Morgunblaðið - 28.02.1999, Síða 64
www.landsbanki.is
www.varda.is
4
Alvöru þjónusta
fyrir alvöru fólk
Landsbankinn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Tölvan
skammtar
lyfín
VERIÐ er að þróa tölvukerfl, í sam-
vinnu Ríkisspítalanna, Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, sem miðar að
því að gera lyfjagjöf á sjúki-áhúsun-
um einfaldari og öruggari.
Hugbúnaðarfyrii-tækið Tölvu-
myndir hefur hannað kerfi, sem
byggist á því að læknar gefa skipan-
ir um lyfjaskammt fyrir hvern sjúk-
ling í tölvu, skipanirnar berast lyfja-
búri sjúkrahússins þar sem pökkun-
arvél sér um að útbúa skammt
hvers sjúklings og skammtarnir eru
sendir á deildirnar í strikamerktum
umbúðum, svo hægt sé að lesa af
i i^þeim við lyfjagjöf og fylgjast þannig
með að lyf séu gefín á réttum tíma.
Hjúkrunarfræðingar þurfa þá ekki
lengur að raða pillum úr lyfjaglös-
um í bikara, sem getur nánast verið
fullt starf fyrir hjúkrunarfræðing á
stórri deild.
■ Skiptir miklu/20
-------------
Vilja einka-
leyfiátæki
sem leiðréttir
hraðamæla
VERKFRÆÐISTOFAN Samrás
hefur sótt um einkaleyfi fyrir nýrri
gerð leiðréttingartækis fyrir hraða-
mæla í bflum og hyggur á markaðs-
setningu í Bandaríkjunum.
Guðlaugur Jónasson, fram-
kvæmdastjóri og eigandi Samrásar,
segir að athuganir hafí leitt í ljós að
sams konar búnaður og fyrirtækið
hefur nú þróað finnist hvergi í
heiminum. Tækið er notað til að að-
laga hraðamælinn og vegalengdai--
^mælinn að breytingum sem gerðar
eru á bflum. Breytingamar geta
falist í stærri dekkjum, felgum eða
breyttu drifhlutfalli.
■ Áhugi/D2
Morgunblaðið/Ásdís
Ró í vetrarblíðu
RÓ OG friður var yfír þessum tveimur heiðursmönn- Hallgrímsson óhagganlegur á stalli sínum og hinn
um í Hljómskálagarðinum í Reykjavík enda Jónas naut blíðunnar einn og ótruflaður með sjálfum sér.
Forsætis-
ráðherra
Japans
boðið til
Islands
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ hefur
fyrir hönd forsætisráðherra Norð-
urlandanna boðið Keizo Obuehi, for-
sætisráðherra Japans, til íslands á
fund forsætisráðherra Norðurland-
anna, sem haldinn verður á íslandi í
júní í sumar. Obuchi hefur lýst
áhuga á að mæta á fundinn, en ekk-
ert hefur verið ákveðið um hvort af
þessu verður, að sögn Ólafs Davíðs-
sonar, ráðuneytisstjóra í forsætis-
ráðuneytinu.
Fyrrverandi forsætisráðherra
Japans hitti forsætisráðherra
Norðurlandanna á fundi í Bergen
fyrir tveimur árum. Ólafur sagði að
í lok þess fundar hefði komið fram
áhugi á að endurtaka þennan fund.
Ekki hefði orðið af því á síðasta
reglulega fundi forsætisráðherra
Norðurlandanna, sem haldinn var í
Svíþjóð. Boðið um að sækja fundinn
stæði hins vegar og íslensk stjórn-
völd hefðu ákveðið að endurnýja
það, en Island fer nú með for-
mennsku í Norðurlandasamstarf-
inu.
Ólafur sagði að japanski forsætis-
ráðherrann hefði sýnt áhuga á að
koma til Islands, en engin ákvörðun
hefði verið tekin um þetta.
Á annað hundrað manns
í fylgdarliði
Á annað hundrað manns er í
fylgdarliði forsætisráðherra Japans
þegar hann fer í opinberar heim-
sóknir og því þykir ljóst að mikið
fyrirtæki verður að skipuleggja
heimsókn hans til Islands ef af
henni verður.
Fyrirvari til að festa hótelpláss er
ekki mikill og því hefur forsætis-
ráðuneyti þrýst á japönsk stjóm-
völd að fá svör um hvort af heim-
sókninni getur orðið.
Bændur leita tilboða í tryggingar búa sinna og heimila
Iðgjöld gætu numið
rúmum milljarði
Lítil veiði
og léleg
loðna
-^33 SKIP voru á loðnuveiðum í
gær, flest úti fyrir Suðaustur-
landi. Hljóðið var misjafnt í
mönnum en ioðnan sem veiddist
var lítil og mögur.
Sturla Þórðarson, skipstjóri á
Berki, sagði að það væri lélegur
gangur í þessu. Skipið var að
koma inn til Seyðisljarðar í gær-
morgun með 1.100 tonn sem
veiddust í Lónsbugtinni. Allt átti
að fara í bræðslu. „Þetta hefur
verið lélegt. Við þurfum að hafa
svolítið fyrir því að ná þessu og
loðnan er léleg, ekki nema um 80
j.P^kvenloðnur í kílóinu og svo er
líka áta í þessu,“ sagði Sturla.
Hann kvaðst. þó ekki vera far-
inn að hafa áhyggjur af fram-
haldinu. Mikið væri enn eftir af
vertíðinni og veður fljót að skip-
ast í lofti.
Dagbjartur Þórðarson, skip-
’^M.jóri á Júpíter, sagði rólegan
gang í veiðunum og lítinn vertíð-
arbrag yfir þeim. „Þetta er ekk-
ert sérstakt. Við erum komnir
vestur fyrir Hrollaugseyjar en
vorum áður í Lónsbugtinni. Loðn-
an gufaði upp þar á föstudag. Við
fengum í morgun, [laugardags-
morgun], 400 tonn. Þetta er bara
reytingur af hálflélegri loðnu og
lítið að sjá. Ég veit ekkert með
framhaldið en mér líst ekki vel á
það,“ sagði Dagbjartur.
BÆNDASAMTÖK íslands hafa
skrifað fjórum tryggingafélögum
og óskað tilboða í tryggingar fyrir
bændur. Er þar um að ræða trygg-
ingar á eignum, bústofni og sjálf-
um atvinnurekstri bændanna,
heimilum þeirra og bílakosti.
Bændur eru hátt í fimm þúsund og
má gera ráð fyrir að samanlögð ið-
gjöld af þessum tryggingum séu
ekki undir einum milljarði króna.
Guðmundur Stefánsson; hag-
fræðingur Bændasamtaka Islands,
segir að tilgangurinn með því að
leita tilboða sé sá að ná ramma-
samningi við eitt ti"yggingafélag
sem sæi sér hag í því að bjóða í all-
an tryggingapakkann og vonist
menn þá til að hægt verði að fá
lægri iðgjöld ásamt betri trygging-
um og þjónustu. Hann segir bænd-
ur sjálfráða um það hvort þeir
semji við tryggingafélagið sem
hugsanlega fái slíkan rammasamn-
ing. Segir Guðmundur þarna verið
að fara svipaða leið og önnm- sam-
tök hafa gert, t.d. Landssamband
smábátaeigenda.
Óskað tilboða í allar
tryggingar
Óskað er eftir tilboðum í bruna-
tryggingar útihúsa, ti-yggingar bú-
fjár, véla og tækja, fóðurs og ann-
arra þátta er tengjast búrekstrin-
um. Jafnframt er óskað tilboða í
persónutryggingar, svo sem slysa-
tryggingar launþega og síðan
tryggingar á íbúðarhúsnæði og bfl-
um. Segir hann í útboðinu sett
fram dæmi um meðalbú fimm
manna fjölskyldu ásamt vinnufólki
og á þann hátt verði reynt að fá
samanburðarhæf tilboð frá félög-
unum. Leitað var tilboða frá Vá-
tryggingafélagi íslands, Sjóvá-Al-
mennum, Tryggingamiðstöðinni og
Tryggingu.
Fjöldi búa í landinu er hátt í
fimm þúsund og hefur iðgjald fyiir
meðalbú, þ.e. útihús, bústofn og
tæki ásamt iðgjöldum fyrir heimil-
in verið á bilinu 200 til 250 þúsund
krónur. Sé gert ráð fyrir að um
4.500 bændur taki slíkan trygg-
ingapakka og iðgjaldið sé 250 þús-
und krónur yrði heildarupphæð ið-
gjalds rúmur 1,1 milljarður króna.
Guðmundur kveðst vona að útboðið
geti leitt til lægra iðgjalds og betri
trygginga fyrir bændur, það sé til-
gangur þess að reyna að ná slíkum
rammasamningi.