Morgunblaðið - 17.03.1999, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Launasamanburður gerður á Eyjafjarðarsvæðinu og Reykjavík
Meðaltekjur bygginga-
manna nær 20% lægri nyrða
Morgunblaðið/Kristján
MEÐALTEKJUR á ársverk eru mun lægri á Akureyri en í Reykjavík og munar einna mest í byggingaiðnaði
þar sem hann er um 20%. Forsvarsmenn stéttarfélaganna segja fólk óánægt yfir þessum mikla launamun.
120
%
100
80
60
40
Meðaltekjur á ársverk á Akureyri sem
hlutfall af tekjum í Reykjavík árið 1996
Morgunblaðið/Kristján
Brúnin létt-
ist þegar
sólin skín
SÓLIN skein glatt. á Akureyringa
í gærdag og léttist því nokkuð á
þeim brúnin af þeim sökum, enda
þykir mörgum veturinn orðinn
æði langnr. Sjálfsagt er þar um
að kenna leiðindaveðri frá ára-
mótum, mikilli snjókomu og um-
hleypingum. Einn þeirra sem
gátu nýtt sér góða veðrið var
Pedro Riba, Iæknir á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, sem
naut sólarinnar á sundlaugar-
bakkanum.
-----------
Bókasafn Háskólans
á Akureyri
Sýning Ingi-
mars fram-
lengd
MÁLVERKASÝNING Ingimars
Olafsssonar Waage sem nú stend-
ur yfir í Bókasafni Háskólans á
Akureyri hefur verið framlengd til
næstu mánaðamóta. Ingólfur nam
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands, málaradeild, 1986 til 1990 og
í Lyon í Frakklandi 1990 til 1993.
Hann hefur haldið eina einkasýn-
ingu í Reykjavík og tekið þátt í
fjölda samsýninga bæði heima og
erlendis. Verkin á sýningunni
draga dám af áhuga Ingimars á
náttúru Islands, ekki síst þeirri
auðn sem ræður ríkjum á hálend-
inu.
MEÐALTEKJUR bygginga-
manna á Akureyri eru allt að 20%
lægri en þær eru hjá sambærileg-
um hópi í Reykjavík að því er fram
kemur í launakönnun sem Félag
byggingamanna í Eyjafirði lét gera
síðastliðið haust.
I skýrslu um stefnumótun í at-
vinnumálum fyrir Akureyri kemur
fram að atvinnulíf á Akureyri hafi
farið varhluta af sókn og nýsköpun
á undanfómum árum, en afleiðing-
ar slíkrar stöðnunar sjást greini-
lega þegar bornar eru saman upp-
lýsingar um þróun atvinnulífs og
fólksfjölgunar á Akureyri og
nokkrum sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu. I skýrslunni eru
meðaltekjur nokkurra atvinnu-
greina á ársverk á Akureyri sem
hlutfall af tekjum í Reykjavík árið
1996 skoðaðar og einungis sjómenn
eða þeir sem starfa við fiskveiðar
eru með hærri laun á Akureyri en
syðra og munar tæpum 12% sem
launin eru hærri fyrir norðan. I
öðrum atvinnugreinum eru launin
lægri fyrir norðan og munar frá 5
og upp í um 15%.
Spenna fyrir norðan en
launin samt mun lægri
Mestur var munurinn í bygg-
ingaiðnaði eða tæp 15% árið 1996.
Guðmundur Omar Guðmundsson,
formaður Félags byggingamanna í
Eyjafirði, sagði að munurinn hefði
heldur aukist, því í launakönnun
sem gerð var síðasta haust var
munurinn nær 20%. „Það hefur
verið þensla fyrir sunnan en einnig
hefur verið nokkur spenna á mark-
aðnum hér síðustu tvö ár. Samt
hefur okkur ekki tekist að halda í
við þá syðra,“ sagði Guðmundur og
benti á að þrátt íyrir þetta sé verð
á íbúðum ekki lægra á Akureyri en
höfuðborgarsvæðinu, svo hefði oft
verið, en annað væri uppi á ten-
ingnum nú.
Guðmundur nefndi að hluti af
skýringunni gæti legið í því að
nokkuð væri um afkastahvetjandi
launakerfi fyrir sunnan sem hugs-
anlega leiddi til betri afkasta á
móti betri launum. Nánast ekkert
væri um slík kerfi í byggingaiðnaði
á Akureyri. „Það hefur verið mikið
að gera í byggingaiðnaði síðustu ár
og fjölmörg stór verkefni framund-
an, þannig að það er nokkur
spenna og verktakar segjast selja
allar íbúðir sem þeir geta boðið
nánast strax. Oánægja iðnaðar-
manna með launamuninn er hins
vegar mikill og hún hefur leitt til
nokkurra átaka inni í íyrirtækjun-
um,“ sagði Guðmundur Ómar en í
kjölfar þessa hafa einhverjir verið
að hugsa sér til hreyfings, fara suð-
ur þar sem launin eiu hærri, „en
það er mjög slæmt ef launakjör
verða til þess að hrekja fólk frá
stöðum sem það vill búa á“.
Fólk er mjög pirrað
„Ég er mjög óánægð með þetta,“
sagði Jóna Steinbergsdóttir, for-
maður Félags verslunar- og skrif-
stofufólks, „og fólk er mjög pirrað
yfir þessu, en því miður höfum við
enga lausn á þessu.“ Það er meiri
atvinna í Reykjavík og því reyna
vinnuveitendur að halda í gott fólk
með því að bjóða hærri laun.“
Verslunarmenn á Akureyri höfðu
um 13% lægri meðaltekjur en
reykvískir verslunarmenn. Jóna
sagði að benda mætti á að leik-
skólagjöld væru hærri á Akureyri
sem og kyndingarkostnaður
þannig að afkoman væri þegar upp
er staðið verri. „Það er ekki furða
þó kergja sé í fólki,“ sagði Jóna.
Hún kvaðst hafa heyrt af verslun
sem setti upp útibú á Akureyri og
þar hefðu verið greidd lægi-i laun
fyrir sömu vinnu og í versluninni í |
Reykjavík. Því hefði verið svarað
til þegar spurt var hverju þetta ||
sætti, að Akureyri væri láglauna- I
svæði.
Þorsteinn Ai-nórsson, formaður
Iðju, tók í sama streng og Jóna og
sagðist vera verulega fúll yfir mikl-
um launamun, en starfsfólk í iðnaði
á Akureyi'i hafði um 12% lægri
meðaltekjur en fólk í sambærileg-
um störfum í Reykjavík. „Þenslan
er meiri fyrir sunnan og launin því §
hærri, en fyrst iðnaðurinn syðra |
þolir að greiða hærri laun hefði ól'
haldið að hann þyldi það einnig hér *
fyi-ir norðan,“ sagði Þorsteinn.
Geta má þess að laun fólks við
landbúnað voru um 12% lægri en í
Reykjavík, um 8% munur var hjá
fólki sem starfaði við samgöngur,
um 5% hjá bankafólki og fólki við
þjónustu, en minnstur var munui'-
inn í fiskvinnslunni, um 2%.
Franskar dragtir - Franskir kjólar
Franskar blússur - Frönsk pils
'IUk.uirexiLu.n Jyteínunnat
Hafnarstræti 97 - Akureyri - sími 462 2214
EINSTAKT TÆKIFÆRI í
MÝVATNSSVEIT
BY««»
BREKKIiUTN
Til sölu er veitingarekstur í eigin
húsnæði, teikningar og allar
upplýsingar á skrifstofu
SÍMAR 462 1744 0C 462 1820
Byggingafélögin Búmenn og Búseti ætla að byggja á Eyrarlandsholti í
Félagsmenn áhugasamir
BYGGINGAFÉLÖGIN Búmenn
og Búseti auglýstu nýlega eftir um-
sóknum félagsmanna sinna um
íbúðir sem félögin ætla að byggja á
Eyrarlandsholti á Akureyri. Alls
barst 41 umsókn, 21 frá félags-
mönnum Búseta og 20 frá félags-
mönnum Búmanna.
Heimir Ingimarsson hjá Búseta
sagði að félögin hafi fengið lóðir á
Eyrarlandsholti undir 17-20 íbúð-
ir. Hins vegar væri stefnt að því að
bjóða upp á samtals 30 íbúðir í par-
húsum, raðhúsum og tveggja hæða
fjölbýlishúsum.
Heimir sagði, varðandi þessa
fjölgun íbúða frá því sem gert
væri ráð fyrir í úthlutun bæjarins,
að stefnt væri að því að leysa það
mál á svæðinu en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um það að svo
stöddu.
Félögin hafa boðað til fundar í
vikunni, þar sem umsækjendur um
íbúðirnar, hönnuðir og forsvars-
menn félagana munu hittast og
ræða málin. „Hér er um mjög stórt
verkefni að ræða og við erum með
nokkuð nýja hugsun í þessu og vilj-
um leyfa fólki að hafa áhrif á málið
á hönnunarstigi.“
Leitað samninga
við verktaka
Heimir sagði umsóknarfjöldann
heldur meiri en hann átti von á og
eins hafi hann orðið var við áhuga
fólks sem þó ekki sendi inn um-
sóknir áður en umsóknarfrestur
rann út. Hann sagði stefnt að því
að hefja byggingarframkvæmdir
um leið og bærinn hefur afhent lóð-
irnar byggingarhæfar, eða um ,
miðjan júní nk. „Ég vonast til þess
að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar
8-10 mánuðum síðar og í kjölfarið p
verði 2-4 íbúðir afhentar á mán-
uði.“
Heimir sagði stefnt að því að
leita samninga við verktaka um
framkvæmdina en ekki væri ljóst
hvort einn eða fleiri verktakar
kæmu að verkinu. „Það hefur gef-
ist okkur vel að leita samninga við
verktaka og við erum ekki endilega |
tilbúin að vinna alla þá vinnu sem
útboð krefst. Það kostar líka mikla ;
peninga og óvíst að það skili þeirri P
hagkvæmni sem við erum að leita
eftir.“