandarinnar. Lítil nýsmíði hefur
verið undafarin ár og eru 90% flot-
ans 11 ára og eldri. Rekstrargrund-
völlur rækjuútgerðarinnar er slæm-
ur í dag vegna minnkandi veiði síð-
asta áratuginn og slakrar nýtingar
á skipum. Mikilvægt er að auka
fiskveiðimöguleika og afkastagetu
skipanna til að breyta afkomu út-
gerðarinnar.
Túnfiskveiðiflotinn í Mexíkó er
103 skip og er 81 þeirra gert út frá
Kyrrahafsströndinni. Nettóburðar-
geta túnfiskveiðiflota Kyrrahafs-
strandarinnar er 33 þús. tonn. Flest
skipin era nótaveiðiskip en aðrar
gerðir era breytt sardínunótaskip,
færa- og línuskip og nokkur lítil
fjölveiðiskip. Nær allur túnfisk-
veiðiaflinn er veiddur frá Kyrra-
hafsströndinni. Flest skipin eru
gerð út frá Baja California eða 66
talsins en stærstum hluta aflans er
landað í Sinaloa. Eftirtektarvert er
að 45% túnfiskveiðiaflans er landað
í Sinaloa þrátt fyrir að aðeins era
gerð þaðan út 9 túnfiskveiðiskip.
Nótaskip eru eingöngu gerð út
frá Kyrrahafsströndinni, telja þau
77 skip og stunda þau sardínuveið-
ar. Nettóburðargeta þeirra er um 6
þús. tonn. Mest er útgerð nótaskipa
frá Sonora eða 44 skip og er 70%
aflans landað þar, 20 skip eru gerð
út frá Baja California.
Botnfiskveiðiflotinn í Mexíkó er
896 skip, þar af 691 í Karíbahafi og
Mexíkóflóa. Nokkur fjölgun hefur
verið í botnfiskveiðiflotanum í Karí-
bahafi og Mexíkóflóa en minni við
Kyrrahafsströndina. Fisktegund-
irnar sem veiddar era við strendur
Mexíkó eru margar, en eins og
Fiskvinnslur í IVIexíkó 1996
Fiskvinnslur: ____Frystihús____ Niðursuðuverksm. Fiskimjölsverksm. Annað
Staðsetning Fjöldi Afkastageta Fjöldi Afkastageta Fjöldi Afkastageta Fjöldi
Á Kyrrahafsströnd 201 104 tonn/klst 44 339 tonn/klst 44 441 tonn/klst 11
Karíbahaf og Mexíkóflói 95 60 tonn/klst 4 5 tonn/klst 7 4 tonn/klst 2
MEXÓKÓ SAMTALS 296 164 tonn/klst 48 344 tonn/klst 54 445 tonn/klst 15
Línuritið sýnir þróun framleiðslu helstu fiskafurða í Mexíkó árin 1985-1996.
SKIPAKOSTUR er fremur fátæklegnr, en ný tækni er að ryðja sér til
rúms og meðal annars er notkun íslenzkra veiðarfæra þegar hafin í
einhverjum mæli.
veiðistjórnunar-
kerfi stjórnvalda.
Fiskvinnsla
Morgunblaðið/Ólafur Arnbjörnsson
RÆKJAN er ein af fimm mikilvægustu tegund-
unum í mexíkóskum sjávarútvegi.
fiskifræðin kennir okkur, eru marg-
ar tegundir með litla stofnstærð við
miðbaug, en færri stofnar með
mikla stofnstærð þegar nær pólun-
um dregur.
Pangas-smábátar era um 5 metra
langir bátar með utanborðsmótor
og á þeim era stundaðar margs
konar veiðar meðfram ströndum
Mexíkó. Smábátaflotinn var 73.628
bátar árið 1996 og skiptist flotinn
nokkuð jafnt milli austur- og vest-
urstrandarinnar. Fjöldi þessara
báta hefur tæplega þrefaldast á síð-
ustu 20 árum en mjög erfitt er að
stjórna fjölgun og veiðum þessara
báta. Talið er að mest af óskráðum
afla sé vegna rányrkju og svarta-
markaðsbrasks þessara báta. Það
er því víðar en hér á íslandi sem
smábátar falla ekki beint inn í fisk-
Verslun og við-
skipti
í dag er Mexíkó
með mestu við-
skiptin í Rómönsku
Ameríku og í 10.
sæti yfir lönd í
heiminum. Á 10 árum hefur útflutn-
ingur fjórfaldast og innfiutningur
tæplega sexfaldast. Vöraskiptajöfn-
uður við útlönd var jafn árið 1997
eða 110 milljarðar US$. Innflutn-
ingur hafði þá aukist um 23% og út-
flutningur um 15% frá því árið áður.
Mesta aukning útflutnings hefur
verið til Suðaustur-Asíu en næst á
eftir kemur Rómanska Ameríka og
Bandaríkin.
Árið 1986 gekk Mexíkó í GATT.
Var þátttakan upphafið á nýju tíma-
bili í alþjóðaviðskiptum í Mexíkó og
spilaði mikilvægt hlutverk við mót-
un nýrrar alþjóðastefnu stjórn-
valda. Með þróun útflutningsmögu-
leika og aðgengi að erlendum mörk-
uðum hafa nýir möguleikar opnast
fyrir erlenda fjárfesta í landinu. Er-
lend fjárfesting í Mexíkó er önnur
Magn hráefnis til
vinnslu árið 1996
var 830 þús. tonn og
magn afurða 382
þús. tonn.
Langstærsti hluti
úrvinnslu sjávaraf-
urða fer fram við
Kyrrahafsstönd
Mexíkó. Á línuriti 1
hér að ofan má sjá á
þróun í vinnslu
sjávarafurða. Til
frystingar fer helst
smokkfiskur, rækja
og túnfiskur. Sard-
ína og makríll fer
mest í bræðslu en
þau fara einnig í
niðursuðu ásamt
túnfiski. I töflunni
má sjá að fjöldi
verksmiðja í
Mexíkó er 413 og er
afkastageta þein-a
953 tonn/klst.
sú mesta í heiminum á eftir Kína.
Síðustu ár hefur verið fjárfest í
framleiðsluiðnaði íyrir helming er-
lends fjármagns og kemur meira en
helmingur fjánnagnsins frá Norð-
ur-Ameríku.
í kjölfar GATT-samningsins hef-
ur Mexíkó aukið enn frekar alþjóða-
tengslin með þátttöku í APEC árið
1993, OECD og NAFTA árið 1994.
Einnig hafa verið gerðir fríverslun-
arsamningar við einstök Iönd og
aðrir samningar era í farvatninu,
þar á meðal samningur um fríversl-
unarsvæðis Ameríkuríkja og ESB.
Inn- og útflutningur sjávaraf-
urða og heimamarkaður
Magn innfluttra sjávarafurða til
Mexíkó hefur minnkað milli áranna
1994 og 1996 en verðmætið þó ekki
að sama skapi. Verðmæti innflutn-
ings er mest frá Bandaríkjunum en
mesta magnið er flutt inn frá Chile.
Mest er flutt inn af olíu og feiti,
bæði hvað varðar magn og verð-
mæti.
Magn og verðmæti útfluttra sjáv-
arafurða hefur aukist mikið árin
1995 og 1996. Mest var aukningin í
útflutningi botnfisktegunda. Mest
er flutt til Bandaríkjanna, bæði
hvað varðar magn og verðmæti.
Rækja vegur þar þyngst hvað verð-
mæti snertir en frystur fiskur að
magninu til.
Dreifikerfi fiskafurða í Mexíkó er
vanþróað og byggist á því að margir
smáir dreifiaðilar kaupa fisk af bát-
um án samninga. Dreifiaðilarnir
keyra um hafnarborgir og fylla
flutningabíla og flytja fiskinn á
markað í Mexíkóborg eða öðrum
stórum borgum. í viðtölum við aðila
í sjávarútvegi í Mexíkó kom skýrt
fram hversu bágar dreifileiðir væru
fyi'ir hendi og töldu þeir að það
stæði frekari vexti markaðar fyrir
sjávarafurðir fyrir þrifum.
Vænlegur kostur
Viss stöðnun hefur ríkt í sjávar-
útvegi í Mexíkó um árabil. Nú með
minnkandi afskiptum stjórnvalda
eiga útgerðarmenn auðveldara með
að leitað leiða til hagi-æðingar.
Rannsóknir á fiskistofnum innan
landhelgi Mexíkó ern skammt á veg
komnar og takmarkast fiskveið-
stjórnun við það. Fiskiskipastóll er
alltof stór og óhagkvæmur til að
geta verið arðbær og mikilvægt er
að leita leiða til hagræðingar. Tölu-
verð aukning hefur verið á vinnslu
frystra afurða síðustu ár og má
gera ráð fyrir að sú þróun haldi
áfram. Vöxtur innanlandsmarkaður
hefur takmarkast af litlu og óstöð-
ugu framboði af sjávarafurðum.
Mexíkó, eins og önnur lönd í Ró-
mönsku Ameríku, hefur verið lítt
fýsilegur kostur vegna óstöðugs
stjórnarfars og framandi menning-
arhátta. En með aukinni alþjóða-
væðingu verður öll stjórnsýsla og
viðskiptahættir líkari því sem við
þekkjum og gerir það auðveldara að
hefja og stunda viðskipti í framandi
landi. Auðlindir í Mexíkó, aðgengi
að nálægum mörkuðum og þróun í
stjórnsýslu gerir Mexíkó í dag að
vænlegum kosti sem Islendingar
ætla gi-einilega ekki að láta sér úr
greipum ganga.