Morgunblaðið - 17.03.1999, Side 6
6 MIÐVTKUDAGUR 17. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
Afsögnin áfall
fyrir Evrópu-
sambandið
SAMRÁÐSFUNDUR rílíisstjóinar og eldri borgara var haldinn í gær. Talið frá vinstri: Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Davíð Oddsson forsætisráðherra
og Benedikt Davíðsson og Ólafur Olafsson frá eldri borgurum.
Ríkisstjórnin ákveður að
láta kanna hag aldraðra
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að afsögn fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins sé áfall fyrir Evrópusam-
bandið. Hann telur þó að niður-
staðan af þessum breytingum geti
engu að síður orðið sú að fram-
kvæmdastjórnin styrkist. Ríkis-
stjórnir landanna komi væntanlega
til með að setja í framkvæmda-
stjórnina einstaklinga sem njóta
trausts, þar á meðal Evrópuþings-
ins, og sem hafi umboð til að hafa
frumkvæði að breytingum innan
sambandsins.
„Þetta er mikið áfall fyrir Evr-
ópusambandið eins og það er áfall
fyrir einstök ríki þegar heil ríkis-
stjórn segir af sér. Við verðum
samt að hafa það í huga að styrkur-
inn á bak við Evrópusambandið eru
ríkin og ríkisstjórnir landanna, en
ekki framkvæmdastjómin sjálf.
Framkvæmdasljórnin hefur
verið að missa tökin
Framkvæmdastjórnin hefur ver-
ið að missa tökin og missa foryst-
una innan Evrópusambandsins.
Forystan hefur í meira mæli farið í
hendurnar á ríkisstjórnunum og þá
ekki síst formennskuríkinu á hverj-
um tíma. Það er jafnframt ljóst að
völd og vægi Evrópuþingsins hafa
vaxið. Eftirlitið með framkvæmda-
stjórninni hefur aukist og góðu
fréttirnar í þessu fyrir Evrópusam-
bandið er að þetta aukna aðhald
með framkvæmdastjórninni hefur
FÉLAGSMENN í stéttarfélaginu
Samstöðu vilja að lögð verði áhersla
á 120 þúsund króna lágmarkslaun í
kröfugerð félagsins í næstu kjara-
samningum og að skattleysismörk
verði hækkuð verulega.
Þetta kom fram á félagsfundum
sem stjórnendur Samstöðu hafa
haldið að undanfómu á Skaga-
strönd, Hvammstanga og Blöndu-
ósi, samvkæmt fréttatilkynningu
sem borist hefur frá félaginu.
Samið verði til eins árs
Stéttarfélög víða um land eru far-
in að undirbúa sig fyrir endurnýjun
skilað þessum upplýsingum sem
hafa leitt til afsagnar framkvæmda-
stjórnarinnar.
Ég tel að ríkisstjórnirnar muni
reyna að styrkja framkvæmda-
stjómina eftir þessa uppákomu.
Þær muni leitast við að setja þang-
að inn einstaklinga sem hafa mögu-
leika til að hafa meira fmmkvæði,
hafa óskorað traust þjóðþinganna
og ríkisstjórnanna og jafnframt góð
tengsl við Evrópuþingið. Ég held
því að menn muni reyna að styrkja
framkvæmdastjórnina en samt um
leið að efla traust Evrópuþingsins á
henni.
Evrópusambandið þarf á því að
halda að framkvæmdastjórnin hafí
frumkvæði og sjálfstæði ef stærra
Evrópusamband á að geta orðið að
vemleika. Ég get tekið sem dæmi
að Evrópusambandið hefur verið að
reyna að skapa nýja sameiginlega
utanríkisstefnu sem feli í sér fmm-
kvæði og sjálfstæði framkvæmda-
stjórnarinnar. Það er mitt mat að
eins og oft áður þegar svona „krís-
ur“ koma upp geti ekkert annað
gerst en að framkvæmdastjórnin
styrkist frekar en veikist. Hún er
búin að liggja undir miklum ámæl-
um mánuðum saman og það hefur
verið staðfest að óeðlilega hefur
verið staðið að málum hjá einstök-
um meðlimum framkvæmdastjórn-
arinnar, sem ekki hafa verið tilbún-
ir að taka á sig ábyrgð. Niðurstað-
an er því sú að hún tekur öll á sig
ábyrgð,“ sagði Halldór.
kjarasamninga á næsta ári. Sam-
kvæmt verkáætlun Verkamanna-
sambandsins á undirbúningi að
kröfugerð sambandsins að ljúka í
maí næstkomandi. Á félagsfundum
Samstöðu var m.a. rætt um helstu
áhersluatriði sem félagsmenn vilja
leggja áherslu á í kröfugerð fyrir
næstu samninga.
Auk framangreindra atriða kom
fram á fundinum að áherslu bæri að
leggja á samræmingu greiðslna í líf-
eyrissjóði, dregið verði stórlega úr
tekjutengingu varðandi ýmsar bóta-
greiðslur og að samið verði til eins
árs í næstu samningum.
HEILBRIGÐIS- og tryggingaráð-
herra hefur ákveðið að láta fara
fram mat á félagslegri stöðu og
einangrun aldraðra og leiðum til
úrbóta ásamt því að skoða hvaða
hópar þurfí mest á aðstoð samfé-
lagsins að halda og á hvaða hátt
þeir verði best aðstoðaðir. Hefur
ríkisstjórnin samþykkt að semja
við Olaf Olafsson, fyn-verandi land-
lækni, um að taka saman þessar
upplýsingar.
I minnisblaði heilbrigðis- og
tryggingaráðherra af þessu tilefni
segir að gert sé ráð fyrir að heilsu-
far og þeir þættir sem einkenni
aldraða umfram aðra hópa verði
kannaðir sérstaklega, svo sem mik-
ii lyfjaneysla og ef til vill lítil al-
menn heilsuefling. Vinna þessi
muni að mestu byggjast á fyrir-
liggjandi gögnum og rannsóknum
ÚTGJÖLD Ti-yggingastofnunar
ríkisins vegna eftirlauna aldraðra
myndu aukast um 7,6 milljarða
króna á ári miðað við óbreyttan
fjölda eftirlaunaþega ef ályktun
landsfundar Sjálfstæðisflokksins
um afnám tekjutengingar lífeyris-
greiðslna almannatrygginga yrði
hrint í framkvæmd. Ef mið er tekið
af fjölgun lífeyrisþega, en þeim
tjölgar um í kringum 10% á ári, er
útgjaldaaukningin enn meiri.
I ályktun landsfundarins í þess-
um efnum segir meðal annars:
„Landsfundurinn samþykkir að af-
nema skuli tekjutengingu lífeyris-
greiðslna almannatrygginga til
þeirra sem hafa náð 67 ára aldri. í
stað grunnlífeyris, tekjutrygging-
ar, heimilisuppbótar og sérstakrar
heimilisuppbótar eigi sérhver ein-
staklingur rétt á tilteknum eftir-
launum á mánuði, sem ekki verði
skert með neinum hætti. Eftirlaun-
in samsvari a.m.k. framangreind-
um greiðslum óskertum og taki ár-
legum breytingum í samræmi við
verðlagsbreytingar."
Samanlögð upphæð grunnlífeyr-
og beinast að fjárhagslegum, fé-
lagslegum og læknisfræðilegum
þáttum sem varða hag aldraðra.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður
liggi fyrir í september næstkom-
andi.
Nauðsynlegt að fylgjast
með högum aldraðra
Þá hefur framkvæmdanefnd
vegna árs aldraðra 1999 undirbúið
gerð viðamikillar könnunar á líðan
og högum eldra fólks á íslandi.
Leitast verður við að taka á sem
flestum þáttum svo sem líkamlegri
og andlegri líðan, félagslegum
tengslum, þátttöku í félagsstarfi,
húsnæðismálum og tekjum.
Vegna þessa hefur verið gerður
samningur við Gallup um gerð
könnunarinnar og verður sendur
út viðamikill spurningalisti til 1.200
is, tekjutryggingar, heimilisupp-
bótar og sérstakrar heimilisupp-
bótar óskert er 65.268 kr. á mán-
uði.
24.500 ellilífeyrisþegar
Tæplega 24.500 ellilífeyrisþeg-
ar fengu greidd eftirlaun frá
Tryggingastofnun í febrúarmán-
uði síðastliðnum og miðað við að
þeir hefðu fengið þessa upphæð
óskerta hefðu útgjöld stofnunar-
innar vegna þessa í mánuðinum
numið um 1.600 milljónum króna
eða sem jafngildir tæpum 19,2
milljörðum kr. á ári. Vegna ým-
issa tekjuskerðinga til dæmis
vegna tekna úr lífeyrissjóðum
voru hins vegar greiddar 965
milljónir króna í febrúarmánuði
til þessara ellilífeyrisþega í eftir-
laun og myndu því útgjöldin
aukast um 7,6 milljarða kr. á árs-
grundvelli væru bæturnar óskert-
ar, samkvæmt upplýsingum Sæ-
mundar Stefánssonar hjá Trygg-
ingastofnun.
Hann bætti því við að þó bóta-
þegar Tryggingastofnunar 67 ára
manna úrtaks á aldrinum 65-80
ára.
Fyrsti samráðsfundur eldri
borgara og ríkisstjórnarinnar var
haldinn í gær. Olafur Ólafsson,
fyrrv. landlæknir, nýkjörinn for-
maður Félags eldri borgara, sagði
að góðar umræður hefðu orðið á
fundinum og gert væri ráð fyrir
frekari vinnu í framhaldinu á hög-
um aldraðra, sem hann myndi með-
al annars taka þátt í. Það væri
nauðsynlegt að fylgjast með hög-
um aldraðra og hann byndi vonir
við að sú vinna yrði ábatasöm.
Hann hefði unnið talsvert að þeim
málum í embætti landlæknis og
það mætti segja að þetta væri
framhald af þeirri vinnu. „Fundur-
inn fór vel í mig og mér sýnist að
framhaldið geti lofað góðu,“ sagði
Ólafur ennfremur.
og eldri væru tæplega 24.500 tals-
ins væru þeir um 3.500 fleiri sem
orðnir væru 67 ára og eldri. Þessir
aðilar væru annað hvort ennþá í
fullu starfi eða hefðu svo góðan líf-
eyrissjóð að þeir ættu ekki rétt á
neinum greiðslum fi’á Trygginga-
stofnun. Ef tillagan þýddi að allir
sem orðnir væru 67 ára og eldri
fengju eftirlaun sem þessu næmi
ykjust útgjöldin um 2,7 milljarða til
viðbótar á ári eða í rúma 10 millj-
arða kr. á ári.
Sæmundur benti einnig á að eft-
irlaunaþegum fjölgaði um í kring-
um 10% milli ára og mannfjölda-
spár gerðu ráð fyrir að hlutfall
aldraðra færi vaxandi. Það yrði enn
til að auka útgjöld vegna þessa, en
ekki væri tekið tillit til þess í fram-
angreindum tölum.
Olafur Ólafssoon, formaður Fé-
lags eldri borgara í Reykjavík,
sagðist aðspurður um ályktunina
ekki hafa haft tækifæri til þess að
kynna sér hana nægilega og grein-
argerðina með henni og gæti hann
þar af leiðandi ekki gefíð álit sitt á
henni.
Félagsfundir í stéttarfélaginu Samstöðu
Lágmarkslaun
verði 120 þúsund
Alyktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins
um eftirlaun til aldraðra
7,6 milljarða króna út-
gjaldaaukning á ári